Fleiri fréttir Lögreglan á Selfossi lýsir eftir vitnum Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitta geta upplýsingar um mannaferðir í og við Sigtún á Selfossi í nótt sem leið að hafa samband við lögreglu. Eldur kom upp í bílskúr við fasteignasöluna Bakka við Sigtún í nótt og telur lögregla allar líkur á því að um íkveikju sé að ræða. 13.8.2007 11:59 Bílvelta á Hólsfjallavegi Bíll velti á Hólsfjallavegi á fimmta tímanum í gær. Ökumaður og farþegar sluppu ómeiddir. Lögreglan segir að árlega eyðileggist fjölmargir bílar á þessum vegi þegar ferðamenn velta þeim. 13.8.2007 11:46 Um 100 þúsund kr. á mann úr Samvinnutryggingum Venjuleg fjölskylda sem tryggði hjá Samvinnutryggingum gt árin 1987 og 1988 má búast við að fá að meðaltali um 100.000 kr. eftir að skiptum á félaginu lýkur í ár. Kristinn Hallgrímsson hrl. formaður skiptanefndarinnar segir að þeir hafi tekið stikkprufur á hvaða upphæðir hver fái og þetta sé niðurstaðan. 13.8.2007 10:09 Fjölmennt tónlistarnámskeið barna Um eitt hundrað og fimmtíu börn á aldrinum fjögurra til sextán ára taka næstu vikuna þátt í alþjóðlegu tónlistarnámskeiði á vegum íslenska Suzukisambandsins. 12.8.2007 20:30 Verðlaunuðu fyrir árangur í Ástarvikunni Foreldrar barna sem komu undir á Ástarviku í Bolungarvík í fyrra voru verðlaunaðir á Ástarvikunni í dag. Yfirlýstur tilgangur vikunnar er að fjölga íbúum bæjarins. Faðmlaganámskeið er á meðal þess sem í boði er. 12.8.2007 20:15 Gagnrýnir lista vegna heimsminjaskrár Þingmaður Vinstri-grænna telur að Þjórsárver hefðu átt að vera á lista yfir framtíðartilnefningar Íslands á heimsminjaskrá UNESCO sem samþykktur var í ríkisstjórn á föstudag. Þingmaðurinn segir listann sýna að haldið verði áfram með virkjunaráform í neðri hluta Þjórsár. Ekki sé eðlilegt að nefndin sem sér um heimsminjaskrá sé skipuð stjórnmálamönnum en ekki fagaðilum. 12.8.2007 19:46 Nýjar tegundir höfrunga við Íslandsstrendur Tvær nýjar tegundir höfrunga fundust hér við land við hvalatalningu í sumar. Hvalasérfræðingur segir að sjávardýr, sem áður hafi haldið sig mun sunnar, séu nú að færa sig norður á bóginn vegna hlýnunar sjávar. Í talningunni kom einnig í ljós að hrefnu hafði fækkað á svæðum þar sem hún var áður algeng. 12.8.2007 19:39 Neyðarhjól koma að góðum notum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur nú til umráða mótorhjól til að veita fyrstu aðstoð þegar umferð er mikil og erfiðlega getur gengið að koma sjúkrabíl á staðinn. Hjólið hefur reynst vel og fór til að mynda í þrjú útköll niður í miðbæ Reykjavíkur í gærdag. 12.8.2007 19:03 Vilja fara stystu leið Stytting þjóðvegarins við Hornafjörð þolir enga bið segir forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar. Hann segir bæjarstjórn einhuga í afstöðu sinni um málið enda ríkir almannahagsmunir í húfi. Landeigendur á Nesjum við Hornafjörð hafa kært úrskurð umhverfisráðherra frá í maí og vilja að aðrar leiðir verði farnar. 12.8.2007 19:01 Akstur á akreinum fyrir strætó skapar hættu Þeir sem aka á sérmerktum akreinum fyrir strætisvagna skapa óþarfa hættu í umferðinni, segir lögregla. Fréttastofa náði myndum af fimm ökumönnum sem leiddust þófið í umferðarþunganum á föstudag. 12.8.2007 18:59 Jökla verður laxveiðiá Búið er að breyta Jöklu í laxveiðiá. Áin, sem áður var mórauð og úfin, er nú tær bróðurpart ársins. Um fimmtíu þúsund laxaseiðum var sleppt þarna í vor í tilraunaskyni og útlit er fyrir að á komandi árum verði hægt að stunda stangveiði í þessu gamla jökulfljóti. 