Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nordisk Mobil Ísland fær úthlutað tíðniheimild fyrir farsíma á Íslandi Fjarskiptafyrirtækið Nordisk Mobil Ísland ehf. hefur fengið úthlutað tíðniheimild fyrir landrægt stafrænt farsímakerfi á Íslandi. Um er að ræða arftaka gamla NMT farsímakerfisins en gert er ráð fyrir að fullri útbreiðslu verði náð strax í byrjun næsta árs. 25.5.2007 14:39
Þrettán sækjast eftir embætti umboðsmanns barna Þrettán umsóknir bárust um embætti umboðsmanns barna en umsóknarfrestur rann út þriðjudaginn 22. maí. Í hópi umsækjenda eru níu konur og fjórir karlar. 25.5.2007 14:33
Össur nýr samstarfsráðherra Norðurlanda Össur Skarphéðinsson, nýr iðnaðarráðherra, hefur tekið við embætti samstarfsráðherra Norðurlanda samkvæmt ákvörðun Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Tekur hann við því embætti af Jónínu Bjartmarz sem hvarf úr stóli umhverfisráðherra í gær. 25.5.2007 14:24
Sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 6 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn sló annan mann með glerflösku í andlitið á skemmtistað í Reykjavík í fyrra. Þá var honum gert að greiða fórnarlambinu 273 þúsund krónur í skaðabætur. 25.5.2007 14:12
Héðinn skrefi frá stórmeistaraáfanga Alþjóðlegi skákmeistarinn Héðinn Steingrímsson er kominn með aðra höndina á stórmeistaraáfanga eftir að hann gerði jafntefli við ítalska meistarann Luca Shytaj í áttundu og næstsíðustu umferð Capo d'Orso-mótsins á Sardiníu. 25.5.2007 14:07
Hátt í þrjú þúsund ungmenni til starfa hjá Vinnuskólanum Gert er ráð fyrir að um 2.500 ungmenni muni starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar. Skráningum lýkur í næstu viku og segir skólastjóri Vinnuskólans að hægt verði að útvega öllum þeim vinnu sem vilja. 25.5.2007 14:04
Tólf verkefni fengu styrk úr Fornleifasjóði Tólf verkefni fengu styrk úr Fornleifasjóði í dag en alls bárust sjóðnum 57 umsóknir um styrk. Í ár verður aðeins úthlutað einu sinni úr sjóðnum en heildarupphæð styrkja nam 25 milljónum króna. 25.5.2007 13:29
Íslandspóstur kolefnisjafnar bíla sína Íslandspóstur hefur ákveðið að slást í hóp þeirra fyrirtækja sem kolefnisjafna bílaflota sinn. Pósturinn rekur ríflega 120 bíla og ekur þeim nærri 2,8 milljónir kílómetra á ári. 25.5.2007 13:00
Reið baggamuninn að hann þekkti vafasama fortíð Camerons Magnús Þorlákur Lúðvíksson, átján ára menntskælingur í MR, bar sigurorð af Pálma Óskarssyni lækni í spurningaþættinum Meistaranum á Stöð tvö í gærkvöldi. Þar með bar hann fimm milljónir króna úr býtum. 25.5.2007 12:45
Iðnaðarmenn gagnrýna dóm Hæstaréttar Hæstiréttur braut á réttindum iðnaðarmanna og sniðgekk réttarvernd heillar iðngreinar þegar hann sýknaði ríkið af kröfu ljósmyndara þessa efnis að þeir einir megi taka myndir í íslensk vegabréf. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum iðnaðarins. Þeir gagnrýna niðurstöðu Hæstaréttar harðlega. 25.5.2007 12:40
Valgerður vill verða varaformaður Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi flokksins sem haldinn verður í næsta mánuði. Þetta tilkynnti hún á blaðamannafundi í höfuðstöðvum flokksins við Hverfisgötu í morgun. 25.5.2007 12:30
