Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn sveik ítrekað gefin loforð Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar segir að forysta Sjálfstæðisflokksins hafi ítrekað gefið loforð um uppstokkun í Seðlabankanum en svikið öll fyrirheit þar af lútandi annað hvort vegna þess að þeir höfðu ekki til þess pólitískan vilja eða afl. 1.2.2009 12:18
Óttast ákvarðanafælni nýrrar ríkisstjórnar Árni Mathiesen fjármálaráðherra segist ekki hafa verið ákvarðanfælinn fjármálaráðherra. Bæði Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Daníelsson dósent sögðu í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að fráfarandi ríkisstjórn hefði forðast að taka ákvarðanir sem lýsti sér í því að lítið hefði gerst síðan bankarnir hrundu. Árni sagði ljóst að veikindi Ingibjargar Sólrúnar hefðu spilað þar stórt hlutverk og Samfylkingin hefði meðal annars tafið fjárlagagerð. 1.2.2009 12:12
Opið í Bláfjöllum og Skálafelli Opið verður á Skíðasvæðunum í Bláfjöllum og Skálafelli til klukkan 17:00 í dag. Frábært færi er í fjöllunum en Skálafell er að opna í fyrsta sinn á þessum vetri. Vegna snjóleysis efst er þó ekki hægt að opna stólalyftu þar. 1.2.2009 10:54
Bein útsending frá Bessastöðum Hádegisfréttir verða á Stöð 2 og Bylgjunni í dag. Vanalega eru fréttir einungis sendar út í útvarpinu en þær verða einnig á Stöð 2 í dag. Í fréttatímanum mun Heimir Már Pétursson fréttamaður vera í beinni útsendingu frá Bessastöðum þar sem formaður Samfylkingarinnar hittir forsetann á fundi. 1.2.2009 10:27
Stærsti stjórnmálaflokkur landsins Vinstri hreyfingin - grænt framboð sem nú er á leið í ríkisstjórn er stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup sem Ríkisútvarpið sagði frá í gærkvöldi. Um 30% þjóðarinnar fylgja Vinstri grænum að málum á meðan 24% kjósenda styðja Sjálfstæðisflokkinn sem fer út úr ríkisstjórn í dag. 1.2.2009 10:25
Kommúnistar að ná völdum í skjóli Framsóknarflokksins Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjálslynda flokksins segir að baráttan sé hafin. Í pistli á heimasíðu sinni segir Magnús að kommúnistar séu að ná völdum hér á landi í skjóli hins veikgeðja Framsóknarflokks sem alltaf sé reiðubúinn til að selja hugsjónir og hagsmuni íslensku þjóðarinnar fyrir völd, bitlinga og vegtyllur til handa eigin flokksgæðingum. 1.2.2009 09:40
Ný ríkisstjórn formlega kynnt klukkan 16:00 í dag Ný ríkisstjórn tekur að öllum líkindum við völdum á Bessastöðum seinnipartinn í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar sem fer með stjórnarmyndunarumboðið, gengur á fund Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands klukkan tólf á hádegi. Þar mun hún gera honum grein fyrir að flokkur hennar og Vinstri grænir hafi náð saman um ríkisstjórn sem Framsóknarflokkurinn muni verja falli. 1.2.2009 09:28
Rændu debetkorti af fatlaðri konu Um klukkan ellefu í gærkvöldi var framið rán í Hafnarfirði er par hrinti til fatlaðri konu er var að reyna að taka fé úr hraðbanka og stal af henni debetkorti hennar og hljóp á brott . Atvikið náðist á eftirlitsmyndavélar bankans. 1.2.2009 09:24
Eldur í húsnæði Vídeoheima í Grafarvogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eld í húsnæði Vídeóheima í Gylfaflöt í Grafarvogi rétt fyrir klukkan hálf þrjú í nótt. Í tilkynningu frá lögreglu segir að svo virðist sem sem bruninn hafi komuð upp í skrifstofuhúsnæði á annari hæð hússins. Talsverðar skemmdir af völdum hita og reyks, engann sakaði. Eldsupptök ókunn. Tæknideild LRH fer með rannsókn málsins. 1.2.2009 09:13
Nýja ríkisstjórnin í beinni á Stöð 2 og Vísi Bein útsending verður frá Hótel Borg klukkan 16:00 í dag þar sem minnihlutastjórn Samfylkinar og Vinstri grænna verður kynnt fyrir þjóðinni. Þar má gera ráð fyrir því að farið verði yfir aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar og ráðherralistinn kynntur. 1.2.2009 12:50
