Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dagur: Verkefni borgarstjórnar að endurvekja traust Dagur B. Eggertsson var kjörinn borgarstjóri á fundi borgarstjórnar sem hófst klukkan 14. Hann sagði verkefni borgarstjórnar sem heildar að endurvekja traust meðal borgarfulltrúa. 16.10.2007 14:41
Mokar „framsóknarflórinn" úr iðnaðarráðuneytinu „Vatnalögin eru eitt af þeim stóru ágreiningsmálum sem komin eru upp á milli stjórnarflokkanna. Þeir vita ekkert hvernig þeir eiga að leysa úr málinu,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra við upphafi þingfundar í dag. 16.10.2007 14:20
Samið um flug til Vestmannaeyja Flugfélag Íslands skrifaði á dögunum undir samning við Vegagerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Í framhaldi af útboði sem haldið var sl. sumar ákvað samgönguráðherra að fela Vegagerðinni að semja við Flugfélag Íslands um flug á þessari leið. 16.10.2007 14:06
Margrét tekur Hönnu Birnu sér til fyrirmyndar Nýr meirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri - grænnna, Framsóknarflokksins og Frjálslyndra og óháðra tók formlega við völdum í borgarstjórn Reykjavíkur í dag þegar fram fór borgarstjórnarfundur. Borgarstjórnarfundurinn hófst klukkan 14 og var byrjað á því að greiða atkvæði um nýjan forseta borgarstjórnar. 16.10.2007 14:03
Bryndís verður stjórnarformaður OR tímabundið Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður og núverandi aðstoðarrektor á Bifröst, verður stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur á meðan pólitískir fulltrúar í borginni fara yfir málefni fyrirtækisins í heild sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýjum meirihluta. 16.10.2007 13:46
Kvíðaraskanir hjá börnum áhyggjuefni Börn eru kvíðin, haga sér illa, eru stressuð, þunglynd og með lífstíl fræga fólksins á heilanum. Þetta er niðurstaða rannsóknar á grunnskólabörnum í Bretlandi, þeirri fyrstu sinnar tegundar í 40 ár. Hér á landi eru kvíðaraskanir hjá börnum að verða meira áberandi og talið að nokkuð vanti upp á að greina tilfelli. 16.10.2007 13:44
Landsmenn hugi að tungunni Menntamálaráðuneytið hefur sent út dreifibréf þar sem hvatt er til þess að landsmenn hugi nú, eins og undanfarin ár, að íslenskri tungu þann 16. nóvember og dagana þar í kring. 16.10.2007 13:35
Öll tilboðin í síðari áfanga GSM undir kostnaðaráætlun Þrjú tilboð bárust í síðari áfanga GSM-farsímaþjónustu á landinu en tilboðin voru opnuð í dag. Tvö eru frá innlendum fyrirtækjum og eitt frá svissnesku. Tilboðin voru öll undir kostnaðaráætlun fjarskiptasjóðs sem var 732 milljónir króna. 16.10.2007 13:31
Vörubíll valt á Hólmsheiði Vörubíll valt á Hólmsheiði fyrir stundu. Ökumaður var einn í bílnum og slasaðist hann ekki. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu lak talsverð olía úr bílnum og er nú unnið að því að hreinsa hana. 16.10.2007 13:24
Sýknaður af ákæru um líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann af ákæru um líkamsárás við Glaumbar í fyrrasumar. 16.10.2007 12:43
Borgarstjórnarfundur í beinni á Vísi Vísir verður með beina útsendingu frá borgarstjórnarfundi, þegar nýr meirihluti tekur formlega við völdum. 16.10.2007 12:25
