Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stympingar við Ráðherrabústaðinn Um 70 manns mættu fyrir framan Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu í morgun fyrir ríkisstjórnarfund og mótmæltu vinnubrögðum stjórnvalda. Tugir lögreglumanna eru á vettvangi og til stympinga kom á milli hennar og mótmælenda. Kveikt hefur verið á blysum og í hvert skipti sem ráðherra mætir á svæðið er kallað að honum ókvæðisorðum. 16.12.2008 09:33
Heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð fækkaði Árið 2007 fengu tæplega 4.300 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fækkað um 7% frá árinu áður. Árið 2003 þáðu rösklega 6.300 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga en til ársins 2007 fækkaði þeim jafnt og þétt eða sem nam 32% á öllu tímabilinu. 16.12.2008 09:21
Sluppu lítið meiddir úr bílveltu Tveir sluppu lítið meiddir þegar bíll þeirra valt undir Ólafsvíkurenni í gærkvöldi. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn sá of seint kyrrstæða bíla á veginum, reyndi í skyndingu að sveigja frá þeim, en þá hafnaði bíllinn utan vegar og valt. 16.12.2008 07:20
Siv stefnir á varaformennsku Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins, ætlar að bjóða sig fram til varaformennsku í flokknum á flokksþinginu í janúar, að því er fram kemur í tilkynningu frá henni. 16.12.2008 07:18
Vélarbilun í hraðfiskibáti Allt fór betur en á horfðist þegar vél bilaði í hraðfiskibáti við norðanvert Snæfellsnes í gærkvöldi. Hann tók að reka, en annar bátur var þar nálægur og kom að þeim bilaða. Bátsverjum tókst að gangsetja vélina að nýju en hinn báturinn fylgdi honum til hafnar í Ólafsvík, til öryggis. 16.12.2008 07:11
Beint úr yfirheyrslu í næsta innbrot Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir í Hafnarfirði í gærkvöldi eftir að hafa meðal annars brotist inn í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og stolið þaðan úlpu. 16.12.2008 07:07
Vinnubrögð sögð ámælisverð "Það er mál að linni í þessu ótrúlega máli, sem eingöngu er unnið út frá afar kjánalegum tilraunum forseta bæjarstjórnar til þess að afmá lóðina Miðskógar 8, sem er lóðin sunnan hans húss,“ segir Guðmundur Gunnarsson, oddviti minnihluta Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Álftaness. 16.12.2008 04:30
Segist eiga hljóðritun af samtalinu við Þorgerði Alf Skjeseth, blaðamaður Klassekampen, þvertekur fyrir það að hafa haft rangt eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þegar þau ræddu um peningamál Íslendinga. 16.12.2008 01:00
Jón Bjarki: Upptakan sýnir að Reynir er tvísaga Upptaka sem spiluð var í Kastsljósi í kvöld sýnir að Reynir Traustason, ritstjóri DV, er tvísaga, að mati Jóns Bjarka Magnússonar fyrrum blaðamanns DV. ,,Reynir heldur því fram í dag að ég sé að bulla að það hafi engir aðilar hafi reynt að stoppa fréttina en upptakan sýnir að þetta var ekki þannig." Það sé greinilegt að Reynir sé tvísaga. 15.12.2008 22:50
Þórhallur óttast ekki málsókn Reynis Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Sjónvarpsins og ritstjóri Kastljóss, segist ekki óttast hugsanlega málsókn Reynis Traustasonar, ritstjóra DV, í kjölfar þess að einkasamtal Reynis og Jóns var birt í Kastljósi fyrr í kvöld. Upptakan átti brýnt erindi til almennings, að mati Þórhalls. 15.12.2008 22:13
Sjálfkjör Ólafs sparaði 160 milljónir Ólafur Ragnar Grímsson sór embættiseið sem forseti Íslands í fjórða skipti 1. ágúst síðastliðinn. Frestur til að skila inn framboði rann út á miðnætti 23. maí og var Ólafur sá eini sem gaf kost á sér og var hann því sjálfkjörinn. 15.12.2008 20:53
