Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Karl Steinar verður yfirmaður fíkniefnadeildar Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn verður yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann tekur við starfinu af Ásgeiri Karlssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni sem verður daglegur stjórnandi greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Karl Steinar hefur verið aðstoðaryfirlögregluþjónn í almennu deild lögreglunnar frá 2002. Hann hefur farið með málefni almennu löggæslunnar og sólarhringsvaktanna frá þeim tíma, fyrst hjá lögreglunni í Reykjavík en frá áramótum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Karl Steinar hóf störf í lögreglunni í Reykjavík 1985. Hann var skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn 1997 og stýrði þá forvarnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Hann lauk námi í afbrotafræði frá California State University í Bandaríkjunum 1994 og útskrifaðist frá Lögregluskóla bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) 1999 og lauk námi fyrir stjórnendur í lögreglu frá sama skóla 2002. Karl Steinar lauk MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík 2006. 21.2.2007 15:46
DV verður aftur dagblað á morgun DV verður að dagblaði á morgun þegar dagleg útgáfa DV hefst að nýju eftir nokkurt hlé. Þetta kemur fram í tilkynningu frá blaðinu. DV mun framvegis koma út fimm daga vikunnar, mánudaga til föstudaga. 21.2.2007 15:24
Menntamálaráðherra eins og nátttröll á norrænum vettvangi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur menntamálaráðherra var sögð standa eins og nátttröll á norrænum vettvangi í umræðum á Alþingi í dag um skipan fulltrúa í sérfræðingaráð Norræna blaðamannaskólans. 21.2.2007 15:00
Þriðja útkallið vegna óhóflegrar tölvunotkunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í vikunni í þriðja sinn á stuttum tíma kölluð til aðstoðar í heimahúsi þar tölvunotkun unglings hafði farið úr böndunum. Foreldrar unglingspilts voru komnir með nóg af óhóflegri tölvunotkun hans. 21.2.2007 14:44
Riða greinist í ám í Hrunamannahreppi Riða hefur greinst í tveimur ám frá bænum Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi. Landbúnaðarstofnun hefur tilkynnt landbúnaðarráðherra um málið. 21.2.2007 14:38
28 mál hjá Samkeppniseftirlitinu frá 2005 eða eldri 85 stjórnsýslumál voru til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu nú um miðjan febrúar og eru 28 þeirra frá árinu 2005 eða eldri. Þetta kom fram í svari Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. 21.2.2007 14:19
Nýkomin með bílpróf á 130 kílómetra hraða Sautján ára stúlka var tekin á 130 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku rétt eftir miðnætti í nótt. Stúlkan hefur aðeins haft bílpróf í fjóra mánuði. Skömmu síðar stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu jafnaldra hennar á Hafnarfjarðarvegi á 121 kílómetra hraða. 21.2.2007 13:48
Fulltrúar fjögurra flokka spyrja um kostnað við Baugsmál Fulltrúar frá öllum flokkum á Alþingi nema Sjálfstæðisflokknum hafa lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins. 21.2.2007 13:38
Veitir reykvískum skólabörnum íslenskuverðlaun Menntaráð Reykjavíkurborgar tilkynnti í dag að komið yrði á fót íslenskuverðlaunum fyrir reykvísk skólabörn sem úthlutað verður á hverju ári á Degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember. 21.2.2007 13:28
