Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í gistihúsi á Reyðarfirði Lögreglu var tilkynnt um að eldur væri laus í kaffi og gistiheimilinu Hjá Marlín á Reyðarfirði klukkan fjögur í nótt og að slökkvilið Fjarðabyggðar væri á leið á staðinn. 19.6.2008 08:55
Femínistafélagið afhendir Bleiku steinana Femínistafélag Íslands mun í dag afhenda hvatningarverðlaun sín Bleiku steinana. Tilgangur verðlaunanna er að hvetja þá aðila sem stöðu sinnar vegna geta haft áhrif á framgang jafnréttis í íslensku samfélagi. Afhendingin fer fram á Austurvelli við styttuna af Jóni Sigurðssyni nú klukkan ellefu. 19.6.2008 08:10
Hættur við hringferð á kajak Bandaríski kajakræðarinn Marcus Demuth hafði samband við Landhelgisgæsluna í gær og tilkynnti henni að hann væri hættur við hringferð sína um landið. 19.6.2008 07:09
Enginn ísbjörn sjáanlegur í eftirlitsflugi Þyrla Landhelgisgæslunnar var að koma úr eftirlitsflugi á Vestfjörðum þar sem flogið var um Hornstrandafriðland og svipast vandlega um eftir ísbjörnum. 18.6.2008 19:52
Tvö innbrot í Breiðholti Tilkynnt var um tvö innbrot í Breiðholti til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Ekki er vitað hversu miklu var stolið en biður lögreglan fólk um að huga að íbúðum sínum á þessum árstíma. Frá klukkan 15:00 í dag var tilkynnt um þrettán árekstra til lögreglunnar. 18.6.2008 20:44
Borgarísjaki sást í ískönnunarflugi Í dag fór Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Ískönnunin hófst klukkan 17:35 á stað: 66°10´N, 028°35´V og var ísröndinni fylgt þaðan til norð-austurs. Ísröndin reyndist vera næst landi 70 sjómílur NNV af Straumnesi og 77 sjómílur NV af Barða. 18.6.2008 22:51
Tekinn á 127 km hraða á Reykjanesbraut Á dagvaktinni stöðvaði lögregla á Suðurnesjum 12 ökumenn vegna hraðaksturs. Sá sem hraðast ók var mældur á 127 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. 18.6.2008 19:16
Aldrei skal hlaupa undan ísbirni Sjaldgæft er að ísbirnir drepi menn og eru slík tilvik í heiminum á síðasta áratug teljandi á fingrum annarrar handar. Kristján Már Unnarsson var á ísbjarnarslóðum í Norður-Kanada í vor þar sem hann kynnti sér leiðbeiningar um hvað menn eigi að gera ef þeir mæta ísbirni. 18.6.2008 18:40
Sjálfstæðisflokkur hafnar áformum umhverfisráðherra Sjálfstæðisflokkurin hefur hafnað áformum umhverfisráðherra um landsskipulagsáætlun og verður ráðherrann gerður afturreka með það ákvæði stjórnarfrumvarps að skipulagslögum, sem er til meðferðar Alþingis. 18.6.2008 18:30
Harma verkfallsboðun flugumferðarstjóra Stjórn Flugstoða ohf. harmar mjög verkfallsboðun Félags íslenskra flugumferðastjóra (FÍF) og vonar að til verkfalls þurfi ekki að koma. Samtök atvinnulífsins (SA) eru viðsemjendur FÍF í þessari kjaradeilu, en samningafundir SA og FÍF hófust um síðustu áramót. 18.6.2008 17:59
Frændi sýknaður af kynferðislegri misnotkun Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Austurlands í dag en hann var ákærður fyrir að hafa káfað á kynfærum stúlku sem þá var 7-8 ára gömul. Maðurinn er frændi stúlkunnar og sagðist faðir hennar hafa komið að honum að nudda kynfæri hennar. 18.6.2008 17:49
Hollenskt par með 300 grömm af kóki í Leifsstöð Hollenskt par um fimmtugt var í dag úrskurðað í gæsluvarðhald til mánudags í Héraðsdómi Reykjaness. Það var handtekið í Leifsstöð í gær með 300 grömm af kókaíni í farteskinu. 18.6.2008 17:21
Rannsaka hvernig þróa megi samstarf í öryggismálum Utanríkisráðherrar Norðurlandanna hafa ákveðið að láta gera óháða rannsókn á því hvernig þróa megi samstarf landanna í utanríkis- og öryggismálum á næstu 10-15 árum. 18.6.2008 17:17
Ártúnsbrekka opin á ný Búið er að opna fyrir alla umferð um Ártúnsbrekku til austurs en þar fór fullfermdur vörubíll á hliðina um hádegisbil í dag. 18.6.2008 17:10
Hjalti fer fyrir ísbjarnastarfshópi Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofnun, verður formaður starfshóps sem umhverfisráðherra hefur skipað og á að vinna tillögur vegna hugsanlegrar landtöku hvítabjarna hér á landi. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er hópurinn skipaður eftir að tveir hvítabirnir komu hingað til lands á tveggja vikna tímabili. Starfshópur ráðherra á við vinnu sína að taka mið af reynslunni í þessi tvö skipti og viðbrögðum við komu bjarnanna. 18.6.2008 17:06