Vann 16 milljónir í lottó Einn lottóspilari var með allar tölurnar réttar í útdrættinum í kvöld og hlaut hann tæpar 16 milljón krónur í vinning. Hann keypti miðann í Fjarðarkaupum við Hólshraun í Hafnarfirði. Fjórir spilarar voru með fjórar réttar tölur og bónustölu og hlýtur hver um sig rúmlega 70 þúsund krónur. 31.1.2009 21:23
Opna miðstöð vegna efnahagsástandsins Miðstöð, þar sem aðstoð verður veitt í samræmi við neyðarvarnaskipulag Rauða krossins, verður sett á laggirnar á næstu vikum til að bregðast við þörf sem hefur skapast í samfélaginu í kjölfar efnahagsástandsins. Boðið verður upp á sálrænan stuðning, ráðgjöf og námskeið til að takast á við breyttar aðstæður fólks í landinu. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Rauða krossins í gærkvöldi. 31.1.2009 17:27
Nýjast úr þinghúsinu: Framsókn fundar aftur eftir hlé Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins funda nú með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar í félagsmálaráðuneytinu, eftir að Framsóknarmenn sátu á tveggja og hálfs tíma þingflokksfundir þar sem farið var yfir stöðu mála eftir atburði dagsins. 31.1.2009 17:10
Á annað þúsund á sigurhátíð á Aursturvelli Talið er að vel á annað þúsund manns hafi mætt á fund Radda fólksins á Austurvelli í dag, en þetta er sautjándi laugardagurinn í röð sem samtökin boða þar til fundar. 31.1.2009 16:59
Segist ekki hafa beitt klækjastjórnmálum Skúli Helgason framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar hafnar því að hafa beitt klækjastjórnmálum í gær líkt og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins gaf í skyn fyrr í dag. Þá sagði Sigmundur að aðra en Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon hafa farið fram úr sér þegar kynna átti opinberlega tillögur væntanlegrar ríkisstjórnar. 31.1.2009 16:28
Segir klækjastjórnmálum hafa verið beitt í gær Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddi við fréttamenn eftir að hlé var gert á þingflokksfundi Framsóknarmanna í þinghúsinu fyrir stundu. Þar sagði hann lítið standa útaf borðinu en hann var á leið á fund með Steingrími J. Sigfússyni. Sá fundur stóð þó stutt yfir en þeir tveir fóru síðan yfir í félagsmálaráðuneytið að hitta Jóhönnu Sigurðardóttur. Þeir bjuggust við að sá fundur stæði einnig stutt yfir þar sem aðeins þyrfti að ræða nokkrar útfærslur á efnahagsmálunum. Sigmundur sagði að klækjastjórnmálum hefði verið beitt í gær. 31.1.2009 15:22
Fleiri í framboð hjá framsókn Hallur Magnússon framkvæmdarstjóri Spesíu, ráðgjafafyrirtækis, hefur ákveðið að bjóða sig fram í eitt af efstu sætum Framsóknarflokksins í öðru hvoru kjördæminu. Hann segir fjölmarga hafa komið til sín undanfarið og hvatt sig til þess að fara fram. 31.1.2009 15:02
Framsóknarmenn gera hlé á fundi sínum Þingflokkur Framsóknarflokksins gerði hlé á fundi sínum fyrir stundu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins fer nú á fund Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. 31.1.2009 14:37
Ego verður N1 Þessa dagana er verið að breyta útliti á 7 mannlausum eldsneytisstöðvum sem hingað til hafa verið reknar undir nafni Egó. Allar þessar stöðvar munu bera merki N1 og verða hluti af þjónustuframboði N1 til bíleigenda. 31.1.2009 14:20
Tæp þrjátíu ár frá síðustu minnihlutastjórn Tæp 30 ár eru síðan minnihlutastjórn hélt síðast um stjórnartauma íslenska ríkisins. Afar sjaldgæft er að menn komi sér saman um minnihlutastjórn á Íslandi, eins og þá sem nú er í burðarliðnum. 31.1.2009 13:01
Framsókn hagar sér eins og þriðji ríkisstjórnarflokkurinn Framsóknarflokkurinn lætur eins og hann sé þriðji ríkisstjórnarflokkurinn, þótt hlutverk hans sé aðeins að verja verðandi ríkisstjórn falli, segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Hann telur þó að Samfylking og Vinstri grænir hafi farið framúr sér í gær þegar skipulögð var kynning á nýrri ríkisstjórn á Austurvelli án nægilegs samráðs við Framsóknarflokkinn. 31.1.2009 12:56