FME rýnir í svör Orkuveitunnar vegna REI Fjármálaeftirlitið rýnir nú í svör Orkuveitu Reykjavíkur en grunur leikur á að Orkuveitan sé að fara á skjön við lög um verðbréfaviðskipti og óskaði Fjármálaeftirlitið eftir upplýsingum þar að lútandi fyrir helgi. 16.10.2007 12:15
Auglýsir eftir vitnum að fjöldaslagsmálum á Húsavík Lögreglan á Húsavík hefur auglýst eftir vitnum að fjöldaslagsmálum sem urðu á veitingastaðnum Gamla-Bauk fyrir rúmum hálfum mánuði. 16.10.2007 11:59
Áfram í pólitík Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, ætlar ekki að draga sig út úr stjórnmálum á kjörtímabilinu. Vilhjálmur lætur af starfi borgarstjóra í dag og segist hann hafa óskorað traust sinna félaga til að starfa áfram. 16.10.2007 11:56
Furðar sig á ályktun frjálslyndra kvenna Margrét Sverrisdóttir borgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra furðar sig á því að ályktun Landssambands kvenna í Frjálslynda flokknum beinist einungis að sér en ekki Ólafi F. Magnússyni eða öðrum í hennar borgarstjórnarflokki sem yfirgáfu Frjálslynda flokkinn. 16.10.2007 10:48
Fékk slökkvitæki í kveðjugjöf Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lýkur sínum síðasta vinnudegi sem borgarstjóri í dag eftir aðeins um sextán mánuði í starfinu. 16.10.2007 10:40
Hafna því að sátt sé um verklagsreglur Samtök verslunar og þjónustu hafna þeim orðum framkvæmtastjóra ASÍ í Morgunblaðinu í dag að verðkannanir ASÍ séu unnar út frá verklagsreglum sem sambandið og Samtök verslunar og þjónustu unnu saman og sátt sé um. 16.10.2007 10:07
Lýsa yfir vantrausti á Margréti Sverrisdóttur Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum lýsir vantrausti á Margréti Sverrisdóttur og öll vinnubrögð hennar, þar sem hún gekk úr flokknum en situr samt í umboði hans í borgarstjórn. 16.10.2007 08:53
ASÍ vill ekki hætta verðlagseftirliti Samtök verslunar og þjónustu hafa velt upp óljósum hugmyndum, sem í raun fela í sér að ASÍ hætti verðlagseftirliti, en á það getur ASÍ ekki falllist, segir í tilkynningu fá ASÍ. 16.10.2007 08:05
Lögreglan á Selfossi rannsakar þjófnað á heitu vatni Lögreglan á Selfossi rannsakar nú meintan þjófnað á heitu vatni og eru fleiri en einn og fleiri en tveir grunaðir um þessháttar verknað. 16.10.2007 08:03
Íslendingar í samkeppni við risafyrirtæki í jarðhitaverkefnum Alþjóðlegur jarðhitamarkaður vex hratt og þar ríkir mikil samkeppni. Íslensk útrásarfyrirtæki á þessum markaði eru í samkeppni við bandaríska olíurisann Chevron og önnur risastór alþjóðleg fyrirtæki. 15.10.2007 18:45
Vatnssósa-Rósa Ómars er fyrsti íslenski bíldraugurinn Daihatsu Ferrósa jeppi Ómars Ragnarssonar er nú kominn á fullt eftir að hafa sokkið í Hálslón, verið grýttur, laminn, brotinn og bramlaður. Bílinn var dæmdur algerlega ónýtur eftir atlögu óþekktra varga að honum við Hálslón en Ómar segir að svo virðist sem bíllinn sé nú genginn aftur. 15.10.2007 18:45
Sextán prósent háskólastúdína glíma við einkenni átröskunar Höfundar nýrrar heimildarmyndar um átröskun segja mikið ráðaleysi í heilbrigðiskerfinu í baráttunni við sjúkdóminn. Nýleg könnun sýnir að um sextán prósent kvenna í Háskóla Íslands glími við einhver einkenni átröskunar. Heimildarmyndin hefur vakið afar sterk viðbrögð en hún var frumsýnd í gærkvöldi. 15.10.2007 18:08
Ógilti flutning í starfi innan Landspítalans Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í dag þá ákvörðun forsvarsmanna Landspítalans að flytja hjúkrunarfræðing til í starfi, af geðdeild Landspítalans við Hringbraut yfir á geðdeildina á Kleppi. 15.10.2007 16:51
