Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gripinn við að kasta af sér þvagi utan í hús á Selfossi Þau eru af ýmsu tagi málin sem lögreglan á Selfossi glímir við á degi hverjum. Þannig var ungur maður staðinn að því að kasta af sér þvagi utan í hús á Eyrarvegi á Selfossi í liðinni viku en slíkt stríðir gegn lögreglusamþykkt Árborgar. 23.6.2008 15:30
Flatskjám og tölvu stolið úr bústöðum Lögreglan á Selfossi rannskar nú fimm innbrot sem tilkynnt var um nýverið, en í öllum tilvikum var brotist inn í sumarbústaði og allnokkrum verðmætum stolið. 23.6.2008 15:21
Pólverjinn lá í þrettán tíma án hjálpar Pólverjinn sem lést á Landspítalanum í síðustu viku vegna höfuðáverka, lá í rúmi sínu í þrettán tíma þangað til að hann var fluttur á sjúkrahús. Hann féll í götuna fyrir utan Frakkastíg 8 mánudagskvöldið 9. júní og herma heimildir Vísis að fallið hafi verið hátt, nokkrir metrar. Viku seinna var slökkt á öndunarvélinni og maðurinn, sem var þrítugur að aldri, úrskurðaður látinn. 23.6.2008 15:15
Vilyrði fyrir Vodafonehjólum í Reykjavík Vilyrði er fyrir því að hjól verði til afnota á höfuðborgasvæðinu borgabúum að endurgjaldslausu. Símafyrirtækið Vodafone hefur verið að gefa sveitafélögum víðs vegar um landið hjól til afnota fyrir almenning. Hefur fyrirtækið lýst yfir vilja til slíks samstarfs við Reykjavíkurborg að sögn Jakobs Frímanns Magnússonar miðborgarstjóra. 23.6.2008 15:14
Fundu „skunk“ í bíl dópaðs ökumanns Lögreglan á Selfossi lagði í síðustu viku hald á nokkrar kannabisplöntur við húsleit eftir að hún hafði stöðvað mann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. 23.6.2008 15:12
Skjólbelti við Ylströnd algjörlega til skammar Lítil uppbyggingin hefur verið við Ylströndina í Nauthólsvík frá því að hún opnaði sumarið 2000. Andvaraleysi borgarstjórnar í málefnum svæðisins endurspeglast líklegast best í sérstöku skjólbelti sem gróðursett var fyrir ofan ströndina og heldur hvorki vatni né vindi eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. 23.6.2008 15:03
Sektuð fyrir að stela bíl og aka honum drukkin Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag konu til þess að greiða 200 þúsund krónur í sekt fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot. 23.6.2008 15:02
Í lagi að nota ráðherrabíla í eigin þágu Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að ráðherrum sé heimilt að nota ráðherrabifreiðar í einkaerindum. ,,Það er alveg ljóst að ráðherrum er heimilt að nota bifreiðar í einkaþágu." 23.6.2008 14:52
Á sjötta hundrað manns vísað frá MH og Verzló Innritun í framhaldsskóla fyrir næsta haust er nú lokið en alls sóttu um 4426 nemendur úr 10 bekk og 4100 eldri nemendur. Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn við Hamrahlíð voru vinsælustu skólarnir og þurftu að vísa frá á sjötta hundrað manns. 23.6.2008 14:44
Víkka út leitarsvæðið á Skaga Leit lögreglunnar á Sauðárkróki og Landhelgisgæslunnar að hugsanlegum hvítabirni á Skaga í Skagafirði hefur enn engan árangur borið og til stendur að víkka út leitarsvæðið. 23.6.2008 14:42
Farþegamet hjá Sæferðum Farþegamet var slegið hjá Sæferðum í Stykkishólmi á laugardaginn var þegar rúmlega ellefu hundruð farþegar sigldu með skipum fyrirtækisins. 23.6.2008 14:13
Ísbjörn við Bjarnarvötn? - mynd Sjónarvottarnir sem telja sig hafa séð ísbjörn við Bjarnarvötn í gær segjast vissir í sinni sök um að dýrið sem þau sáu hafi verið ísbjörn. Á fréttavefnum Skagafjörður.com er viðtal við fólkið en þau náðu mynd af kvikindinu áður en þau tóku til fótanna. 23.6.2008 13:10
Krýsuvíkurvegur lokaður að hluta vegna malbikunar Krýsuvíkuvegur verður lokaður frá Bláfjallaafleggjara klukkan átta í kvöld til morguns vegna malbikunarframkvæmda. Loftorka vinnur að verkinu og menn þar á bæ höfðu samband við fréttastofu og báðu hana um að koma þessu á framfæri. 23.6.2008 13:09
Sádi-arabískur þingforseti heimsótti Alþingi Saleh Abdulla bin Humeid, forseti sádi-arabíska ráðgjafarþingsins, ræðir nú fulltrúa þingflokkanna, en hann er hér á landi í tveggja daga opinberri heimsókn. 23.6.2008 12:33
