Fleiri fréttir

Besta ár í sögu minkaræktar

Geysihátt verð fæst fyrir minkaskinn og var síðasta ár það besta í sögu íslenskra loðdýrabænda, - það er að segja þeirra sem rækta mink, því aðeins einn bóndi er eftir í refarækt. Þar hefur afkoman verið mun lakari.

Lýsa eindregnum stuðningi við álver við Bakka

Kjördæmisráð Sjálfstæðisfélaganna í Norðausturkjördæmi lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform um byggingu álvers við Bakka við Húsavík. „Sá mikli viðsnúningur sem hefur orðið á byggðaþróun á Austurlandi við byggingu Fjarðaáls gefur skýr fyrirheit um þau jákvæðu áhrif sem framkvæmd á Bakka mun hafa," segir í ályktun sem samþykkt var einróma á kjördæmisþingi Sjálfstæðisfélagana í Norðausturkjördæmi.

Björn Ingi sá SMS: Til í allt - án Villa

Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sagði í Silfri Egils á RÚV í dag að hann hefði fyrir því „nokkuð áreiðanlegar“ heimildir að sjálfstæðismenn hefðu verið byrjaðir í meirihlutaviðræðum við aðra flokka þegar REI málið stóð sem hæst í síðustu viku. Hann segist einnig hafa séð SMS skilaboð þar sem stóð: Til í allt - án Villa.

Svandísarmálið fer sína leið

Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG í borgarstjórn segir ekki standa til að fella niður málshöfðun vegna eigendafundar Orkuveitu Reykjavíkur. Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir Ragnari H. Hall að hann teldi ekki ólíklegt að málið verði fellt niður í ljósi þess að nýr meirihluti er tekinn við. Svandís segir hins vegar í samtali við Vísi að eðlilegt sé að málið fari sína leið í kerfinu.

Troðfullt á tónleikum Megasar

Meistari Megas spilaði fyrir fullri Laugardalshöll í gærkvöldi. Hann tók bæði nýja og gamla slagara við mikinn fögnuð áhorfenda.

Atvinnuleysi ekki minna í nítján ár

Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í landinu í 19 ár en innan við 1 prósent landsmanna eru skráðir atvinnulausir. 1336 manns voru skráðir atvinnulausir í september eða 0,8 landsmanna sem er 140 færri en í ágúst.

Snuff á Selfossi

Söluturni á Selfossi hefur verið lokað eftir að á annan tug snuffdósa fundust þar við leit lögreglu og tollgæslu. Svokallað snuff er fínkorna neftóbak sem ólöglegt er að flytja inn og selja.

„Öll flóran í bænum í nótt“

Mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Allar fangageymslur voru fullar eftir nóttina og ekið var á gangandi vegfaranda á Geirsgötu en hann mun ekki hafa slasast alvarlega að sögn lögreglu. Lögregla hafði afskipti af fólki vegna, líkamsárása, brotum á lögreglusamþykkt, ölvun, heimilisófriði, rúðubrotum og fíkniefnum, eða allri flórunni eins og varðstjóri orðaði það í samtali við Vísi.

Fimmtán ára á felgunni

Lögreglan á Selfossi stöðvaði fimmtán ára gamlan ökumann í gærkvöldi. Segja má að drengurinn hafi verið á felgunni í tvennum skilningi þess orðs, því hann var ölvaður undir stýri auk þess sem sprungið hafði á bílnum þannig að hann rásaði um allan veg.

Tælenskur trillusjómaður á Bakkafirði

37 ára gamall Tælendingur er orðinn trillusjómaður á Bakkafirði, er í grásleppunni á vorin en hefur verið á línu og handfærum í haust, og segist hafa fínar tekjur.

Samfylkingin kastar út Græna netinu

Samtökin Græna netið hafa verið stofnuð. Um er að ræða samtök umhverfis- og náttúruverndarmanna í tengslum við Samfylkinguna. Fullt heiti samtakanna er Græna netið - félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina. Í tilkynningu segir að Græna netinu sé ætlað að vera „vettvangur umræðna og stefnumótunar og að veita forystumönnum flokksins í þessum málaflokkum samráð, hvatningu og aðhald."

Samiðn mótmælir framferði atvinnurekanda

Á kjaramálaráðstefnu Samiðnar, Sambands iðnfélaga, sem lauk í dag á Hótel Selfossi voru samþykktar ályktanir þar sem siðlausu framferði atvinnurekenda gagnvart starfsréttindum iðnaðarmanna er mótmælt.

Ný félagshyggjustjórn að taka við í borginni

Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri, segir að ný félagshyggjustjórn sé að taka við í borgarstjórn Reykjavíkur, sem muni leggja ríka áherslu á húsnæðis-. velferðar og leikskólamál. Það var fjölmennt á fundi Samfylkingarinnar við Hallveigarstíg í morgun. Þar fór Dagur yfir helstu málin sem nýr meirihluti ætlar að takast á við.

