Fleiri fréttir

Árni Johnsen: Sigmundur Ernir hefur bara ákveðinn stíl

„Ég fann ekkert athugavert við hann,“ segir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi en hann sat í þingsal og hlustaði á eldræðu Sigmundar Ernis Rúnarssonar á fimmtudagskvöldinu.

Leiðrétting: Þingflokksformaður ræddi sérstaklega við Sigmund

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ræddi sérstaklega við Sigmund Erni Rúnarsson eftir eldræðu mikla sem hann hélt á fimmtudagskvöldinu síðasta. Samtal þeirra var í einrúmi en tilefnið var sérkennilega framganga Sigmundar í sölum Alþingis á fimmtudagskvöldinu síðasta.

Hugsanlega lærbrotinn eftir vélhjólaslys

Fjórir einstaklingar voru fluttir á spítala eftir að vélhjól og bifreið lentu í árekstri á Korpúlfsstaðarvegi í Grafarvogi í kvöld. Atvikið átti sér stað á áttunda tímanum.

Magnús Ármann stendur í ströngu

Í nægu er að snúast hjá Magnúsi Ármann þessa daganna. Kaupþing hefur stefnt honum, sérstakur sakskóknari rannsakar meinta markaðsmisnotkun í viðskiptum sem félag í hans eigu átti auk þess sem ríkisskattstjóri rannsakar greiðslukortanotkun hans.

Hugsanlega í mál við útrásavíkinga og bankastjóra

Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að eigendur og stjórnendur gömlu bankanna verði meðal þeirra sem skaðabótamál verði höfðuð gegn, verði sýnt fram á að þeir hafi bakað ríkinu og almenningi tjóni með athöfnum sínum fyrir og eftir bankahrun.

Meintur mannræningi með 500 E-töflur

Maðurinn sem var dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa haft undir höndum tæplega 500 E-töflur var handtekinn fyrir stuttu vegna mannráns á Akureyri. Maðurinn heitir Eyþór Helgi Guðmundsson og er tuttugu og fimm ára gamall Akureyringur.

Mannleg mistök gerð við útkall á Herðubreið

Mannleg mistök voru gerð við útkall þegar maður varð bráðkvaddur á Herðubreið síðastliðinn laugardag, segir í tilkynningu frá Landsstjórn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Farið var út fyrir faglega vinnuferla og misbrestur varð í samskiptum þeirra sem að komu.

Játar ábyrgð á sprengjuhótuninni

Maðurinn sem var handtekinn í gær vegna sprengjuhótunar í Borgarholtsskóla hefur játað að hafa hringt í skólann með hótanir um að sprengju væri þar að finna. Hann er laus úr haldi lögreglu.

Stúdentar ræða við Svandísi um frekari niðurgreiðslu í strætó

Stúdentaráð Háskóla Íslands á í viðræðum við Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um frekari niðurgreiðslu á nemakortum í strætó. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu greiða niður hvert nemakort sem framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur.

Icesave afgreitt úr fjárlaganefnd

Icesave frumvarpið var afgreitt úr fjárlaganefnd rétt í þessu með stuðningi allra aðila nefndarinnar nema Höskuldar Þórhallssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Samkvæmt heimildum Vísis var samþykktur nýr fyrirvari við ríkisábyrgðina þess efnis að ríkisábyrgð tæki ekki gildi nema að Bretar og Hollendingar samþykktu þá efnahagslegu- og lögfræðilegu fyrirvara sem hefðu þegar verið gerðir.

Dæmdur fyrir vörslu á tæplega 500 E-töflum

Maður var á föstudag dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir vörslu á 487 E-töflum. Dómurinn var kveðinn upp í héraðsdómi Norðulands. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir þjófnað á rakspíraog dömuilmvatni, sem og fyrir vörslu á lítilræði af hassi.

Fíkniefnamálið er harmsaga

„Þetta er harmsaga sem vindur ofan á sig og það er verið að rembast við að vinda ofan af henni," segir Sigurður Hilmar Ólason. Hann fékk í gær tilkynningu frá Ríkissaksóknara um að fíkniefnamál gegn honum yrði látið niður falla. Sigurður var grunaður um að hafa staðið að innflutningi á umtalsverðu magni af amfetamíni til landsins og sat í gæsluvarðhaldi um þriggja vikna skeið í júní vegna þess.

Barði mann með flösku á Njálsgötu

26 ára karlmaður var í dag dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur, fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Maðurinn barði mann með flösku í höfuðið í fyrrasumar. Dómurinn er skilorðsbundinn.

Umferð mun þyngjast á höfuðborgarsvæðinu

Í ljósi þess að framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa eftir sumarleyfi má búast við að umferð þyngist á álagstímum. Eru ökumenn beðnir um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími, sérstaklega á morgnana milli klukkan átta og níu, kunni að lengjast frá því sem verið hefur. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram reynsla síðustu ára hafi sýnt að umferðaróhöppum fjölgi í september, samanborið við mánuðina þar á undan. Til mikils er því að vinna fyrir vegfarendur að aka varlega og þá sérstaklega næstu vikur þegar umferðin kemur til með að aukast mikið og nýir vegfarendur bætast í hópinn.

