Fleiri fréttir

Segir öryggi sjómanna stefnt í hættu

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að það valdi miklum vonbrigðum að heyra af uppsögnum innan Landhelgisgæslunnar en stofnunin er að hans mati ein af meginstoðum í öryggisneti þjóðarinnar, sérstaklega þegar hugað sé að öryggi sjómanna. Hann segir að ríkisstjórnin hafi misst sjónar af því hvað skipti mestu máli hvað megi bíða.

Jeppi út í sjó

Ökumaður missti stjórn á jeppa sínum í hálku á Geirsnefi í mynni Elliðaánna í Reykjavík laust fyrir klukkan ellelfu í morgun, með þeim afleiðingum að biíllinn hafnaði úti í sjó og tók að sökkva.

Sigmundur í svart-hvítu héðan í frá

„Í mjög einföldu máli þá gerði ég þennan einblöðung en það var ódýrara prenta þetta svona í stað þess að notast við litaprentara," segir frambjóðandinn og fyrrum fréttamaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson, en DV sagði frá því í dag að hann hefði verið áminntur fyrir að brjóta reglur Samfylkingarinnar um prófkjör.

Tilkynnt um úrslit í forvali VG í kvöld

Til stóð að tilkynna um úrslit í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi í gærkvöldi en vegna lélegra póstsamgangna verður það gert í kvöld, að sögn Drífu Snædals framkvæmdastýru VG.

Rýmingu aflétt á Vestfjörðum

Rýmingu hefur verið aflétt í Bolungarvík og á Ísafirði og mega íbúar snúa til heimila sinna. Rýmingin nær til þéttbýlis og bæja í dreifbýli. Enn er þó viðbúnaðarstig á norðanverðum Vestfjörðum og Veðurstofan og lögreglan fylgjast vel með gangi mála, að fram kemur í tilkynningu frá Kristínu Völundardóttur sýslumanni á Ísafirði.

Geir, Ingibjörg og Steingrímur oftast í fréttum

Þeir einstaklingar, sem oftast var minnst á í fréttum í fyrra, voru í réttri röð; Geir Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Björgvin G. Sigurðsson, Guðni Ágústsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ólafur F. Magnússon, Árni Mathiesen og Össur Skarphéðinsson.

Borgin fjölgar sumarstörfum um 400

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að verja 96 milljónum króna aukalega til að standa undir 400 sumarstörfum til viðbótar við þau 4.100 sem fyrirhuguð voru. Af þeim verða 2.900 hjá Vinnuskóla Reykjavíkur og afgangurinn á fagsviðum borgarinnar, við sumarafleysingar.

Þrír teknir með fíkniefni í Hveragerði

Þrír menn voru handteknir í Hveragerði um miðnætti, eftir að fíkniefni fundust í fórum þeirra. Þegar þeir sáu til lögreglunnar reyndu þeir að aka á bak við iðnaðarhús, til að fela sig.

Óveðri á Vestfjörðum slotaði undir miðnætti

Óveðrinu á Vestfjörðum slotaði undir miðnætti og á sjötta tímanum í morgun hófu vegagerðarmenn snjómokstur á Óshlíð og Súðavíkurhlíð. Á báðum leiðunum hafa þó nokkur snjóflóð fallið. Bæjarstarfsmenn á Ísafirði og í Bolungarvík hófu líka mokstur innanbæjar en víða hefur snjór safnast í mikla skafla og þæfingur er á öllum götum.

Fimm innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt

Brotist var inn í tvö fyrirtæki, einn skóla og tvo bíla á höfuðborgarsvæðinu frá miðnætti og fram til klukkan sex í morgun. Alls staðar var verðmætum stolið og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum.

Byltingarforingi blæs til tónleika

Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason, sem síðustu mánuðina hefur verið þekktastur fyrir að fara fyrir svokallaðri Búsáhaldarbyltingu sem hlaust af bankahruninu, blæs til árlegra Kertaljósatónleika í Borgarleikhúsinu þann 10. mars næstkomandi.

Framsóknarþingmaður: Stendur ekki á okkur

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að ekki standi á Framsóknarflokknum við afgreiðslu á frumvörpum og þingsályktunum ríkisstjórnarinnar á Alþingi. Þannig svarar hún orðum Birgis Ármannssonar

Óshlíð enn lokuð

Enn er lokað um Flateyrarveg, Súðavíkurhlíð og Óshlíð vegna snjóflóða, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Jóhanna segir að fullu staðið við samkomulag gagnvart framsókn

Forsætisráðherra segir að það hafi komið á óvart að Framsóknarmenn vilji loka Alþingi sex vikum fyrir kosningar, án þess að gefa nauðsynlegan tíma til afgreiðslu fjölda mála sem ríkisstjórnin hafi afgreitt til þings um aðgerðir fyrir heimili og fyrirtæki í landinu.

