Fleiri fréttir

Varað við níðingnum fyrir tæpum tveimur árum

Barnaverndarstofa fékk viðvörun vegna mannsins sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi fyrir að misnota barnunga dóttur sína ítrekað í vikunni. Maðurinn virðist hafa verið virkur í netsamfélagi og sendi stúlka frá Bandaríkjunum Barnaverndarstofu ábendingu í september árið 2007 þar sem hún efaðist um getu mannsins til þess að ala upp stúlkuna. Það var svívirðileg hegðun mannsins í netheimum sem fékk hana til þess að senda bréfið.

Háskólinn á Hólum verður ekki sjálfseignastofnun

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur snúið við ákvörðun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, fyrrum menntamálaráðherra um að gera Háskólann á Hólum að sjálfseignastofnun samkvæmt fréttavefnum Feykir.is. Þar kemur einnig fram að ekki hafi verið greint frá þessu opinberlega. Skólinn hefur verið rekinn með þó nokkrum halla og var tilsjónarmaður skipaður yfir skólann.

Þrír náðaðir á tveimur árum

Samkvæmt upplýsingum úr dóms- og kirkjumálaráðuneytinu þá hafa þrír menn fengið náðun undanfarin tvö ár en það er mjög sjaldgæft að því úrræði sé beitt. Ritari náðunarnefndar, lögfræðingurinn Skúli Þór Gunnsteinsson, segir að í slíkum tilvikum sé nær alltaf um alvarlega veika einstaklinga að ræða sem hafa hlotið vægar refsingar.

Grófst upp að höndum í Dagmálalág

Snjóflóð féll í Dagmálalág í Húsavíkurfjalli, rétt ofan við skíðasvæðið rétt eftir hádegi í dag. Tveir piltar lentu í flóðinu en þeir voru á göngu upp fjallið þegar flóðið féll. Annar þeirra grófst upp að höndum í flóðinu en að sögn lögreglu varð þeim ekki meint af.

Þak fauk af bílskúr í Grindavík

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út um klukkan 9:30 í morgun þegar þak fauk af bílskúr við Þórkötlustaði í Grindavík. Þegar björgunarsveitin kom á staðinn hafði hálft þakið fokið af í einu lagi og brakið dreifst um nærliggjandi tún. Farið var í að festa það sem eftir var af þakinu til að fyrirbyggja frekara fok og tína saman brakið.

Fjölskylda berst í bökkum

„Við erum með tvö börn á leikskóla, þetta gæti orðið til þess að við þurfum að taka þau af skólanum," segir fjölskyldumaðurinn og smiðurinn Matthías Arnberg Matthíasson, en hann hefur verið atvinnulaus síðan í desember síðastliðnum. Matthías, sem er fjörtíu og fjögurra ára gamall faglærður smiður, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir karp á þingi og rifrildi um Davíð Oddssons - á meðan standa fjölskyldur varnalausar í þeim efnahagslegu hörmungum sem dunið hafa á landanum. Nú er raunveruleg hætta á því að Matthías missi húsið.

Einar vill efsta sætið hjá Framsókn

Einar Skúlason skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti í Reykjavík suður á lista flokksins í komandi kosningum til Alþingis.

Semja þarf nýtt seðlabankafrumvarp

Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í viðskiptanefnd segir augljóst að fyrirhugað frumvarp um Seðlabankann sé meingallað og að það þarfnist gagnerrar endurskoðunnar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í gær umsögn um frumvarpið og segir Birgir að sú gagnrýni sem þar birtist sé í takt við það sem sjálfstæðismenn hafi bent á í síðustu viku.

Vetrarhátíð hefst í Reykjavík í dag

Vetrarhátíð hefst í Reykjavík í dag en boðið er upp á afar fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hófst reyndar í morgun með pottaspjalli í Breiðholtslaug á Menningarhátíð eldri borgara.

