Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögregluaðgerð gagnvart hælisleitendum lögleg Ekkert bendir til annars en að fullnægjandi lagaheimildir hafi legið fyrir við þær aðgerðir sem lögreglan á Suðurnesjum greip til gagnvart hælisleitendum þann 11. september síðastliðinn. Þetta kemur fram í úttekt sem LOGOS lögmannsþjónusta vann að beiðni Rauða kross Íslands. 5.12.2008 09:22
Með öndina í hálsinum Fálki drap önd sér til matar í miðbæ Húsavíkur í fyrradag. Eftir að hafa drepið hana flaug hann með hana niður í Búðarárgil, þar sem hann gæddi sér á henni. 5.12.2008 07:17
Gáfu Mæðrastyrksnefnd 1.000 krónur fyrir hvern lögreglumann Landssamband lögreglumanna hefur gefið Mæðrastyrksnefnd 709 þúsund krónur, eða þúsund krónur fyrir hvern félaga sambandsins. 5.12.2008 07:12
Eldur á Players í nótt Eldur kviknaði í skemmtistaðnum Players upp úr klukkan fimm í morgun og gerði brunavarnakerfi viðvart. Þegar slökkilið kom á vettvang var eldurinn staðbundinn í hrúgu af tuskum, sem iðnaðarmenn höfðu notað til að olíubera gólfin í gærkvöldi. 5.12.2008 07:07
Segir Morgunblaðið fara í söluferli eftir helgi Hreinn Loftsson stjórnarformaður Birtíngs segist hafa verið í símasambandi við Árvakursmenn um hugsanleg kaup á útgáfufélaginu. Eins og Vísir hefur sagt frá hefur Birtíngur, sem meðal annars gefur út DV, lýst yfir áhuga á að kaupa Morgunblaðið. Söluferli fer í gang eftir helgi sem á að vera gagnsætt og opinbert. 4.12.2008 21:28
Tjáir sig ekki um formannsframboð Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún hyggist bjóða sig fram til formanns flokksins. Hún segir það ekki hafa verið á dagskrá hjá sér en Valgerður Sverrisdóttir núverandi formaður lýsti því yfir í dag að hún ætli sér ekki í formannsframboð. 4.12.2008 20:08
Enginn fundur með seðlabankastjóra í júní Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Davíðs Oddssonar. 4.12.2008 20:48
Fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í leit að rjúpnaskyttu Á annað hundrað björgunarsveitarmenn hafa boðað þátttöku sína í leit að manni á Skáldabúðarheiði á morgun föstudag en hann hefur verið týndur síðan s.l. laugardag, 29. nóvember. 4.12.2008 19:47
„Það var enga hjálp að fá“ „Það var enga hjálp að fá," segir móðir 27 ára manns sem svipti sig lífi í nóvember. Sökum plássleysis fékk hann ekki inni á geðdeild Landspítalans þegar hann leitaði þangað, þremur dögum áður en hann dó. 4.12.2008 18:48
4 ára fangelsi fyrir að brjótast inn og leita á stúlkubarn Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Jóhann Sigurðarson í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa brotist inn á heimili um miðja nótt og leitað á fimm ára gamla stúlku. Jóhann sem er fertugur á langan brotaferil að baki. 4.12.2008 18:28
Davíð sagði Árna Pál ómálefnanlegan Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, hafi svarað spurningu sinni á fundi viðskiptanefndar í morgun á þá leið að hún væri ómálefnanleg og ósmekkleg. 4.12.2008 17:57
Lítur ekki á ummæli Davíðs sem hótun Geir H. Haarde forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í forsætisráðuneytinu fyrir stundu. Þar byrjaði hann að tala um að framkvæmdin við fleytingu krónunnar hefði gengið vel, þar sem hún hefði styrkst um 9% þvert á þá spá að hún myndi lækka. Hann fagnaði því að sú spá hefði ekki ræst. 4.12.2008 17:33
Hart sótt að Ólafi F í borgarstjórn „Borgarráð er ekki ruslakista fyrir andlegt rusl úr þér," segir Ólafur F Magnússon að Óskar Bergsson formaður borgarráðs hafi sagt um sig á fundi borgarráðs í dag. 4.12.2008 16:57
