Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Úrskurður áfrýjunarnefndar í máli sálfræðinga ógiltur Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í morgun ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála í málatilbúnaði Sálfræðingafélags Íslands á hendur Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu vegna greiðsluþátttöku ríkisins í viðtalsmeðferðum. Dómurinn vísaði hins vegar frá kröfu félagsins um að úrskurður Samkeppniseftirlitsins í málinu yrði staðfestur. Hins vegar var kröfu félagsins um að úrskurður Samkeppniseftirlitsins þess efnis að heilbrigðisyfirvöld hefðu brotið samkeppnislög með því að semja ekki við klíníska sálfræðinga líkt og geðlækna vegna viðtalsmeðferða geðsjúkra, vísað frá. 9.5.2007 11:49
Stoðtækjafræðingar fá löggildingu Í dag var undirrituð reglugerð um löggildingu stoðtækjafræðinga þar sem kveðið er á um menntun, réttindi og skyldur þeirra. Fulltrúar Félags stoðtækjafræðinga voru viðstaddir undirskriftina en félagið hefur barist fyrir löggildingu starfsins um árabil. 9.5.2007 10:55
Framúrstefnuleg myndvinnsla í kosningasjónvarpi Stöðvar tvö Framúrstefnulegri myndvinnsla verður í kosningasjónvarpi Stöðvar tvö en áður hefur sést í íslensku sjónvarpi. Sérfræðingur sem unnið hefur fyrir breska ríkissjónvarpið hefur unnið að undirbúningi kosningasjónvarpsins. 8.5.2007 20:30
Íslendingar að huga að sínum vörnum sjálfir Íslendingar þurfa nú í auknum mæli að huga að sínum vörnum sjálfir. Þetta segir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra. 8.5.2007 20:13
Ómar vísar alfarið á bug að hafa valdið umhverfisspjöllum Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar vísar því alfarið á bug að hafa valdið umhverfisspjöllum með gerð flugvallar í grennd við Kárahnjúka. Hann segist vera með öll tilskilin leyfi sem til þurfi vegna vallarins. Sveitastjórn Fljótsdalshéraðs kannar nú málið vegna kvartana sem bárust henni fyrir skömmu. 8.5.2007 18:58
Seinagangur samgönguráðherra kostar okkur 5 milljarða Seinagangur samgönguráðherra við að láta hefja veðurfarsathuganir á Hólmsheiði hefur kostað samfélagið fimm milljarða króna, segir stjórnarmaður í Samtökum um betri byggð. 8.5.2007 18:55
Hálfsextugar konur geta orðið ófrískar Konur á sextugsaldri geta orðið ófrískar upp á hefðbundin máta en konur eldri en 46 ára fá ekki frjósemismeðferð á Íslandi. Hálfsextug íslensk kona á von á sér eftir tæpa tvo mánuði. 8.5.2007 18:55
Furðar sig á lóðaúthlutun Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands furðar sig á að borgin hafi úthlutað Listaháskóla Íslands lóð í Vatnsmýri sem hefur í átta ár verið merkt Náttúrufræðistofnun á deiliskipulagi. 8.5.2007 18:50
Freistingar til misnotkunar innbyggðar í kvótakerfið Einar K Guðfinsson sjávarútvegsráðherra segir ákveðnar freistingar til misnotkunar byggðar inn kvótakerfið og taka beri allar ábendingar um svindl í kerfinu alvarlega. Magnús Þór Hafsteinsson fulltrúi Frjálslyndaflokksins í sjávarútvegsnefnd Alþingis vill að nefndin komi saman fyrir kosningar, vegna ásakana um stórfellt svindl í kvótakerfinu sem greint var frá í Kompási s.l. sunnudag. 8.5.2007 18:30
Rúmenum gert að yfirgefa landið Níu rúmenskum karlmönnum sem haldið hafa til á Akureyri síðustu daga verður gert að yfirgefa landið. Þeir eru frá sama svæði og hópurinn sem þegar hefur verið vísað úr landi. 8.5.2007 18:30