Vilja miðla fæðingarorlofsreynslu Norðurlandabúa Reynslan norrænu ríkjannasýnir að feður taka frekar barneignaorlof ef gert er ráð fyrir ákveðnu tímabili sem fyrnist ef það er ekki nýtt. Þetta kom fram í máli Stefans Wahlin, jafnréttisráðherra Finna, á fundi norrænu janfréttisráðherranna í Finnlandi. 15.10.2007 16:32
Gæsluvarðhald framlengt yfir Hringbrautarmanninum Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi nú á fjórða tímanum gæsluvarðhaldsúrskurð yfir 38 ára gömlum manni sem grunaður er um að hafa myrt nágranna sinn á Hringbraut á sunnudag fyrir viku. 15.10.2007 16:13
Dæmdur nauðgari sakfelldur fyrir að nefbrjóta fyrrverandi kærustu Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í dag karlmann á þrítugsaldri, Edward Koranteng, fyrir að hafa slegið fyrrverandi sambýliskonu sína og nefbrotið hana en gerði honum ekki sérstaka refsingu þar sem hann hafði þegar verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun. 15.10.2007 16:07
Alvarlegt bifhjólaslys á Krýsuvíkurvegi Ökumaður bifhjóls var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild Landspítalans eftir að hann féll af hjólinu á Krýsuvíkurvegi. Slysið varð rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Maðurinn var á leið í beygju inn á Bláfjallarveg en ók út af og hafnaði í hrauni. Ekki er vitað hversu alvarlega maðurinn slasaðist. 15.10.2007 15:48
Stunginn í bakið með brotnum flöskustút Aðfaranótt 14. október var lögreglu tilkynnt um líkamsárás við heimahús Vestmannaeyjum og fylgdi tilkynningunni að maður hafi verið stunginn í bakið með glerbroti. Á vettvangi var maður sem grunaður var um verknaðinn handtekinn en hann var jafnframt grunaður um að hafa brotið rúðu í útidyrahurð í sama húsi. 15.10.2007 15:39
Ríkisstjórnin standi við stóru orðin og efli verkmenntun Fulltrúaráð VM, Félags vélstjóra og málmtæknimanna, skorar á ríkisstjórnina að ganga rösklega til verks í samræmi við stefnuyfirlýsingu sína um að efla fag- og verkmenntun á Íslandi. 15.10.2007 15:32
Smyglskútugengið senn úr einangrun Fimm menn sem grunaðir eru um aðild að Fáskrúðsfjarðarmálinu svokallaða hafa í dag verið færðir í héraðsdóm til þess að staðfesta fyrir dómi skýrslur sem lögregla hefur tekið af þeim. 15.10.2007 15:07
Vill Guðfinnu úr Evrópuráðinu vegna sköpunarkenningarmála Líffræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands fer fram á það að fulltrúi Íslands í Evrópuráðinu, Guðfinna Bjarnadóttir þingmaður, verði kölluð heim og nýr fulltrúi skipaður í hennar stað. 15.10.2007 14:29
Frelsi til sölu á áfengi aftur rætt á þingi Fyrsta mál á þingfundi alþingis sem hefst kl. 15.00 í dag er frumvarp til laga um afnám einokunnar ÁTVR á sölu á léttu áfengi. Frumvarpið um frelsi til sölu á léttu áfengi og bjór hefur verið lagt fram á fjórum síðustu þingum en aldrei hlotið afgreiðslu. 15.10.2007 14:05
Búa sig undir annríki vegna útboðs á lóðum Framkvæmdasvið býr sig nú undir mikið annríki á föstudaginn kemur en þá rennur út tilboðsfrestur í lóðir sunnan Sléttuvegar í Fossvogi. 15.10.2007 13:58
Oddný sér um menntamál í borginni Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, verður forystumaður í menntamálum í borginni ef marka má heimasíðu menntasviðs og leikskólasviðs borgarinnar. 15.10.2007 13:45