Hæstiréttur staðfestir dóm yfir klósettnauðgara Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir Robert Dariusz Sobiecki sem ákærður var fyrir að nauðga konu inni á kvennasalerni á Hótel Sögu í mars árið 2007. Robert var dæmdur í þriggja ára fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur í júni en áður hafði Hæstiréttur ógilt fyrri sýknudóm sem féll 2007 og vísað málinu aftur í hérað. 4.12.2008 16:45
Eiginkona Guðmundar tapaði hálfri milljón á meiðyrðamáli Helga Haraldsdóttir, eiginkona Guðmundar Jónssonar fyrrverandi forstöðumanns Byrgisins, tapaði hálfri milljón á meiðyrðamáli sem hún höfðaði gegn Erlu Hlynsdóttur, blaðamanni á DV, og tveimur viðmælendum hennar, þeim Ólöfu Ósk Erlendsdóttur og Magnúsi Einarssyni. Helga fór fram á að þrjár milljónir í skaðabætur og að 14 ummæli yrðu dæmd ómerk. 4.12.2008 16:45
Hæstiréttur staðfesti 16 ára fangelsi í Hringbrautarmálinu Hæstiréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Þórarni Gíslasyni. Þórarinn var dæmdur til 16 ára fangelsisvistar í maí síðastliðnum fyrir að hafa ráðið Borgþóri Gústafssyni bana í íbúð við Hringbraut í Reykjavík í október í fyrra. Þórarinn veitti Borgþóri, 4.12.2008 16:32
Hæstiréttur mildaði dóminn yfir Guðmundi í Byrginu Hæstiréttur dæmdi í dag Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann í Byrginu, í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot í starfi sem forstöðumaður. Héraðsdómur Suðurlands hafði dæmt Guðmund í þriggja ára fangelsi í maí síðastliðnum. Hæstiréttur minnkar því refsinguna yfir Guðmundi um hálft ár. 4.12.2008 16:19
Valgerður hættir sem formaður í janúar Valgerður Sverrisdóttir formaður Framsóknarflokksins ætlar ekki að sækjast eftir áframhaldandi setu á formannsstóli og mun hætta á næsta flokksþingi sem haldið verður í janúar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Valgerði á heimasíðu flokksins. 4.12.2008 16:03
Fundu þúsundir peninga í Skildinganesi Þúsundir peninga fundust við jarðrask í Skerjafirðinum í Reykjavík í gær. Um var að ræða fimmeyringa og tíeyringa frá 1981. Með peningunum hafa komið í ljós tægjur af umbúðum úr taui, og merkimiðar sem benda til að myntin hafi legið í peningaflutningspokum, sem hafi rotnað og eyðst. Svo virðist sem peningunum hafi verið komið fyrir í gjótu sjávarmegin við sjóvarnargarðinn. 4.12.2008 16:01
RÚV hættir við að hætta svæðissendingum Ríkisútvarpið hefur ákveðið að draga til baka áform um að leggja af svæðisbundnar fréttasendingar frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Fram kemur í tilkynningu frá Páli Magnússyni útvarpssttjóra að síðustu daga hafi fjölmargir hollvinir svæðissendinganna hvatt til þess að ekki verði gripið til þessara sparnaðaraðgerða þrátt fyrir erfiða rekstrarstöðu Ríkisútvarpsins. Ljóst sé að hlustendur á landsbyggðinni telja svæðissendingarnar veigamikinn þátt í þjónustu RÚV. 4.12.2008 15:45
Skýrsla um fjármagnsflutninga fyrir bankahrunið væntanleg Ráðgjafa- og endurskoðunarfyrirtækið KPMG vinnur að úttekt fyrir Fjármálaeftirlitið um fjármagnsflutninga bankanna í aðdraganda falls þeirra. Fjármáleftirlitið fær skýrsluna á næstu dögum. Þetta kom fram á fundi viðskiptanefndar Alþingis í gær með fulltrúum skilanefnda gömlu bankanna. 4.12.2008 15:27
Segir gagnrýni á Davíð vera múgsefjun Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðisins segir að stuðningsmenn aðildar Íslands að Evrópusambandinu líti á efnahagshrun undanfarinna vikna sem tækifæri. Eina ráðið til þess að lifa af er að ganga í ESB og taka upp evru. 4.12.2008 15:04
Síðdegisgöngutúr varð kannabismanni að falli Hann var óheppinn ungi maðurinn sem átti leið um götu í vesturbæ Reykjavíkur síðdegis í gær. Lögreglan hafði framkvæmt húsleit í götunni þar sem fannst töluvert af fíkniefnum. Þegar verið var að yfirgefa vettvanginn átti maðurinn leið hjá og vakti hann strax óskipta athygli fíkniefnahundsins sem var með í för. Við nánari eftirgrenslan kom í ljós að hann var með 30 grömm af maiíjúana í fórum sínum. 4.12.2008 14:59