Guðmundur Steingrímsson fær mótframboð Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna í Skagafirði, sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu þar sem hann sækist eftir fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Því er ljóst að Guðmundur Steingrímsson sem sækist eftir fyrsta sætinu í þessu sama kjördæmi hefur fengið mótframboð. Þetta kemur fram á fréttavefnum Feyki. 31.1.2009 12:28
Ný ríkisstjórn líklega mynduð á morgun Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon ræddu við fréttamenn í þinghúsinu fyrir stundu eftir fundi með sínum þingflokkum. Þau sögðu vel hafa verið tekið í verkáætluna væntanlegrar ríkisstjórnar, en stefnt er að því að koma á starfhæfari ríkisstjórn fyrir mánudag. Ráðherralistar liggja ekki fyrir. 31.1.2009 12:19
Dýrmætum tíma sóað í tilraunastarfsemi Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ekkert útilokað í því að flokkur hans komi að borðinu ef minnihlutastjórn Samfylkingar og VG með stuðningi Framsóknar gengur ekki upp. Hann segir ferlið sem fór í gang eftir að ríkisstjórnin sprakk hafa verið ólánlegt og síðasta vika hafi verið sóun á tíma. Bjarni er meðal gesta í þættinum Vikulokin á Rás 1. 31.1.2009 11:36
Magnús gefur ekki kost á sér áfram Magnús Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvestur kjördæmi hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs í komandi alþingiskosningum. Magnús var fyrst kosinn á þing fyrir fjórtán árum og hefur meðal annars gegnt ráðherraembætti. Guðmundur Steingrímsson sem nýlega gekk í flokkinn hefur lýst því yfir að hann stefni á fyrsta sætið í kjördæmi Magnúsar. 31.1.2009 11:31
Mótmælt í Mývatnssveit Mótmælafundur verðuk haldinn á Hallarflöt í Dimmuborgum í Mývatnssveit klukkan 15:00 í dag. 31.1.2009 10:33
Þingflokkar Samfylkingar og VG funda Fundi Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar í þinghúsinu lauk rétt fyrir klukkan 10:00 í morgun. Þá hófust þingflokksfundir hjá Samfylkingu og Vinstri grænum. Reiknað er með að fréttamenn fái að heyra í leiðtogum hinnar nýju riíkisstjórnar að loknum þeim fundum. 31.1.2009 10:18
Davíð vildi ekki hætta Geir H. Haarde fráfarandi forsætisráðherra bað Davíð Oddsson fyrir áramót að láta af störfum sem seðlabankastjóri. Davíð hafnaði því, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2. 31.1.2009 10:00
Boða til sigurhátíðar á Austurvelli í dag Raddir fólksins halda sinn sautjánda mótmælafund klukkan 15:00 á Austurvelli í dag. Í tilkynningu frá samtökunum er boðað til sigurhátíðar að þessu sinni þó enn eigi eftir að skipta út stjórn Seðlabanka Íslands. 31.1.2009 09:53
Þrjú útköll hjá slökkviliðinu í nótt Það var óvenju rólegt hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt og voru fáir á ferli í miðborg Reykjavíkur. Tveir gista fangageymslur vegna ölvunar og mun það, að sögn lögreglu, ekki sæta tíðindum. 31.1.2009 09:46
Kallaður óvænt á fund í þinghúsinu Hópur fjögurra hagfræðinga sat fram á nótt við að útfæra tillögur Framsóknarmanna fyrir verðandi ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, en enn er töluverð vinna eftir í þeirri útfærslu, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins. 31.1.2009 09:36
Steingrímur og Jóhanna funda Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherraefni væntanlegrar ríkisstjórnar og Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna komu saman til fundar upp úr klukkan níu í morgun, til að ræða stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna. 31.1.2009 09:32
Skíðasvæðin fyrir norðan opin Skíðasvæðin í Hliðarfjalli og Tindastóli verða opin til klukkan 16:00 í dag. Klukkan 8:00 í morgun var snjónkoma og norðan 6 m/s og mínust 3 gráður í Hlíðarfjalli. 31.1.2009 09:26
Flokkstjórnarfundi Samfylkingar frestað Flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem átti að hefjast klukkan 11:00 í morgun hefur verið frestað þar til annað kemur í ljós. Flokksfélagar eru beðnir að fylgjast með. 31.1.2009 09:17
Minnihlutinn segist geta stýrt Enginn starfandi meirihluti er í bæjarstjórn Blönduóss eftir að leiðir Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur og hinna þriggja bæjarfulltrúa E-listans skildi á fimmtudag. Ágúst Þór Bragason, annar tveggja bæjarfulltrúa 31.1.2009 07:00
