Fleiri fréttir

Ingibjörgu þakkað fyrir störf í þágu jafnaðarstefnunnar

Ungir jafnaðarmenn senda Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sínar allra bestu og hlýjustu kveðjur fyrir störf í þágu jafnaðarstefnunnar. Í tilkynningu frá félaginu segir að Ingibjörg hafi hvergi dregið af sér í fjölda ára og framlag hennar til íslensks samfélags sé ómetanlegt. Hún hafi sameinað félagshyggjufólk við stjórn Reykjavíkurborgar við að gjörbreyta þar stjórnarháttum og innleitt fagleg vinnubrögð í áður úreltu og gamaldags bittlingakerfi.

Björn: Stjórnlagaþing kostar allt að 1,5 milljarð

Björn Bjarnason segir að frumvarp til stjórnarskipunarlaga sé skrýtið frumvarp því það geri ráð fyrir breytingum á stjórnarskránni en boði jafnframt til stjórnlagaþings sem eigi að gera ennfrekari breytingar á stjórnarskránni. Björn segir í pistli á heimasíðu sinni að kostnaður við stjórnlagaþing geta numið allt að 1,5 milljarði króna.

Raforku Sunnlendinga ekki hleypt til Suðurnesja

Sveitarfélagið Ölfus hefur óvænt sett áform um Helguvíkurálver í uppnám og leggst nú alfarið gegn því að háspennulína verði lögð frá Hellisheiðarvirkjun til Suðurnesja. Sveitarfélagið vill frekar að orkan verði notuð til uppbyggingar í Þorlákshöfn.

Joly: Brandari að fjórir starfi við rannsókn á bankahruninu

Það er brandari að einungis fjórir starfsmenn séu við störf hjá embætti sérstaks saksóknara efnahagshrunsins, segir Eva Joly, einn fremsti rannsakandi efnahagsbrota okkar tíma. Hún hefur verið ráðin til að aðstoða ríkistjórnina við rannsókn á hruninu.

Geir stendur við svarið um Icesave

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, stendur við svar sem hann gaf Alþingi um Icesave reikningana. Siv Friðleifsdóttir spurði hann hvort hann hefði vitað um tilboð breska fjármálaeftirlitsins um að Icesave reikningar yrðu færðir í breska lögsögu gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu.

Frændur storma inn á tryggingamarkaðinn

Stærsta tryggingafélag Færeyja lýsti þeim áformum sínum í dag að komast inn á íslenska tryggingamarkaðinn fyrir áramót. Færeyingarnir vilja helst kaupa eitt þriggja stærstu tryggingafélaga landsins en takist það ekki segjast þeir staðráðnir í að hefja eigin starfsemi hérlendis.

Íbúa varð ekki meint af eldinum

Slökkviliðsmenn voru í mikilli hættu þegar gaskútar sprungu í eldsvoða sem varð í Síðumúla í dag. Eldurinn kom upp þegar verið var að leggja tjörudúk á þak hússins. Íbúa á efstu hæð varð ekki meint af eldinum.

Starfar algjörlega einn og óháður

Að marggefnu tilefni vill Hörður Torfason taka fram að allt starf hans við mótmælin á Austurvelli í vetur hafi verið ólaunað og sjálfsprottin. Hann starfar einn og óháður sem listamaður með þá fullvissu að sýna verði jafnt veraldlegum sem andlegum yfirvöldum strangt aðhald.

Yfirtakan á Straumi hefur ekki áhrif á Íbúðalánasjóð

Yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi í gær hefur ekki áhrif á fjárhagslega stöðu Íbúðalánasjóðs. Laust fé sjóðsins hefur einvörðungu verið ávaxtað á innlendum innlánsreikningum og með ríkisverðbréfum frá hruni bankanna í október síðastliðnum, að fram kemur í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Þorsteinn stýrir viðræðum við kröfuhafa gömlu bankanna

Þorsteinn Þorsteinsson, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjór við Norræna fjárfestingarbankann, hefur verið ráðin til að leiða samningaviðræður milli nýju bankana sem stofnaðir voru eftir hrun gömlu bankanna og kröfuhafa þeirra.