Íhugar málsókn gegn RÚV og fyrrum blaðamanni DV Reynir Traustason, annar af ritstjórum DV, segist vera að íhuga réttarstöðu sína gagnvart Ríkissjónvarpinu og Jóni Bjarka Magnússyni, fyrrum blaðamanni á DV, í kjölfar þess að einkasamtal Reynis og Jóns var birt í Kastljósi fyrr í kvöld. 15.12.2008 21:27
Ingibjörg íhugar breytingar á ráðherraliði Samfylkingarinnar Formaður Samfylkingarinnar íhugar að gera breytingar á ráðherraliði flokksins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ekkert ómögulegt í þeim efnum. Hún var gestur Sölva Tryggvasonar í þættinum Ísland í dag fyrr í kvöld. 15.12.2008 19:22
Faðir hnífsstungufórnarlambs: Martröð að vakna upp við símtalið Faðir 18 ára drengs, sem stunginn var í brjóstið um helgina, segir það hafa verið eins og martröð þegar hann fékk símtal um að sonur hans hafi orðið fyrir lífshættulegri árás. Hann biðlar til lögreglu og borgaryfirvalda að gera skurk í málefnum miðborgarinnar þar sem ungt fólk skemmtir sér ölvað fram undir morgun. 15.12.2008 18:46
Reynir: Vorum grátbeðnir um að birta fréttina ekki Reynir Traustason, einn af ritstjórum DV, segir að ritstjórn blaðsins hafi verið grátbeðinn um að birta ekki frétt um Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóra Landsbankans í byrjun nóvember. Ákveðin öfl hafi viljað ,,stúta" blaðinu. 15.12.2008 19:42
Gjaldþrot blasir við þúsundum heimila Gjaldþrot blasir við mörg þúsund heimilum á landinu lækki fasteignarverð um 30 til 40 prósent og líkt spár gera ráð fyrir. 15.12.2008 19:38
Þríkjálkabrotinn eftir skólafélaga Fimmtán ára unglingur á Akureyri er þríkjálkabrotinn eftir að skólafélagar léku sér að því að bindann bæði á höndum og fótum. 15.12.2008 18:50
Yfirmaður hjá OR samþykkti reikninga frá eigin fyrirtæki Yfirmaður hjá Orkuveitunni hefur látið af störfum eftir að upp komst að hann hafði sjálfur samþykkt reikninga, upp á 10 milljónir króna, við fyrirtæki sem hann var sjálfur í forsvari fyrir. 15.12.2008 18:30
Hálka á vegum um allt land Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víðsvegar um landið. Á Suðurlandi er hálka á Hellisheiði, Sandskeiði, í Þrengslum og uppsveitum. Hálka og snjóþekja er á Vesturlandi. Á Holtavörðuheiði er snjókoma. 15.12.2008 18:06
Sitja ekki aðgerðalaus fyrir framan Stjórnarráðið Mótmæli hófust klukkan 17 fyrir utan Stjórnarráðið við Lækjargötu undir yfirskriftinni: „Við sitjum ekki aðgerðalaus." 30 til 40 manna hópur tekur þátt í þeim en hópurinn sættir sig ekki við stöðu mála og það sem fólkið kallar aðgerðarleysi stjórnvalda. 15.12.2008 17:29
Kompás í kvöld: Almannahagsmunir í húfi Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri Kompáss, segir að málið sem tekið sé fyrir í Kompás í kvöld varði almannahagsmuni. Í þættinum er sýnt frá því þegar útsendarar Kompáss hitta Björgvin Þorsteinsson sem auglýst hafði eftir því að komast í samband við fólk sem væri illa statt fjárhagslega en þó ekki gjaldþrota. Fólkið átti að fá greitt fyrir að taka á sig skuldir óskyldra aðila þar sem það væri hvort sem er á leið í gjaldþrot. 15.12.2008 16:46
Alcoa hefur ekki tekið ákvörðun um frestun á Bakka Álfyrirtækið Alcoa hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins í morgun þar sem því var meðal annars haldið fram að fyrirhuguðu álveri á Bakka hafi verið frestað um „nokkur ár“. Alcoa segir engar slíkar ákvarðanir hafa verið teknar. 15.12.2008 16:38