Kerfið er á hraða snigilsins Foreldraráðgjafi Þroskahjálpar á Suðurnesjum segir að ástandið á svæðinu sé afar slæmt. ,,Kerfið er á hraða snigilsins og fylgir ekki eftir þörfinni hverju sinni." 18.6.2008 17:00
Bensínverð hækkaði í dag Eldsneytisverð hækkaði í dag. Verð á bensínlítranum er 178,4 krónur og 173,4 í sjálfsafgreiðslu hjá olíufélögunum að Atlantsolíu undanskildri. Þar kostar líterinn 168,7 krónur í sjálfsafgreiðslu. 18.6.2008 16:54
Gæsluvarðhaldi yfir Frakka breytt í farbann Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir frönskum karlmanni sem handtekinn var í síðustu viku hér á landi að beiðni franskra yfirvalda. 18.6.2008 16:50
Fánum stolið af leiði Jóns Sigurðssonar Fánar, sem blöktu við hún við leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu, voru horfnir þegar starfsmenn Framkvæmda- og eignasviðs hugðust taka þá niður að kvöldi þjóðhátíðardags. 18.6.2008 16:49
Var smitaður af illskeyttum þráðormum Ísbjörninn sem felldur var á Þverárfjalli fyrir um tveimur vikum reyndist smitaður af tríkínum sem eru þráðormar sem eru illskeyttir sjúkdómsvaldar í mörgum tegundum spendýra. 18.6.2008 16:31
Móðir fatlaðs drengs: Úrræðaleysi eykur þunglyndi ,,Það er lágmark að lögum sé framfylgt. Í þeim segir að allir eigi rétt á búsetu og vinnu við hæfi," segir Birna Sigbjörnsdóttir, móðir fatlaðs drengs á Suðurnesjum. 18.6.2008 16:15
Áfram umferðartafir í Ártúnsbrekku Umferðartafir verða áfram í Ártúnsbrekku til austurs en þar fór fullfermdur vörubíll á hliðina um hádegisbil í dag. 18.6.2008 15:57
Íslensk börn verða fyrr sjálfstæð en jafnaldrar á Vesturlöndum Íslensk börn og unglingar verða fyrr sjálfstæð en jafnaldrar þeirra á Vesturlöndum og vinahópurinn öðlast snemma aukið gildi á kostnað fjölskyldunnar. 18.6.2008 15:47
Minna en hálfu prósenti hælisleitenda veitt staða flóttamanns Aðeins tveir höfðu fengið stöðu flóttamanns á Íslandi frá 1991 áður en par frá Sri Lanka kom í gær. 18.6.2008 15:25
Mikil ásókn í nám Keilis og íbúðir á Vellinum Rúmlega tvær umsóknir voru um hvert sæti í skóla Keilis á næsta skólaári eftir því sem segir í tilkynningu hans. Umsóknarfrestur um skólavist rann út eftir helgi og bárust alls 621 umsókn um 300 sæti sem til ráðstöfunar. 18.6.2008 15:15
Málaferli erfið leið fyrir SÁÁ Ari Matthíasson framkvæmdastjóri SÁÁ segir að samtökin eigi mikið undir samstarfi við Reykjavíkurborg og ríkið sem kaupi ákveðna þjónustu af samtökunum. Af þeim sökum sé ,,erfitt að standa í stjórnsýslukærum gagnvart þessum aðilum." 18.6.2008 14:53
60 ára og eldri hvattir til að fara út og ganga Ungmennafélag Íslands hefur hrundið af stað verkefninu Gæfuspor. ,,Gæfuspor er verkefni þar sem fólk 60 ára og eldri er hvatt til að fara út og ganga sér til ánægju og heilsubótar," segir í fréttatilkynningu. 18.6.2008 14:47
Salmonella á sambýli aldraðra á höfuðborgarsvæðinu Fjórir einstaklingar tengdir sambýli aldraðra á höfuðborgarsvæðinu greindust með salmonellu í upphafi mánaðarins eftir því sem segir í nýjum Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Um var að ræða tvo starfsmenn og tvo heimilismenn. 18.6.2008 14:37
Spá engum vexti í dagvöruverslun á seinni hluta árs Gert er ráð fyrir að raunvöxtur í dagvöruverslun verði um tvö prósent á þessu ári og að á síðari hluta ársins verði enginn vöxtur miðað við árið í fyrra á föstu verðlagi. 18.6.2008 14:23
Flugumferðarstjórar boða til vinnustöðvana Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað tuttugu stuttar vinnustöðvanir dagana 27. júní til 20. júlí næstkomandi. 18.6.2008 14:19
Svipuð aðsókn í grunnnám og meistaranám Fyrir stuttu rann út umsóknarfrestur í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Fékk deildin um þúsund umsóknir og hafa þær aldrei verið fleiri. 18.6.2008 13:47
