Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neytendastofa annist verðlagseftirlit Neytendastofa á að annast allt verðlagseftirlit á matvöru segir forstjóri Neytendastofu og telur skynsamlegast að opinber stofnun annist slíkt eftirlit. Hann segir aðferðir ASÍ við verðlagseftirlit úreltar og vill fá matvöruverslanir til liðs við sig svo unnt sé að vinna með rafrænar upplýsingar beint frá verslununum. 21.7.2007 19:04
Ráðherra minnir á reglur um útgáfu leyfa vegna útihátíða Björn Bjarnarson, dóms-, og kirkjumálaráðherra, hefur sent ríkislögreglustjóra og öllum lögreglustjórum bréf þar sem minnt er á þær reglur sem gilda um útgáfu leyfa vegna útihátíða. Venja hefur verið undanfarin ár að senda slíkar áminningar þegar verslunarmannahelgin er í nánd. 21.7.2007 17:26
Verð á bifreiðum lækkar vegna styrkrar stöðu krónunnar Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð á öllum nýjum bílum sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir ástæðuna vera þá að gengi krónunnar sé ákaflega hagstætt fyrir innflutning. 21.7.2007 16:13
Ók á ljósastaur Ökumaður Suzuki bifreiðar ók bíl sínum á ljósastaur við BYKO á Akureyri um eittleytið í dag. Að sögn lögreglu gereyðilagðist bíllinn en ökumaður slasaðist ekki. 21.7.2007 16:01
Nýttu daginn til að fegra borgina Margir íbúar í hverfum í nálægð við Laugardalinn nýttu daginn í dag til að fegra umhverfi sitt og mátti víða sjá iðjusamt fólk að störfum. Tiltektardeginum lauk klukkan 14 með grillhátíð við Þróttaraheimilið í Laugardalnum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri veitti fólkinu liðsinni. Hann gróðursetti meðal annars blátopp, sultartopp og reyniblöðkur við Engjaveg í morgun. 21.7.2007 14:37
Á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Ökumaður um þrítugt var stöðvaður á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, við álverið í Straumsvík um áttaleytið í morgun. Hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund á þessum veg. Maðurinn var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum. 21.7.2007 14:23
Bifreið rann inn í húsagarð Bifreið rann niður götu og hafnaði í húsagarði í Lundabrekku í Kópavogi skömmu eftir hádegið í dag. Lögregla og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kvödd á staðinn enda lagði nokkurn reyk frá bílnum. Sem betur fer urðu engin slys á fólki. Ekki er vitað hvað orsakaði atvikið. 21.7.2007 14:17
Skemmdaverk unnin á húsnæði Athygli Málningu var slett á skrifstofuhúsnæði almannatengslafyrirtækisins Athygli ehf í Reykjavík í nótt. Einnig er ritað með bleki slagorðið „Iceland is bleeding“ eða „Íslandi blæðir“. 21.7.2007 13:27
Á annað þúsund Harry Potter bóka seldist í gærkvöld Hátt í tvö þúsund eintök af bókinni Deathly Hallow, sjöundu og jafnframt síðustu bókinni í ritröðinni um galdradrenginn Harry Potter, seldust í bókaverslunum í gærkvöld. 21.7.2007 12:29
Fagna ákvörðun um fjölgun sjúkraflutningamanna Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fagnar vilja heilbrigðisráðherra til að bæta þjónustustig sjúkraflutninga á andsbyggðinni. Landsambandið hefur mörg undanfarin ár gagnrýnt ástandið sem á sumum stöðum hefur verið algerlega óviðunandi að þeirra mati. 21.7.2007 12:26
Hátt í 250 manns á ungmennamóti á Gufuskálum Landsmót ungmenna á aldrinum 14-18 ára stendur yfir um helgina, á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Hátt á annað hundrað ungmenna eru þar samankomin ásamt fimmtíu umsjónarmönnum. Þau sækja námskeið í skyndihjálp, læra sigtækni, meðferð björgunarbáta og grunnatriði í leitartækni. Ungmennin eru öll virk í ungliðastarfi björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. 21.7.2007 10:46