Íslenskt táknmál verði viðurkennt sem móðurmál heyrnarlausra Félag heyrnalausra skorar á Alþingi að viðurkenna íslenskt táknmál sem móðurmál heyrnalausra og hefur hafið undirskriftasöfnun til stuðnings við hagsmunabaráttu félagsins. 21.2.2007 13:11
Boðið að falla frá ákæru fyrir vitnisburð gegn Jóni Ásgeiri Yfirheyrslum yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, lauk laust fyrir klukkan eitt í Héraðsdómi Reykjavíkur. Eins og greint var frá fyrr í dag var Tryggvi meðal annars spurður út í meintan fjárdrátt frá Baugi sem tengist skemmtibátnum Thee Viking og getið er í 18. ákærulið endurákærunnar. 21.2.2007 13:06
Ritstjóri fjölmiðlis beri ábyrgð á ómerktum áfengisauglýsingum Talsmaður neytenda telur skýrt að ritstjóri fjölmiðils beri ábyrgð á brotum gegn banni við áfengisauglýsingum ef auglýsandinn er ekki nafngreindur í auglýsingunni. 21.2.2007 12:40
Innflutt matvara oftast ódýrari á Íslandi en í Danmörku og Noregi Verð á innfluttri matvöru, annarri en landbúnaðarvörum, var oftast lægra á Íslandi en í Noregi og Danmörku samkvæmt nýrri verðkönnun félags íslenskra stórkaupmanna. 21.2.2007 12:30
Meira af svartolíu í Wilson Muuga en talið var Miklu meira virðist hafa verið eftir af svartolíu í flutningaskipinu Wilson Muuga, en talið var því vinnuflokkur hefur dælt um 20 tonnum upp úr lest skipsins á strandstað síðan í gær. 21.2.2007 12:10
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot vegna aldurs Héraðsdómur Vesturlands sýknaði í gær ungan mann af kynferðisbroti gegn stúlkubarni á þeim grundvelli að hann væri ósakhæfur fyrir aldurs sakir. Hann var hins vegar dæmdur til að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur vegna brotsins. 21.2.2007 11:40
Engin sýking í seiðum á Laxeyri Ranglega var skýrt frá því á Vísir.is í gær, í frétt sem höfð var eftir Skessuhorni, Vesturlandsvefnum, að sýktum seiðum hefði verið eytt hjá seiðaeldisstöðinni á Laxeyri í Borgarfirði. Um slíkt var ekki að ræða eins og fram kemur í meðfylgjandi athugasemd Jóns Guðjónssonar stöðvarstjóra. Vísir biðst velvirðingar á þessum mistökum. 21.2.2007 11:35
Lykilorð bloggara birt á síðum þeirra Lykilorð sumra bloggara á mbl.is voru birt í skamma stund á bloggsíðum þeirra nú í morgun. Um mikil mistök er að ræða því þeir sem sáu lykilorðin hefðu getað skrifað þau niður, farið inn á bloggsíðu viðkomandi og breytt henni. 21.2.2007 11:22
Food and Fun hefst í dag - bein útsending frá setningu á Stöð 2 Hin árlega matar- og skemmtihátíð "Food and Fun " hefst í Reykjavík í hádeginu en þá setja Jóni Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Einar Kr. Guðfinnson sjávarútvegsráðherra hátíðina formlega frá Nordica-hótelinu. Sýnt verður beint frá setningunni í hádegisfréttum Stöðvar 2. 21.2.2007 11:00
Reynir á íslensku bankana, segir S & P Nú reynir á íslensku bankana þegar hægir á íslensku efnahagslífi og erfiðarar verður að nálgast lánsfé á erlendum mörkuðum, segir greiningarfyrirtækið Standard & Poors í nýrri skýrslu um íslensku bankana. 21.2.2007 10:47
Stóri nammidagurinn er í dag Í dag er öskudagur, stærsti nammidagur ársins og börn um allt land klæðast skrautlegum búningum og ganga hús úr húsi til að kría út gotterí. Börnin fara gjarnan um í stórum hópum og taka lagið til þess að þakka fyrir sig. Fyrr á árum var það siður að krakkar hengdu öskupoka aftan í fólk, en minna er um slíkt í dag. 21.2.2007 10:36
