Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skattahækkun talin nauðsyn Ólíklegt er talið að eigendur fasteigna muni njóta fyrirsjáanlegrar lækkunar á fasteignamati nú um mánaðamótin. Sveitarstjórnarfólk kvíðir mikilli lækkun og líklegt er talið að þau sveitarfélög sem ekki hafa fullnýtta álagsprósentu hækki hana til að halda óbreyttum tekjum. 30.5.2009 05:30
Verði áminntur fyrir að segja ólykt af Lýsi Lögmaður Lýsis, Sigurbjörn Magnússon, krefst þess að skipulags- og byggingarfulltrúi Ölfuss dragi ummæli um fyrirtækið til baka eða verði áminntur ella. 30.5.2009 05:00
Spyr Jóhönnu um krónubréf Sigmundur Ernir Rúnarsson, Samfylkingu, hefur lagt fram fyrirspurn til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, þar sem farið er fram á nána útlistun á útgefnum krónubréfum. 30.5.2009 05:00
Lækkun vaxta fellir krónuna enn frekar Ekki eru aðstæður til að lækka vexti eða losa um gjaldeyrishöftin, sögðu fulltrúar AGS í gær. Umsókn að ESB myndi breyta efnahagsáætlun AGS hér á landi. Forgangsverkefni að koma fram með áætlun til að draga úr fjárlagahalla. 30.5.2009 04:45
Kæru Office 1 var vísað frá Kæru Samtaka verslunar- og þjónustu fyrir hönd Office 1 gegn Ríkiskaupum hefur verið vísað frá kærunefnd útboðsmála. 30.5.2009 04:30
Endurskoðun minnki hættu á misnotkun hryðjuverkalaga Ráðherrar og staðgenglar þeirra frá hinum 47 aðildarríkjum Evrópuráðsins luku tveggja daga fundi sínum í Reykjavík í gær með því að samþykkja aðgerðaáætlun sem nær til stefnumótunar samtakanna á sviði fjölmiðlunar og internetsins. 30.5.2009 04:30
Skjálftinn mældist 4,7 á richter - stöðugir eftirskjálftar Jarðskjálftinn, sem átti upptök sín um 8 kílómetra norðaustur af Grindavík, var af stærðinni 4,7 á richter, segir Gunnar Guðmundsson jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að skjálftinn hafi fundist víða, meðal annars í Borgarfirði. Skjálftinn varð klukkan 21:33. 29.5.2009 21:54
Á annað hundrað eftirskjálftar Gunnar B. Guðmundsson, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að á annað hundrað eftirskjálftar hafi fylgt jarðskjálftanum sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld norðaustur af Grindavík. Þeir stærstu hafa verið um 3 stig á richter en stóri skjálftinn var 4,7 stig. 29.5.2009 23:44
Íbúi í Grindavík: Hélt að um Suðurlandsskjálfta væri að ræða Sigmar Eðvarðsson, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir jarðskjálftann sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld hafa staðið í 4 til 5 sekúndur. Ár er liðið frá Suðurlandsskjálftanum og segir Sigmar að hann hafi í fyrstu talið að um annan slíkan skjálfta hafi verið ræða. Hann hafi ekki áttað sig ekki á því að upptök skjálftans væru í grennd við bæinn. 29.5.2009 22:55
Líklega um eðlilegar jarðskorpuhreyfingar að ræða Allstór jarðskjálfti varð á svæði um 11 kílómetra suðvestur af Hafnarfirði klukkan 21:33 í kvöld. Skjálftinn varð nánast undir Reykjanesbraut nálægt Kúgerði, segir Sigurður Þ. Ragnarsson jarðeðlisfræðingur. Fyrstu tölur bentu til að hann væri 3,9 á Richter en endurreiknaðar tölur Evrópsku jarðskjálftamiðstöðvarinnar benda til þess að hann hafi verið 4,8 á Richter og á um tveggja kílómetra dýpi, segir Sigurður. 29.5.2009 21:40
Lögreglu ekki borist tilkynningar um tjón Lögreglunni á Suðurnesjum hefur ekki borist neinar tilkynningar um tjón vegna jarðskjálftann sem varð klukkan hálf tíu í kvöld norðvestan af Grindavík. 29.5.2009 22:14
Mikil óvissa ríkir um framgang viðræðna Mikil óvissa ríkir um framgang viðræðna Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, að fram kemur á vef ASÍ. Í viðræðum samninganefndar ASÍ við fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í dag var tekist á um tímasetningar launahækkana í gildandi kjarasamningi. 29.5.2009 20:09