Uggur meðal starfsmanna Icelandair Uggur er meðal starfsmanna Icelandair en félagið hefur boðað fjöldauppsagnir um næstu mánaðamót. Starfsmenn félagsins funda á morgun. 23.6.2008 12:16
Nýrri eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar breytt Tímamót urði í smíði nýrrar eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar á föstudaginn var þegar flugvélaverksmiðjan Bombardier í Toronto afhenti hana til Field Aviation sem breytir henni í eftirlitsflugvél. 23.6.2008 12:11
Lést í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi Drengurinn sem lést í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk aðfaranótt laugardagsins 21. júní 2008 hét Örn Sigurðarson, búsettur að Granaskjóli 52 í Reykjavík. Örn var 19 ára. 23.6.2008 11:54
80-100 missa vinnuna hjá Flugþjónustunni Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli hefur sagt upp á bilinu 80-100 manns í 70-75 stöðugildum og missa starfsmenn vinnuna í lok september. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. 23.6.2008 11:24
Bíður eftir niðurstöðu fundar Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags atvinnuflugmanna, vill að svo stöddu ekki láta hafa neitt eftir sér varðandi fyrirhugaðir uppsagnir hjá Icelandair. 23.6.2008 11:07
Héðinn býðst til að smíða ísbjarnarbúr Málmtæknifyrirtækið Héðinn hefur boðið ísbjarnarnefnd umhverfisráðuneytisins að smíða ísbjarnarbúr, eitt eða fleiri eftir þörfum. 23.6.2008 11:06
Engin sjóræningjaskip hafa sést á Reykjaneshrygg Ekki hefur sést til svokallaðra sjóræningjaskipa á Reykjaneshrygg við eftirlit Landhelgisgæslunnar með karfaveiðum þar að undanförnu. 23.6.2008 10:53
Þriðji ísbjörninn á Skaga? Við hefðbundið ísbjarnarflug á Skagaheiði í gærkvöld sást hvítt þunglamalegt dýr á ferðinni. Ekki tókst að staðfesta að um ísbjörn væri að ræða en leit hélt áfram í nótt og stendur í raun enn eftir því sem segir á vefnum Skagafjörður.com. 23.6.2008 10:29
Atkvæðagreiðslu um yfirvinnubann hjá hjúkrunarfræðingum lokið Atkvæðagreiðslu um boðun yfirvinnubanns meðal hjúkrunarfræðinga lauk á miðnætti og mun stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hittast á fundi í hádeginu í dag og fara yfir niðurstöðuna. 23.6.2008 10:11
Maður lést af höfuðáverkum - Mögulegt manndráp á Frakkastíg Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort Pólverji, sem lést af höfuðáverkum á sjúkrahúsi á föstudag, hafi verið myrtur. Landi hans, sem heimildir Vísis herma að sé nágranni mannsins, hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálfa aðra viku en það rennur út í dag. 23.6.2008 10:06
Flatskjá og heimabíói stolið í bústað á Þingvöllum Brotist var inn í sumarbústað á Þingvöllum seint í gærkvöldi. 23.6.2008 09:31
Ísbjarnaflug á Tröllaskaga í dag? Landhelgisgæslan ætlar aftur í ísbjarnarflug í dag og verður endanleg ákvörðun um flugið tekin nú fyrir hádegið 23.6.2008 09:30
Sjötíu prósent vilja kanna pólitískar rætur Baugsmáls Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins eru sjötíu prósent landsmanna eru hlynntir því að rannsaka hvort Baugsmálið eigi sér pólitískar rætur. 23.6.2008 09:25
Íbúðalánasjóður lækkar vexti um 0,15 prósentustig Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti um 0,15 prósentustig. 23.6.2008 09:24
Kaupmáttur launa rýrnar um rúm fjögur prósent Kaupmáttur launa hefur rýrnað um um það bil fjögur prósent síðustu tólf mánuði ef tekið er mið af þróun launavísitölu og verðbólgu. 23.6.2008 09:16
Vill ekki tjá sig um uppsagnir Icelandair Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair vill ekki tjá sig um fyrirhugaðar uppsagnir félagsins að svo stöddu. Í samtali við Vísi í morgun benti hann á fjölmiðlafulltrúa félagsins en ekki hefur tekist að ná tali af honum í morgun. 23.6.2008 08:25
Segja skipulagt fyrir forsetann „Tillagan virðist fyrst og fremst gerð með það í huga að taka út lóðina Miðskóga 8,“ bókuðu fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks þegar meirihluti Á-lista í skipulagsnefnd Álftaness samþykkti breytingu á deiliskipulagi Vestur-Skógtjarnarsvæðis. 23.6.2008 06:00