Lögreglan leitar að eiganda hálsmens

Forláta hálsmen er í vörslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem nú leitar eiganda þess. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 444-1000. Menið er hið glæsilegasta eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Tvö innbrot í Vínbúð á skömmum tíma

Innbrotið í Vínbúðina í Skeifunni í nótt er annað innbrotið í verslun Vínbúðanna á skömmum tíma. Í síðustu viku var brotist inn í verslun við Stekkjarbakka og þaðan stolið nokkrum áfengisflöskum, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur aðstoðarforstjóra Vínbúðanna.

Beaty átti „árangursríkan“ fund við Steingrím

Ross Beaty, forstjóri og aðaleigandi Magma Energy hitti Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra að máli í morgun. Beaty segir í samtali við fréttastofu að fundurinn hafi verið árangursríkur þó ekki hafi fengist klár niðurstaða. „Við skiptumst á skoðunum og hugmyndum en eigum eftir að ræða betur saman," segir Beaty.

Gleymdu að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu í Straum

Lögmannsstofa sem átti að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu í Straum fyrir lífeyrissjóðinn Stapa gleymdi að lýsa kröfunni fyrir þann frest sem gefinn var. Nú þarf að leita samþykkis annarra kröfuhafa til að unnt verði að endurheimta einhvern hluta þessarar kröfu, annars tapast fjárhæðin að öllu leyti.

Enn vantar um 70 starfsmenn á frístundaheimilin

Enn vantar um 70 manns til starfa á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar. Sótt hefur verið um vistun fyrir hátt í 2900 börn, en það eru öllu fleiri en fjárheimildir gera ráð fyrir en búist var við um 2100 börnum.

Yfirheyrður í hádeginu vegna sprengjuhótunarinnar

Maðurinn sem var handtekinn í gær vegna sprengjuhótunar í Borgarholtsskóla verður yfirheyrður nú í hádeginu. Hann er grunaður um að hafa hringt í skólann í gær með hótanir um að sprengju væri þar að finna. Skólinn var rýmdur á svipstundu en sprengjuleitarmenn Landhelgisgæslunnar fundu enga sprengju í skólanum, um gabb reynist að ræða.

Forsendur kannaðar fyrir málsókn á hendur sökudólgum bankahrunsins

Sérstakur starfshópur verður stofnaður á næstunni til þess að undirbúa hugsanleg skaðabótamál á hendur þeim sem sýnt þykir að valdið hafi ríki og almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum sínum í bankahruninu og aðdraganda þess. Tillaga þessa efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var í morgun.

Lokaumræðan um Icesave á morgun

Fjárlaganefnd Alþingis tókst ekki að ljúka umfjöllun sinni um fyrirvaranna við Icesave frumvarpið á fundi sínum í nótt en nefndin kemur saman á nýjan leik klukkan tvö. Þingflokkarnir funda áður um málið. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir að skapist sátt um afgreiðslu málsins í nefndinni verði málið af öllum líkindum tekið til lokaumræðu á morgun.

Stal peningum úr gjaldkerakassa í tvígang

Viðskiptavinur Íslandsbanka í Vestmannaeyjum hefur verið kærður fyrir að stela peningum úr kassa gjaldkera í tvígang. Fyrra brotið komst ekki upp fyrr en einstaklingurinn endurtók leikinn, þremur mánuðum síðar.

Fundu fíkniefni í Grafarholti

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Grafarholti eftir hádegi í gær. Um var að ræða um 1,5 kíló af hassi, ríflega 600 grömm af marijúana og kókaín í neysluskömmtum. Að sögn lögreglu voru tveir menn á þrítugsaldri handteknir og yfirheyrðir í tengslum við rannsókn málsins.

Framkvæmdastjóri þingflokksins yfirgefur Valhöll

Árni Helgason framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins er á förum úr Valhöll. Hann hefur ráðið sig til starfa hjá lögfræðistofunni JS-lögmenn og mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri þingflokksins um mánaðarmótin. Árni er lögfræðingur að mennt og hefur starfað fyrir þingflokkinn í rúm tvö ár, eða frá því í júní 2007.

Ákvörðun um risavaxið gagnaver tekin í september

Ákvörðun um hvort að risavaxið gagnaver rísi á Íslandi verður tekin í september. Framkvæmdir geta hafist innan við þremur mánuðum eftir undirritun samkomulags þess efnis en áður þurfa stjórnvöld að tryggja verkefninu orku. Þetta segir forsvarmaður fyrirtækis sem vill reisa gagnaver hér á landi sem samsvarar átta knattspyrnuvöllum að stærð.

Audi kominn í leitirnar - þjófarnir fá fundarlaunin

Audi bifreiðin sem lýst var eftir hér á Vísi í gærdag, er komin í leitirnar. Eigandi bifreiðarinnar hét fundarlaunum fyrir þann sem veitt gæti upplýsingar um bifreiðina. Eigandinn fór krókaleiðir til að finna bílinn.