12.8.2007 18:58 Víkingainnrásin sögð á enda Breskt blað gerir því skóna í dag að svokallaðri Víkingainnrás á breskan fjármálamarkað sé lokið. Þrjár helstu leiðir íslenskra fyrirtækja til að fjármagna kaup á breskum félögum séu nú lokaðar eða illfærar vegna niðursveiflu á alþjóðamörkuðum síðustu daga. Forstjóri Baugs segir sókn félagsins á markaði í Bretlandi hvergi nærri lokið. 12.8.2007 18:45 Færeyingar fjölmenna á menningarnótt Frændur okkar frá Færeyjum eru sérstakir gestir Menningarnætur í ár. Hátt á fjórða tug listamanna leggja leið sína þaðan til okkar og ætla að sýna brot af því besta af bæði færeyskri myndlist og tónlist. Upplýsingarmiðstöð Þórshafnar verður einnig með í för og því hægt að nálgast allskyns upplýsingar um þennan eyjaklasa sem telur 18 eyjar í allt sem á búa 48.000 manns. 12.8.2007 17:09 Deilur um Hornafjarðarveg Lögfræðingur Vegagerðarinnar segir tillögur hóps bænda og landeigenda í Nesjum um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót ekki samræmast markmiðum framkvæmdarinnar um umferðaröryggi og styttingu hringvegarins. Hópur bænda og landeigenda í Nesjum hefur stefnt íslenska ríkinu og Vegagerðinni og lagt fram eigin tillögur að lagningu vegarins. 12.8.2007 12:13 Erill hjá lögreglu á Dalvík Mikið fjölmenni er enn á Fiskidögum á Dalvík. Talið er þar séu nú um 10 til 15 þúsund manns en í gær voru þar upp undir 40 þúsund manns. Mikill erill var hjá lögreglunni á Dalvík í nótt vegna þessa og í morgun var lögregla enn að hafa afskipti af fólki sem var ofurölvi. 12.8.2007 12:12 Neyðarhjól koma að góðum notum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur nú til umráða mótorhjól til að veita fyrstu aðstoð þegar umferð er mikil og erfiðlega getur verið að koma sjúkrabíl á staðinn. Hjólið hefur reynst vel og fór til að mynda í þrjú útköll niður í miðbæ Reykjavíkur í gærdag. 12.8.2007 12:10 Passið ykkur á Hólsfjallavegi Hólsfjallavegur, vegur 864, sem liggur meðfram Jökulsá á Fjöllum og hjá Dettifossi að austanverðu, er mjög grófur og erfiður yfirferðar. Verið er að vinna við hringtorg á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. Umferð um Vesturlandsveg við vegamót Þingvallavegar hefur verið hliðrað til vesturs og er nú ekið um vestari hluta hringtorgsins. 12.8.2007 11:27 Fangageymslur fullar 12.8.2007 10:18 Á flótta á nærunum einum 12.8.2007 10:16 Hópslagsmál á veitingastað 12.8.2007 10:14 Perri á reiðhjóli 12.8.2007 10:13 Bjargað af þaki bíls í miðri á Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli bjargaði í gærkvöldi karlmanni sem var fastur á þaki bíls í miðri Gilsá í Markárfljóti. Svo virðist sem maðurinn hafi villst af leið og farið yfir ána á röngum stað. Bíll hans hafði borist niður ána nokkurn spöl þegar honum var bjargað. 12.8.2007 09:45 Stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar Sextán ára stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar sem ók aftan á mótorhjól sem hún var farþegi á um sjöleytið í dag. Þetta gerðist á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Mótorhjólið hafði numið staðar á gatnamótunum. 11.8.2007 20:32 Rosa fjör á Króksmóti Óhætt er að segja að Sauðárkrókur sé iðandi af lífi þessa dagana, en í morgun hófst hið árlega Króksmót fyrir 5., 6., og 7. flokk drengja og stúlkna í fótbolta. Mótið setti Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Tindstóls, á vel heppnaðri setningarathöfn í morgun, en þetta er 20. Króksmótið sem félagið heldur. 