Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ökumenn í ýmsu ástandi stöðvaðir Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Einn ökumaður var stöðvaður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir að vera ekki fær um að stjórna ökutæki örugglega vegna veikinda. 20.7.2007 16:55
Þrír piltar lögðu byggingarsvæði í rúst Þrír barnungir piltar gengu berserksgang um byggingasvæði á höfuðborgarsvæðinu og ollu þar þónokkrum skemdum. Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna þessa í gærmorgun. Drengirnir höfðu brotið ljós á vinnuvél og við kaffiskúr og brotið rúður. Þá krotuðu piltarnir á veggi og skettu málingu nærliggjandi íbúðarhús. 20.7.2007 15:34
Vegi um Öskjuhlíð lokað vegna framkvæmda Vegarslóð um Öskjuhlíð frá Hlíðarfæti að Kirkjugörðum Reykjavíkur verður lokað á mánudag vegna framkvæmda við undirbúning lóðar fyrir framtíðarhúsnæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði lokaður til haustsins 2009 þegar byggingarframkvæmdum líkur. Á meðan er einungis hægt að keyra til Nauthólsvíkur um Flugvallarveg og Hlíðarfót. 20.7.2007 15:31
Kona fékk yfir sig heitt vatn úr hraðsuðukatli Kona brenndist á nokkrum stöðum við vinnu sína á hóteli í Reykjavík um miðjan dag í gær. Konan fékk yfir sig heitt vatn úr hraðsuðukatli. Starfsfélagi kom til hennar og hjálpaði við að kæla brunasárin. Sjúkralið kom síðar á vettvang og flutti konuna á slysadeild. Ekki er vitað frekar um líðan hennar. 20.7.2007 15:18
ASÍ vísar gagnrýni Samtaka Atvinnulífsins á bug Verðlagseftirlit ASÍ vísar gagnrýni Vilhjálms Egilssonar formanns SA á hendur stofnuninni á bug. Vilhjálmur sagði í bréfi til Geirs H. Haarde forsætisráðherra að hann teldi eðlilegast að Hagstofa Íslands færi með verðlagseftirlit í samstarfi við hagsmunaaðila. 20.7.2007 14:44
Skvettu málningu á ræðisskrifstofu Íslands Meðlimir í samtökunum Saving Iceland réðust í morgun á ræðisskrifstofu Íslands í Edinborg. Þeir skvettu málningu á húsið, límdu lása fasta og festu miða á vegg hússins með orðunum ,,Heimurinn fylgist með". Þá voru orðin ,,Íslandi blæðir" máluð gulum stöfum á tröppur þess. 20.7.2007 13:58
Staurar sparkaðir niður og viðkvæm svæði eyðilögð Utanvegaakstur hefur valdið töluverðum skemmdum á viðkvæmum svæðum í þjóðgarðinum Snæfellsjökli í sumar. Dæmi eru um að staurar séu sparkaðir niður og spjöll unnin í grenndinni með hringspóli. Þjóðgarðsverðir biðla til fólks að sýna náttúrunni virðingu. 20.7.2007 13:30
Húsnæðisverð heldur áfram að hækka Húsnæðisverð hefur hækkað um tíu prósent það sem af er árinu. Hækkandi vextir og offramboð á markaðnum virðast engu skipta. 20.7.2007 12:54
Vilja lækka áfengisverð á Íslandi Þverpólitískur vilji virðist vera til þess að lækka áfengisverð hér á landi, samkvæmt samtölum Blaðsins við stjórnmálamenn í öllum flokkum. 20.7.2007 12:53
Heimsmeistararnir komnir heim Skáksveit Salaskóla sem varð heimsmeistarar í sveitaskák í Tékklandi í vikunni, kom heim til Íslands í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingar verða heimsmeistarar í sveitaskák 20.7.2007 12:35
Hörðustu aðdáendur Harry Potter mættir fyrir utan bókaverslanir klukkan sex í gærkvöld Hörðustu aðdáendur galdradrengsins Harry Potter voru komnir fyrir utan bókabúðir klukkan sex í gærkvöldi til að verða fyrstir í röðinni til að kaupa Deathly Hallows, síðustu bókina í ritröðinni. Opnað verður fyrir sölu bókarinnar í bókaverslunum víða um borgina stundvíslega klukkan eina mínútu yfir ellefu í kvöld. 20.7.2007 12:30
Varar hjólhýsaeigendur við hvassviðri á Snæfellsnesi Mikið hvassviðri gengur nú yfir Snæfellsnes og getur verið varhugavert fyrir hjólhýsaeigendur að vera á ferðinni. Vindhraði er víða um 20 metrar á sekúndu einkum á norðanverðu nesinu og í námunda við fjallaskörð. 20.7.2007 11:55
