Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundur fjárlaganefndar og InDefence gekk vel Fjárlaganefnd og fulltrúar InDefence hópsins funduðu í morgun um frumvarp vegna ríkisábyrgðar á Icesave. Gekk fundurinn vel að sögn Helga Áss Grétarssonar, eins forgöngumanna InDefence. Ásamt Helga sátu fundinn þeir Eiríkur Svavarsson, lögmaður, og Sigurður Hannesson, doktor í stærðfræði. Fundurinn stóð í einn og hálfan tíma. 7.7.2009 12:27
Neytendasamtökin gagnrýna siðlausa markaðssetningu bankanna Neytendasamtökin gagnrýna harðlega siðlausa markaðssetningu bankanna í góðærinu þar sem námsmenn voru jafnvel hvattir til að kaupa gallabuxur upp á krít. Þau segja umburðarlyndið sem Íslendingar sýndu bönkunum óskiljanlegt. 7.7.2009 12:09
Meira en 10500 fjárnámsbeiðnir í Reykjavík Rúmlega tíu þúsund og fimm hundruð fjárnámsbeiðnir hafa verið skráðar hjá Sýslumannsembættinu í Reykjavík það sem af er þessu ári - eða þúsund fleiri beiðnir miðað við sama tíma í fyrra. 7.7.2009 11:57
Á batavegi eftir bílslys Átta ára drengur sem varð fyrir bíl á Reykjanesbraut við Ásvelli um þrjúleytið í gær er enn sofandi í öndunarvél. Vakthafandi læknir á gjörgæsludeild Landspítalans segist þó telja að hann sé á batavegi. Líðan mannsins sem slasaðist þegar Cessna flugvél hrapaði fyrir helgi er óbreytt og er honum enn haldið sofandi í öndunarvél. 7.7.2009 11:40
Forseti Íslands ræddi hugsanlega ESB aðildarumsókn við forseta Litháens Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti í morgun, þriðjudaginn 7. júlí, fundi með Valdas Adamkus forseta Litháens og nýkjörnum forseta landsins, frú Dalia Grybauskaitë sem tekur við embætti næstkomandi sunnudag. 7.7.2009 11:16
NATÓ notar Eurovisionframlag Íslendinga Eurovisionframlag Íslendinga þetta árið, Is it True, í flutningi Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur hljómar undir í kynningarmyndbandi á heimasíðu Atlantshafsbandalagsins, NATÓ, um áhrif fjármálakreppunnar á öryggismál. Fullyrt er að Íslendingar hafi ekki kært sig um að vinna keppnina í þetta sinn. 7.7.2009 11:13
Orð stendur gegn orði um málaferli Hollendinga Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hafnar því alfarið að hafa farið með rangt mál þegar að hann skýrði frá því í gær að á fundi fjárlaganefndar Alþingis hefðu verið ræddar upplýsingar um að hollensk stjórnvöld myndu styðja við málaferli hollenskra innistæðueigenda. 7.7.2009 10:47
Fjármál frambjóðenda skoðuð aftur til 2006 Stjórnmálaflokkarnir munu á næstunni ganga frá samkomulagi sem felur í sér að þeir safni saman upplýsingum um fjármál frambjóðenda sinna aftur til ársins 2006. Samkvæmt heimildum fréttastofu felur samkomulagið jafnframt í sér að gerð verði úttekt á fjármálum flokkanna fyrir árin 2002 til 2007. 7.7.2009 10:20
Lögreglan: Þjónustuskerðing vegna niðurskurðar Snorri Magnússon, formaður Landssambands Lögreglumanna, segir þjónustuskerðingu blasa við hjá lögreglu nái útgjaldalækkun ríkisstjórnarinnar til löggæslumála fram að ganga. Snorri var gestur í Reykjavík síðdegis í gær. 7.7.2009 09:55
Bátur dreginn til hafnar Lítill fiskibátur fékk veiðarfærin í skrúfuna þegar hann var staddur út af Sauðanesi skammt frá Siglufirði í nótt. Einn maður var um borð og kallaði hann eftir aðstoð björgunarbáts Slysvarnafélagsins Landsbjargar á Siglufirði, sem dró hann til hafnar undir morgun. Gott veður var á svæðinu og var bátsverjinn því ekki í hættu.- 7.7.2009 09:13
Nýr kjarasamningur borgarinnar Fulltrúar Reykjavíkurborgar, starfsmannafélags borgarinnar og Eflingar undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi. 7.7.2009 08:11