Frjósemin kostar háar upphæðir hjá Fæðingarorlofssjóði Samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga er gert ráð fyrir að fjárheimildir til Fæðingarorlofssjóðs muni hækka um 860 milljónir kr.. 15.12.2008 16:35
Uppsafnaður halli Landspítalans er 2,4 milljarðar króna Fram kemur í frumvarpi til fjáraukalaga að uppsafnaður rekstrarhalli Landspítalans nemur 2,4 milljörðum kr. og hefur hann stóraukist á síðustu árum. Sökum þessa er lagt til að spítalinn fái rúmlega 1,5 milljarða kr. til að mæta hallanum. 15.12.2008 16:20
10 þúsund steratöflur haldlagðar Fyrstu tíu mánuði ársins komu sautján svokölluð steramál til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar af tólf síðla sumars og í haust. 15.12.2008 16:15
Annríki hjá sjálfboðaliðum Rauða krossins fyrir jólin Um 200 sjálfboðaliðar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins eru að störfum fyrir og um jólin vegna matar- og fataúthlutana, og í Konukoti, athvarfi fyrir heimilislausar konur. 15.12.2008 16:11
Nærri 900 milljónir króna í ábyrgðasjóð launa Fjárheimild ábyrgðasjóðs launa hækkar samtals um 360 milljónir króna samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Gerð er tillaga um 310 milljóna króna hækkun í ljósi þess að greiðslur úr sjóðnum hafa verið óvenju miklar það sem af er liðið af árinu 2008, segir í greinagerð með frumvarpinu. 15.12.2008 16:06
Líkur á breytingum í ríkisstjórn fyrir áramót Engar ákvarðanir hafa verið teknar um breytingar á skipan ráðherra Samfylkingarinnar í ríkisstjórninni. Frétt Ríkissjónvarpsins frá því í gærkvöldi er byggð á sögusögnum en slakri heimildaöflun. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Skúli Helgason framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar sendi trúnaðarmönnum í Samfylkingunni i dag. 15.12.2008 15:34
Kompás í kvöld: Lögmaður hótar lögsókn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður, hefur sent fréttaskýringaþættinum Kompási bréf fyrir hönd umbjóðanda síns Björgvins Þorsteinssonar. Í bréfinu segir, að verði auglýstur Kompásþáttur sem er á dagskrá í kvöld sýndur með óbreyttu sniði, sé Björgvini nauðugur einn sá kostur að höfða skaðabótamál á hendur 365 hf. 15.12.2008 14:28
Virkt umferðareftirlit við Eyjafjörð Lögreglan á Eyjafjarðarsvæðinu stöðvaði í síðustu viku 823 ökumenn á Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði, en undanfarið hefur lögreglan verið með sérstakt eftirlit með ölvunar- og vímuefnaakstri þar. 15.12.2008 13:48
Yfirlýsing blaðamanna DV Blaðamenn DV senda frá sér yfirlýsingu í tilefni skrifa Jóns Bjarka Magnússonar fyrrverandi blaðamanns DV. Þar segjast þeir vera ósérhlífnir og þjóni eingöngu sannleikanum og almenningi í heiðarlegri viðleitni til að upplýsa um málefni sem oftar en ekki brenna á þjóðinni. 15.12.2008 13:41
Rangt haft eftir Þorgerði varðandi ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa sagt að Evrópusambandið væri okkar eini möguleiki líkt og norska dagblaðið Klassekampen heldur fram í dag. Þorgerður segist hafa farið í viðtal við blaðið fyrir 10 dögum og þar hafi hún sagt að við ættum að fara í aðildarviðræður. Hún stendur við þá skoðun sína. 15.12.2008 13:16
Dæmt í Keilufellsárás - Þyngsti dómurinn þrjú og hálft ár Fjórir pólskir karlmenn hlutu dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir húsbrot og sérstaklega hættulega líkamsárás í Keilufelli þann 22. mars síðastliðinn. Einn mannana, Tomasz Krzysztof Jagiela, hlaut þriggja og hálfs árs fangelsisdóm en þeir Marcin Labuhn, Robert Kulaga og Tomasz Roch Dambski voru dæmdir í tvö og hálft ár. 15.12.2008 13:14