Ná ekki að nýta ýsuna til fulls Útgerðarmenn telja nánast útilokað að hægt verði að nýta allan ýsukvóta á yfirstandandi fiskveiðiári. Enn á eftir að veiða um fjórðung kvótans eða um 33 þúsund tonn. 20.7.2007 11:26
Samtök atvinnulífsins vilja að Hagstofan taki við verðlagseftirliti Samtök atvinnulífsins vilja að Hagstofa Íslands taki við verðlagseftirliti í matvöruverslunum af Alþýðusambandi Íslands. Samtökin hafa sent Geir H. Haarde, forsætisráðherra, bréf þessa efni. Þá kvarta þau ennfremur undan óvönduðum vinnubrögðum verðlagseftirlits Alþýðusambandsins. 20.7.2007 10:54
Vegslóða um Öskjuhlíð lokað að hluta Vegslóða um Öskjuhlíð frá Hlíðarfæti að Kirkjugörðum Reykjavíkur hefur verið lokað vegna framkvæmda við lóð Háskólans í Reykjavík. Gert er ráð fyrir því að vegurinn verði lokaður til haustsins 2009 eða þar til byggingaframkvæmdum lýkur. 20.7.2007 10:19
Vatnsfjarðarvegur lokaður vegna framkvæmda Vatnsfjarðarvegur númer 633 verður lokaður til hádegis á morgun vegna vegaframkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá er í gildi viðvörun vegna tjörublæðinga í slitlagi á Kræklingarhlíð norðan Akureyrar. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og fylgja fyrirmælum um lækkun á umferðarhraða. 20.7.2007 10:00
Laun hækkuðu í júnímánuði Laun hækkuðu að meðaltali um 0,6 prósent í síðasta mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar á launavísitölunni. Frá áramótum hafa laun hækkað um 2,4 prósent. 20.7.2007 09:33
Sofið fyrir utan Nexus í nótt Þrjár 17 ára stúlkur eru búnar að koma sér fyrir fyrir utan verslunina Nexus á Hverfisgötu og ætla að vera fyrstar til að kaupa nýjustu Harry Potter bókina. Byrjað verður að selja bókina klukkan 23:01 annað kvöld. 19.7.2007 21:41
Heilbrigðisráðherra vill bæta þjónustuna Landsspítalinn hefur undanfarin misseri glímt við margþættan rekstrar- og starfsmannavanda, á sama tíma og stjórnvöld eyða púðrinu í að skipuleggja nýtt hátæknisjúkrahús. 19.7.2007 21:06
Fordómar í leikskólum Móðir einhverfs drengs segir að á þeim hafi verið brotin lög þegar syni hennar var hafnað leikskólaplássi. Hún gagnrýnir ákvörðun leikskólastjóra og segir að fordómar og geðþóttarákvörðun hafi ráðið för. 19.7.2007 20:43
Snæfellsjökull getur horfið á einni mannsævi Jöklar landsins hafa rýrnað mikið á síðustu tíu árin. Haldist veðurfar óbreytt munu stærstu jöklar Íslands ekki endast nema tvö hundruð ár og Snæfellsjökull hverfa á einni mannsævi. 19.7.2007 19:24
ASÍ segir gagnrýni Haga ómálefnalega Forstjóri Haga segir lítið að marka verðkannanir ASÍ og telur vinnubrögð sambandsins óvönduð. Dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að meta málflutning ASÍ af verðlagi í matvöruverslunum. Hagfræðingur ASÍ segir gagnrýni Haga vart svaraverðar og þykir ómálefnalegt af fyrirtækinu að ráðast gegn sambandinu með slíkum gífuryrðum. 19.7.2007 19:19
Mugsion rær á tónlistarmiðin og spáir ekki í kvótaskerðingu Poppskáldið, gítaristinn og vestfirðingurinn Mugison lætur ekki kvótaskerðingu draga úr sér mátt en hann sækir innblástur í hin vestfirsku fjöll og semur á balanum fyrir framan húsið sitt í Súðavík. Mugison rær á tónlistarmið. 19.7.2007 19:17
Grænt samfélag og álver geta farið saman, segir bæjarstjóri. Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjórinn í Ölfusi fagnar velgengni vatnsverksmiðju Jóns Ólafssonar og fjörutíu nýjum störfum samhliða henni. Búast má við að eitthundrað störf við fiskvinnslu fari forgörðum í Þorlákshöfn vegna skerðingar aflaheimilda. 19.7.2007 19:15