Finnar hrifnir af framlagi Íslendinga Finnar virðast mjög hrifnir af lagi Íslendinga í Evróvisjón, segir Karen Kjartansdóttir, blaðamaður Fréttablaðsins, sem stödd er í Helsinki og fylgist með undirbúningi og þátttöku íslenska hópsins í keppninni þetta árið. 8.5.2007 17:03
Helgi Torfason safnstjóri Náttúruminjasafns Menntamálaráðherra hefur skipað dr. Helga Torfason í embætti safnstjóra Náttúruminjasafns Íslands til fimm ára frá og með deginum í dag. 8.5.2007 16:47
Ágóði ævisögu Hannesar Hólmsteins til Mæðrastyrksnefndar Útgáguforlagið Nýhil mun afhenda mæðrastyrksnefnd allan ágóða af sölu metsölubókarinnar Hannes - Nóttin er blá, mamma. Bókin er fyrsta bindi í ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og kom út fyrir síðustu jól. Höfundur hennar er Óttar M. Norðfjörð. Ágóðinn af sölunni reyndist 300 þúsund krónur og verður afhentur við athöfn á fimmtudag. 8.5.2007 16:40
Katrín Hall áfram listdansstjóri Íd Menntamálaráðherra hefur skipað Katrínu Hall í embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins til næstu fimm ára frá 1. ágúst 2007 næstkomandi en hún hefur gegnt starfinu frá árinu 1996. 8.5.2007 16:35
Skilorðsbundið fangelsi og sekt fyrir líkamsárás Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í eins mánaðar fangelsi fyrir að hafa ráðist á annan mann. Þá var hann jafnframt dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu nærri 300 þúsund krónur í skaðabætur vegna árásarinnar. 8.5.2007 16:03
Lögreglan útilokar ekki íkveikju í miðbænum Rannsókn lögreglu á eldsupptökum vegna bruna húsanna á horni Lækjargötu og Austurstrætis 18. apríl stendur enn yfir. Lögregla getur því ekki útilokað að um íkveikju af mannavöldum hafi verið að ræða, né heldur hvort um hafi verið að ræða bruna út frá rafmagni. Of snemmt er að fullyrða um nokkuð í þessum efnum segir í yfirlýsingu frá lögreglunni. 8.5.2007 15:58
Smyglaði sveppum og eiturlyfjum á Litla Hraun Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að reyna að smygla sveppum og fíkniefnum til fanga á Litla Hrauni. Fíkniefnahundur „merkti“ ákærða í fangelsinu og kom þá í ljós að maðurinn hafði ólöglega sveppi og fíkniefni í úlpuvasa sínum. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi. 8.5.2007 15:31
Hálslón eins og hálft annað Blöndulón Hálsón við Kárahnjúka hækkaði um heila þrjá metra í síðustu viku og er nú orðið á við eitt og hálft Blöndulón. 8.5.2007 15:28
Ekki ákveðið hvenær skipað verður í embætti ríkissaksóknara Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ekki ákveðið hvenær skipað verður í embætti ríkissaksóknara og segist eiga eftir að fara betur yfir umsóknir um embættið. Einn umsækjenda hefur dregið umsókn sína til baka. 8.5.2007 15:01
Áhyggjur af próflausum ökumönnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur það umhugsunarefni að ökumenn skuli halda áfram akstri þrátt fyrir að hafa verið sviptir ökuleyfi. Um síðustu helgi var 19 ára piltur stöðvarður fyrir hraðakstur. Hann virti ekki stöðvunarmerki lögreglumanna og reyndi auk þess að komast undan. Að sögn lögreglu er það nánast á hverjum degi sem afskipti eru höfð af slíkum ökumönnum. 8.5.2007 14:24
Samið um kaup og þjálfun fimm blindrahunda Skrifað var undir samkomulag milli ríkisins og Blindrafélagsins í morgun um kaup á fimm leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta. Það voru Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Halldór Sævar Guðbergsson, formaður Blindrafélagsins, sem undirrituðu samkomulagið í húsi Blindrafélagsins. 8.5.2007 14:04