Sprenging í fiskimjölsverksmiðju í Eyjum

Engan sakaði og lítið sem ekkert tjón hlaust af þegar mikil spennging varð í fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Eldhnöttur steig upp úr reykháfnum og bárust lögreglu margar tilkynningar frá bæjarbúum.

Ófærð í þrengslum og á Hellisheiði í nótt

Töluvert snjóaði á Hellisheiði og í þrengslum í nótt og lentu nokkrir vegfarendur í vandræðum undir morgun. Snjóruðningstæki voru kölluð á vettvang og er verið að hreinsa vegina.

Braust inn í félagsmiðstöð

Brotist var inn í félagsmiðstöð við Hólmasel í Breiðholti í nótt og þaðan stolið sjónvarpstæki og skjávarpa. Þjófurinn braut upp þrjár hurðir til að komast að ránsfengnum og komst hann undan.

Fjórir meiddust í árekstri nálægt Hvammstanga

Fjórir meiddust, enginn þó alvarlega, þegar tveir bílar lentu í árekstri austan við Hvammstanga í gærkvöldi. Fólkið var flutt á heilsugæslustöðina á Blönduósi en bílarnir eru ónýtir.

Víðast eru hagfræðingar í forsvari

Af 38 seðlabankastjórum í 36 löndum sem Íslendingar gætu miðað sig við eru tveir sem ekki eru með framhaldsmenntun á sviði hagfræði. Einföld samantekt af vefjum bankanna leiðir þetta í ljós.

Myndirnar skipta hundruðum

Ljósmyndirnar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur keypt af Júlíusi Sigurjónssyni, ljósmyndara Morgunblaðsins, skipta hundruðum, að sögn Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra. Stefáni er hins vegar ekki kunnugt um að lögreglan hafi nokkru sinni keypt mynd af öðrum ljósmyndara til afnota í ársskýrslum, á vefnum eða við önnur tækifæri.

Kostnaðurinn þykir of mikill

Frumvarp þingflokks framsóknarmanna um stjórnlagaþing nýtur ekki stuðnings þingflokka ríkisstjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin mun leggja fram eigið frumvarp um málið og hefur skipað starfshóp til undirbúnings. Skipan stjórnlagaþings var ein af meginforsendum þess að Framsóknarflokkurinn veitti ríkisstjórninni stuðning sinn. Segir í verkefnaskrá hennar að lög verði sett um skipan og verkefni slíks þings.

Aðgerðasinnar ekki í ofbeldi

Beinar mótmælaaðgerðir eru sagðar komnar til að vera og að þær megi rekja til Kárahnjúkavirkjunar. Félagar í Saving Iceland kasti ekki grjóti í lögreglu.

Skyrsölu í Bretlandi frestað eftir hrunið

Mjólkursamsalan seldi 153 tonn af skyri til Bandaríkjanna í fyrra í gegnum fyrirtæki fyrrverandi forstjóra. Hann segir mikilli söluherferð í Bretlandi hafa verið frestað vegna slæmrar ímyndar Íslands eftir bankahrunið og Icesavemálið.

Tónlistarhúsið enn í biðstöðu

Ekki fékkst niður­staða í borgarráði í gær um hvort og þá hvenær framkvæmdir við Tónlistarhúsið hefjast að nýju. Búist hafði verið við að málið yrði útkljáð á fundinum. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir líklega boðað til aukafundar í næstu viku.

Milljón krónur í fyrsta túr

„Þjóðarskútan er komin af Smáramiðum með fullfermi, eða rúma milljón, sem fer beint til Mæðrastyrksnefndar,“ segir Jóhannes V. Reynisson hjá Víkurvögnum en þeir Víkurvagnsmenn voru að opna Þjóðarskútuna, svokölluðu, í fyrradag en þá hafði hún verið í Smáralind í 58 daga.

Ráðuneytið má leita til Bolla

Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, sem er í leyfi frá störfum til 30. apríl, gegnir ekki tilgreindum verkefnum í leyfinu. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra óskaði eftir að Bolli færi í leyfi enda vildi hún starfa með ráðuneytisstjóra sem hún þekkir vel og hefur unnið með. Sagði hún Bolla sinna sérverkefnum í leyfinu.