Strandveiðileyfin streyma út Fjögur hundruð og fimm bátar eru búnir að fá leyfi til strandveiða, samkvæmt nýrri reglugerð sjávarútvegsráðherra og er heildarkvóti þeirra á þessu fiskveiðiári þegar að verða upp urinn á sumum svæðum. 7.7.2009 07:19
Átján ára á 178 km hraða á Reykjanesbraut Átján ára ökumaður var stöðvaður á Reykjanesbraut, skammt frá Grindavíkurafleggjara, á fimmta tímanum í nótt, eftir að lögregla hafði mælt bíl hans á 178 kílómetra hraða. 7.7.2009 07:13
Bráðamóttöku á Hringbraut lokað á næsta ári Framkvæmdastjórn Landspítalans hefur ákveðið að leggja niður bráðamóttökuna í spítalanum við Hringbraut frá og með 15. mars á næsta ári. 7.7.2009 07:09
Nóg að gera á Írskum dögum hjá lögreglunni Lögreglan á Akranesi sinnti 170 verkefnum á svonefndum Írskum dögum þar í bæ um helgina. Samkvæmt samantekt lögreglunnar er vitað um tíu líkamsárásir, þar af tvær mjög alvarlegar. 7.7.2009 07:05
Björgólfar vilja að Kaupþing afskrifi þrjá milljarða Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa gert Nýja Kaupþingi tilboð um að greiða fjörutíu til fimmtíu prósent af tæplega sex milljarða skuld þeirra feðga við bankann, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir feðgar vilja borga 500 milljónir af skuld sinni á þessu ári. Skuldin er upphaflega tilkomin vegna kaupa eignarhaldsfélags þeirra, Samsonar, á 45,8 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum árið 2003. 7.7.2009 06:00
Ætlar að hlaupa sjötíu kílómetra á dag Gunnlaugur Júlíusson, sem þessa dagana hleypur frá Reykjavík til Akureyrar, hóf annan dag hlaupsins snemma í gærmorgun. Hélt Gunnlaugur af stað frá Borgarnesi og var ætlunin að ná eins langt upp á Holtavörðuheiði og unnt væri. Gunnlaugur áætlar að hlaupa að jafnaði um sjötíu kílómetra á dag. 7.7.2009 05:30
Segja þóknun til MP 25 milljónum of háa Reykjavíkurborg samdi við MP banka um að borga fyrirtækinu 42,5 milljónir króna fyrir umsjón með fimm milljarða króna lántöku borgarinnar hjá lífeyrissjóðum þrátt fyrir að fyrirtækið Virðing hafi boðist til að vinna verkið fyrir aðeins 17,5 milljónir. Þetta fullyrða fulltrúar minnihlutans í borgarráði. 7.7.2009 05:15
Safnaðar skuldir sem vinna á upp Tíu af tólf stofnunum sem standa illa, samkvæmt nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar, heyra undir menntamálaráðuneytið. Laga þarf vandann strax samkvæmt skýrslunni. Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) er í verstri stöðu og er gert ráð fyrir 265 milljóna króna uppsöfnuðum halla í árslok, eða um 47,7 prósent af fjárheimild. 7.7.2009 05:00
Þvert yfir landið á fjórhjóli Jón Gunnar Benjamínsson ætlar að ferðast þvert yfir landið á fjórhjóli á næstunni. Jón Gunnar er lamaður fyrir neðan mitti og vill vekja athygli á því að fatlað fólk í hjólastólum hefur sama áhuga á ferðalögum og útivist og aðrir. Þá vill hann kanna aðgengi fatlaðra á ferðamannastöðum á hálendinu. Einnig verður áheitum safnað í tengslum við leiðangurinn til þess að safna fé til að bæta aðgengi fatlaðra í Landmannalaugum. 7.7.2009 04:30
Ríkið styrkir endurgreiðslur Forsætisráðuneytið hefur fallist á að leggja til 90 prósent af þeirri upphæð sem þarf að greiða vegna skila á byggingarlóðum í Hveragerði í kjölfar stóra jarðskjálftans í fyrravor. 7.7.2009 04:00
Starfsmenn SPRON eru utan kerfisins Þeir rúmlega 100 starfsmenn SPRON á uppsagnarfresti sem ekki fengu greidd laun 1. júlí síðastliðinn eiga hvorki rétt á atvinnuleysisbótum né greiðslu úr Ábyrgðarsjóði launa. 7.7.2009 03:30