Fíkniefnaneysla reykvískra ungmenna minni en í mörgum Evrópuborgum Fíkniefnaneysla ungmenna í Reykjavík hefur dregist saman síðustu tíu árin og er nú minni en í mörgum borgum Evrópu. Þær borgir sækja nú þekkingu hingað til lands í því augnamiði að draga úr fíkniefnaneyslu evrópskra ungmenna. 25.5.2007 12:16
Strandsiglingar frá Akureyri Norðlendingar hafa ákveðið að hefja strandsiglingar hringinn í kringum landið. Siglt verður héðan til Danmerkur og Eystrasaltsríkjanna. 25.5.2007 12:15
Koma síldarinnar kann að valda núningi við Norðmenn Síld úr Norsk-íslenska síldarstofninum er nú í mun ríkari mæli innan íslensku efnahagslögsögunnar en verið hefur um áratuga skeið. Þessi hegðan hennar kann að valda núningi í samskiptum norskra og íslenskra stjórnvalda. 25.5.2007 12:12
Rætt um fyrstu mál á þingi á ríkisstjórnarfundi Á fyrsta ríkisstjórnarfundi ríkisstjórnarinnar í morgun voru rædd þau þingmál sem leggja á fyrir suamrþing sem kemur saman á fimmtudag. Forsætisráðherra segir að þar verði lögð fram mál sem snúa að öldruðum og börnum í samræmi við stefnyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. 25.5.2007 12:00
Krapi og skafrenningur á Holtavörðuheiði Vegagerðin varar við miklum krapa og skafrenningi á Holtavörðuheiði. Þá er víða hálka eða hálkublettir á Vestfjörðum og á Vatnsskarði og Þverárfjalli. 25.5.2007 10:54
Valgerður gefur kost á sér í varaformannsembættið Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi flokksins sem haldinn verður í næsta mánuði. Þetta tilkynnti hún á blaðamannafundi í höfuðstöðvum flokksins við Hverfisgötu í morgun. 25.5.2007 10:23
Rusl sem datt af bíl olli árekstri Árekstur varð á Sæbraut upp úr klukkan sex í dag. Óhappið varð með þeim hætti að rusl datt af bíl sem var á ferð. Bílinn sem ók á eftir snarhemlaði til þess að keyra ekki á ruslið sem og sá næsti en ekki vildi betur til en svo að þriðji bíllinn sem kom á eftir ók aftan á ökumanninn sem reynt hafði að forðast árekstur. 24.5.2007 21:15
18 ára menntaskólanemi er Meistarinn Það var menntskælingurinn Magnús Þorlákur Lúðvíksson sem fór með sigur af hólmi í Meistaranum, spurningaþættinum á Stöð 2, en úrslitaþættinum lauk nú rétt í þessu. Magnús er aðeins 18 ára gamall, hann er yngsti þáttakandinn í sögu kepninnar og þar af leiðandi yngsti sigurvegarinn. 24.5.2007 21:06
Ævisaga Laxness færa góðar undirtektir í Noregi Ævisaga Halldórs Laxness eftir Halldór Guðmundsson kom út í Noregi í síðustu viku og hefur fengið afbragðsgóða dóma gagnrýnenda. Einn helsti bókmenntagagnrýnandi landsins segir bókina eina bestu ævisögu sem hún hafi lesið. 24.5.2007 20:40
Hátt kvótaverð ógnar smærri byggðum Helsti aflaskipstjóri Grímseyinga segir hátt kvótaverð ógna smærri byggðum um land allt. Ungir menn hafi ekki efni á að taka við og kvótinn seljist því burt til útgerða á stærri stöðum. 24.5.2007 19:43
Ráðherrar láta af völdum Valdaskipti dagsins eru í samræmi við stífar formreglur en í morgun mætti fráfarandi ríkisstjórn á fund forseta þar sem forsætisráðherra baðst lausnar. Framsóknarráðherrar og Sturla Böðvarsson, Sjálfstæðisflokki sátu þá sinn síðasta ríkisráðsfund. 24.5.2007 19:29
Ríkisstjórnin tekur við völdum á Bessastöðum Ný ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks með Geir Haarde í forsæti tók formlega við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Fimm ráðherrar Sjálfstæðisflokks sitja áfram í sínum ráðuneytum en einn nýr kemur í ríkisstjórn frá þeim flokki. Tveir af sex ráðherrum Samfylkingar hafa setið í ríkisstjórn áður. 24.5.2007 19:26