Vilja skýr ákvæði um brottrekstur

Forsætisráðuneytið birti í gær umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frumvarp um breytt skipulag Seðlabanka Íslands. Umsögnin var send fjölmiðlum, með þeim orðum úr ráðuneytinu að hún yrði birt í íslenskri þýðingu svo fljótt sem kostur væri.

Nær þúsund fengu ríkisfang

Á árinu 2008 fengu 979 íslenskt ríkisfang, þar af veitti Alþingi 31 ríkisborgararétt. Flestir koma frá Póllandi, eða 166 talsins, 125 komu frá Filippseyjum og 106 frá Serbíu. Frá Taílandi kom 61 og 55 frá Víetnam og 37 Rússar.

Stórkaupmenn borgi milljón

Samkeppniseftirlitið (SE) hefur lagt einnar milljónar króna stjórnvaldssekt á Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) fyrir að hvetja til verðsamráðs. FÍS gekkst við brotinu og gerði sátt í málinu.

Búddahof reist við Rauðavatn

„Þetta er gullfallegur staður,“ segir Vífill Magnússon arktitekt sem teiknað hefur búddahof sem byggja á við Rauðavatn. Búddistar á Íslandi hafa um árabil leitað að lóð fyrir hof sitt. Nú er lóðin loksins fundin fyrir hofið sem reisa á með atbeina auðkýfingsins Dr. Prasert Prasathong Osoth, eiganda Bangkok Airways, sem álítur hofið sem verður nyrsta búddahof heims geta dregið að sér marga erlenda ferðamenn.

Penninn semur við lánardrottna

Penninn á í viðræðum við nýja Kaupþing og fleiri banka um endurskipulagningu á fjármögnun hans og félaga undir fyrirtækinu.Viðræðurnar hafa staðið yfir síðan í lok síðasta árs. Pennanum tengjast meðal annars bóka- og ritfangaverslanirnar Mál og menning, Eymundsson og Griffill. Einnig Te og kaffi, Habitat, Saltfélagið og fyrirtæki erlendis.

Karpað um vinnsluhraða ríkisstjórna

Ráðherrar segja ákvarðanafælni, hægagang og aðgerðaleysi hafa einkennt fyrri ríkisstjórn. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eigna sér góð verk núverandi stjórnar.

Segist engin augljós mistök hafa gert

Geir Haarde var ítrekað spurður hvort hann væri reiðubúinn til að biðja íslensku þjóðina afsökunar í viðtali í bresku sjónvarpi í gærmorgun. Geir segist enn bíða niðurstöðu rannsóknarnefndar sem birt verður í nóvember.

Sagði af sér sem formaður landskjörstjórnar

Gísli Baldur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður, sagði nýverið af sér sem formaður landskjörstjórnar en stjórnin sér um framkvæmd kosninga til Alþingis og gefur út kjörbréf til þingmanna.

Sparisjóðirnir yfirtaki einn af ríkisbönkunum

Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, vill að stjórnvöld íhugi að fela sparisjóðunum að yfirtaka einn af ríkisbönkunum þremur. Birkir greindi frá þessari afstöðu sína í utandagskrárumræðu um efnahagsmál á Alþingi fyrr í dag.

Réttast að taka upp evru

Upptaka evru er rökrétt framhald uppbyggingar íslensk fjármálakerfis, að mati Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Aðrir kostir kunni þó að vera til staðar og þar á meðal myntsamstarf við Norðmenn. Það er þó langsótt, að hans mati. Gylfi sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna að aðild Íslands að Evrópusambandinu væri umdeild hér á landi, sérstaklega út af sjávarútvegsstefnu sambandsins.