Skipar starfshóp til að fara yfir ísbjarnamál Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til þess að fara yfir mál ísbjarnanna sem gengið hafa á land á síðustu vikum. Óskað verður eftir því að fá lánað eða kaupa búrið sem flutt var til landsins til þess að reyna að fanga birnuna á Hrauni á Skaga. 18.6.2008 13:43
Utanríkisráðuneytið styrkir Barnaheill Barnaheill, Save the Children, á Íslandi fengu nýverið 10 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu til menntaverkefnis samtakanna í N–Úganda. 18.6.2008 13:37
Miklar tafir í Ártúnsbrekku til klukkan 16 hið minnsta Umferð um Ártúnsbrekku til austurs hefur tafist mikið eftir að flutningabíll með fullfermi valt á hliðina neðst í brekkunni. Búast má við töluverðum töfum, að minnsta kosti til klukkan 16, á meðan reynt verður að koma bílnum á réttan kjöl. 18.6.2008 12:57
Setja á fót Jafnréttissetur og -skóla Utanríkisráðuneytið og Háskóli Íslands hafa ákveðið að koma saman á fót Jafnréttissetri og Jafnréttisskóla 18.6.2008 12:50
Sendinefnd frá Katar skoðar orku- og fjármálafyrirtæki Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundar í dag með sendinefnd frá Katar sem hingað er komin til að kynna sér íslensk orkufyrirtæki og fjármálastofnanir. 18.6.2008 12:24
Skoða verði hvort breyta þurfi lögum um hvítabirni Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra telur vert að skoða hvort ekki eiga breyta lögum til að vernda betur þá hvítabirni sem hingað koma 18.6.2008 12:02
Birnan var tæp 150 kíló Birnan sem felld var í við Hraun á Skaga í Skagafirði í gær reyndist 147 kíló við vigtun. Forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra segir það sýna að líkamsástand dýrsins hafi ekki verið gott. 18.6.2008 11:50
Vinir Tíbets tendra kyndil við kínverska sendiráðið Félagið Vinir Tíbets stendur fyrir mótmælum við kínverska sendiráðið klukkan 17:30 í dag. Tilgangurinn er að vekja athygli á því að hætt hafi verið við að hlaupa með ólympíueldinn um þau svæði Tíbets sem urðu fyrir barðinu á jarðskjálftanum 12. maí. 18.6.2008 11:39
Landhelgisgæslan í ísbjarnaleit í dag - fundað um birnu í ráðuneyti Þyrla Landhelgisgæslunnar fer í eftirlitsflug um Hornstrandir í dag til þess að svipast um eftir ísbjörnum á svæðinu. Frá þessu greinir í tilkynningu frá Gæslunni. Ráðherra fundar sem stendur með yfirdýralækni dýragarðsins í Kaupmannahöfn vegna ísbjarnarins á Hrauni sem felldur var í gær. 18.6.2008 11:27
Tíu þúsund rósanælur ruku út til styrktar Stígamóta Um nýliðna helgi seldu Zontaklúbbarnir á Íslandi rúmlega tíu þúsund rósanælur til styrktar verkefninu Stígamót á staðinn. Féð sem safnaðist verður nýtt til að þjóna betur fólki utan höfuðborgarsvæðisins sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi. 18.6.2008 11:26
Kvenréttindi í hávegum höfð á morgun 19. júní Kvenréttindadagurinn er haldinn hátíðlegur á morgun en þá eru 93 ár síðan konur fengu í fyrsta sinn kosningarétt til alþingis. Kvenréttindafélag Íslands verður með dagskrá í tilefni dagsins auk þess sem blað þeirra 19. júní verður gefið út. Misjafnar skoðanir eru á því hvernig eigi að berjast fyrir réttindum kvenna og hvort það þurfi yfirhöfuð. Margrét Sverrisdóttir telur baráttuna þokast fremur hægt en að ný jafnréttislög séu skref í rétta átt á meðan Sigríður Andersen telur það ekki hlutverk ríkisvaldsins að skipta sér að lífi einstaklinga á þann hátt. 18.6.2008 11:12
Tækifæri til samdráttar í opinberum umsvifum ekki nýtt Þrátt fyrir að tekjur hafi aukist mikið hafa stjórnvöld ekki nýtt tækifærið til að draga hlutfallslega úr umsvifum hins opinbera og létta á framleiðsluspennu. 18.6.2008 10:07
Ísbjörninn tekinn af lífi - myndir Ísbjörninn, sem tekið hafði sér bólfestu skammt frá bænum Hrauni á Skagatá í Skagafirði, var skotinn síðla dags í gær. Ljósmyndarinn Valgarður Gíslason fylgdist með. 18.6.2008 09:08
Ölvun stóð skemur að sögn lögreglu Þrátt fyrir mikið unglingafyllerí í höfuðborginni seint í gærkvöldi og fram undir klukkan 2 í nótt gengu 17. júní hátíðahöldin stórslysalaust fyrir sig. 18.6.2008 08:30