Ótrúlegt að binda hendur OR á þennan hátt

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ótrúlegt að binda hendur Orkuveitunnar til 20 ára eins og samningur OR og REI gerir ráð fyrir. Gísli og félagar hans í borginni fengu ekkert að heyra af samningnum þrátt fyrir að tveir kynningarfundir hefðu verið haldnir um málið.

Vildi Geir funda án borgarstjóra?

Óljóst er hver átti frumkvæðið að því að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins funduðu með formanni og varaformanni flokksins án Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi kvaðst í hádegisviðtalinu á Stöð tvö í gær halda að Geir H. Haarde hafi viljað hitta borgarfulltrúana eina án borgarstjórans.

Vísir sagði fyrst frá 20 ára samningnum

Vísir greindi fyrstur miðla frá því í gær að Orkuveitan hefði samþykkt að veita REI forgangsrétt að öllum þeim verkefnum sem Orkuveitunni kunni að bjóðast á erlendri grund. Samningurinn er til 20 ára. Það er því rangt sem fram kemur fram í dag í Morgunblaðinu í dag að Ríkisútvarpið hafi fyrst fjölmiðla greint frá málinu.

Keyrði fullur útaf og kallaði á lögreglu

Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur á Selfossi í nótt. Annar var tekinn við hefðbundið eftirlit en hinn keyrði útaf veginum og óskaði eftir aðstoð lögreglu. Kom þá í ljós að hann var ölvaður og gisti hann fangageymslur í nótt.

Þrír keyrðu útaf á sama stað í nótt

Þrjú umferðaróhöpp urðu á sama staðnum á Reykjanesbraut til móts við Vogaveg. Um minniháttar meiðsli var að ræða í tveimur atvikanna en þriðji ökumaðruinn slapp ómeiddur. Í öllum tilvikum óku menn útaf. Einn ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur.

Ók útaf og skildi bílinn eftir

Loka þurfti hringtorginu á Hringbraut við Suðurgötu nú í morgun. Bíl hafði verið ekið útaf og skemmdist hann nokkuð. Í stað þess að kalla á aðstoð lét ökumaðurinn sig hins vegar hverfa og hefur ekkert spurst til hans. Lögregla og slökkvilið mættu á staðinn og var bíllinn dreginn á brott með kranabíl. Að sögn lögreglu er bíllinn ekki stolinn en að öðru leyti er ekkert vitað um hvað ökumanninum gekk til.

Til valda án málefnaskrár

Málefnaskrá nýs meirihluta í Reykjavík mun ekki liggja fyrir fyrr en í næsta mánuði, engu að síður tekur nýr meirihluti við á þriðjudag. Oddviti Vinstri grænna segir að umhverfis- og samgöngumál muni bera þess merki að vera í forsjá þess flokks.

Björn Ingi felldi tár á fundi Framsóknar í dag

Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, var hrærður og felldi tár á tilfinningaþrungnum fundi Framsóknarmanna í Reykjavík í dag. Hann bar lof á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson fráfarandi borgarstjóra. Björn Ingi sagðist finna til með vini sínum, borgarstjóranum fráfarandi. Björn Ingi fékk ótvíræðan stuðning Framsóknarmanna til að starfa í nýjum meirihluta í Reykjavík.

Rýtingur í bak fráfarandi borgarstjóra frá eigin flokksmönnum

Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjórnarfulltrúi og formaður stjórnar Orkuveitunnar, er á því að borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna hafi svikið oddvita sinn og því hafi ekki verið unnt að halda samstarfinu áfram við Sjálfstæðisflokkinn.

Tveggja ára skilorð fyrir líkamsárás

Karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan gistihúsið að Skipalæk í Fellabæ.

Sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Vilhjálm

Stjórn Varðar, fulltrúarráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, lýsti yfir fullum stuðningi við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson sem oddvita flokksins í borginni á fundi ráðsins með borgarfulltrúum í dag. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi, segir að sjálfstæðismenn muni sýna hinum nýja meirihluta aðhald í borgarstjórn.

Flugslysaæfing í Gjögri

Flugstoðir standa um helgina fyrir flugslysaæfingu í samstarfi við viðbragðsaðila í Árneshreppi á Ströndum og af höfuðborgarsvæðinu.

Trúnaðarbrestur hjá sjálfstæðismönnum leiddi til slita

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, óskar sínum mönnum í borgarstjórn til hamingju með að hafa myndað nýjan meirihluta í borginni og segir á ferðinni nýja kynslóð úr öllum flokkum sem unnið geti að góðum verkum.