Saksóknari efnahagsbrota heldur að sér höndum Saksóknari efnahagsbrota gefur ekki út neinar ákærur fyrr en Hæstiréttur hefur fjallað um dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í gær. Þetta er í annað sinn sem máli er vísað frá á grundvelli þess að ekki sé heimild til þess í lögreglulögum að fela saksóknaranum sjálfstætt ákæruvald. 19.7.2007 19:15
Tækifæri til að ná sáttum milli stríðandi fylkinga Ráðamenn í Ísrael og Palestínu telja ákveðið tækifæri núna til að ná samningum milli stríðandi fylkinga. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sem fundaði með forseta Palestínu í morgun. 19.7.2007 19:14
Mikill hiti í jarðstreng Orkuveitunnar vegna þurrka Jarðstrengur Orkuveitu Reykjavíkur frá Nesjavallavirkjun hefur hitnað svo mikið í þurrkunum að starfsmenn orkuveitunnar voru farnir að íhuga að vökva hann. Rigningin í nótt og í morgun dró aðeins úr spennunni hjá Orkuveitunni. 19.7.2007 19:13
Ítrekaðar líkamsárásir á hótelstjóra og hótelgesti í miðborginni Hóteleigandi í miðborg Reykjavíkur hefur orðið fyrir ítrekuðum líkamsárásum að næturlagi og gestum hans hefur verið ógnað. Hann hyggst setja upp myndavélar við hótelið til að auka öryggi sitt og gestanna. 19.7.2007 19:09
Maður talinn lærbrotinn eftir vélhjólaslys Vélhjólamaður slasaðist á æfingabraut fyrir krossara í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var maðurinn fluttur á slysadeild og talið var að hann hefði lærbrotnað. 19.7.2007 18:21
SVÞ taka undir með Högum hf Samtök verslunar og þjónustu taka undir með Högum í deilum sem staðið hafa um matvöruverð að undanförnu. Forstjóri Haga sagði í dag að Alþýðusamband Íslands stundaaði atvinnuróg gegn verslunum Haga og sagði að kallaðir yrðu til dómskvaddir matsmenn til að meta fréttaflutning ASÍ af verðlagi í verslunum. 19.7.2007 17:31
Óttast var um þýsk hjón fyrir vestan Björgunarsveitir á vestfjörðum voru kallaðar út vegna þýskra hjóna sem voru í siglingu frá Bolungarvíkur til Súðavíkur, en leitin var afturkölluð þegar þau fundust rétt fyrir utan Súðavík. Óttast var í fyrstu að báturinn væri skemmdur, og þegar ekki náðist samband við hjónin var hafin allsherjarleit. Hjónin sigldu í litlum sjóstangveiðibát. 19.7.2007 16:53
Mikill áhugi erlendis á íslensku orkuverkefni Mikill áhugi er hjá erlendum aðilum að taka þátt í verkefni Íslenskrar Nýorku um notkun vetnis sem orkugjafa í stað olíu eða annarra kolefnisorkugjafa. Framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku segir stefnu íslenskrar stjórnvalda varðandi vistvæna orku eiga mikinn þátt í þessum áhuga. Fjallað var var um verkefnið á vefsíðu bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN. 19.7.2007 16:34
Fíkniefni fundust við húsleit Lögreglan fann ætluð fíkniefni við húsleitir í tveimur íbúðum í úthverfum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Karl og kona, sem bæði eru á þrítugsaldri, voru handtekin í þágu rannsóknar málsins. Bæði hafa komið við sögu hjá lögreglu áður. Húsleitirnar voru framkvæmdar að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. 19.7.2007 16:30
Faxaflóahafnir sf. í samstarf við næst stærstu höfn Kína Faxaflóahafnir sf. og höfnin í Qingdo í Kína undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf og samvinnu. Viljayfirlýsingu þessari verður fylgt eftir með gerð formlegs samstarfssamnings sem verður undirritaður síðar. Höfnin í Qingdao er sú önnur stærsta í Kína og sú tíunda stærsta í heiminum. Að auki eru hún stærsta höfn Kína í frystum og kældum afurðum. 19.7.2007 16:14
Lýsa yfir áhyggjum vegna samdráttar í þorskkvóta Fyrirtæki og heimili á Vestfjörðum verða fyrir miklum tekjuskerðingum vegna samdráttar í þorskkvóta og því mikilvægt að stjórnvöld grípi strax til mótvægisaðgerða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga. Stjórnin lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu mála. 19.7.2007 16:02