11.8.2007 20:06 Lækkunin á síðustu vikum nemur milljörðum króna Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum náðu að rétta sig aðeins af fyrir lokun í gærkvöldi eftir snarpa lækkun fyrr um daginn. Hlutabréf lækkuðu um allan heim í gær og hafa íslensk hlutabréf lækkað um fjögur hundruð milljarða króna á síðustu vikum. 11.8.2007 19:34 Áhrif veikingar krónunnar á síðustu vikum Gengislækkun krónunnar undanfarið hefur haft þau áhrif að tuttugu milljóna króna lán sem var tekið um miðjan júlí hefur hækkað um tvær milljónir króna. Á sama tíma hefur þeim Íslendingum fjölgað sem hafa kosið að taka lán í erlendri mynt og veðja þannig á stöðugt gengi krónunnar. 11.8.2007 19:20 Fjölmenni á Fiskideginum mikla Talið er að hátt í fjörtíu þúsund manns hafi tekið þátt í Fiskideginum mikla á Dalvík í dag. Veðrið lék við gesti sem gæddu sér meðal annars á silung, saltfiskbollum og hrefnukjöti. 11.8.2007 19:15 Fagna afmæli konungs Enginn núlifandi konungur hefur ríkt eins lengi og Rama níundi, konungur Tælands, og innan tveggja ára verður hann sá þjóðhöfðingi sem lengst hefur verið við völd í heimssögunni. Í dag var áttræðis afmælis Rama níunda minnst um allan heim, meðal annars hér á Íslandi. 11.8.2007 19:14 Gleði í gleðigöngu Hinsegin daga Næstum þriðjungur Íslendinga sleikti sólina á útihátíðum á landinu í dag. Lögregla telur að ríflega fimmtíu þúsund manns hafi gengið niður Laugaveginn í Reykjavík í Gleðigöngu til stuðnings réttindabaráttu samkynhneygðra. Það þýðir að aldrei hafi fleiri Íslendingar verið saman komnir á einum stað en í miðbænum í dag. 11.8.2007 19:06 Vilja hluta af Kolaportinu undir bílastæði Minnihlutinn í borgarstjórn reynir nú að koma í veg fyrir að tollstjóri fái 5000 fermetra bílastæði með viðbyggingu ofan jarðar við tollhúsið. Til þess að koma stæðinu fyrir þyrfti að ganga á húsnæði Kolaportsins. Aðstandendur þess hafa miklar áhyggjur af málinu. 11.8.2007 16:14 Kostun Sýnar 2 tryggð í þrjú ár Í dag voru staðfestir samningar um kostun Sýnar 2 til næstu þriggja ára. Kostunaraðilar eru Vodafone, 10-11, Iceland Express og vátryggingafélagið Vörður. Ari Edwald, forstjóri 365, sagði við þetta tækifæri að kostendur tryggðu að Enski boltinn bærist um land allt á hagstæðum kjörum. 11.8.2007 15:34 Tugir þúsunda í Gleðigöngu Gleðigangan Gay Pride lagði af stað í dag klukkan tvö frá Hlemmi. Hún fór niður Laugarveg og Bankastræti að Arnarhóli. Þar hófust útitónleikar fyrir stundu sem standa yfir í um 90 mínútur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu tóku tugir þúsunda þátt í göngunni. Bein útsending var frá göngunni á visir.is. 11.8.2007 13:49 Börn hlaupa fyrir börn Í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Glitnis 18. ágúst nk. verður í annað sinn efnt til Latabæjarhlaups sem er sérstaklega ætlað börnum 9 ára og yngri. Í ár munu þátttökugjöldin í hlaupinu renna óskipt til UNICEF - Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Í fyrra hlupu um 4.200 börn og standa vonir til að a.m.k. jafnmargir hlaupi í ár. Þátttökugjaldið í ár er það sama og í fyrra eða 800 kr. 11.8.2007 13:42 Hlupu með íþróttaálfinum Íþróttaálfurinn brá á leik með hópi barna fyrir utan aðalbyggingu Háskóla Íslands í morgun. Tilgangurinn var að kynna Latabæjarhlaupið sem fer fram næsta laugardag, á sama tíma og Reykjavíkurmaraþon Glitnis. 