Slökkviliðið kallað að Caruso í nótt Allt tiltækt lið slökkviliðsins í Reykjavík var kallað að veitingastaðnum Caruso um tvöleytið í nótt vegna reyks. Þegar fyrsti slökkvibíll kom á staðinn varð ljóst að enginn eldur var í húsinu og að reykurinn kom úr bökunarofni. 21.7.2007 10:32
Sex teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt Sex voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt. Mikil ölvun var í miðborginni og var nokkuð um minniháttar pústra. Allt gekk þó vel að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 21.7.2007 10:28
Framlag Íslendinga til flóttamannahjálpar Palestínu tvöfaldað Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tilkynnti í gær að framlag íslendinga til flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu yrði tvöfaldað á næsta ári. Þá mun íslenska ríkið greiða 28 milljónir til verkefnisins. 21.7.2007 10:11
Húsbíll sprakk Mikil mildi var að ekki fór verr þegar húsbíll sprakk við Oddastaðarvatn á Snæfellsnesi í nótt. Gas lak út frá ferðaísskáp sem var í bílnum með þeim afleiðingum að ógnarsprenging varð. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi voru eigendur bílsins fjarverandi og enginn meiddist við atvikið en bíllinn er mikið skemmdur. Lögreglan vill brýna fyrir fólki að það gangi vel frá gastækjum sem það hefur meðferðis í ferðalögum. 21.7.2007 10:10
Gátan um eitt vinsælasta borðspil heims leyst Dr. Yngvi Björnsson, dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík,tók þátt í að finna hina fullkomnu lausn á því hvernig eigi að spila leikinn dammtafl án þess að eiga minnsta möguleika á því að tapa. 20.7.2007 23:35
Bílslys í Axarfirði Harður árekstur varð á vegamótum að skólanum Lundi og þjóðvegar um Axarfjörð um klukkan hálfsjö í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var bíl ekið í veg fyrir annan en um fólksbíl og jeppa er að ræða. Annar bíllinn er mikið skemmdur en engin slys urðu á fólki. 20.7.2007 22:50
LSS lýsir yfir ánægju með viðbrögð heilbrigðisráðherra Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir ánægju með viðbrögð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra við þeim vanda sem hefur verið með mönnun og þjónustustig sjúkraflutninga sums staðar á landsbyggðinni. 20.7.2007 20:53
Sátt um lækkun áfengisverðs? Álögur á áfengi eru meira en helmingi hærri á Íslandi en að meðaltali í Evrópu. Þverpólitískur vilji virðist vera að myndast til þess að lækka áfengisverð hér á landi, en í öllum flokkum eru samt Alþingismenn sem efast. Erna Hauksdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir settust hjá Sölva í Íslandi í dag. 20.7.2007 20:20
Samtök ferðaþjónustunnar fagna vilja til að lækka áfengisverð Samtök ferðaþjónustunnar fagna þverpólitískum vilja til að lækka áfengisverð. Framkvæmdastjóri samtakanna vonar að ný kynslóð þingmanna og ný ríkisstjórn geti gert í eitthvað í þessu áralanga baráttumáli samtakanna. 20.7.2007 20:15
Styttri biðlistar eftir augasteinaaðgerðum náist samningar við ríkið Augnlæknir í Reykjavík segist geta stytt biðlistana fyrir augasteinaaðgerðir náist samningar við ríkið um niðurgreiðslu á slíkum aðgerðum. Rúmlega sjö hundruð og fimmtíu manns bíða eftir að komast í augasteinaaðgerð á Landspítalanum og biðtíminn getur verið allt að eitt ár. 20.7.2007 20:12
Segir ný lög um einkasýningar stríða gegn atvinnufrelsi Ný lög sem banna með öllu hvers konar einkasýningar á nektardansstöðum stríða gegn atvinnufrelsi. Þetta segir lögmaður eiganda Goldfingers. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi er ósammála túlkun Héraðsdóms Reykjaness á vafa með hugtakið "lokað rými". 20.7.2007 19:57