Mikill meirihluti forsvarsmanna ferðaþjónustufyrirtækja vill evruna Mikill meirihluti félagsmanna í Samtökum ferðaþjónustunnar, eða 83%, vilja taka upp evru og 77% félagsmanna vilja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta eru niðurstöður könnunar sem að fyrirtækið HRM, rannsóknir og ráðgjöf, gerðu fyrir Samtök ferðaþjónustunnar. 4.12.2008 14:55
BHM vill að allt verði gert til að forðast uppsagnir Bandalag háskólamanna beinir þeim eindregnu tilmælum til ríkis og sveitarfélaga að komi til niðurskurðar í opinberum rekstri verði allt gert til að forðast uppsagnir. „Í svari fjármálaráðherra á þingfundi í dag, við fyrirspurn um lækkaðan launakostnað hins opinbera, kom fram að "engar sérstakar línur í þessum efnum hefðu verið lagðar fyrir ríkisstofnanir",“ segir í tilkynningu frá bandalaginu. 4.12.2008 14:41
Lögreglan hljóp uppi þjófóttan ökuníðing Sautján ára gamall Seltirningur hefur verið ákærður fyrir að stela bíl frá réttingarverkstæði að Draghálsi í Reykjavík og aka henni, án ökuréttinda, um götur bæjarins. 4.12.2008 14:08
Höskuldur íhugar alvarlega formannsframboð Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, íhugar alvarlega að gefa kost á sér sem formaður Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi sem haldið verður í janúar. 4.12.2008 14:07
Einar K. segir sýkingu síldarinnar dapurleg tíðindi Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði í ræðu á þingi Sjómannasambands Íslands í morgun, að það væri "dapurlegt að standa frammi fyrir þeirri óvissu sem sýking í síldinni hefði skapað" eftir að hafa byggt upp síldarstofninn með einstaklega varkárri nýtingarstefnu á undanförnum árum. 4.12.2008 13:02
Bankaleynd í dag en ekki um daginn ,,Sú reiði sem kraumar í þjóðfélaginu og hægt er að beina í ýmsar áttir af áróðursmaskínum er ekki síst kraumandi vegna þess að það er ekki verið að upplýsa almenning um eitt eða neitt," sagði Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, í ræðu á fundi Viðskiptaráðs 18. nóvember. Á fundinum gagnrýndi hann bankaleynd en í morgun bar hann hana fyrir sig. 4.12.2008 13:00
Ástþór borinn út af fundi Ástþór Magnússon, fyrrverandi forsetaframbjóðanda, var borinn út af skipulagsfundi breiðfylkingarinnar Opinn borgarfundur í gær eftir að hann varð ekki við óskum fundargesta um að yfirgefa húsnæðið. Ástþór sakar hreyfinguna um ólýðræðisleg vinnubrögð. 4.12.2008 12:46
Hjálparstarf kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd fengu 50 milljónir Pokasjóður afhendir í hádeginu Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd fimmtíu milljónir króna til að styðja skjólstæðinga sína fyrir jólin og fram eftir vetri. 4.12.2008 12:42
Lögreglan lýsir eftir manni Lögreglan lýsir eftir Bjarna Sigurði Davíðssyni síðast til heimilis að Erluhólum 4, Reykjavík. Bjarni er 180 cm á hæð sköllóttur og rauðbirkin. Ekki er vitað um klæðaburð. 4.12.2008 12:05
Pétur Blöndal vill að ríkið taki atvinnulífið sér til fyrirmyndar Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ef hið opinbera neyðist til að lækka launakostnað sinn þá ætti heldur að grípa til þess að lækka vinnuhlutfall starfsmanna í stað þess að segja sumum þeirra upp að fullu. Þetta kom fram í fyrirspurn sem hann beindi til fjármálaráðherra þar sem hann spurði hvernig standi á því að Ríkisútvarpið skuli grípa til þess að segja upp fólki endanlega í stað þess að minnka vinnuhlutfall starfsmanna. 4.12.2008 11:33
Norrænir bændur brýna íslensk stjórnvöld Bændasamtökum Íslands hefur borist stuðningsyfirlýsing frá norrænum systurhreyfingum þess. Í yfirlýsingunni lýsa bændasamtök Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Noregs sérstakri samstöðu með íslensku bændastéttinni í þeim erfiðu efnahagsaðstæðum sem nú eru uppi í íslensku þjóðfélagi. 4.12.2008 11:28