Telur Íslandshreyfingarfólk hafa áhrif á umhverfisstefnu borgarinnar Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, telur að koma síns fólks í borgarstjórn muni hafa áhrif á stefnu borgarinnar í umhverfis- og stóriðjumálum. Margrét Sverrisdóttir, varaformaður Íslandshreyfingarinnar, verður forseti borgarstjórnar þegar nýr meirihluti tekur við borginni á morgun. 15.10.2007 13:15
Björgunarsveitarmenn á eigin bílum í útköllum Starfsemi björgunnarsveita landsins byggir að mestu á sjálfboðavinnu meðlima sveitanna eins og kunnugt er. Hluti þeirra mun þar að auki leggja fram eigin bíla í þágu starfseminnar. Er þetta einkum hjá minni björgunarsveitum úti á landi þar sem bíla- og tækjakostur er ekki eins öflugur og hjá stærri sveitunum. 15.10.2007 13:14
Ekki stefnt á að setja HydroKraft á markað Ekki stendur til að setja HydroKraft Invest á almennan markað og enn sem komið er hafa engir starfsmenn verið ráðnir til fyrirtækinins. Landsvirkjun Invest á 50 prósenta hlut í fyrirtækinu sem hefur þann tilgang að leita eftir verkefnum erlendis, aðallega í Austur-Evrópu. 15.10.2007 12:50
Beðið eftir því hvernig málum REI vindur fram hjá nýrri borgarstjórn Helstu eigendur Hitaveitu Suðurnesja funduðu í morgun um framtíð fyrirtækisins sem hefur verið hulin nokkurri óvissu frá því tilkynnt var um sameiningu Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest. Gunnar Svavarsson, fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar í stjórn HS, segir að beðið verði eftir því hvernig málum REI vindur fram undir stjórn nýs meirihluta í borginni áður en frekari ákvarðanir verði teknar í málinu. 15.10.2007 12:37
Rannsakar heitavatnsþjófnað í sumarbústöðum Lögregla á Selfossi hefur til rannsóknar nokkrar kærur vegna meints þjófnaðar á heitu vatni. Fram kemur í frétt lögreglunnar að málin snúi að sumarbústöðum og felist í því að menn hafi náð að taka meira vatn inn í húsin en greitt er fyrir. 15.10.2007 11:55
Velti jepplingi sínum á Hellisheiði Töluvert hefur verið um umferðarslys og árekstra á Suðurlandsvegi í morgun. Rétt fyrir klukkan átta í morgun missti erlendur ferðamaður stjórn á jepplingi sínum uppi á Hellisheiði og fór hann margar veltur utan vegar. 15.10.2007 11:45
Fær ekki að hitta fársjúka móður sína Víetnömsk kona, Lai Thai Nguyen, fær ekki að fara frá Íslandi til að vera hjá fársjúkri móður sinni í Víetnam. Móðir hennar á skammt eftir ólifað. 15.10.2007 11:36
Rusl og rottur til ama á Hverfisgötunni Frá því að húsið á Hverfisgötu 42 var flutt á Bergstaðastræti og gengið var frá sárinu eftir það fyrir framan Samhjálparhúsið hefur heimilisrusl hrúgast upp á lóðinni og þbí fylgir nú rottugangur. Lúðvík Guðnason mengunnarvarnafulltrúi borgarinnar kynnti sér aðstæður í morgun og segir að eitthvað verði gert í þessu máli strax. 15.10.2007 11:26
Hálfs árs fangelsi fyrir að aka ítrekað án ökuleyfis Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ítrekað ekið bíl án ökuleyfis og fyrir að stela bíl og aka honum undir áhrifum áfengis og fíkniefna. 15.10.2007 11:25
Heildarafli dróst saman um þriðjung í september Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði var um þriðjungi minni en í sama mánuði í fyrra miðað við fast verð. 15.10.2007 10:32