Saving Iceland býður OR til opinna viðræðna um siðgæði fyrirtækisins Í tilkynningu frá Saving Iceland segir að samtökin hafi óskað eftir því að fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur taki þátt í opnum umræðum við þau um siðgæði þess að selja orku til fyrirtækja sem stunda glæpsamlega iðju, eins og bæði Century-Rusal og Alcan-Rio Tinto gera. 20.7.2007 19:22
Áhöfnin á TF-SIF fór á ný í loftið í dag Áhöfnin á TF-Sif hélt í sína fyrstu flugferð í framhaldi af nauðlendingu þyrlunnar við Straumsvík á mánudag. Það var smáskjálfti í flugstjóranum en áhöfnin óskaði eftir því að komast í loftið sem allra fyrst. 20.7.2007 18:59
Lélegt sílamáfsvarp vísbending um hrun í sandsílastofni og slaka nýliðun þorsks Flótti sílamáfs frá Reykjavík er vísbending um hrun í sandsílastofninum. Á tveimur árum hefur varppörum fækkað úr 37 þúsund niður í 7 þúsund. Fuglafræðingar telja jafnvel samhengi milli fjölda sílamáva við landið og nýliðunar í þorski. 20.7.2007 18:54
Fiski ekið þúsund kílómetra til vinnslu á Þingeyri Fiskur sem er unninn á Þingeyri er veiddur úti fyrir austfjörðum og fluttur landleiðina meira en þúsund kílómetra. Forkólfar Vísis hf. á Þingeyri segja úrslitaatriði að bæta vegakerfið á Vestfjörðum til að tryggja gæði hráefnis. Forvígismenn Vísis hf. vinna upp kostnað við flutningana með verkþekkingu og afköstum á Þingeyri. 20.7.2007 18:53
Afrek sem verður minnst lengi Fimm manna skáksveit Salaskóla í Kópavogi kom til landsins frá Tékklandi í gærkvöldi, eftir að hafa fyrst íslenskra skáksveita unnið heimsmeistaratitil. Forseti Skáksambands Íslands segir að afrek sveitarinnar verði lengi í minnum haft. 20.7.2007 18:02
Bílalest út úr bænum Mikil umferð er þessa stundina út úr bænum. Suður yfir Hellisheiði er bíll við bíl. Lögreglan í Reykjavík hefur ekki fengið tilkynningu um nein óhöpp en segir mikilvægt að fólk fari sér hægt. 20.7.2007 17:53
Galdrasúpa og grillaðar pulsur fyrir aðdáendur Harry Potter Stemmningin fer vaxandi í biðröðinni fyrir utan Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg. Þar bíður fjöldi ungmenna eftir því að fá síðustu Harry Potter bókina í hendur. Sala hefst á slaginu 23:01. 20.7.2007 17:27
Ætluðu upp á þak en enduðu á annari hæð Samtökin Saving Iceland mótmæltu sölu Orkuveitu Reykjavíkur á raforku til álvera Century Aluminium og Alcan í höfuðstöðvum fyrirtækisins fyrr í dag. Í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér sögðu þau trúðahóp samtakanna vera á þaki hússins og hafa hengt þar upp flagg með áletruninni ,,Vopnaveita Reykjavíkur". 20.7.2007 17:00
Ökumenn í ýmsu ástandi stöðvaðir Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt en einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Einn ökumaður var stöðvaður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir að vera ekki fær um að stjórna ökutæki örugglega vegna veikinda. 20.7.2007 16:55
Þrír piltar lögðu byggingarsvæði í rúst Þrír barnungir piltar gengu berserksgang um byggingasvæði á höfuðborgarsvæðinu og ollu þar þónokkrum skemdum. Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna þessa í gærmorgun. Drengirnir höfðu brotið ljós á vinnuvél og við kaffiskúr og brotið rúður. Þá krotuðu piltarnir á veggi og skettu málingu nærliggjandi íbúðarhús. 20.7.2007 15:34
Vegi um Öskjuhlíð lokað vegna framkvæmda Vegarslóð um Öskjuhlíð frá Hlíðarfæti að Kirkjugörðum Reykjavíkur verður lokað á mánudag vegna framkvæmda við undirbúning lóðar fyrir framtíðarhúsnæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík. Gert er ráð fyrir að vegurinn verði lokaður til haustsins 2009 þegar byggingarframkvæmdum líkur. Á meðan er einungis hægt að keyra til Nauthólsvíkur um Flugvallarveg og Hlíðarfót. 20.7.2007 15:31