11.8.2007 12:16 Brauðmeti hækkar frá og með næstu mánaðarmótum Kaupmönnum hefur verið tilkynnt um hækkanir á brauðmeti frá og með næstu mánaðarmótum. Ýmsar vísbendingar eru uppi um að innfluttar matvörur kunni að hækka á næstunni vegna þróunar á heimsmarkaði. 11.8.2007 12:10 Grímseyjarferjan er mesta skrifli 11.8.2007 09:50 Fiskidagurinn mikli á Dalvík Í dag er Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur á Dalvík en talið er að hátt í tíu þúsund manns hafi verið komnir á tjaldvæði bæjarins í gær. Í gærkvöldi buðu heimamenn gestum og gangandi upp á fiskisúpu. 11.8.2007 09:49 Hoppandi reiður innbrotsþjófur og ölvaður golfari Tólf gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ýmist fyrir að keyra fullir eða fyrir að vera ofurölvi. Þrír ungir piltar gerðu tilraun til að brjótast inn í efnalaug í vesturbænum í nótt. Árvökull nágranni kallaði til lögreglu en þegar hún kom á staðinn voru piltarnir á bak og burt. Þeir náðust skömmu seinna en þá hafði hljaupið í kekki á milli þeirra og brotist út slagsmál. 11.8.2007 09:39 Bein útsending frá gleðigöngu Gleðigangan Gay Pride leggur af stað í dag klukkan tvö frá Hlemmi, niður Laugarveg og Bankastræti að Arnarhól. Byrjað verður að setja gönguna saman klukkan 12 á hádegi. Gangan er liður í Hinsegin dögum, baráttudögum homma og lesbía. Vegna göngunnar og þeirrar dagskrá sem verður í miðbænum í dag verður Lækjargötu lokað frá Skólabrú að Geirsgötu fram eftir degi. 11.8.2007 09:30 Fjölmenni á leið til Dalvíkur Mikil umferð streymir nú í átt að Dalvík en Fiskidagar hófust þar í dag. Samkvæmt lögreglunni á Akureyri hefur allt gengið vel. Enginn hefur verið tekinn fyrir ölvunar- eða lyfjaakstur og ökumenn hafa virt hraðatakmörk. 10.8.2007 22:22 Slökkvilið kallað að Hafnarbraut Slökkvilið var kallað að Hafnarbraut í Kópavogi fyrir stundu vegna reyks sem lagði frá húsi í götunni. Slökkviliðsmenn fóru upp á þak hússins til að kanna aðstæður en enginn eldur virðist hafa verið í húsinu. Talið er að reykinn hafi lagt frá reykofni sem er í húsinu. 10.8.2007 21:18 Vantar 140 starfsmenn Tæplega 96 prósent stöðugilda hafa verið mönnuð í grunnskólum Reykjavíkur. Enn vantar þó um 140 starfsmenn, og í sumum skólum er ástandið verra en áður vegna þess hversu margir eru í launalausum leyfum eða námsleyfum. 10.8.2007 20:00 Jón eða sr. Jón? Eins og greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld hefur sektum vegna þeirra sem leggja ólöglega í stæði fyrir fatlaða fjölgað verulega. Nánast á sama tíma og fréttin var í loftinu gerðist starfsmaður Stöðvar 2 sig sekan um sama virðingarleysi eins og sést á mynd sem tekin var fyrir framan Loftkastalann. Árvökulum lesanda Vísis er þökkuð ábendingin og biðst Stöð 2 afsökunar á hegðun starfsmannsins. 10.8.2007 19:23 Ráðherra vill hefja olíuleit við Ísland Iðnaðarráðherra vill gefa út sérleyfi til olíuleitar við Ísland innan árs. Hann segir öll gögn um málið vera jákvæð, og að áhugasamir aðilar hafi verið í sambandi við ráðuneytið vegna olíuleitar við norðausturhorn landsins. 10.8.2007 19:04 Forsetabíllinn kannski ekki svo umhverfisvænn Nýi forsetabíllinn er kannski ekki eins umhverfisvænn eins og verið hefur látið. Í ítarlegri úttekt á bílnum í The New York Times er hann sagður allt annað en það. Vilhjámur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri og Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi sem nýlega kynntu svokölluð græn bílastæði keyra ekki um á vistvænum bílum. 10.8.2007 18:59 Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan á Selfossi lýsir eftir vitnum Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitta geta upplýsingar um mannaferðir í og við Sigtún á Selfossi í nótt sem leið að hafa samband við lögreglu. Eldur kom upp í bílskúr við fasteignasöluna Bakka við Sigtún í nótt og telur lögregla allar líkur á því að um íkveikju sé að ræða. 13.8.2007 11:59