Telur að stjórnarflokkarnir styðji tillögu framsóknarmanna Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er bjartsýn á að stjórnarflokkarnir muni styðja frumvarp sem þingmenn flokksins lögðu fram á Alþingi í dag. 29.5.2009 20:00
Tryggt að hryðjuverkalögum verði ekki beitt í óskyldum málum Ráðherrar fjölmiðlamála hjá 47 ríkja Evrópuráðsins, þar á meðal Íslands, samþykktu einróma í dag ályktun um að ríki ráðsins skuli tryggja að hryðjuverkalögum sé ekki beitt í málum óskyldum hryðjuverkum eða til að hefta tjáningafrelsi. Ráðherrafundi Evrópuráðsins um fjölmiðla og nýmiðlun lauk í Reykjavík í dag. 29.5.2009 19:21
Eitt undarlegasta safn landsins er í Hólminum Mismunandi gruggugt vatn í glersúlum og veðurorð á gólfi eru einu sýningargripirnir í einu undarlegasta safni á Íslandi. Stykkishólmsbær fórnaði meira að segja bóksafninu á fegursta útsýnisstað bæjarins undir skringilegheitin. 29.5.2009 19:12
Hefðu ekki getað afstýrt árekstri Aðeins tilviljun réði því að ekki varð árekstur milli farþegaþotu Icelandair og svifvængsflugmanns yfir Bláfjöllum fyrr í mánuðinum, að sögn talsmanns rannsóknarnefndar flugslysa, en frumrannsókn er á lokastigi. 29.5.2009 18:48
Félög Jóns Ásgeirs og Björgólfsfeðga styrktu Samfylkinguna um tugi milljóna Félög tengd Jóni Ásgeir Jóhannessyni og feðgunum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni styrktu Samfylkinguna um ríflega fjörtíu milljónir króna á árinu 2006. 29.5.2009 18:48
Þýsk stjórnvöld hótuðu Íslendingum Þýsk stjórnvöld hótuðu að hafa áhrif á viðræður Íslands við Evrópusambandið og samninginn við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ef þýskir innstæðueigendur Kaupþing Edge fengju ekki greitt. 29.5.2009 18:36
Olíuskattar klúðruðu Drekaútboðinu Einn helsti sérfræðingur Noregs í olíumálum segir að dræm þátttaka í Drekaútboðinu hljóti að vera vonbrigði fyrir íslensk stjórnvöld og telur að fráhrindandi og illskiljanleg skattalöggjöf sé meginástæðan. Hann segir áformað vinnslugjald fáránlega hátt. 29.5.2009 18:35
Lögregla rannsakar andlát aldraðar konu á Hrafnistu Hrafnistuheimilin hafa tilkynnt Landlækni um lát 87 ára gamallar konu á Hrafnistu í Hafnarfirði og samkvæmt vinnuferlum óskað eftir lögreglurannsókn. Fram kemur í tilkynningu frá Hrafnistuheimilunum eru ekki uppi grunsemdir um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. 29.5.2009 17:56
Samfylkingin þáði 73 milljónir í styrki frá 25 aðilum árið 2006 Samfylkingin hefur aflað upplýsinga um fjáröflun einstakra aðildarfélaga hennar, kjördæmis- og sveitastjórnarráða árið 2006. Í tilkynningu frá flokknum segir að þessar fjáraflanir hafi að mestu farið fram í aðdraganda sveitastjórnarkosninga og komu til viðbótar fjáröflun Samfylkingarinnar á landsvísu á árinu 2006. 29.5.2009 16:34
Papeyjarsmyglið: Þrír áfram í gæsluvarðhaldi Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. júní og einn til 5. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír þeirra hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. 29.5.2009 16:24
Barðastrandaránið: Þriðja manninum sleppt Þriðja manninum sem handtekinn var í tengslum við hrottalegt rán á Seltjarnarnesi í vikunni hefur verið sleppt. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu átti maðurinn ekki beinan þátt í ráninu sjálfu en lögregla taldi hann búa yfir vitneskju sem þá vantaði. Eftir að maðurinn hafði veitt þær upplýsingar var honum sleppt. Hinir mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við ránið hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 3.júní. 29.5.2009 15:58