Ríkisstjórnin naumlega fallin samkvæmt könnun Capacent Ríkisstjórnin er naumlega fallin samkvæmt nýrri könnun sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Eftir því sem fram kemur á vef Morgunblaðsins eykst fylgi Framsóknar og Samfylkingarinnar frá könnun sem birt var í gær en fylgi Sjálfstæðisflokksins, Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og Frjálslynda flokksins minnkar. 8.5.2007 13:02
Arna fer á Viðskiptablaðið Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands og fyrrum aðstoðar ritstjóri Krónikunnar, hefur ráðið sig til starfa á Viðskiptablaðinu. Arna segir á bloggsíðu sinni á Vísi að hún muni aðallega skrifa í helgarútgáfu blaðsins. 8.5.2007 12:56
Bíða eftir sandsílinu við suðvesturströndina Náttúrufræðingar, fuglaáhugamenn, sjófuglar og veiðimenn bíða þess nú í ofvæni hvort sandsílið ætlar að koma upp að suðvesturströndinni í vor eftir tveggja ára fjarveru. 8.5.2007 12:45
Novator greiðir 1,8 milljarða til búlgarska ríkisins Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, þarf að greiða búlgarska ríkinu 1,8 milljarða króna vegna sölu Novator á búlgarska símafélaginu BTC. 8.5.2007 12:30
Símaskráin 2007 komin út í umhverfisvænni útgáfu Símaskráin 2007 er komin út og nú í fyrsta sinn með norræna umhverfismerkinu Svaninum. Ritstjóri símaskrárinnar segir að hún sé það umhverfisvæn að hægt sé að borða hana, þó hún mæli ekki beinlínis með því. 8.5.2007 12:22
Sjávarútvegsnefnd kölluð saman vegna umfjöllunar Kompáss Magnús Þór Hafsteinsson hefur farið fram á að sjávarútvegsnefnd verði kölluð saman til þess að ræða kvótasvindl í sjávarútvegi sem fjallað var um í Kompási á Stöð 2 á sunnudag. 8.5.2007 12:17
Stjórnarþingmenn fari með hálfsannleik í málefnum aldraðra Formaður Landsambands eldri borgarara segir stjórnarþingmenn fara með hálfsannleik í málefnum aldraðra, rétt fyrir kosningar. Skattbyrði láglaunafólks hafi ekki minnkað og kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi ekki aukist um 60-75 % hjá eldri borgurum, eins og stjórnarþingmenn haldi fram. 8.5.2007 12:14
Götumyndin verður aldrei eins, segir borgarstjóri Götumyndin verður aldrei eins í Austurstræti eftir brunann í miðborginni, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í blaðagrein í dag. Áður hafði hann lagt áherslu á að halda í þá sögufrægu götumynd sem varð eldi að bráð um miðjan apríl. 8.5.2007 12:11
Vinnuálag foreldra orsök eyrnavandamála Að meðaltali eru tvö til fimm börn lögð inn á spítala í hverjum mánuði til að fá sýklalyf í æð, þar sem venjuleg sýklalyf virka ekki lengur á þau. Doktor í læknisfræði segir mikla notkun hjá börnum aðallega tilkomna vegna miðeyrnabólgu, en við henni er sýklalyfjameðferð óþörf. Hins vegar geti sýklalyfjanotkunin skapað endurtekin eyrnavandamál. 8.5.2007 12:10
900 milljóna króna gjöf Lóðin sem Listaháskóli Íslands fékk að gjöf frá Reykjavíkurborg í gær er varlega áætlað níu hundruð milljóna króna virði, að mati Sverris Kristinssonar fasteignasala hjá Eignamiðlun. 8.5.2007 12:06
Kannað hvort Ómar hafi valdið umhverfisspjöllum Verið er að kanna hvort Ómar Ragnarsson hafi valdið umhverfisspjöllum með flugvallargerð í grennd við Kárahnjúka samkvæmt ábendingu um að svo sé. 8.5.2007 12:01
Lögreglan á Akureyri yfirheyrir Rúmena Lögreglan á Akureyri er nú að yfirheyra 6-9 útlendinga sem grunur leikur á að kunni að vera hluti af hópi Rúmena sem komið hafi hingað til að betla. Kvartanir hafa borist vegna útlendinganna. 8.5.2007 12:00