Níðingurinn sem misnotaði dóttur sína stóðst foreldramat

Karlmaðurinn sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi á mánudaginn fyrir að misnota dóttur sína ítrekað frá árunum 2006 til nóvember 2008 stóðst foreldrahæfnismat árið 2007. Félagsmálayfirvöld í Reykjanesbæ hættu þá við að krefjast þess að hann yrði sviptur forræði. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Ryksprenging í fiskimjölsverksmiðju í Eyjum

Mikil ryksprenging varð í Fiskimjölsverksmiðju Einars Sigurðssonar í höfninni Vestmanneyjum fyrr í kvöld. Vitni segja bæinn hafa lýst upp en hvellurinn heyrðist víða.

Eignaumsýslufélag mun festa pólitíska spillingu í sessi

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að opinber eignaumsýslufélög muni festa pólitíska spillingu í sessi. Verði þessi leið farin verði niðursveiflan mun meiri, að mati Vilhjálms. Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings telur ekki rétt að stofna nýtt félag um þessa hluti. Ljóst sé að bankarnir þurfa að taka yfir einhver fyrirtæki.

Umsögn AGS um Seðlabankafrumvarpið birt

Umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sem barst síðdegis. Í framhaldi af óformlegri umsögn sem AGS sendi forsætisráðuneytinu í trúnaði um síðastliðna helgi óskaði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, eftir því að þeim trúnaði yrði aflétt.

Tókust á um orð ráðuneytisstjóra um álver

Fjármálaráðherra segir fjárhagslegan ávinning þjóðarinnar af álverum lítinn og kostnaðinn við að skapa hvert starf sem tengist þeim mun meiri en í annarri starfsemi. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins sagði á Alþingi í dag að álstarfsemin skilaði tugum milljarða í þjóðarbúiið og spurði ráðherrann hvar ætti að finna þau þúsundir starfa sem álverin sköpuðu.

Rannsaka ímynd Íslands í kjölfar bankahrunsins

Síendurteknar fullyrðingar erlendra fjölmiðla um meint þjóðargjaldþrot Íslands hefur reynst íslenskum fyrirtækjum fjötur um fót. Útflutningsráð ætlar að rannsaka hvort viðhorf almennings í útlöndum gagnvart Íslandi hafi tekið breytingum eftir bankahrunið.

Leituðu aðstoðar lífeyrissjóðanna rétt fyrir hrunið

Landsbankinn reyndi aðeins nokkrum klukkutímum fyrir hrun að fá lífeyrissjóðina til að gera upp gjaldmiðlaskiptasamninga upp á tugi milljarða króna. Það kom aldrei til greina að verða við beiðninni segir framkvæmdasjtóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna.

Búddahof rís við Hádegismóa

Sex hundruð fermetra Búddahof mun rísa við Hádegismóa. Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að úthluta 4000 fermetra lóð til tælenska félagsins, Thai Temple in Iceland Foundation. Leigusamningur verður gerður um lóðina þegar lokið hefur verið við að steypa sökkla og plötu undir Búddahofið. Leigutíminn er 50 ár og framlengist sjálfkrafa um önnur 50 ár, nema Reykjavíkurborg segi upp samningnum.

Segir ORA vísvitandi blekkja

Fyrrverandi framleiðslustjóri hjá ORA segir fyrirtækið vísvitandi blekkja neytendur um uppruna vöru sinnar. ORA fiskibollur séu fjarri því að vera íslenskar, fiskurinn sé færeyskur.

Dofri vill á þing

Dofri Hermannsson, varaborgarfulltrúi, býður sig fram í 5. til 6. sæti í Reykjavík fyrir Samfylkinguna í komandi Alþingiskosningum.

Tekin í tvígang fyrir ölvunarakstur á sólarhring

Kona var tekin í tvígang fyrir ölvunarakstur á einum sólarhring í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fyrst var hún stöðvuð í ónefndu sveitarfélagi á þriðjudagskvöld en þar lenti konan í umferðaróhappi. Bíllinn hennar var skilinn eftir við vettvanginn en konan var handtekin og kveikjuláslyklarnir settir í vörslu lögreglu.

Sjá næstu 50 fréttir