Fipaðist á hlaupabretti, fór í mál og tapaði Tryggingamiðstöðin var sýknuð af skaðabótaskyldu vegna óhapps sem varð í heilsuræktarstöðinni Hreyfigreiningu ehf árið 2006. Forsaga málsins er sú að kona á fimmtugsaldrinum mætti í heilsuræktina og bjóst þá við að finna einkaþjálfara sem myndi fara með henni í salinn. Ekki náðist samstundis í einkaþjálfarann vegna bilunar í tölvubúnaði. 29.5.2009 15:38
Hryðjuverkalög verði endurskoðuð reglulega Meðal helstu atriða í lokayfirlýsingu ráðherrafundar Evrópuráðsins sem haldinn var hér á landi í vikunni er hvatning fundarins til Evrópuríkja að þau skuli reglulega endurskoða lög sín um baráttu gegn hryðjuverkum og beitingu þeirra. „Þannig skuli koma í veg fyrir að þeim sé misbeitt í málefnum sem eru alls óskyld hryðjuverkum - til að mynda til að hefta tjáningarfrelsi eða halda upplýsingum leyndum,“ segir ennfremur. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd. 29.5.2009 15:24
Tilnefningar til Grímunnar 2009 Tilkynnt var um tilnefningar til Grímunnar 2009 kl. 15 í Borgarleikhúsinu og afhenti forseti Ísland hinum tilnefndur viðurkenningarskjal því til staðfestingar. Gríman verður veitt þann 16. júní samkvæmt venju. 29.5.2009 15:00
Kastaðist ekki út úr bílnum á Grindavíkurvegi Í frétt Stöðvar 2 og Vísis frá því í gær sem fjallaði um banaslys á Grindavíkurvegi var sagt að ökumaður annars bílsins hefði slasast talsvert þegar hann kastaðist út úr bílnum við áreksturinn, þar sem hann hafi ekki verið í öryggisbelti. Valdimar Leó Friðriksson framkvæmdarstjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir þetta ekki rétt. Hið rétta sé að báðir mennirnir hafi verið klipptir út úr bifreiðunum. 29.5.2009 14:39
Papeyjarsmyglið: Óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi Fíkniefnalögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir fjórum mönnum sem voru handteknir vegna Papeyjarsmyglsins svokallaða. Þeir hafa allir verið í varðhaldi frá því snemma í apríl en það rennur út í dag. 29.5.2009 14:35
Algjörlega fráleitt að verið sé að tefja Evrópumálið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins mælti fyrir tillögu stjórnarandsötðunar um mögulega umsókn um aðild að Evrópusambandinu í Alþingi í dag. Sagði hann meðal annars að algjörlega fráleitt væri að halda því fram að tillagan væri tilraun til þess að tefja málið líkt og haldið hefur verið fram. 29.5.2009 14:04
Lýsi vill refsa skipulagsfulltrúa Ölfuss Lýsi hf. hefur krafist þess að ummæli sem Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingafulltrúi Ölfuss, lét falla í viðtali við hádegisfréttir RÚV í apríl síðastliðnum verði dregin til baka og á þeim beðist afsökunar. Þá krefst fyrirtækið þess einnig að hann verði áminntur fyrir brot í starfi. 29.5.2009 13:43
Nýr aðstoðarmaður iðnaðarráðherra Arnar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Arnar hefur starfað í Hagfræðideild Landsbankans, hjá Fjárfestingarstofunni og Útflutningsráði Íslands, Aflvaka hf. atvinnuþróunarfélagi Reykjavíkur og sem upplýsingafulltrúi, ritstjóri og blaðamaður, m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands. 29.5.2009 12:43
Flugmaður tekinn með fölsuð vegabréf Landamæraeftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á þrjú fölsuð vegabréf sem fundust í fórum flugmanns. Maðurinn millilenti á Reykjavíkurflugvelli nýlega. Við leit kom í ljós að hann hafði undir höndum vegabréfin þrjú sem tilheyrðu greinilega ekki flugmanninum sjálfum. 29.5.2009 12:40
Lilja Mósesdóttir sat hjá við aðra umræðu Athygli vakti við Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, studdi ekki skattahækkanafrumvörp ríkisstjórnarinnar við aðra umræðu í gærkvöldi. Þetta gerði Lilja til að knýja á um að málið yrði ekki afgreitt án þess að upplýsingar lægju fyrir um áhrif hækkananna á ýmsa bótaflokka ríkissjóðs og varð þetta til þess að fulltrúar fjármálaráðuneytis voru ræstir út með hraði. 29.5.2009 12:22