Afleitt að loka stöðinni í Breiðholti „Mér finnst afleitt að flytja hverfalögregluna úr Breiðholti,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn. „Þar og í Árbæ þjónar hún 40 þúsund íbúum og hefur náð afburðaárangri. Þarna er horfið mörg ár aftur í tímann.“ 31.1.2009 06:00
Hatrið stjórnaði Samfylkingunni Geir H. Haarde gerði upp stjórnarsamstarfið á fundi Sjálfstæðisflokksins í gær. 31.1.2009 06:00
Eldur í ruslatunnu á Hverfisgötu Eldur kom upp í ruslatunnu við Hverfisgötu 49 í Reykjavík um níuleytið í kvöld. Að sögn slökkviliðsins voru lögreglumenn í nágrenninu þegar að eldurinn kom upp og drógu þeir tunnuna hæfilega langt frá húsinu þannig að engin hætta væri á að eldurinn myndi breiðast í það. Eldurinn í tunnunni var svo slökktur. 30.1.2009 22:43
Viða hálka eða hálkublettir á landinu Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á flestum leiðum á Suðurlandi, þó er þæfingur í Grafningnum og nokkrum öðrum útvegum. Þungfært er á Krísuvíkurvegi, Ísólfsskálavegi og Bláfjallavegi sunnan Bláfjalla. 30.1.2009 20:30
Sigmundur: Ætlum ekki að afhenda óútfylltan tékka Það vantaði upp á raunhæfar leiðir til að hrinda í framkvæmd þeim hugmyndum sem þegar eru komnar fram, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Það er samstaða um markmiðin þetta snýst um leiðirnar," segir Sigmundur. 30.1.2009 17:27
Engin ríkisstjórn fyrr en eftir helgi Þingflokksfundi Framsóknarflokksins sem haldinn var í Alþingishúsinu í dag er lokið. Þingmenn sem komið hafa út af fundinum hafa ekkert viljað tjá sig við fréttamenn og vísa þeir allir á formann sinn Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Hann hefur haldið til fundar við þau Steingrím J. Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttir. 30.1.2009 16:46
Árni sammála AGS um seinagang í endurreisn bankakerfisins Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að endurreisn íslenska bankakerfisins hafi gengið of hægt, segir Árni M. Mathiesen starfandi fjármálaráðherra. Hann tekur undir gagnrýni sjóðsins og segir að endurreisn bankanna verði að ganga hraðar. Aftur á móti hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lýst ánægju sinni með fjárlögin og hvernig gangi að endurreisa krónuna. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma fráfarandi ráðherra sjálfstæðismanna á fundi flokksins á Grand hótel í dag. 30.1.2009 16:43
Mótmæla kjaralækkandi aðgerðum Reykjavíkurborgar „Starfsmenn Reykjavíkur hafa sætt lakari kjörum en aðrir, undir því yfirskyni að þeir byggju í staðinn við atvinnuöryggi. Það hlýtur því að sæta furðu að þegar á þetta atvinnuöryggi reynir skuli þeir þurfa að greiða það enn hærra verði,“ segir í ályktun sameiginlegs félagsfundar Fræðagarðs, Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og Stéttarfélags lögfræðinga, sem haldinn var í dag. 30.1.2009 16:40
Mótmælt í Dimmuborgum Mótmæla- og samstöðufundur verður haldinn í Dimmuborgum í Mývatnssveit á morgun laugardag. „Okkur, sem stöndum að mótmælum hér í Mývatnssveit finnst rétt að safnast saman enn á ný og láta af okkur vita. Þótt áfangasigrar hafi unnist, er ekki öllum kröfum mótmælenda fullnægt. Þar sem unnið er að stofnun nýrrar ríkisstjórnar og fleiri málum finnst okkur þó rétt að staldra við og sjá hverju fram vindur,“ segir í tilkynningu. Sem fyrr verður mótmælt á Hallarflöt í Dimmuborgum klukkan 15. 30.1.2009 16:25
Yfirvinna endurskoðuð - engar uppsagnir Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar, segir að við endurskoðun á yfirvinnu hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar hafi rauði þráðurinn í aðgerðunum verið að tryggja störf starfsmanna. Þeir sem hæst launin hafa taka á sig hlutfallslega mesta lækkun fastra heildarlauna og við endurskoðun fastlaunasamninga sé sú regla höfð i heiðri að lækka ekki föst heildarlaun sem eru undir 300 þúsund krónum. 30.1.2009 16:19