Bílvelta á Hólsfjallavegi Bíll velti á Hólsfjallavegi á fimmta tímanum í gær. Ökumaður og farþegar sluppu ómeiddir. Lögreglan segir að árlega eyðileggist fjölmargir bílar á þessum vegi þegar ferðamenn velta þeim. 13.8.2007 11:46
Um 100 þúsund kr. á mann úr Samvinnutryggingum Venjuleg fjölskylda sem tryggði hjá Samvinnutryggingum gt árin 1987 og 1988 má búast við að fá að meðaltali um 100.000 kr. eftir að skiptum á félaginu lýkur í ár. Kristinn Hallgrímsson hrl. formaður skiptanefndarinnar segir að þeir hafi tekið stikkprufur á hvaða upphæðir hver fái og þetta sé niðurstaðan. 13.8.2007 10:09
Fjölmennt tónlistarnámskeið barna Um eitt hundrað og fimmtíu börn á aldrinum fjögurra til sextán ára taka næstu vikuna þátt í alþjóðlegu tónlistarnámskeiði á vegum íslenska Suzukisambandsins. 12.8.2007 20:30
Verðlaunuðu fyrir árangur í Ástarvikunni Foreldrar barna sem komu undir á Ástarviku í Bolungarvík í fyrra voru verðlaunaðir á Ástarvikunni í dag. Yfirlýstur tilgangur vikunnar er að fjölga íbúum bæjarins. Faðmlaganámskeið er á meðal þess sem í boði er. 12.8.2007 20:15
Gagnrýnir lista vegna heimsminjaskrár Þingmaður Vinstri-grænna telur að Þjórsárver hefðu átt að vera á lista yfir framtíðartilnefningar Íslands á heimsminjaskrá UNESCO sem samþykktur var í ríkisstjórn á föstudag. Þingmaðurinn segir listann sýna að haldið verði áfram með virkjunaráform í neðri hluta Þjórsár. Ekki sé eðlilegt að nefndin sem sér um heimsminjaskrá sé skipuð stjórnmálamönnum en ekki fagaðilum. 12.8.2007 19:46
Nýjar tegundir höfrunga við Íslandsstrendur Tvær nýjar tegundir höfrunga fundust hér við land við hvalatalningu í sumar. Hvalasérfræðingur segir að sjávardýr, sem áður hafi haldið sig mun sunnar, séu nú að færa sig norður á bóginn vegna hlýnunar sjávar. Í talningunni kom einnig í ljós að hrefnu hafði fækkað á svæðum þar sem hún var áður algeng. 12.8.2007 19:39
Neyðarhjól koma að góðum notum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur nú til umráða mótorhjól til að veita fyrstu aðstoð þegar umferð er mikil og erfiðlega getur gengið að koma sjúkrabíl á staðinn. Hjólið hefur reynst vel og fór til að mynda í þrjú útköll niður í miðbæ Reykjavíkur í gærdag. 12.8.2007 19:03
Vilja fara stystu leið Stytting þjóðvegarins við Hornafjörð þolir enga bið segir forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar. Hann segir bæjarstjórn einhuga í afstöðu sinni um málið enda ríkir almannahagsmunir í húfi. Landeigendur á Nesjum við Hornafjörð hafa kært úrskurð umhverfisráðherra frá í maí og vilja að aðrar leiðir verði farnar. 12.8.2007 19:01
Akstur á akreinum fyrir strætó skapar hættu Þeir sem aka á sérmerktum akreinum fyrir strætisvagna skapa óþarfa hættu í umferðinni, segir lögregla. Fréttastofa náði myndum af fimm ökumönnum sem leiddust þófið í umferðarþunganum á föstudag. 12.8.2007 18:59