Átta stútar teknir um helgina

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, tveir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Fjórir voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn Hafnarfirði og Mosfellsbæ.

Gassprenging á þakinu - Myndband

Gríðarleg gassprenging varð á þaki hússins við Síðumúla 34 en töluvert af gaskútum eru á þakinu samkvæmt vettvangsstjóra slökkviliðsins. Þegar slökkviðið kom fyrst á vettvang fyrir um klukkustund síðan þá var fólk á þaki hússins. Þeim var öllum bjargað niður af þakinu með körfubíl.

Stórbruni í Síðumúla 34 - Bein útsending

Mikill eldur braust út í Síðumúla 34 í Reykjavík. Slökkviliðið sendi allt tiltækt lið á vettvang. Í húsinu eru meðal annars fyrirtækin Ferskar kjötvörur, Adagio hárstofa og Mótorsport.

Segir NTC borið röngum sökum

Svava Johansen eigandi tískukeðjunnar NTC segir að eigendur E-Label beri fyrirtæki sitt röngum sökum þegar því hefur verið haldið fram að NTC hafi látið stoppa framleiðslu E-Label.

Ábyrgir foreldrar kæra Blátt áfram

Félag ábyrgra foreldra á Akureyri hafa lagt inn kæru til sýslumanns á Akureyri á hendur forsvarmanni Blátt áfram, Sigríði Björnsdóttur, þar sem hún er sökum um lögbrot við fjársöfnun. Að auki kærir félagið Önnu Hermínu Gunnarsdóttur fyrir sama brot, en hún er ótengd Blátt áfram.

Heimilt að taka út séreignasparnaðinn

Frumvarp um útgreiðslu séreignarsparnaðar var samþykkt á Alþingi í dag með 44 samhljóða atkvæðum. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fólk geti tekið út í áföngum séreignasparnað sinn, að hámarki einni milljón króna.

Kaupir bækur af sjálfum sér fyrir stuðningsaðila Barnaspítalans

Góðgerðarfélagið Stoð og styrkur hefur undanfarið hringt í einstaklinga og beðið um fjárframlög fyrir Barnaspítala Hringsins. Söfnunin er ekki á vegum Hringsins heldur er gerð í samráði við stjórnendur Barnaspítalans. Karl Helgason forsvarsmaður góðgerðarfélagsins segist hafa unnið í sjálfboðavinnu fyrir félagið frá árinu 1998. Þeir sem leggja hærri upphæð en 2.500 krónur í söfnunina fá bók sem þakklætisvott. Góðgerðarfélagið kaupir bækurnar af Bókaútgáfu Æskunnar, sem er að hluta til í eigu Karls Helgasonar.

Kjartan Ólafsson: Vill selja listaverk bankanna

Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, vill að listaverkasafnið sem nýverið komst í hendur ríkisins þegar bankarnir hrundu, verði selt. Í áskorun til forsætisráðherra segir hann að á þessum þrengingatímum þurfi Íslendingar að leita allra skynsamlegra leiða til að afla fjármagns svo ríkisvaldið geti komið til bjargar fólki og fyrirtækjum í landinu. „Nægir þar ekki að horfa eingöngu til hefðbundinna tekjustofna heldur verðum við jafnframt að leita nýrra leiða,“ segir þingmaðurinn.

Dæmdur fyrir hnífstungu: Útilokar ekki að stinga litaðan mann aftur

Hinn átján ára gamli Ari Dagur Sigurðsson var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að stinga mann í bakið í verslun 10-11 á nýársdag. Ari stakk mann ef erlendum uppruna vegna orðaskipta en í dómsorði hélt Ari því fram að maðurinn hefði verið með ógnandi tilburði. Þá hafi Ari lagt til hans með hnífnum.