Lyklaskipti í ráðuneytunum Það voru ófáir lyklarnir sem skiptu um eigendur í ráðuneytunum dag, eða einir átta. 24.5.2007 19:17
Staða Íbúðalánasjóðs óljós Ekkert er fast í hendi með flutning Íbúðalánasjóðs til fjármálaráðuneytisins. Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins hélt því fram í gær að fjármálaráðuneytið yrði líknardeild fyrir sjóðinn og ríkisstjórnarflokkarnir nýju væru orðnir sammála um að selja hann. 24.5.2007 18:45
Stjórnir hinna glötuðu tækifæra Núverandi forseti lýðveldisins talaði í tvígang um að söguleg tækifæri til myndunar félagshyggjustjórnar hefðu glatast, eftir að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur ákváðu frekar að snúa sér að Sjálfstæðisflokki eftir kosningar 1991 og 1995. Nú má enn heyra menn tala um glatað sögulegt tækifæri til myndunar félagshyggjustjórnar, þegar Samfylkingin hefur myndað stjórn með Sjálfstæðisflokknum. 24.5.2007 18:30
Dæmdar bætur vegna þýðinga á Friends Hæstiréttur dæmdi í dag Árna Samúelsson til að greiða þýðandanum Ólafi Jónssyni eina milljón króna í bætur vegna höfundarréttarbrota í tengslum við þýðingar á Friends-þáttunum. 24.5.2007 17:46
Dæmdur í átta mánaða fangelsi og til að greiða 83 milljónir í ríkissjóð Hæstiréttur dæmdi í dag mann til að greiða rúmar 83 milljónir til ríkissjóðs fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Hann var einnig dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi. 24.5.2007 17:44
Staðfesti 15 mánaða fangelsisdóm yfir kynferðisbrotamanni Hæstiréttur staðfesti í dag 15 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmann á þrítugsaldri fyrir að hafa kynferðislega misnotað 13 ára gamla stúlku. Þá var manninum einnig gert að greiða stúlkunni 700 þúsund krónur í miskabætur. Maður krafðist sýknunar en til vara að dómur héraðsdóms yrði mildaður. 24.5.2007 17:05
Aðrir en ljósmyndarar mega taka myndir í vegabréf Hæstiréttur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfu Ljósmyndarafélags Íslands í tengslum við deilur um myndatökur fyrir passamyndir. 24.5.2007 16:59
Ríkið sýknað af kröfu ÖBÍ í Hæstarétti Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms í máli Öryrkjabandalags Íslands á hendur íslenska ríkinu vegna lífeyrismála og sýknaði þannig ríkið. 24.5.2007 16:41
Tveir menn fluttir á slysadeild vegna reykeitrunar Tveir menn voru fluttir á slysadeild eftir að eldur kviknaði í íbúð við Eiðismýri á Seltjarnarnesi í dag. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en íbúðin er stórskemmd. 24.5.2007 16:28
Var svo miður sín vegna taps að hann gat ekki ekið Lögregla hafði í nógu að snúast í gærkvöld eftir sigur AC Milan á Liverpool í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þannig var lögregla kölluð að veitingahúsi á höfuðborgarsvæðinu þar sem fáeinir eldheitir Púlarar höfðu brotið glös í bræði sinni þegar úrslitin lágu fyrir. 24.5.2007 16:17
Myndband úr lögreglubíl lekur á YouTube Myndband af eltingarleik lögreglu við mótorhjól hefur lekið á vefsíðuna YouTube. Myndbandið, sem greinilega er úr eftirlitsmyndavél lögreglubíls, sýnir hvar lögregla eltir mótorhjól á ofsahraða um götur Reykjavíkur. 24.5.2007 16:12