Jökla verður laxveiðiá Búið er að breyta Jöklu í laxveiðiá. Áin, sem áður var mórauð og úfin, er nú tær bróðurpart ársins. Um fimmtíu þúsund laxaseiðum var sleppt þarna í vor í tilraunaskyni og útlit er fyrir að á komandi árum verði hægt að stunda stangveiði í þessu gamla jökulfljóti. 12.8.2007 18:58
Víkingainnrásin sögð á enda Breskt blað gerir því skóna í dag að svokallaðri Víkingainnrás á breskan fjármálamarkað sé lokið. Þrjár helstu leiðir íslenskra fyrirtækja til að fjármagna kaup á breskum félögum séu nú lokaðar eða illfærar vegna niðursveiflu á alþjóðamörkuðum síðustu daga. Forstjóri Baugs segir sókn félagsins á markaði í Bretlandi hvergi nærri lokið. 12.8.2007 18:45
Færeyingar fjölmenna á menningarnótt Frændur okkar frá Færeyjum eru sérstakir gestir Menningarnætur í ár. Hátt á fjórða tug listamanna leggja leið sína þaðan til okkar og ætla að sýna brot af því besta af bæði færeyskri myndlist og tónlist. Upplýsingarmiðstöð Þórshafnar verður einnig með í för og því hægt að nálgast allskyns upplýsingar um þennan eyjaklasa sem telur 18 eyjar í allt sem á búa 48.000 manns. 12.8.2007 17:09
Deilur um Hornafjarðarveg Lögfræðingur Vegagerðarinnar segir tillögur hóps bænda og landeigenda í Nesjum um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót ekki samræmast markmiðum framkvæmdarinnar um umferðaröryggi og styttingu hringvegarins. Hópur bænda og landeigenda í Nesjum hefur stefnt íslenska ríkinu og Vegagerðinni og lagt fram eigin tillögur að lagningu vegarins. 12.8.2007 12:13
Erill hjá lögreglu á Dalvík Mikið fjölmenni er enn á Fiskidögum á Dalvík. Talið er þar séu nú um 10 til 15 þúsund manns en í gær voru þar upp undir 40 þúsund manns. Mikill erill var hjá lögreglunni á Dalvík í nótt vegna þessa og í morgun var lögregla enn að hafa afskipti af fólki sem var ofurölvi. 12.8.2007 12:12
Neyðarhjól koma að góðum notum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur nú til umráða mótorhjól til að veita fyrstu aðstoð þegar umferð er mikil og erfiðlega getur verið að koma sjúkrabíl á staðinn. Hjólið hefur reynst vel og fór til að mynda í þrjú útköll niður í miðbæ Reykjavíkur í gærdag. 12.8.2007 12:10
Passið ykkur á Hólsfjallavegi Hólsfjallavegur, vegur 864, sem liggur meðfram Jökulsá á Fjöllum og hjá Dettifossi að austanverðu, er mjög grófur og erfiður yfirferðar. Verið er að vinna við hringtorg á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. Umferð um Vesturlandsveg við vegamót Þingvallavegar hefur verið hliðrað til vesturs og er nú ekið um vestari hluta hringtorgsins. 12.8.2007 11:27
Bjargað af þaki bíls í miðri á Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli bjargaði í gærkvöldi karlmanni sem var fastur á þaki bíls í miðri Gilsá í Markárfljóti. Svo virðist sem maðurinn hafi villst af leið og farið yfir ána á röngum stað. Bíll hans hafði borist niður ána nokkurn spöl þegar honum var bjargað. 12.8.2007 09:45
Stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar Sextán ára stúlka kastaðist upp á framrúðu bifreiðar sem ók aftan á mótorhjól sem hún var farþegi á um sjöleytið í dag. Þetta gerðist á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Mótorhjólið hafði numið staðar á gatnamótunum. 11.8.2007 20:32
Rosa fjör á Króksmóti Óhætt er að segja að Sauðárkrókur sé iðandi af lífi þessa dagana, en í morgun hófst hið árlega Króksmót fyrir 5., 6., og 7. flokk drengja og stúlkna í fótbolta. Mótið setti Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Tindstóls, á vel heppnaðri setningarathöfn í morgun, en þetta er 20. Króksmótið sem félagið heldur. 11.8.2007 20:06