Lönduðu 174 tonnum af laxi Veiði Met var slegið í laxveiði sumarið 2008 í íslenskum ám. Alls veiddust 84.124 laxar á stöng en af þeim var 17.178 sleppt aftur. Alls var þyngd landaðra laxa í stangveiði 174 tonn. Afli í stangveiðinni skiptist þannig að 60.980 voru smálaxar og 5.966 stórlaxar. Af þeim löxum sem sleppt var aftur voru 4.264 stórlaxar. 7.7.2009 03:00
Slökkvilið kvíðir umferðarþunga að HR Umferð um Bústaðaveg mun aukast töluvert þegar Háskólinn í Reykjavík tekur til starfa í Vatnsmýrinni. Um 2.500 nemendur og kennarar flytjast yfir í nýja húsnæðið um áramótin. Reynt verður að bjóða út Hlíðarfótinn, veginn frá Hringbraut að Hótel Loftleiðum, sem fyrst til að vinna bug á vandamálinu. 7.7.2009 02:30
Gjaldeyrisbrask gert refsivert Ólögleg viðskipti með gjaldeyri verða refsiverð innan skamms, samkvæmt frumvarpi sem viðskiptanefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar. Þegar gjaldeyrislögum var breytt eftir bankahrunið síðasta haust fórst fyrir að gera gjaldeyrisbrask refsivert, og er talið að nokkuð hafi verið um að óprúttnir aðilar hafi nýtt sér það. 7.7.2009 02:00
Vikuleiga fyrir hálfa milljón Þótt Ísland sé víða kynnt sem ódýrt ferðamannaland í efnahagskreppunni kostar það sitt. Til dæmis duga ráðstöfunartekjur venjulegra heimila í heilan mánuð varla til að leigja eins og einn skóda í viku til að fara hringinn. Vilji menn spreða, má leigja sér vikuafnot af Land Rover fyrir röska hálfa milljón. 6.7.2009 19:12
Meira en helmingur heimila stefnir í óviðráðanlega skuldabyrði Meira en helmingur íslenskra heimila stefnir í óviðráðanlega skuldabyrði segir stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna sem gagnrýnir Seðlabanka Íslands fyrir að gefa villandi mynd af skuldastöðu heimilanna. 6.7.2009 18:39
FME skoðar birtingu DV á lánabók Kaupþings Fjármálaeftirlitið hefur birtingu DV á upplýsingum úr lánabók Kaupþings til skoðunar. Þetta staðfestir Gunnar Andersen, forstjóri stofnunarinnar, sem sagðist að öðru leyti ekki vilja tjá sig um einstök mál. 6.7.2009 17:18
Tíu líkamsárásir á Akranesi um helgina Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á Akranesi um helgina, þegar Írskir dagar fóru þar fram. Tvær af árásunum teljast alvarlegar. Í öðru tilfellinu gengu þrír menn í skrokk á einum og köstuðu honum svo niður stiga. Í hinu tilfellinu var maður barinn í höfuðið með flösku. Í báðum tilfellum er vitað hverjir voru að verki og eru málin í rannsókn. 6.7.2009 17:13
Heppilegt að borgin kaupi Egilshöll „Við teljum jafnvel að það borgi sig að kaupa Egilshöll heldur en að leigja hana,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. Hann fullyrðir að langbest sé fyrir borgina að hún eigi húsnæði og reki fasteignafélag um reksturinn í stað þess að leigja það af einkaaðilum. 6.7.2009 16:57
Enn sofandi í öndunarvél Maðurinn sem komst lífs af í flugslysi nálægt Vopnafirði 2. júlí er enn haldið sofandi í öndunarvél. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu er ástand mannsins stöðugt. 6.7.2009 16:50
Hollensk stjórnvöld munu styðja málsókn innistæðueigenda „Það verður dómsmál út af neyðarlögunum og hollensk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau muni bakka upp slík málaferli af hálfu þarlendra innistæðueigenda," segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að þetta hafi komið fram á fundi fjárlaganefndar í morgun 6.7.2009 16:18
„Þetta er vonandi sjokk fyrir þjóðina“ Starfskona hjá Stígamótum vonar að ný rannsókn sem sýnir að tæplega fjórðungur kvenna á Íslandi hefur orðið fyrir kynferðislegu, líkamlegu eða andlegu ofbeldi af hálfu sambýlismanns veki þjóðina til umhugsunar. 6.7.2009 15:29