Bensínlítrinn hækkar um 16 og fjörutíu Bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu hefur hækkað um 16 krónur og 40 aura frá því í gær, sem er líklega mesta bensínhækkun á einum sólarhring til þessa. 29.5.2009 12:19
Rauðvínið hækkar um 123 krónur - bjórinn um 18 Fimmtán prósenta áfengisgjaldið, sem samþykkt var á Alþingi í gærkvöldi, er innheimt við innflutning og er innifalið í innkaupsverði ÁTVR frá byrgjum. Vinsælt rauðvín í þriggja pela flösku hækkar um 123 krónur, vodka um 437 krónur, koníak um 467 og stór bjórdós um 18 krónur. 29.5.2009 12:11
Skattahækkanirnar stoppa lítið upp í fjárlagagatið Skattahækkanirnar sem Alþingi ákvað í gærkvöldi á bensín, áfengi og bíla eru aðeins einn fertugasti af því sem þarf til að loka risastóru fjárlagagatinu. 29.5.2009 12:09
Sakar bæjarfulltrúa um óheiðarleika Formaður Bæjarráðs Vestmannaeyja, Páley Borgþórsdóttir, segir í grein sem birtis á Eyjar.net, að hana blöskri óheiðarleiki oddvita V-listans. Ástæðan fyrir skrifum Páleyjar eru átök sem hafa verið innan bæjarstjórnar vegna mannaráðningar í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyjar. Þá var eiginmaður Páleyjar ráðinn sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar en einnig var faðir bæjarstjóra Vestmannaeyja, Elliða Vignissonar, ráðinn sem umsjónarmaður íþróttahússins. 29.5.2009 11:27
Faglegar ráðningar og stöður auglýstar Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra út í ráðningar í bönkunum og þeim fyrirtækjum sem ríkið hefur tekið yfir á undanförnum mánuðum í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í morgun. Spurði hann hvort stefnan væri að auglýsa stöðurnar. Menn voru léttir. 29.5.2009 11:10
Aftur kannabis í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gær. 29.5.2009 11:01
Flanagan: Þið standið undir skuldunum Mark Flanagan, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, lagði áherslu á það á blaðamannafundi á Kjarvalsstöðum í dag að Íslendingar geti staðið undir skuldabyrði hins opinbera. Flanagan sagði að margir hefðu spurt sig að þessu á meðan á heimsókn hans hefur staðið síðustu daga en að hann sé sé þeirrar skoðunnar að landið geti staðið undir skuldunum. 29.5.2009 10:47
Endurskoðun efnahagsáætlunar „nær lokið“ Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undir stjórn Mark Flanagans hefur í samstarfi við íslensk stjórnvöld nær lokið fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda vegna lánafyrirgreiðslu sjóðsins. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að sendinefndin hafi einnig átt fundi með þingmönnum, aðilum vinnumarkaðarins, háskólasamfélaginu og ýmsum hagsmunaaðilum til þess að kynna sér þróun íslensks efnahagslífs og framtíðarhorfur. 29.5.2009 10:17
Ákvörðun um gæsluvarðhald í dag Það ræðst í dag hvort lögregla krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þriðja manninum sem handtekinn var í gær vegna innbrots á heimili manns á Seltjarnarnesi fyrr í vikunni, en hinir tveir eru nú báðir í gæsluvarðhaldi. 29.5.2009 07:08
Haldið sofandi eftir slys Fimmtán ára stúlku, sem varð fyrir bíl á Breiðholtsbraut síðdegis í gær, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Að sögn lækna er hún alvarlega slösuð. 29.5.2009 07:04
Áfengi hækkar ekki í verði í dag Töluvert annríki var undir kvöld í þeim verslunum ÁTVR sem opnar eru lengst eftir að greint var frá frumvarpi um hækkanir á áfengisgjaldi í gær. Ekki var þó nein ástæða til að hamstra vínið enda mun áfengisverð ekki hækka í dag, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR. 29.5.2009 06:00
Rannsóknin tíu mánaða spretthlaup Þeir tíu mánuðir sem rannsóknarnefnd Alþingis fékk til að ljúka rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna eru hálfnaðir. Formaður nefndarinnar segir vinnuna minna á tíu mánaða spretthlaup. 29.5.2009 06:00