Davíð fullyrti í júní að bankarnir myndu falla Davíð Oddsson seðlabankastjóri fullyrðir að hann hafi í júnímánuði sagt við leiðtoga ríkisstjórnarinnar að 0% líkur væru á því að bankarnir myndu lifa af aðsteðjandi erfiðleika af. Frá þessu greindi Davíð á fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun. 4.12.2008 11:05
Ögmundur kvartaði yfir forföllum ráðherra Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG gagnrýndi ráðherra Sjálfstæðisflokksins fyrir að mæta ekki í óundirbúnar fyrirspurnir í þinginu í morgun eins og ráð hafði verið fyrir gert. Þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, boðuðu bæði forföll og kvartaði Ögmundur yfir því að um þau hafi verið tilkynnt með litlum fyrirvara. 4.12.2008 10:52
Davíð ber fyrir sig bankaleynd Davíð Oddssson, seðlabankastjóri, neitaði að upplýsa viðskiptanefnd Alþingis á fundi hennar í morgun hvað hann átti við með ummælum sínum sem hann lét falla á fundi Viðskiptaráðs 18. nóvember um að hann hefði vitneskju um hvað hefði ráðið afstöðu breskra yfirvalda þegar hryðuverkalögum var beitt gegn Íslandi. 4.12.2008 10:29
Hugtakið pólitísk ábyrgð er dautt Stjórnmálamenn þykjast ekki vita hvað felst í pólitískri ábyrgð. Af þeim sökum er hugtakið svo gott sem dautt á Íslandi. Þetta segir Birgir Hermannsson, stjórnmálafræðingur og kennari við Háskólann á Bifröst, í grein í Fréttablaðinu í dag. 4.12.2008 09:42
Með eiturlyf á Litla-Hrauni Kona var handtekin í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir tilraun til að smygla eiturlyfjum til eins fangans í gær. Lögreglunni á Selfossi barst í tilkynning frá Fangelsinu á Litla hrauni um að fíkniefnaleitarhundur fangelsisins hefði „merkt" á konu sem var að koma í heimsókn til eins fangans. Konan hafi síðan framvísað fíkniefnum sem hún var með innvortis við fangaverði. 4.12.2008 09:39
Leit að rjúpnaskyttunni hefst á morgun Ákveðið er að hefja á ný á morgun viðtæka leit á Skáldabúðaheiði í uppsveitum Árnessýslu að rjúpnaskytunni, sem saknað er þar síðan á laugardag. Til stóð að leitin hæfist ekki fyrr en á laugardag, en með hliðsjón af verðurspá var ákveðið að flýta henni um einn sólarhring þar sem spáð er góðum leitarskilyrðum á morgun. Það er hinsvegar spáð dimmviðri um helgina. 4.12.2008 09:13
Nokkur fíkniefnamál á Akureyri Fimm fíkniefnamál hafa komið til kasta lögreglunnar á Akureyri síðastliðna fimm daga og hafa þó nokkrir verið handteknir og yfirheyrðir vegna þeirra. 4.12.2008 07:14
Davíð ætlar í pólitík verði honum ýtt út Davíð Oddsson seðlabankastjóri ætlar að sitja í nokkur ár í viðbót sem seðlabankastjóri og hætta svo á eigin forsendum með sama hætti og þegar hann hætti sem forsætisráðherra. Ef hann verður neyddur til þess að segja af sér ætlar hann að fara aftur í pólitík. 4.12.2008 00:01
Ætla að sniðganga Ísland vegna hvalveiða Nú gengur tölvupóstur manna á milli þar sem farið fram á að íslendingar hætti hvalveiðum í vísindaskyni. Sá sem sendir póstinn segist ætla að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að sniðganga Ísland og láta alla vita af því. 3.12.2008 23:13
Starfsmenn Morgunblaðsins fá laun í vikunni Kristín Heiða Kristinsdóttir trúnaðarmaður starfsmanna á Morgunblaðinu segist ekki vita betur en að búið sé að greiða starfsmönnum blaðsins laun. Vegna fjárhagserfiðleika Árvakurs, Útgáfufélags Morgunblaðsins, var ekki hægt að greiða öllum laun nú um mánaðarmótin. 3.12.2008 21:46
Mánaðarfangelsi fyrir að stela vodkaflösku Héraðsdómur Reykjaness dæmdi 48 ára gamlan karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir að stela Smirnoff vodkaflösku að verðmæti 3.250 krónur úr Vínbúðinni í Hafnarfirði. 3.12.2008 20:56