Fleiri fréttir

Tjónatilkynningum rignir yfir tryggingafélögin

Tæplega tvö þúsund tilkynningar hafa borist tryggingafélögum vegna tjóns eftir skjálftann á Suðurlandi. Tryggingafulltrúar hafa í dag gengið hús úr húsi til að eignatjón íbúa á skjálftasvæðinu.

Viggó nærri uppseldur

Ljósmyndir leikarans Viggó Morthesen seldust nær upp þegar ljósmyndasýning hans var opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag.

Fimmhundruð íbúða hverfi í Vogum

„Þetta er eins og að handleika stýripinna í tölvuleik," sagði Birgir Örn Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Voga, við Víkurfréttir eftir að hann hafði farið fimum fingrum um stjórntæki stórvirkrar skurðgröfu.

Íslendingur berst á Hawaii

Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson tekur þá í Opna meistaramótinu (Hawaiian Openhampionship) í brasilísku Jiu Jitsu á Hawaii á morgun.

Sjóminjasafnið í Reykjavík opnað á ný

Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík hefur verið opnað að nýju eftir endurbætur og stækkun. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði safnið í morgun. Safnið er nú opið almenningi.

Mikil skjálftavirkni í gær og nótt

Mikil skjálftavirkni var á skjálftasvæðinu í Ölfusi í gærkvöldi og í nótt. Fjórir skjálftar á bilinu 3,3 til 3,6 stig á richter urðu í gærkvöldi og um fimmtán mínútur yfir fimm í morgun varð jarðskjálfti upp á 3,5 stig á richter. Búast má við fleiri eftirskjálftum á næstu dögum.

Hvergerðingum ráðlagt að sjóða vatn

Almannavarnir vilja koma þeim skilaboðum til íbúa Hveragerðis að sjóða neysluvatn áður en það er notað. Búið er að taka sýni af vatninu til rannsóknar og eru niðurstöður af rannsókninni væntanlegar á morgun.

Fjöldahjálparstöðvar opnaðar í dag

Það var nokkuð um eftirskjálfta fyrir austan í nótt, en þó miklu minni en sá 4,5 á Richter sem varð milli klukkan tíu og ellefu í gærkvöldi.

Öflugir eftirskjálftar í Hveragerði í kvöld

Nokkrir öflugir eftirskjálftar urðu norðan við Hveragerði rétt upp úr klukkan tíu í kvöld. Tveir stærstu kippirnir voru um og yfir fjóra á Richter og eru það stærstu eftirskjálftarnir sem mælst hafa í dag.

Vínbúðirnar opnar aftur á morgun

Þrátt fyrir mikið rask af völdum jarðskjálftans í gær hefur tekist að hreinsa vínbúðirnar á Selfossi og í Hveragerði. Búðirnar verða því opnar á morgun með hefðbundnum hætti.

Þjónustumiðstöð fyrir þolendur jarðskjálftanna set á fót

Samkvæmt tillögu dómsmálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands að sett yrði á fót tímabundin þjónustumiðstöð fyrir þolendur jarðskjálftanna í Árnessýslu. Sú ákvörðun var m.a. byggð á grein í nýjum lögum um almannavarnir.

Útveggur við það að hrynja á Eyrarbakka - Hjálparsveitarmenn vinna að lagfæringum

Hjálparsveit skáta í Kópvogi vinnur nú að því að styrkja vegg á stóru iðnaðarhúsnæði á Eyrarbakka. Óttast er að veggurinn gæti hrunið, og húsið jafnvel líka, ef ekki verður eitthvað að gert. Hjálparveitarmenn hafa því gripið til þess ráðs að grafa skurð við vegginn. Þar verður svo steypt til þess að stuðningur fáist. Gert er ráð fyrir að menn ljúki þessari vinnu skömmu eftir miðnætti.

Fórnarlömb Gísla Hjartarsonar fá uppreist æru

Tveir menn, sem urðu fyrir ítrekuðu kynferðislegu ofbeldi af hálfu Gísla Hjartarsonar þegar þeir voru ungir drengir, fengu nýlega úthlutað hæstu mögulegu skaðabótum frá Bótanefnd ríkisins.

Skjálftinn tæmdi vínskápana - Myndband

Vísi barst í dag upptökur úr eftirlitsmyndavélum skemmtistaðsins 800 Bar á Selfossi. Þær sýna vel hversu kraftmikill skjálftinn var enda tæmast einir fjórtán vínskápar á mettíma þegar skjálftinn reið yfir.

Hættuástandi aflýst

Almannavarnanefndir Árborgar og nágrennis og Hveragerðis hafa ákveðið að höfðu samráði við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra að aflétta hættuástandi vegna jarðskjálfta.

Hefnd Jóns Geralds

"Þetta er Baugsmálið á mannamáli," segir Jón Gerald Sullenberger um heimasíðu sem hann setti nýverið á laggirnar. Á henni má finna ýmis gögn og greinar sem varða Baugsmálið en Jón Gerald er einn af upphafsmönnum þess.