Sjötug kona hrekur innbrotsþjófa á flótta Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í Kópavogi í gær tvo unglingspilta eftir að þeir höfðu brotist inn í einbýlishús í bænum. Húsráðandi, kona á sjötugsaldri, kom að piltunum og náði að hrekja þá í burtu en þó ekki fyrr en þeir höfðu náð að grípa með sér veski konunnar. 24.5.2007 16:10
Eldur í íbúð á Seltjarnarnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan þrjú í dag eftir að eldur kviknaði í íbúð við Eiðismýri á Seltjarnarnesi. Íbúðin var mannlaus og búið er að slökkva eldinn. 24.5.2007 15:49
Lyklaskipti í ráðuneytum Nýir ráðherrar úr Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum eru þessa stundina að taka við lyklavöldum í sínum ráðuneytum úr hendi forvera sinna. 24.5.2007 15:17
Kærur á hendur Guðmundi Jónssyni í Byrginu sendar aftur til sýslumanns Ríkissaksóknari hefur sent Sýslumanninum á Selfossi til baka kærur á hendur Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins. Óskar ríkissaksóknari þess að sýslumaður rannsaki málið frekar. 24.5.2007 15:10
270 milljóna króna kröfur í þrotabú Ágústs og Flosa Kröfur í þrotabú Ágústs og Flosa á Ísafirði, sem varð gjaldþrota í upphafi árs, nema rúmlega 270 milljónum króna. Eftir því sem segir á vef Bæjarins besta gerir Guðmundur St. Björgmundsson stærstu kröfuna fyrir hönd Dalshúsa ehf. og nemur hún 70 milljónum króna. 24.5.2007 15:03
Ný ríkisstjórn tekur við völdum Ný ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum nú klukkan tvö. Nýir ráðherrar Samfylkingarinnar komu laust fyrir klukkan tvö og vakti athygli að þau Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, Kristján Möller samgönguráðherra og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra komu saman í bíl á fundinn. 24.5.2007 14:33
Dæmdur fyrir að stinga lögregluna af á mótorhjóli Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann til að greiða 350 þúsund krónur í sekt og svipti hann ökuréttindum í hálft ár fyrir margvísleg umferðarlagabrot bæði á bílum og mótorhjóli. Hann var meðal annars sakfelldur fyrir að stinga lögregluna af á Suðurlandsvegi. 24.5.2007 14:27
Lofa að auka öryggi kjarnorkuversins í Sellafield Bretar hafa lofað að auka öryggi kjarnorkuversins í Sellafield en áform þessa efnis voru kynnt norrænni sendinefnd sem heimsótti stöðina á þriðjudaginn. Þetta kemur fram í frétt frá Norrænu ráðherranefndinni. Fyrir tveimur árum lak geislavirkur vökvi frá endurvinnslustöð Sellafield og voru norræn stjórnvöld ekki látin vita. 24.5.2007 14:00
Ekki sammála um hvort lögreglusamþykkt sé úrelt Dómari við Héraðsdóm Suðurlands segir að ekki þyki lengur tiltökumál þótt menn séu fullir og vitlausir á sveitaböllum og því beri ekki að dæma menn fyrir það. Sýslumaður er á allt öðru máli. 24.5.2007 13:00
Minna atvinnuleysi en spáð var Atvinnuleysi á landinu á þessu ári gæti orðið minna en spár gerður ráð fyrir samkvæmt vefriti fjármálaráðuneytisins. Færri en tvö þúsund manns voru skráðir atvinnulausir í síðasta mánuði og hafa þeir ekki verið færri í aprílmánuði síðan árið 2000. 24.5.2007 12:50
Bleikja á Bessastöðum Fráfarandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins situr nú að snæðingi á Bessastöðum eftir ríkisráðsfund í morgun. Við hádegisverðinn eru einnig makar ráðherra. 24.5.2007 12:32