Fleiri fréttir

Kvartað undan snjósköflum á Öxnadalsheiði

Lögreglunni á Akureyri bárust kvartanir um snjóskafla frá ökumönnum sem leið áttu um Öxnadalsheiðina í nótt. Einn þeirra spurði raunar hvort ekki ætti að hálkuverja heiðina í nótt.

Biðja að heilsa drottningunni

„Skemmtu þér vel í kóngsins Köben. Við biðjum að heilsa drottningunni,“ sagði Kristinn Kristinsson, forseti Kiwanisklúbbsins Höfða í Grafarvogi, þegar hann afhenti Rakel Árnadóttur 100.000 króna styrk í Danmerkursjóð hennar.

Tónleikahald tókst eins og best var á kosið

Talið er að um þrjátíu þúsund manns hafi lagt leið sína í Laugardalinn í dag og í kvöld til þess að hlýða á tónleika Sigur Rósar, Ólafar Arnalds og Bjarkar Guðmundsdóttur.

Háskólamenn semja um 20.300 króna hækkun

Samkomulag náðist í kjaraviðræðum 23 stéttarfélaga háskólamanna við ríkið í kvöld. Háskólamenn fá jafnframt endurskoðun á starfsmenntunarmálum.

Sérsveitin send til Grímseyjar að handtaka vopnaðan afbrotamann

Sérsveit lögreglunnar var send til Grímseyjar nú skömmu fyrir kvöldmatinn til að handtaka afbrotamann þar. Var maðurinn vopnaður hníf og sleggju og ógnaði eyjabúum sem og gestum á árlegu sjóstangaveiðimóti sem þar er haldið um helgina.

Vilhjálmur segir krónuna ónýta og fjöldauppsagnir framundan

Peningastefna Seðlabankans er úr sér gengin og krónan ónothæf fyrir íslensk fyrirtæki að mati Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir ástandið alvarlegt og að það eigi eftir að versna með tilheyrandi fjöldauppsögnum.

Verslun á Selfossi blómstrar í kjölfar jarðskjálftans

Verslun á Selfossi blómstrar sem aldrei fyrr í kjölfar Suðurlandsskjálftanna og hafa flatskjáir notið sérstakra vinsælda. Minnir ástandið á jólavertíðina og rúmlega það, að sögn Orra Smárasonar verslunarstjóra BT á Selfossi.

Augun beinast að Kappa frá Kommu

Hestamenn eru sumir farnir að spá því að Kappi frá Kommu verði næsti Orri frá Þúfu eftir að hann óvænt sló heimsmet í stóðhestadómum á dögunum. Kappi kemur frá hrossaræktarbúi í Skagafirði sem sendir tuttugu hross á landsmót hestamanna í næstu viku.

Esjudagurinn haldinn hátíðlegur í dag

Ferðafélag Íslands og SPRON halda Esjudaginn hátíðlegan í dag. Afar fjölbreytt fjölskyldudagskrá verður í boði í allan dag en hátíð hófst kl. 13.00

Suðurstrandarvegur boðinn út

Vegagerðin hefur boðið út stærsta hluta Suðurstrandarvegar, þess kafla sem liggur milli Þorlákshafnar og Krýsuvíkur, og á verkinu að vera að fullu lokið eftir þrjú ár.

Sammála því að Norðurpólsísinn sé að hverfa

Þór Jakobsson veðurfræðingur er sammála mati bandaríska vísindamannsins Mark Serreze um að heimskautaísinn við Norðurpólinn sé að hverfa og að pólinn verði íslaus innan tíðar.

Hitinn á hálendinu er víða við frostmarkið

Fremur kalt var á landinu í morgunsárið miðað við árstíma en ísköld norðanátt leikur um landið. Hiti á hálendinu var við frostmarkið, allt frá Hveravöllum til Kárahnjúka.

Brotist inn í pylsuvagninn á Akureyri í nótt

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna ölvunnar fólks í bænum. Þá var tilkynnt um innbrot í pysluvagninn í miðbæ Akureyrar í nótt. Það mál er upplýst og munu ölvaðir unglingar hafa staðið að innbrotinu.

Talsvert tjón í eldsvoða í myndlistarskólanum á Akureyri

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi barst slökkviliði Akureyrar tilkynning um eld í myndlistarskólanum í Kaupvangsstræti. Allt vakthafandi lið frá aðalstöð og flugvelli var kallað á staðinn, ásamt því að mannskapur af tveimur frívöktum var kallaður til.

Pólstjörnukarl dæmdur aftur

Bjarni Hrafnkelsson, sem í febrúar hlaut átján mánaða fangelsisdóm fyrir aðild sína að Pólstjörnumálinu svokallaða, hefur verið dæmdur fyrir brot á lögum um eftirlit með skipum, lögum um vaktstöð siglinga og lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna og áhafnalögum.

800 misst vinnuna í hópuppsögnum

Samtals hafa 800 manns misst vinnuna í hópuppsögnum á árinu. Ellefur tilkynningar um hópuppsagnir hafa borist vinnumálastofnun frá áramótum þar af fimm frá því í byrjun síðasta mánaðar.

Ekki ríkisstjórninni að þakka

Ingibjörg Þórðardóttir, formaður félags fasteignasala, segir tvöföldun þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu miðað við síðustu viku ekki aðgerða ríkisstjórnarinnar að þakka.