Íbúar fá ekki að snúa heim í kvöld

Aftakaveður hefur verið á norðanverðum Vestfjörðum síðan í gærkvöldi og hafa hús verið rýmd þar sem hætta er á snjóflóðum. Íbúar hosanna sem hafa verið rýmd fá ekki að snúa aftur heim fyrr en í fyrsta lagi á morgun.

Aðeins níu mál tengd hagsmunum atvinnulífs og heimila

Ríkisstjórnin hefur einungis lagt fram 16 mál á þingi af þeim 30 frumvörpum og þingsályktunartillögum sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér frá því hún tók við völdum í lok janúar, segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórnin lagði, á blaðamannafundi í morgun, fram lista yfir þau þingmál sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér frá því hún tók við völdum í lok janúar.

Á fimmta þúsund manns ráðnir til sumarstarfa hjá Borginni

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði á fundi borgarstjórnar fyrr í dag að Reykjavíkurborg myndi ráða yfir 4.100 einstaklinga í ýmis konar sumarstörf í sumar. Flestir eða um 2.900 verða ráðnir til tímabundinna starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur. Ríflega 840 verða ráðnir til afleysinga á

Keilir skilar góðri afkomu

Fram kom á aðalfundi Keilis, miðstöðvar vísinda fræða og atvinnulífs, sem haldinn var á gamla varnarsvæðinu á Vallarheiði fyrr í dag að heildartekjur félagsins umfram heildargjöld voru rúmlega 200 milljónir. Á fundinum lét Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun þess af störfum.

Ítrekaði fyrri beiðni um afsögn Óskars

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, ítrekaði á fundi borgarstjórnar í dag kröfu sína um að Óskar Bergsson, borgarfullrúi Framsóknarflokksins, segi af sér og upplýsi um hagsmunatengsl sín við byggingarverktaka og aðra hagsmunaaðila.

Árekstur við álverið í Straumsvík

Árekstur tveggja bifreiða varð á Reykjanesbraut til móts við álverið í Straumsvík á fimmta tímanum. Tveir sjúkrabílar auk tækabíls frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru á staðnum og munu tveir hafa slasast í árekstrinum. Veginum hefur ekki verið lokað en fólk er beðið um að aka varlega hjá slysstaðnum.

Framsóknarboð Óskars enn til umræðu

Umdeild móttaka sem Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hélt fyrir rúmlega 30 flokksystkini sín á kostnað borgarinnar í nóvember var til umræðu á fundi borgarstjórnar í dag.

Byr vill að þingmaður dragi orð sín til baka

Byr sparisjóður hefur skorað á Atla Gíslason alþingismann að hann dragi til baka ummæli sem hann lét falla um sjóðinn í Silfri Egils í síðustu viku. Í tilkynningu frá Byr segir að Atli hafi borið sparisjóðinn alvarlegum sökum í umræddum sjónvarpsþætti. „Enginn fótur er fyrir þeim, nema alþingismaðurinn ætli að kalla arðgreiðslur til um 1.500 stofnfjáreigenda Byrs skattsvik, eða önnur ólögleg eða siðlaus undanskot á fjármunum," segir í tilkynningunni.

Borgarahreyfingin kynnir helstu stefnumál

Borgarahreyfingin kynnir stefnu sína, markmið og tilgang á fundi með blaðamönnum á morgun. Borgarahreyfingin er pólitísk hreyfing sem á sitt bakland í fjölmörgum hreyfingum sem sprottið hafa upp í kjölfar efnahagshrunsins, að fram kemur í tilkynningu.

Ákærður fyrir ítrekaðar mútutilraunir

Veitingahúsaeigandinn Andrés Pétur Rúnarsson hefur verið ákærður fyrir ölvunarakstur án þess að hafa ökuleyfi auk þess sem hann reyndi ítrekað að bera fé á lögregluþjóna gegn því að þeir myndu láta málið niður falla. Fyrir vikið er Andrés einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni.

Hátæknisjúkrahúsi verði slegið á frest

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja fresta byggingu nýs hátæknisjúkrahúss á Landspítalalóð. Við bankahrunið í haust hafi aðstæður Íslendinga gjörbreyst og mikil skuldsetning ríkisins kalli á endurmat einstakra verkefna.

Ákærður fyrir að lemja gamlan mann og ræna

Ríkissaksóknari þingfesti ákæru yfir Gytis Keplas í morgun en hann er ákærður fyrir að lemja og ræna sjötugan karlmann í slagtogi við óþekktan karlmann. Árásin átti sér stað um miðjanótt á Laugaveginum í október síðastliðnum.

Dómsmálaráðherra skipar nefnd um skipan dómara

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna nefnd er vinni að því að móta tillögur um setningu nýrra reglna um skipan dómara, í samræmi við verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að nefndin sé skipuð þeim Guðrúnu Erlendsdóttur, fv. hæstaréttardómara, sem verður formaður hennar.