Lækkunin á síðustu vikum nemur milljörðum króna Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum náðu að rétta sig aðeins af fyrir lokun í gærkvöldi eftir snarpa lækkun fyrr um daginn. Hlutabréf lækkuðu um allan heim í gær og hafa íslensk hlutabréf lækkað um fjögur hundruð milljarða króna á síðustu vikum. 11.8.2007 19:34
Áhrif veikingar krónunnar á síðustu vikum Gengislækkun krónunnar undanfarið hefur haft þau áhrif að tuttugu milljóna króna lán sem var tekið um miðjan júlí hefur hækkað um tvær milljónir króna. Á sama tíma hefur þeim Íslendingum fjölgað sem hafa kosið að taka lán í erlendri mynt og veðja þannig á stöðugt gengi krónunnar. 11.8.2007 19:20
Fjölmenni á Fiskideginum mikla Talið er að hátt í fjörtíu þúsund manns hafi tekið þátt í Fiskideginum mikla á Dalvík í dag. Veðrið lék við gesti sem gæddu sér meðal annars á silung, saltfiskbollum og hrefnukjöti. 11.8.2007 19:15
Fagna afmæli konungs Enginn núlifandi konungur hefur ríkt eins lengi og Rama níundi, konungur Tælands, og innan tveggja ára verður hann sá þjóðhöfðingi sem lengst hefur verið við völd í heimssögunni. Í dag var áttræðis afmælis Rama níunda minnst um allan heim, meðal annars hér á Íslandi. 11.8.2007 19:14
Gleði í gleðigöngu Hinsegin daga Næstum þriðjungur Íslendinga sleikti sólina á útihátíðum á landinu í dag. Lögregla telur að ríflega fimmtíu þúsund manns hafi gengið niður Laugaveginn í Reykjavík í Gleðigöngu til stuðnings réttindabaráttu samkynhneygðra. Það þýðir að aldrei hafi fleiri Íslendingar verið saman komnir á einum stað en í miðbænum í dag. 11.8.2007 19:06
Vilja hluta af Kolaportinu undir bílastæði Minnihlutinn í borgarstjórn reynir nú að koma í veg fyrir að tollstjóri fái 5000 fermetra bílastæði með viðbyggingu ofan jarðar við tollhúsið. Til þess að koma stæðinu fyrir þyrfti að ganga á húsnæði Kolaportsins. Aðstandendur þess hafa miklar áhyggjur af málinu. 11.8.2007 16:14
Kostun Sýnar 2 tryggð í þrjú ár Í dag voru staðfestir samningar um kostun Sýnar 2 til næstu þriggja ára. Kostunaraðilar eru Vodafone, 10-11, Iceland Express og vátryggingafélagið Vörður. Ari Edwald, forstjóri 365, sagði við þetta tækifæri að kostendur tryggðu að Enski boltinn bærist um land allt á hagstæðum kjörum. 11.8.2007 15:34
Tugir þúsunda í Gleðigöngu Gleðigangan Gay Pride lagði af stað í dag klukkan tvö frá Hlemmi. Hún fór niður Laugarveg og Bankastræti að Arnarhóli. Þar hófust útitónleikar fyrir stundu sem standa yfir í um 90 mínútur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu tóku tugir þúsunda þátt í göngunni. Bein útsending var frá göngunni á visir.is. 11.8.2007 13:49
Börn hlaupa fyrir börn Í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Glitnis 18. ágúst nk. verður í annað sinn efnt til Latabæjarhlaups sem er sérstaklega ætlað börnum 9 ára og yngri. Í ár munu þátttökugjöldin í hlaupinu renna óskipt til UNICEF - Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Í fyrra hlupu um 4.200 börn og standa vonir til að a.m.k. jafnmargir hlaupi í ár. Þátttökugjaldið í ár er það sama og í fyrra eða 800 kr. 11.8.2007 13:42
Hlupu með íþróttaálfinum Íþróttaálfurinn brá á leik með hópi barna fyrir utan aðalbyggingu Háskóla Íslands í morgun. Tilgangurinn var að kynna Latabæjarhlaupið sem fer fram næsta laugardag, á sama tíma og Reykjavíkurmaraþon Glitnis. 11.8.2007 12:16