Keyptu lóðir í Hafnarfirði fyrir milljarð

Félag í eigu Ólafs Garðarssonar lögmanns og Magnúsar Jónatanssonar athafnamanns hefur keypt fasteignir á þremur iðnaðarlóðum við hafnarsvæðið í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum Vísis er kaupverðið um einn milljarður króna.

Vill að íþróttastyrkir verði frádráttarbærir frá skatti

Lagt er til að íþróttastyrkir fyrirtækja til starfsmanna verði frádráttarbærir frá skatti samkvæmt frumvarpi sem nú hefur verið lagt fram á Alþingi. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að með þessu megi draga úr kostnaði heilbrigðiskerfisins.

Gripið til fullnægjandi aðgerða vegna Fjarðarárvirkjana

Iðnaðaráðherra telur að gripið hafi verið til fullnægjandi aðgerða til að tryggja öryggi Fjarðarárvirkjana en hefur lagt fyrir Orkustofnun að fylgjast áfram með framkvæmdum eystra til að tryggja öryggi virkjananna.

Dópsali dæmdur fyrir vopnalagabrot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í tólf mánaða fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, eftir að rúm tvö hundruð grömm af maríjúana og rúm tvö kíló af hassi fundust á heimili hans í Mosfellsbæ.

Framsókn hefði mátt standa oftar í lappirnar í erfiðum málum

„Ég hef fundið til með vini mínum Vilhjálmi Vilhjálmssyni undanfarna daga," sagði Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins á fundi með flokkssystkinum sínum í höfuðstöðvum Framsóknarflokksins við Hverfisgötu. „Hann á ekki skilið þá meðferð sem hann hlaut þegar baklandið í flokk hans brást honumn algerlega."

Viðskiptaleg snilld að koma þekkingu Orkuveitunnar í verðmæti

Nýr meirihluti í borginni hefur engin áhrif á landsstjórnina. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun en hann telur það hafa verið viðskiptalega snilld að koma þekkingu Orkuveitunnar í verðmæti en ráðleggur þó nýjum meirihluta að selja hlut í REI að andvirði því sem Orkuveitan lagði í fyrirtækið í peningum og eignum.

Vandaverk að skipta verkum í nefndum og ráðum

Þegar eru skiptar skoðanir meðal stuðningsmanna nýju borgarstjórnarflokkanna, um hvort kjörfylgi eigi að ráða niðurröðun í nefndir og ráð borgarinnar, eða eitthvað annað. Ungliðar í Vinstri - grænum vilja að Björn Ingi Hrafnsson og Dagur B. Eggertsson geri hreint fyrir sínum dyrum.

Vildu mynda nýjan meirihluta með Sjálfstæðismönnum

Í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag staðhæfði Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, að fulltrúar frá bæði Samfylkingu og Vinstri grænum hefðu leitast eftir því að stofna til meirihlutasamstarfs með Sjálfstæðisflokki áður en meirihlutasamstarf þeirra og Framsóknar sprakk í gær.

Samstarf við sjálfstæðismenn ekki á vetur setjandi

Fundur hófst nú á hádegi hjá framsóknarmönnum í höfuðstöðvum flokksins við Hverfisgötu. Þar ætluðu Björn Ingi Hrafnsson og Óskar Bergsson, fulltrúar flokksins í borgarstjórn, að fara yfir nýjustu sviptingar í borgarstjórn með flokksmönnum sínum.

Skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreðs

Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkurborgar er samansafn af fólki sem hefur það eitt markmið að halda völdum segir Guðlaugur Þór Þórðarsson heilbrigðisráðherra. Hann segir Björn Inga skilgetið pólitískt afkvæmi Alfreð Þorsteinssonar.

Sjálfstæðismenn funda í Valhöll um stjórnarslit í borginni

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna situr nú á fundi í Valhöll og ræðir stöðu mála. Einnig hyggst hann funda með Verði fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík síðar í dag. Það var þungt hljóðið í borgarfulltrúum þegar þeir komu á fundinn.

Íslendingur með 599 grömm af spítti á Kastrup

Í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag var þingfest ákæra á hendur 36 ára Breiðhyltingi fyrir að hafa haft í vörslum sínum 599 grömm af amfetamíni sem fundust í töskugeymslu á Kastrup í október í fyrra.

Reynsluleysi sjálfstæðismanna varð þeim að falli

Reynsluleysi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks varð þeim að falli að mati Margrétar Frímannsdóttur, fyrrverandi formanns Alþýðubandalagsins og talsmanns Samfylkingarinnar. Hún segir ljóst að hluti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna hafi ætlað að kenna Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni lexíu en óvart misst stjórn á atburðarásinni.

Nýi meirihlutinn fundar

Oddvitar hins nýja meirihluti í borginni hittast á vinnufundi eftir hádegi í dag. Ætlunin er að fara yfir helstu mál og setja saman grunnatriði í málefnavinnu meirihlutans.

Sjá næstu 50 fréttir