Þingmenn keppast um að biðjast afsökunar

Tekist var á um ábyrgð á bankahruninu á Alþingi og kepptust þingmenn um að biðjast afsökunar. Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, hóf umræðuna og þakkaði Ástu Möller, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, fyrir afsökunarbeiðni hennar en hún sagðist í gær eiga sinn þátt í því andvaraleysi sem þingmenn þjóðarinnar hafa gert sig seka um á seinustu árum gagnvart þróun efnahagsmála í landinu. Sjálfur sagðist Mörður ekki hafa verið nægjanlega gagnrýnin á forystumenn Samfylkingarinnar og baðst afsökunar á því.

Bæir rýmdir - enn hætta á Vestfjörðum

Ekki hefur dregið úr vindi og ofankomu á norðanverðum Vestfjörðum og hefur nú verið ákveðið að rýma sveitabæi á svæðinu. ,,Ég hélt að aðgerðum okkar væri lokið en nú eru að bætast við þessir sveitabæir," segir Kristín Völundardóttir lögreglustjóri en embætti hennar hefur fengið beiðni frá Veðurstofunni um rýmingu á eftirfarandi bæjum:

Enn er hætta á sjóflóðum á Vestfjörðum

Vegna snjóflóða og snjóflóðahættu eru vegirnir um Súðavíkurhlíð, Óshlíð og á Eyrarhlíð enn lokaðir. Ekkert ferðaveður er og er fólk beðið um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þetta kemur fram i tilkynningu frá Vegagerðinni. Veður fer versnandi á norðanverðum Vestfjörðum og er mokstur víðast hvar í biðstöðu.

Hafa skilað ársreikningum fyrir 2007

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa skilað ársreikningum sínum fyrir árið 2007 til Ríkisendurskoðunar. Nú hafa allir flokkar skilað inn reikningum og verða upplýsingar úr þeim birtar opinberlega að öllum líkindum síðar í mánuðinum.

Ekkert ferðaveður í Skagafirðinum

Ekkert ferðaveður er nú í Skagafiriðinum og er Vegagerðin hætt snjómokstri. Þverárfjall er ófært og lokað og lögreglan á Sauðárkróki vill koma því á framfæri við fólk að það sé ekki á ferð um Skagafjörðinn að óþörfu.

Fordæmi fyrir að útlendingur sé settur í embætti

Þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, setti erlendan ríkisborgara sem embættismann árið 1994. Það var presturinn Carlos A. Ferrer sem gegndi embætti sóknarprests á Fáskrúðsfirði í fjóra mánðuði á meðan hann var enn erlendur ríkisborgari.

FME verndi uppljóstrara

Fjármálaeftirlitinu verður heimilt ef nýtt frumvarp viðskiptaráðherra verður samþykkt að lækka eða fella niður sektir og falla frá kæru á hendur fólki sem afhendir eftirlitinu gögn eða veitir því upplýsingar sem gætu varpað ljósi á bankahrunið og lögbrot á fjármálamarkaði.

Stjórnarflokkarnir gangi bundnir til kosninga

Vilji er fyrir því innan beggja stjórnarflokkanna að þeir gangi bundnir til kosninga og stefni á að halda samstarfinu áfram eftir kosningar, án fulltingis Framsóknarflokksins.

Nafn mannsins sem lést í slysinu á Akrafjallsvegi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi við Akrafjallsveg skammt frá Akranesi á sunnudagskvöld hét Ragnar Ólafsson. Hann var fæddur árið 1963 og bjó í Reykjavík. Ragnar lætur eftir sig unnustu.

Opnað fyrir vefframtöl einstaklinga

Skattaframtalsgerð einstakinga hófst nú um mánaðarmótin og hefur embætti ríkisskattstjóra opnað fyrir vefframtöl einstaklinga. Almennur skilafrestur er til 23. mars.

Tónlistarhúsið umfram Gæsluna

Sjómannafélag Íslands lýsir furðu sinni á því að halda eigi áfram smíði tónlistarhúss fyrir fimmtán milljarða á sama tíma sé Landhelgisgæsla Íslands hálflömuð vegna fjárskorts.

Atvinnusvæði rýmt á Ísafirði

Veðurstofan í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum hefur lýst yfir hættustigi á Ísafirði vegna reits 9 (Grænigarður og Netagerðin) og er rýming í gangi. Á svæðinu er atvinnustarfsemi og hefur lögreglan þegar haft samband og er starfsfólk á leið úr vinnu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýslumanninum á Ísafirði.

Konum fjölgar meðal skólastjóra

Haustið 2007 voru konur í fyrsta skipti í meirihluta meðal skólastjóra. Haustið 2008 hefur konum meðal skólastjóra fjölgað enn frekar og eru nú 54,8% skólastjóra. Eina starfsstéttin innan grunnskólans þar sem karlar eru í meirihluta eru húsverðir. Þetta kemur fram í gagnasöfnun Hagstofu Íslands sem safnar upplýsingum um starfsfólk í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert.

Sjá næstu 50 fréttir