Farið yfir notkun frístundakorta í sumar

Marktækur munur greinist á nýtingu frístundakorta eftir tekjum fjölskyldna. Stjórn Íþrótta- og tómstundaráðs samþykkti tillögu minnihlutans á fundi fyrr í dag að farið verði yfir málið í sumar í því skyni að ÍTR hafi mótaðar tillögur um úrbætur áður en vetrarstarfið hefst í haust.

Harðduglegur kortaþjófur í gæsluvarðhald

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrr í vikunni yfir síbrotamanni í Reykjavík. Maðurinn hefur viðurkennt að hafa stolið greiðslukorti og greitt fyrir fartölvu sem hann síðan endurseldi fyrir 10 grömm af amfetamíni. Lögreglan er með alls þrettán önnur mál sem maðurinn er sterklega orðaður við.

Auðveldara að leita réttar síns sem neytandi en skattgreiðandi

Auðveldara virðist vera að leita réttar síns sem neytandi en sem skattgreiðandi sé litið á úrræðamöguleika sem maður hefur. Ef skatturinn eða tollurinn bregst að koma með skýringar eru það helst formlegt bréf, yfirskattanefnd eða umboðsmaður alþingis sem leita þarf til.

Tvöfalt fleiri kaupsamningum þinglýst

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu tvöfaldaðist á milli vikna. Í vikunni 20.-26. júní voru samningarnir 62 en í seinustu viku nam fjöldi þeirra 33.

Fimm milljarða lánsheimild vegna leiguíbúða

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að veita fimm milljarða króna lánsheimild til Íbúðalánasjóðs vegna leiguíbúða.

Bakkafjöruvegur hefur áhrif á fuglalíf

Skipulagsstofnun telur að framkvæmdir vegna ferjuhafnar í Bakkafjöru, vegna nýrrar Vestmannaeyjaferju, séu ásættanlegar en setur þó skilyrði fyrir framkvæmdinni. Þetta kemur fram í áliti stofnunarinnar sem lagt var fram í dag.

Hægt að bjóða út rekstur á ráðherrabílum

Guðmundur Hannesson hjá Innkaupastofnun segir að hægt sé að bjóða út kaup og rekstur á ráðherrabifreiðum. ,,Það er hugsanlegt. Það er hægt að bjóða allt út," segir Guðmundur.

Bjóða ungum jafnaðarmönnum í Vg

Ung Vinstri - græn hvetja ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar, Unga jafnaðarmenn, til þess að endurskoða val sitt á flokki í ljósi nýjustu frétta.

Tók upp samfarir á símann sinn

Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir brot gegn blygðunarsemi 17 ára stúlku. Maðurinn var staddur í sumarbústað og tók upp myndskeið á símann sinn, þar sem vinur hans hafði samfarir við stúlkuna í heitum potti. Eitt myndskeiðanna sendi hann í síma tengdamóður sinnar.

Sýknaður af hnífstungu við Hellisheiðarvirkjun

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag pólskan karlmann af ákæru um líkamsárás. Honum var gefið að sök að hafa lagt til samlanda síns með eggvopni þanning að hann fékk skurð á kálfa. Atvikið átti sér stað í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í nóvember í fyrra.

Halldór vissi af aðgerðum ríkisstjórnar klukkan þrjú

Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans og formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja, vissi klukkan þrjú um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármálamarkaði og kynntar voru einum og hálfum tíma síðar síðastliðinn fimmtudag. Þetta er staðfest í yfirlýsingu sem Landsbankinn sendi frá sér í dag.

Aukin aðsókn í störf á sambýlum og frístundaheimilum

Það hefur varla farið framhjá mörgum að atvinnumarkaðurinn hefur breyst umtalsvert í ár. Síðustu ár hefur reynst erfitt að manna störf á vegum ríkis og sveitafélaga, til að mynda í þjónustu við fatlaða, leikskólum og frístundaheimilum. Vegna samdráttar stóru fyrirtækjanna upp á síðkastið hefur þó reynst breyting þar á. Bæði Guðný Anna Arnórsdóttir starfsmannastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík sem og Steingerður Kristjánsdóttir sem sér um starfsmannamál fyrir frístundaheimili í Reykjavík sjá aukningu í aðsókn í störf hjá þeim.

Topp-Starf er gott starf

Í sumar hafa ungmenni með þroskahömlun á aldrinum 16 til 20 ára starfað í verkefninu Topp-Starf í Hinu Húsinu. ,,Það er rosalega gaman í vinnunni. Mér finnst skemmtilegast að vinna í barnagæslunni í World Class út af því litlu börnin eru svo skemmtileg við mig. Mér finnst gott að prófa öðruvísi vinnur. Ég hef líka unnið í Bónus við að safna kerrum saman, í Valsheimilinu og Póstinum en mér finnst skemmtilegast í barnagæslunni,” segir Ásdís Ásgeirsdóttir, starfsmaður Topp-Starfs.

Margir sækja um í HR

Mikil eftirspurn er eftir að komast í nám í Háskólanum í Reykjavík. Alls sóttu rúmlega 2200 manns um skólavist við skólann fyrir næsta skólaár. Aldrei fyrr hafa jafnmargir sóst eftir því að stunda nám við skólann. Í fyrra voru umsækjendur í fyrsta sinn í sögu skólans yfir 2000. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR.

Sjá næstu 50 fréttir