Stöðvaði ekki fréttina Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Birtings, sem gefur út DV segist ekki hafa gert neina kröfu um að birting fréttar um Sigurjón Árnason, fyrrveranda Landsbankastjóra, yrði stöðvuð. 15.12.2008 12:33
Siv um fjárlagaumræðuna: „Er þetta djók?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu vinnuna við fjárlög harðlega á Alþingi í dag. Kvartað var yfir því að þegar tillögur um niðurskurð frá ríkisstjórn hafi borist hafi nauðsynlegar upplýsingar til þess að leggja mat á tillögurnar ekki legið fyrir. Ómögulegt hafi því verið að taka afstöðu til málsins en nú stendur yfir önnur umræða fjárlaga og ætti því að fresta afgreiðslunni. 15.12.2008 11:59
Krefjast kosningar um deiliskipulag vegna stækkunar í Straumsvík Áhugafólk um stækkun álversins í Straumsvík ætlar, á morgun, að afhenda bæjarstjórn Hafnarfjarðar undirskriftir 5000 kjörbærra Hafnfirðinga þar sem farið er fram á kosningu um deiliskipulag vegna stækkunar álversins í Straumsvík. 15.12.2008 11:46
Framkvæmdir við Reykjanesbraut Vegna framkvæmda við nýja brú á mótum Reykjanesbrautar og Vífilsstaðavegar geta vegfarendur búist við breytingum á umferðarstefnum í dag og á morgun. 15.12.2008 11:17
FME og Seðlabanki ekki sameinað fyrir áramót Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi fyrir stundu að hugmyndin um að færa Fjármálaeftirlitið að nýju undir Seðlabanka Íslands væri enn til athugunar. Hann sagði þetta þó eilítið flóknara því til þess að svo geti orðið þurfi lagabreytingu og því gerist það ekki fyrir áramót. 15.12.2008 11:05
Kristján Þór hefur ekki fengið bónorðið „Það er ekki mitt að dæma um það," segir Kristján Þór Júlíusson þegar Vísir spyr hann að því hvort eitthvað sé hæft í því að hann verði ráðherra. 15.12.2008 11:02
Kannast ekki við að hætt hafi verið við stækkun í Straumsvík Össur Skarphéðinnson iðnaðarráðherra segist ekki kannast við að forsvarsmenn Rio Tinto Alcan hafi greint honum frá því að hætt hafi verið við fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík. Þetta kom fram í máli ráðherrans á Alþingi í dag. 15.12.2008 10:52
Dómsmálaráðherra útilokar ekkert Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki útiloka neitt þegar spurt sé að því hvort hann sé á leið úr ríkisstjórn eða hvort að ríkisstjórnin springi. 15.12.2008 09:47
Heildarafli íslenskra skipa minni en í fyrra Heildarafli íslenskra skipa í nóvember, metinn á föstu verði, var 4,1% meiri en í nóvember 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn hins vegar dregist saman um 3,5% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 15.12.2008 09:28
Innbrot í gamla hersjúkrahúsið á Vallarheiði Enn var brotist inn í byggingu 710 á Vallarheiði um helgina, en þar rak Varnarliðið hersjúkrahús. Litlar skemmdir voru unnar, en ekki er vitað hverjir voru þar á ferð. 15.12.2008 07:18
Röktu slóð innbrotsþjófa í snjónum Lögreglumenn gómuðu tvo innbrotsþjófa, sem brotist höfðu inn í Lækjarskóla í Hafnarfirði og stolið þaðan tölvu og fleiri verðmætum hlutum. 15.12.2008 07:12
Höggið þungt fyrir elstu sjóðfélagana Íslenski lífeyrissjóðurinn, sem Landsbankinn rekur, kappkostaði sölu á innlendum og erlendum hlutabréfum til að lágmarka áhættu sjóðsfélaga mánuðina fyrir bankahrunið. Fénu var að stórum hluta varið til kaupa á skuldabréfum viðskiptabankanna sem urðu nær verðlaus við setningu neyðarlaganna í október. 15.12.2008 07:00