Össur segir Íslandshreyfinguna vera „egóflipp“ Össur Skarphéðinsson, Samfylkingunni, gagnrýndi Íslandshreyfinguna harðlega í morgunþætti Jóhanns Hauksonar á Útvarpi Sögu í morgun. Hann sagði framboðið byggjast á "egóflippi" eða reiði út í Frjálslynda flokkinn. 8.5.2007 11:44
Kjósendur flýja Framsókn til Sjálfstæðisflokks Lítil hreyfing er á kjósendum milli stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðuflokkanna hins vegar. Sjálfstæðisflokkurinn hirðir mest fylgi af Framsóknarflokknum og Vinstri grænir taka fylgi af Samfylkingunni, samkvæmt könnun Capasent Gallups. 8.5.2007 11:35
Reykur frá þakpappabræðslu setti eldvarnarkerfi Alþingis í gang Slökkvilið af tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kvatt að Alþingishúsinu rétt fyrir klukkan tíu í morgun vegna gruns um að eldur hefði komið upp í húsinu. 8.5.2007 11:06
Fjórtán stútar gripnir um helgina Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Fjórir voru stöðvaðir á föstudag, tveir á laugardag og átta á sunnudag. 8.5.2007 10:54
Einstaklingsherbergi efst á óskalista sjúklinga Einstaklingsherbergi með baði eru efst á óskalista sjúklinga, lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna við hönnun nýs háskólasjúkrahúss. Góður og fjölbreyttur matur þykir einnig mikilvægur. Þetta eru meðal annars niðurstöður bandaríska ráðgjafafyrirtækisins Planetree sem kynntar voru framkvæmdanefnd Landsspítala - háskólasjúkrahúss í gær. 8.5.2007 10:10
Merki sögð fengin að láni Merki Íslandshreyfingarinnar er fengið að láni að mati prófessors í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Merkið er afar líkt vörumerki bandarísks hugbúnaðarfyrirtækis sem hefur verið starfandi síðan 1993. Einn viðskiptavina þess er álrisinn Alcoa. 7.5.2007 19:23
Tólf milljarða í menntun Náist að auka menntunarstig þjóðarinnar um eitt ár á mann að meðaltali græðir ríkið fjörutíu milljarða á ári. Þetta segir Samfylkingin sem kynnti tólf milljarða króna fjárfestingarátak í menntun í dag. 7.5.2007 19:03
Listaháskólinn fær lóð í Vatnsmýri Borgin hefur afhent Listaháskóla Íslands ellefuþúsund fermetra lóð í Vatnsmýrinni. Menntamálaráðherra segir þetta mikinn gleðidag og rektor listaháskólans ætlar að fagna áfanganum með klippingu á morgun. 7.5.2007 18:58
Stefnt að opinberu hlutafélagi um flugflota Gæslunnar Til athugunar er að stofna opinbert hlutafélag utan um flugrekstur Landhelgisgæslunnar, en í morgun var skrifað undir kaupsamning á nýrri flugvél fyrir Gæsluna upp á 2,1 milljarð króna. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur dagar Gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli séu senn taldir og þá komi helst til greina að flytja starfsemina á Keflavíkurflugvöll. 7.5.2007 18:30
Yfir fjögur þúsund hafa kosið í Reykjavík Rúmlega fjögur þúsund manns hafa kosið utan kjörfundar í Reykjavík. Kjósendur sem fréttastofan ræddi við í dag höfðu yfirleitt löngu gert upp hug sinn varðandi þann flokk sem þeir kusu. 7.5.2007 18:30
Nýjungar í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 Kosningasjónvar Stöðvar tvö verður með glæsilegasta móti að þessu sinni. Boðið verður upp á nýjungar í framsetningu talna og annarra upplýsinga sem aldrei hafa sést í íslensku sjónvarpi áður. 7.5.2007 18:30
19 Rúmenum vísað úr landi í dag Nítján Rúmenum var vísað úr landi í dag eftir að hafa dvalið í landinu án tilskilinna leyfa í þó nokkurn tíma. Að sögn lögreglu framfleyttu þeir sér með betli í miðbæ Reykjavíkur og sváfu á bekkjum í Hljómskála og Fógetagarðinum. 7.5.2007 18:25