Búið að finna eiganda hvolpsins Lögreglan á suðurnesjum er búin að finna eiganda hvolpsins sem fannst í hrauni við Kúagerði skammt frá veginum þar sem keyrt er að Keili. Málið verður rannsakað enn frekar. Dýralæknir sem annaðist hvolpinn segir hann á góðum batavegi og muni jafna sig að fullu. 22.6.2008 18:07
Hátt í 90% keyra minna eftir eldsneytishækkun Hátt í níutíu prósent landsmanna eru farin að keyra minna eftir að bensínverðið rauk upp, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Fleiri konur spara við sig í dýrtíðinni en karlar og þeir sem hæstar hafa tekjurnar eru ólíklegastir til að draga úr notkun bílsins. 22.6.2008 18:32
Baðstrandargestir leita skjóls undir rofabörðum Enn er áratugur hið minnsta þar til skjól skapast við eina baðstrandarsvæði Reykvíkinga - Ylströndina í Nauthólsvík. Umsjónarmaður svæðisins segir dapurt að borgaryfirvöld hafi ekki hugsað fyrir skjólmyndun. Barátta hans fyrir skjóli hefur skilað gróðurbelti sem nú teygir sig fáeina sentímetra í loft upp. 22.6.2008 19:40
Þyrla landhelgisgæslunnar sá enga ísbirni Þyrla landhelgisgæslunnar flaug eftirlitsflug nú í dag til þess að kanna hvort einhverjir ísbirnir væru á vappi. Flaug þyrlan yfir svæði frá Aðalvík að Sauðárkróki en sáu enga ísbirni á leiðinni. 22.6.2008 18:20
Bilun í jarðskjálftamæli Glöggir lesendur heimasíðu Veðurstofu Íslands ráku upp stór augu þegar jarðskjálftamælir stofunnar sýndi jarðskjálfta upp á 5,7 á richter rúma 11,5 km SSA af Bárðarbungu um klukkan 15:00 í dag. 22.6.2008 17:25
Segir Svan ófrægja Hannes Hólmstein Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjáir sig um greinar Svans Kristjánssonar prófessors sem birtust í Fréttablaðinu í vikunni á heimasíðu sinni. 22.6.2008 16:54
Taugaveiklunarbragur á ríkisstjórninni Húsnæðisaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru krampakenndar ákvarðanir til að friðþægja háværa hagsmunaaðila, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslyndra. Hann telur að aðgerðirnar viðhaldi þenslunni og lengi í verðbólgunni. 22.6.2008 12:15
Hringurinn farinn að þrengjast um hundaníðinginn Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki haft uppi á eiganda hvolpsins sem fannst grafinn lifandi í gærmorgun. Fjölmargir hafa hringt og nokkrar vísbendingar hafa borist vegna málsins. Fólki blöskrar meferðin á hvolpinum sem dýralæknir telur að muni ná sér. 22.6.2008 09:48
Stungið á hjólbarða sjö bifreiða í Reykjanesbæ Lögreglan á Suðurnesjum kærði í nótt tvo ökumenn fyrir ölvun við akstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru tveir aðilar handteknir fyrir óspektir í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. 22.6.2008 09:24
Fengu hrefnu í trollið Áhöfnin á Guðmundi VE 29 frá Vestmannaeyjum, fékk hrefnu í trollið hjá sér þar sem skipið var á síldveiðum við Jan Mayen. Þorbjörn Víglundsson skipverji á Guðmundi greinir frá þessu á bloggsíðu sinni. 22.6.2008 09:18
Sjálfstæðisflokkurinn tapar þriðjungi á landsbyggðinni Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman um tæp sex prósentustig frá því í apríl. 32,8 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 22.6.2008 07:00
Þjóðin vill íbúðalánasjóð áfram Þjóðin vill ekki leggja niður Íbúðalánasjóð og láta banka og lífeyrissjóði sjá um að lána fólki til húsnæðiskaupa. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu Stöðvar 2 sem leiðir í ljós að aðeins tæp tvö prósent landsmanna vill að sjóðurinn verði lagður niður. 21.6.2008 21:00
Útthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ Í gær var í fyrsta sinn úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Þeir 25 afburðastúdentar sem valdir voru úr hópi glæsilegra fulltrúa ungra námsmanna komu úr 14 framhaldsskólum og þeir sækjast eftir inngöngu í 15 ólíkar námsleiðir. 21.6.2008 18:05
Grófu hund lifandi við Kúagerði Í hádeginu í dag barst lögreglunni tilkynning um hund sem hefði fundist í hrauninu skammt frá Kúagerði, þar sem ekið er í áttina að Keili. 21.6.2008 16:56