Brauðmeti hækkar frá og með næstu mánaðarmótum Kaupmönnum hefur verið tilkynnt um hækkanir á brauðmeti frá og með næstu mánaðarmótum. Ýmsar vísbendingar eru uppi um að innfluttar matvörur kunni að hækka á næstunni vegna þróunar á heimsmarkaði. 11.8.2007 12:10
Fiskidagurinn mikli á Dalvík Í dag er Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur á Dalvík en talið er að hátt í tíu þúsund manns hafi verið komnir á tjaldvæði bæjarins í gær. Í gærkvöldi buðu heimamenn gestum og gangandi upp á fiskisúpu. 11.8.2007 09:49
Hoppandi reiður innbrotsþjófur og ölvaður golfari Tólf gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ýmist fyrir að keyra fullir eða fyrir að vera ofurölvi. Þrír ungir piltar gerðu tilraun til að brjótast inn í efnalaug í vesturbænum í nótt. Árvökull nágranni kallaði til lögreglu en þegar hún kom á staðinn voru piltarnir á bak og burt. Þeir náðust skömmu seinna en þá hafði hljaupið í kekki á milli þeirra og brotist út slagsmál. 11.8.2007 09:39
Bein útsending frá gleðigöngu Gleðigangan Gay Pride leggur af stað í dag klukkan tvö frá Hlemmi, niður Laugarveg og Bankastræti að Arnarhól. Byrjað verður að setja gönguna saman klukkan 12 á hádegi. Gangan er liður í Hinsegin dögum, baráttudögum homma og lesbía. Vegna göngunnar og þeirrar dagskrá sem verður í miðbænum í dag verður Lækjargötu lokað frá Skólabrú að Geirsgötu fram eftir degi. 11.8.2007 09:30
Fjölmenni á leið til Dalvíkur Mikil umferð streymir nú í átt að Dalvík en Fiskidagar hófust þar í dag. Samkvæmt lögreglunni á Akureyri hefur allt gengið vel. Enginn hefur verið tekinn fyrir ölvunar- eða lyfjaakstur og ökumenn hafa virt hraðatakmörk. 10.8.2007 22:22
Slökkvilið kallað að Hafnarbraut Slökkvilið var kallað að Hafnarbraut í Kópavogi fyrir stundu vegna reyks sem lagði frá húsi í götunni. Slökkviliðsmenn fóru upp á þak hússins til að kanna aðstæður en enginn eldur virðist hafa verið í húsinu. Talið er að reykinn hafi lagt frá reykofni sem er í húsinu. 10.8.2007 21:18
Vantar 140 starfsmenn Tæplega 96 prósent stöðugilda hafa verið mönnuð í grunnskólum Reykjavíkur. Enn vantar þó um 140 starfsmenn, og í sumum skólum er ástandið verra en áður vegna þess hversu margir eru í launalausum leyfum eða námsleyfum. 10.8.2007 20:00
Jón eða sr. Jón? Eins og greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld hefur sektum vegna þeirra sem leggja ólöglega í stæði fyrir fatlaða fjölgað verulega. Nánast á sama tíma og fréttin var í loftinu gerðist starfsmaður Stöðvar 2 sig sekan um sama virðingarleysi eins og sést á mynd sem tekin var fyrir framan Loftkastalann. Árvökulum lesanda Vísis er þökkuð ábendingin og biðst Stöð 2 afsökunar á hegðun starfsmannsins. 10.8.2007 19:23
Ráðherra vill hefja olíuleit við Ísland Iðnaðarráðherra vill gefa út sérleyfi til olíuleitar við Ísland innan árs. Hann segir öll gögn um málið vera jákvæð, og að áhugasamir aðilar hafi verið í sambandi við ráðuneytið vegna olíuleitar við norðausturhorn landsins. 10.8.2007 19:04
Forsetabíllinn kannski ekki svo umhverfisvænn Nýi forsetabíllinn er kannski ekki eins umhverfisvænn eins og verið hefur látið. Í ítarlegri úttekt á bílnum í The New York Times er hann sagður allt annað en það. Vilhjámur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri og Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi sem nýlega kynntu svokölluð græn bílastæði keyra ekki um á vistvænum bílum. 10.8.2007 18:59