Fullur og á stolnum bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt nítján ára pilt fyrir ölvunarakstur í Garðabæ. Bíllinn sem pilturinn var á reyndist við nánari skoðun vera stolinn. 19.7.2007 15:38
117 tonna spennar eru þyngstu hlutir sem hafa farið eftir vegakerfinu 117 tonna spennar hafa verið fluttir eftir þjóðvegum frá Reyðarfirði í stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal í sumar. Spennarnir eru þyngstu hlutir sem farið hafa eftir vegakerfinu. Þar að auki er flutningabúnaður 74 tonn og heildarþungi því 191 tonn. Mikil vinna var lögð í að reikna út burðargetu brúa á leiðinni. 19.7.2007 15:33
Eldur kviknaði í potti Eldur kviknaði í potti í heimahúsi í Hafnarfirði í gær þegar húsmóðirin var að laga mat. Einn heimilismanna sýndi snarræði og náði að slökkva eldinn með handslökkvitæki og koma þannig í veg fyrir stórtjón. Töluverður reykur mætti lögreglu og slökkviliði þegar komið var á vettvang en heimilisfólkið, tveir karlar og kona, komst út af sjálfsdáðum. 19.7.2007 15:22
Geiri í Goldfinger braut ekki lög um nektardans Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri í Goldfinger, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í dag af ákæru um að hafa staðið fyrir nektardanssýningu í lokuðu rými. Dansmey sem einnig var ákærð í málinu var líka sýknuð. Að mati dómsins þótti ekki sýnt að dansinn hafi farið fram í lokuðu rými líkt og bannað er samkvæmt lögreglusamþykkt. 19.7.2007 15:22
Lyftari valt af flutningabíl á Bústaðavegi Lyftari valt af flutningabíl á Bústaðavegi við Valsheimilið laust fyrir klukkan eitt í dag. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu. 19.7.2007 14:07
Dæmdur sekur fyrir vörslu fíkniefna Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur til að greiða 40 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa í fórum sínum ólöglegt fíkniefni. Maðurinn var með 0,94 grömm af amfetamíni þegar lögreglan hafði afskipti af honum í Hafnarstræti á Akureyri í síðastliðnum aprílmánuði. Með brotinu rauf maðurinn skilorð fyrri dóma. 19.7.2007 13:35
Dæmdur fyrir brot á fíkniefnalögum Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag sakfelldur fyrir að hafa í sinni vörslu ólögleg fíkniefni. Um var að ræða 23,15 grömm af hassi og 0,93 grömm af marihúana. Með brotinu rauf maðurinn skilorð reynslulausnar frá því í janúar á þessu ári. 19.7.2007 13:26
Blár páfagaukur laus á Lynghálsi Blár páfagaukur sást í bílageymslu Glitnis á Lynghálsi 4. Í sama húsi og Europris. Ef einhver er að leita að gauksa má hafa samband við Pál Snorra 892-5746. 19.7.2007 13:07
Vegfarendur beðnir að sýna aðgát á Kræklingahlíð Vegna hættu á blæðingum í slitlagi á Kræklingahlíð norðan Akureyrar eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát meðan þetta ástand varir og fylgja fyrirmælum um lækkun á umferðarhraða. Vegna framkvæmda verður Vatnsfjarðarvegur númer 633 lokaður frá klukkan 07:00 miðvikudaginn 18. júlí til hádegis laugardaginn 21. júlí. Opið verður út í Reykjanes úr Mjóafirði. 19.7.2007 13:02
Vinstri grænir vilja fresta samningum við stóriðjufyrirtæki Hvorki á að gera samninga við stóriðjufyrirtæki né úthluta rannsóknarleyfum til orkufyrirtækja á meðan unnið er að náttúruverndaráætlun fyrir árin 2008 til 2012. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingflokki Vinstri grænna. Flokkurinn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna stefnu ríkisstjórnarinnar að heimila áframhaldandi undirbúning álverksmiðja í Helguvík, Straumsvík og á Húsavík. 19.7.2007 12:33