Eva Joly kölluð til hjálpar

Eva Joly, sem kölluð hefur verið einn fremsti rannsakandi efnahagsbrota í heiminum, hefur verið ráðinn sérstakur ráðgjafi ríkisstjórnarinnar. Joly, sem gat sér gott orð í ELF málinu í Frakklandi á sínum tíma, mun veita ríkisstjórninni og þeim aðilum sem rannsaka aðdraganda bankahrunsins ráðgjöf á komandi misserum.

Brunabíla-Ragnar dæmdur til að greiða fimm milljónir

Fyrrum skemmtistaðaeigandinn Ragnar Magnússon, stundum kallaður Brunabílaragnar, var dæmdur, ásamt konu, bróður og föður, til þess að greiða Ölgerð Egils Skallagrímssonar fimm milljónir vegna ógreiddra reikninga.

Íslenskt skip á sjóræningjaslóðum

Fiskiskipið Skinney SF, sem er á leið frá Taiwan til Hornafjarðar, mun næstu þrjá sólarhringana sigla í herskipavernd meðfram ströndum Sómalíu, þar sem sjóræningjar hafa herjað á skip síðustu misserin.

Dræm þátttaka í VR kosningum

Aðeins um fimmtungur félagsmanna í VR hefur tekið þátt í kosningum um formann, stjórn og trúnaðarráð félagsins.Kosningunum lýkur á hádegi á morgun.

Össur: Jón Magnússon leiðir Sjálfstæðisflokkinn

Össur gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega í bloggfærslu sem hann birtir á Eyjan.is en þar segir hann að Jón Magnússon, fyrrum þingmaður Frjálslynda flokksins, nú Sjálfstæðisflokksins, leiði málþóf á lágu plani. Og það sem meira er; flokkinn sjálfan.

Vísbendingar um að brennisteinninn skemmi mosann

Vísbendingar eru um að brennisteinsvetni eigi þátt í þeim mosaskemmdum sem orðið hefur vart við í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar. Þetta kemur fram í rannsókn sem Orkuveitan lét framkvæma en hún leiddi í ljós að ekki er unnt að fullyrða með óyggjandi hætti að brennisteinsvetni sé að drepa mosa næst Hellisheiðarvirkjun.

Haukur Björnsson hættur hjá Eskju

Haukur Björnsson, sem hefur starfað hjá Eskju á Eskifirði í 35 ár, þar af sem framkvæmdastjóri í fjögur ár, hefur látið af störfum.

Ræningja enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manns, sem framdi vopnað rán í söluturni í Seljahverfi í Reykjavík um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Hann ógnaði afgreiðslustúlku með hnífi og komst undan með nokkra fjármuni, en vann stúlkunni ekki mein.

Nældi sér í buxur í kvenfataverslun

Brotist var inn í kvenfataverslun í Mörkinni í Reykjavík í nótt og þaðan stolið nokkrum kvenbuxum og skúffum úr sjóðsvélum, með skiptimynt í. Þjófurinn braut sér leið inn í verslunina með því að brjóta rúðu með gangstéttarhellu.

Stjórnarandstaðan sökuð um málþóf

Til snarpra orðaskipta kom hvað eftir annað á Alþingi í gærkvöldi við þriðju og síðustu umræðu um frumvarp um útgreiðslu á séreignarsparnaði, sem stóð fram yfir miðnætti.

Urðu óvænt að ólöglegum innflytjendum

Hópur Letta og Eista af slavneskum uppruna fékk fyrir misskilning réttindi á Íslandi á við þegna á EES-svæðinu. Sumir voru búnir að koma börnum sínum í skóla þegar upp komst um misskilninginn og þeim var gert að fara úr landi.

Krefur Fréttablaðið um 5 milljónir

Björk Eiðsdóttir, blaðamaður á Vikunni, hefur hótað ritstjórum Fréttablaðsins málshöfðun vegna ummæla um hana sem birtust í Fréttablaðinu 6. mars síðastliðinn. Ummælin voru höfð beint eftir Ásgeiri Davíðssyni, eiganda nektardansstaðarins Goldfinger. Björk krefst fimm milljóna króna í miskabætur, ella fari hún í mál.