Hvalfjarðargöngum lokað eftir slys Hvalfjarðargöngunum hefur verið lokað vegna slyss við norðanmunna gangnanna. Ekkert er vitað um tildrög slyssins að svo stöddu. Að sögn lögreglunnar á Akranesi er einn slasaður, þó ekki sé vitað meira um ástand viðkomandi. Sjúkrabílar hafa verið sendir af stað frá Akranesi, að því er upplýsingar frá Speli, rekstraraðila gangnanna, herma. 6.7.2009 15:14
Fjárlaganefnd fundar með Indefence á morgun Fjárlaganefnd Alþingis ætlar að funda á morgun með Indefence hópnum og fleiri aðilum sem hafa verið gagnrýnir á Icesave samninginn. „Við ætlum að leggja okkur eftir því að fá inn ólík sjónarmið í umræðuna og fá þau inn strax," segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, í samtali við fréttastofu. 6.7.2009 14:35
Leki kom að bát í Skagafirði Allar björgunarsveitir í nágrenni við Sauðárkrók voru kallaðar út eftir hádegi þegar leki kom að bát sem staddur var um 2,5 sjómílum frá Drangey í Skagafirði. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er búið að koma manninum sem var um borð í bátnum til aðstoðar og er hann því ekki í hættu. Báturinn er kominn í tog. Frekari upplýsingar fengust ekki um málið. 6.7.2009 13:26
Hinir hækka: Olís varð af háum fjárhæðum Nú hafa Olís, ÓB og Atlantsolía hækkað verðið á bensínlítranum hjá sér um níu krónur. Shell reið á vaðið fyrir helgi og N1 fylgdi í kjölfarið í morgun með níu króna hækkun líkt og Vísir greindi frá. Hækkunina má rekja til þess að vörugjöld á alla nýja bensínfarma voru hækkuð í maí og kemur hún til framkvæmda nú þegar birgðir fyrirtækjanna eru á þrotum. 6.7.2009 13:10
Höfundur Íslenska efnahagsundursins útilokar ekki leiðréttingar Jón F. Thoroddsen, höfundur bókarinnar Íslenska efnahagsundrið, útilokar ekki að hann muni leiðrétta það sem Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra segir að sé missögn um sig í bókinni. 6.7.2009 12:43
Skuldastaða heimilanna er ógnvænleg Skuldastaða heimilanna er ógnvænleg og fer versnandi, segja Hagsmunasamtök heimilanna og krefjast þess að ríkisstjórnin láti útbúa hagspá heimilanna sem nái yfir sama tímabil og endurreisn ríkissjóðs. 6.7.2009 12:25
Obama og Medvedev funda um fækkun kjarnorkuvopna Búist er við að Barack Obama muni ná samningum við Rússa um fækkun kjarnorkuvopna á fundi með Dmitry Medvedev forseta Rússlands í dag. Barack Obama kom til Moskvu í morgun í sína fyrstu heimsókn til Rússlands. 6.7.2009 12:21
Fjórða hver kona beitt líkamlegu eða andlegu ofbeldi Tæplega fjórðungur kvenna á Íslandi hefur orðið fyrir kynferðislegu, líkamlegu eða andlegu ofbeldi af hálfu sambýlismanns samkvæmt nýrri rannsókn. Tæplega 3000 konur tóku þátt í rannsókninni. 6.7.2009 12:11
Ferðamönnum bent á ódýra hamfarasvæðið Ísland Eftir að sumra tók á norðurhveli jarðar hefur fjöldi erlendra fjölmiðla mært Ísland sem hagstæðan sumarleyfisstað. Ástæðan er auðvitað efnahagsþrengingar landsins, sem meðal annars hafa ollið hruni íslensku krónunnar. 6.7.2009 11:59
Laxveiðar í boði Orkuveitunnar hugsanlega endurskoðaðar Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir sjálfsagt að skoða hvort að laxveiði í boði fyrirtækisins í Elliðaánum eigi rétt á sér. Sjálfur hafi hann ekki þegið slíkt boð enn sem komið er. 6.7.2009 11:30
Karen Lind er fundin Karen Lind Sigurpálsdóttir, stúlkan sem saknað hefur verið frá því á fimmtudag, er fundin, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 6.7.2009 11:18
Lamdi barnsmóður sína í augsýn barnanna Maður var í dag dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir héraðsdómi Suðurlands, auk 300 þúsund króna skaðabótagreiðslu til barnsmóður sinnar fyrir líkamsárás, hótanir og brot gegn valdstjórninni. 6.7.2009 10:04