Kona fékk yfir sig heitt vatn úr hraðsuðukatli Kona brenndist á nokkrum stöðum við vinnu sína á hóteli í Reykjavík um miðjan dag í gær. Konan fékk yfir sig heitt vatn úr hraðsuðukatli. Starfsfélagi kom til hennar og hjálpaði við að kæla brunasárin. Sjúkralið kom síðar á vettvang og flutti konuna á slysadeild. Ekki er vitað frekar um líðan hennar. 20.7.2007 15:18
ASÍ vísar gagnrýni Samtaka Atvinnulífsins á bug Verðlagseftirlit ASÍ vísar gagnrýni Vilhjálms Egilssonar formanns SA á hendur stofnuninni á bug. Vilhjálmur sagði í bréfi til Geirs H. Haarde forsætisráðherra að hann teldi eðlilegast að Hagstofa Íslands færi með verðlagseftirlit í samstarfi við hagsmunaaðila. 20.7.2007 14:44
Skvettu málningu á ræðisskrifstofu Íslands Meðlimir í samtökunum Saving Iceland réðust í morgun á ræðisskrifstofu Íslands í Edinborg. Þeir skvettu málningu á húsið, límdu lása fasta og festu miða á vegg hússins með orðunum ,,Heimurinn fylgist með". Þá voru orðin ,,Íslandi blæðir" máluð gulum stöfum á tröppur þess. 20.7.2007 13:58
Staurar sparkaðir niður og viðkvæm svæði eyðilögð Utanvegaakstur hefur valdið töluverðum skemmdum á viðkvæmum svæðum í þjóðgarðinum Snæfellsjökli í sumar. Dæmi eru um að staurar séu sparkaðir niður og spjöll unnin í grenndinni með hringspóli. Þjóðgarðsverðir biðla til fólks að sýna náttúrunni virðingu. 20.7.2007 13:30
Húsnæðisverð heldur áfram að hækka Húsnæðisverð hefur hækkað um tíu prósent það sem af er árinu. Hækkandi vextir og offramboð á markaðnum virðast engu skipta. 20.7.2007 12:54
Vilja lækka áfengisverð á Íslandi Þverpólitískur vilji virðist vera til þess að lækka áfengisverð hér á landi, samkvæmt samtölum Blaðsins við stjórnmálamenn í öllum flokkum. 20.7.2007 12:53
Heimsmeistararnir komnir heim Skáksveit Salaskóla sem varð heimsmeistarar í sveitaskák í Tékklandi í vikunni, kom heim til Íslands í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingar verða heimsmeistarar í sveitaskák 20.7.2007 12:35
Hörðustu aðdáendur Harry Potter mættir fyrir utan bókaverslanir klukkan sex í gærkvöld Hörðustu aðdáendur galdradrengsins Harry Potter voru komnir fyrir utan bókabúðir klukkan sex í gærkvöldi til að verða fyrstir í röðinni til að kaupa Deathly Hallows, síðustu bókina í ritröðinni. Opnað verður fyrir sölu bókarinnar í bókaverslunum víða um borgina stundvíslega klukkan eina mínútu yfir ellefu í kvöld. 20.7.2007 12:30
Varar hjólhýsaeigendur við hvassviðri á Snæfellsnesi Mikið hvassviðri gengur nú yfir Snæfellsnes og getur verið varhugavert fyrir hjólhýsaeigendur að vera á ferðinni. Vindhraði er víða um 20 metrar á sekúndu einkum á norðanverðu nesinu og í námunda við fjallaskörð. 20.7.2007 11:55
Ná ekki að nýta ýsuna til fulls Útgerðarmenn telja nánast útilokað að hægt verði að nýta allan ýsukvóta á yfirstandandi fiskveiðiári. Enn á eftir að veiða um fjórðung kvótans eða um 33 þúsund tonn. 20.7.2007 11:26
Samtök atvinnulífsins vilja að Hagstofan taki við verðlagseftirliti Samtök atvinnulífsins vilja að Hagstofa Íslands taki við verðlagseftirliti í matvöruverslunum af Alþýðusambandi Íslands. Samtökin hafa sent Geir H. Haarde, forsætisráðherra, bréf þessa efni. Þá kvarta þau ennfremur undan óvönduðum vinnubrögðum verðlagseftirlits Alþýðusambandsins. 20.7.2007 10:54
Vegslóða um Öskjuhlíð lokað að hluta Vegslóða um Öskjuhlíð frá Hlíðarfæti að Kirkjugörðum Reykjavíkur hefur verið lokað vegna framkvæmda við lóð Háskólans í Reykjavík. Gert er ráð fyrir því að vegurinn verði lokaður til haustsins 2009 eða þar til byggingaframkvæmdum lýkur. 20.7.2007 10:19