Lögmæti Portus-kaupa kannað

Fjárlaganefnd Alþingis ákvað í gær að fá álit Ríkisendur-skoðunar á því hvort yfirtaka Austurhafnar á framkvæmdum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík samræmist lögum. Er sjónum beint að fjárreiðulögum og tilteknum heimildum í fjárlögum.

Mikið tilstand við að leiðrétta frétt

Talsvert tilstand varð í íslensku stjórnsýslunni eftir að viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson forseta birtist í þýska Financial Times 10. febrúar. Fyrirsögn viðtalsins var á þá leið að innstæður Þjóðverja hjá Kaupþingi væru glataðar og var haft eftir Ólafi að þar sem Íslendingar hefðu tapað öllu væri ekki hægt að bjóða þeim upp á að þurfa að borga tap þýskra sparifjáreigenda.

Telja að kröfuhafar hafi verið blekktir

Lögmenn Glitnis og Íslandsbanka halda því fram að Baugur Group hafi meðvitað reynt að blekkja kröfuhafa í tengslum við greiðslustöðvun. Algerlega staðlausir stafir, segir lögmaður Baugs. Misskilningur, segir fjármálastjóri félagsins.

Straumur gagnrýnir FME

Heimildir innan Straums gagnrýna framgöngu Fjármálaeftirlitsins við yfirtöku bankans. FME og fjármálaráðherra segja Straum bjaga atburðarásina. „Það setur að mér ugg“, segir stjórnarformaður FME.

Efnahagsbrotadeild fær gögn

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er heimilt, samkvæmt dómi Hæstaréttar, að fá gögn um sölu fjögurra flugvéla, sem áður voru í eigu eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf. Félagið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Vikið af vegi sáttar við lagabreytingar

Grundvallarlögum er breytt án þverpólitískrar sáttar. Rík hefð er fyrir samstöðu um breytingar á stjórnarskrá og lögum um Seðlabankann og kosningar.

Skorar á aðra frambjóðendur

Tryggvi Þór Herbertsson, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur birt upplýsingar um fjárhagsleg tengsl sín, og skorar á aðra stjórnmálamenn að gera slíkt hið sama.

Lifa bara fyrir náð og miskun

„Við erum undir náð og miskunn opinberra aðila komnir, við getum ekki þrætt fyrir það,“ segir Agnar Hansson, bankastjóri Sparisjóðbankans. Bankinn átti 150 milljarða króna kröfur í föllnu bönkunum. Kröfuhöfum á Sparisjóðabankann var í febrúar kynnt áætlun um niðurfellingu skulda, lengingu lána og breytingu krafna í hlutafé. Bankinn hefur einu greiðslumiðlunargáttina við útlönd fyrir utan Seðlabankann.

Byrjað að yfirheyra embættismenn

Rannsóknarnefnd um bankahrunið hefur hafið skýrslutökur af lykilmönnum úr stjórnsýslunni til að afla sér upplýsinga um orsakir og aðdraganda hrunsins. Verkið er seinunnið, segir formaðurinn Páll Hreinsson.

Jóhanna býst við lækkun í næstu viku

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gerir ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir í næstu viku en næsti vaxtaákvörðunardagur er fimmtudaginn 19. mars.

Eftirfararbúnaður ólöglegur

Íslenska ríkið hefur verið dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni 250 þúsund krónur í miskabætur vegna eftirfararbúnaðar lögreglu sem maðurinn fann undir bíl sínum í nóvember 2007. Maðurinn hafði krafist tíu milljóna úr ríkiskassanum.

Björgólfur tapar 39 milljörðum

Hluthafar Straums tapa langmestu af ríkisvæðingu bankans í gær eða um 17,7 milljörðum króna. Óvissa er um kröfur lánadrottna, sem flestir eru erlendir. Líklegt er að þeir fái upp í kröfur sínar nema eignir fari á brunaútsölu.

Sjá næstu 50 fréttir