Málið gegn Sigurði Óla látið niður falla

Ríkissaksóknari hefur látið falla niður mál gegn Sigurði Hilmari Ólasyni sem sat í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur í júní grunaður um umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins. Brynjar Níelsson, verjandi Sigurðar, segir að hann hafi fengið bréf frá Ríkissaksóknara þess efnis.

Stálu tveimur ginflöskum í Skeifunni

Tveir menn brutu rúðu í áfengisversluninni í Skeifunni rétt fyrir klukkan fjögur í nótt og fór annar þeirra inn í verslunina og stal þaðan tveimur ginflöskum.

Mokveiði á síldarmiðum

Mokveiði var á síldarmiðunum austur af landinu í nótt, Tvö skip, sem toguðu saman eitt troll, fengu 500 tonn á þremur klukkusutndum. Þrátt fyrir mikla síld á miðunum, hefur heldur dregð úr sókninni og er henni að verulegu leiti stýrt af afkastagetu vinnslunnar í landi, til þess að sem mest sé unnið til manneldis, en það gefur mest af sér í gjaldeyristekjur.

Stóðu bíljóf að verki

Lögreglan stóð bílþjóf að verki við Háaleitisbraut rétt fyrir klukkan sex í morgun, þar sem hann hafði brotist inn í bíl og var að reyna að tengja framhjá kveikjulásnum til að koma honum í gang.

Varðskip í vinnu hjá Ístak

Annað varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á heimleið frá Noregi eftir að hafa dregið tvo dýpkunarpramma til Sortlands í Norður Noregi fyrir verktakafyrirtækið Ístak. Ferðin gekk vel þrátt fyrir brælu í rúman sólarhring.

Sinnir störfum eftir föngum

Ólafur Ragnar Grímsson, Forseti Íslands, var útskrifaður af Landspítalanum á sunnu­daginn. Þar hafði hann verið frá því á miðvikudag.

Vilja ganga að ábyrgðum

Nýja Kaupþing hefur stefnt Kevin Gerald Stanford, Magnúsi Ármann og Þorsteini M. Jónssyni og mun krefjast þess að ábyrgðir vegna láns til félagsins Materia Invest ehf. falli á þá.

Ríkisins að tryggja að allir geti sótt sér grunnmenntun

Stjórnvöldum ber að sjá til þess að öll börn og unglingar hafi tök á að sækja sér grunnmenntun. Þetta segir Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, spurður út í fregnir þess efnis að foreldrar hafi ekki sent börn sín í skólann vegna þess að þeir hafi ekki efni á rit­föngum og námsbókum.

Ráðstöfunartekjur líklega vanmetnar

Raunverulegar ráðstöfunartekjur heimila eru líklega van­metnar í bráðabirgðamati Seðlabanka Íslands á fjárhagslegri stöðu heimilanna. Matið byggðist á staðgreiðslugögnum frá ríkisskattstjóra en ekki framtalsgögnum fólks. Ekki er því tekið tillit til vaxtabóta, barnabóta, meðlags og ýmissa verktakagreiðslna sem fólk kann að hafa.

Pör sem vilja ættleiða líða fyrir fjársvelti í góðærinu

Einfaldar breytingar á íslenskum reglum um ættleiðingar gætu aukið möguleika íslenskra hjóna á því að fá að ættleiða börn erlendis frá, segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar. Félagið skorar á dómsmálaráðherra að breyta reglunum sem fyrst.

Markaðurinn að komast á strik á ný

Skuldabréfavelta gærdagsins var hærri en verið hefur á einum degi síðan fyrir hrun. Heildarveltan var rétt rúmir 33 milljarðar en meðalvelta á dag á þessu ári hefur verið um 10 til 12 milljarðar. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að skuldabréfamarkaðurinn hafi verið að ná sér á strik á árinu og verið að eflast milli mánaða.

Lokað á Akranesi en ríkið kaupir danska framleiðslu

„Við horfum fram á ískaldan vetur og stjórnvöld verða án tafar að grípa til aðgerða til að örva byggingariðnaðinn“, segir Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Framleiðslu verður hætt 1. nóvember og fyrirtækið er í verulegum vandræðum ef ekki rætist úr.

Vilja baktryggja fyrirvara

Fjárlaganefnd fundaði tvisvar í gær um frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave. Nefndin bauð gestum á annan fundinn, lögmönnunum Þórhalli H. Þorvaldssyni og Þorsteini Einarssyni, en þeir rituðu grein um málið í Morgunblaðið í gær.

Grunnskólarnir fyllast af lífi

Grunnskólar landsins byrjuðu flestir vetrarstarf sitt í gær og alvaran tók við hjá um 45 þúsund krökkum um allt land. Um fjögur þúsund þeirra eru fimm og sex ára og komu í skólann sinn í fyrsta skipti.

Fannst látinn í Dalshrauni

Maðurinn sem fannst látinn í íbúð í Dalshrauni í Hafnarfirði fyrir viku hét Bragi Friðþjófsson. Bragi var 31 árs, fæddur 17. ágúst 1978, og búsettur að Sléttahrauni 28 í Hafnarfirði.

Sjá næstu 50 fréttir