Magnaðar skjálftamyndir úr öryggismyndavél á Selfossi

„Aðkoman var auðvitað ekki góð, það hafði hrunið úr hillum og aðeins úr loftunum,“ segir Guðmundur Elíasson stöðvarstjóri á þjónustustöð N1 á Selfossi. Vísir yfir undir höndum myndir úr öryggismyndavél stöðvarinnar þegar skjálftinn reið yfir. Starfsstúlka átti fótum sínum fjör að launa.

Innilegt þakklæti til allra sem aðstoðað hafa bæjarbúa

Á fundi bæjarstórnar Hveragerðis í dag var eftirfarandi bókun samþykkt. Bæjarstjórn Hveragerðis vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra björgunar- og viðbragðsaðila sem hafa aðstoðað bæjarbúa í þeim atburðum sem dunið hafa yfir undanfarinn sólarhring.

Stærsti samningur OR frá upphafi

Í dag var skrifað undir stærsta samning sem Orkuveita Reykjavíkur hefur gert frá upphafi. Samningurinn er gerður við fyrirtækin Mitsubishi og Balcke-Dürr um kaup á fimm vélasamstæðum fyrir gufuaflsvirkjanir á Hengilssvæðinu.

Kraftaverkin gerast enn

Þrátt fyrir að meirihluti frétta frá Suðurlandi undanfarinn sólarhring hafi verið fremur neikvæðar má einnig finna jákvæðar fréttir. Þannig hefur Vísi borist fregnir af heimili Hrafnhildar Ingibergsdóttur við Grundartjörn á Selfossi sem varð ekki fyrir einu einasta hnjaski í jarðskjálftanum. Þegar skjálftinn fór af stað hafði Hrafnhildur fimm mánaða gamlan son sinn í fanginu sem hún flýtti sér með út ásamt eldri syni sínum sem er fimm ára.

VÍS með opið alla helgina vegna skjálftans

VÍS hefur ákveðið að bregðast við miklu álagi og eftirspurn eftir þjónustu og ráðgjöf vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi í gær. Því verða skrifstofur félagsins á Selfossi og í Hveragerð og þjónustuver VÍS í síma 5605000 opin bæði laugardag og sunnudag frá klukkan 9-17.

Fjölda gæludýra saknað í Hveragerði

Linda Gísladóttir, sem búsett er í Hveragerði, hafði samband við Vísi og sagði frá því að fjölda gæludýra væri saknað í bænum. Styggð hafi komið að þeim í skjálftanum í gær og að til margra þeirra hefði ekki enn spurst. „Ég er með kött á heimilinu sem lét sig hverfa um leið og skjálftinn reið yfir,“ segir Linda. „Hann er einn af þessum köttum sem kemur til manns um leið og maður kallar en ég hef leitað hans síðan í gærkvöldi án árangurs.“

Skortur á skyri vegna skjálftans

Starfsstöð Mjólkursamsölunnar á Selfossi varð fyrir barðinu á skjálftanum í gær. Þá féllu til tankar í svokallaðri skyrgerð og því má búast við skorti á skyri sem framleitt er á Selfossi á næstu dögum. Páll Vilhjálmsson framkvæmdarstjóri framleiðslusviðs Mjólkursamsölunnar segir fyrirtækið strax hafa farið í að koma upp öðrum tönkum.

Guðmundur snýr ekki aftur í forstjórastól OR

Guðmundur Þóroddsson, núverandi forstjóri REI, snýr ekki aftur í forstjórastól OR líkt og hugmyndir voru uppi þegar hann tók sér sjö mánaða leyfi sem forstjóri OR í byrjun september á síðasta ári til að sinna REI.

Draga lærdóm af skjálftunum árið 2000

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að aðgerðir viðbragðsaðila í tengslum við jarðskjálftanna í gær hafi heppnast mjög vel. Hann segir að fullt traust hafi ríkt á milli allra aðila sem komu að björgunarstarfi.

Nýr meirihluti í Dalabyggð

Meirihlutinn í Dalabyggð sprakk á fundi bæjarráðs í gær. Meirihlutinn hafði verið í höndum H-lista og N-lista frá 2006 en að sögn Þórðar Ingólfssonar, oddvita H-lista, náðist þá samkomulag um að oddviti N-lista, Gunnólfur Lárusson, myndi sinna starfi sveitarstjóra til tveggja ára.

Konur í Frjálslyndaflokknum ætla að mótmæla á Sjómannadag

Landsamband kvenna í Frjálslyndaflokknum hefur sent frá tilkynningu þar sem það boðar til mótmæla á sjómannadaginn gegn því sem þær kalla mannréttindabrot stjórnvalda í fiskveiðistjórnunarkerfinu. Er ætlun Landsambandsins að safnast saman fyrir framan Stjórnarráðið á sunnudag og ganga að hafnarbakkanum þar sem hátíðahöld sjómannadagsins fara fram.

Eftirskjálftamyndbönd

Íbúar í nágrenni skjálftans komu magir hverjir að heimilum sínum í rúst. Eyðileggingin er greinilega mikil og mikið verk er framundan hjá mörgum.

Fjögurhundruð björgunarsveitamenn voru að störfum

Um það bil tveimur tímum eftir skjálftann í gær var kominn mikill fjöldi björgunarsveitafólks á svæðið með ýmsan búnað. Þegar mest var voru um 400 björgunarsveitarmenn að störfum, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.

Sjá næstu 50 fréttir