Föst undir steinvegg í fjóra klukukutíma Kona á fimmtugsaldri var flutt með sjúkrabifreið frá Húnavatnssýslu til Reykjavíkur í dag eftir að steinveggur brotnaði og féll á hana. Konan lá föst undir veggnum á bóndabæ í Vatnsdal í fjórar klukkustundir þar til hjálp barst. Konan mun hafa verið að reka hross út úr hesthúsi þegar slysið varð, en eitt hrossana sparkaði í vegginn með þessum afleiðingum. 20.2.2007 23:50
Áætlun í jafnréttismálum endurskoðuð Kynbundinn launamunur er eitt af helstu áhersluatriðum í endurskoðaðri áætlun í jafnréttismálum. Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja tillöguna fram til þingsályktunar. Tillagan var unnin í félagsmálaráðuneytinu ásamt skýrslu um stöðu og horfur í jafnréttismálum. 20.2.2007 22:11
Vilja virkja grasrótina Samstaða, baráttusamtök um bætta umferðarmenningu, hvetja alla til að skrá sig í samtökin og vinna að fækkun alvarlegra umferðarslysa. Félagið var stofnað í kjölfar slysaöldu á síðasta ári. Ekkert banaslys hefur orðið í umferðinni það sem af er þessu ári og hefur alvarlegum meiðslum á fólki fækkað. Steinþór Jónsson formaður samtakanna segir í fréttatilkynningu að það sé góð byrjun á löngu verkefni. 20.2.2007 21:00
Deilt um fjölda þungana á Byrginu Pétur Hauksson, geðlæknir, segist harma orð fyrrverandi landlæknis um að þunganir nokkurra kvenna af völdum starfsmanna Byrgisins séu sögusagnir. Landlæknir staðhæfir að aðeins ein þungun hafi átt sér stað í Byrginu. 20.2.2007 19:15
Borgarstjóri heldur fast við andstöðu sína við klámráðstefnu Borgarstjóri heldur fast við orð sín og yfirlýsingar um að hann fordæmi væntanlega ráðstefnu klámframleiðenda hér á landi. Ummæli hans hafa vakið athygli erlendra fjölmiðla 20.2.2007 19:00
Breikkun Suðurlandsvegar fjármögnuð beint úr ríkissjóði? Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, segir mjög vel koma til greina að fjármagna breikkun Suðurlandsvegar beint með framlögum úr ríkissjóði. Hann segir að skuggagjaldaaðferð verði því aðeins notuð að hún reynist ríkissjóði hagstæð. 20.2.2007 18:50
Fjármálaráðherra harmar mistök Símans og Landsvirkjunar Fjármálaráðherra harmaði, á Alþingi í dag, þau mistök sem Símanum og Landsvirkjun urðu á með ólögmætu samráði. Þingflokksformaður vinstri grænna benti á að helstu talsmenn markaðsvæðingar, sem forðum hrópuðu báknið burt, þeir Friðrik Sophusson og Brynjólfur Bjarnason, hefðu nú verið staðnir að brotum á samkeppnislögum. 20.2.2007 18:46
Sálfræðingur aðstoðar vitni í Baugsmálinu Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur og fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur verið vitnum í Baugsmálinu til aðstoðar en ákærðu segja málið hafa reynt mjög á sig. Í dag var dómnum sýndur tölvupóstur frá settum ríkissaksóknara, sem einn af lögmönnum Baugs hafði falsað. 20.2.2007 18:43
Mistekist að koma á samkeppni á raforkumarkaði Það er verið að búa til einn samansúrraðan einokunarrisa, sagði formaður vinstri grænna í þingræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um að leggja Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða undir Landsvirkjun. Fjármálaráðherra segir ljóst að markaðsvæðing raforkukerfisins hafi ekki tekist sem skyldi og mistekist hafi að koma á samkeppni. 20.2.2007 18:42
Gæsluvarðhald vegna stærsta kókaínsmygls Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsdóm yfir fertugum karlmanni sem er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa smyglað fjórum kílóum af kókaíni til landsins. Áætlað götuvirði efnanna gæti numið um 50 milljónum króna, en þetta er eitt mesta magn af kókaíni sem lagt hefur verið hald á hér á landi. 20.2.2007 18:22
Ný heimasíða um íslenska hestinn Ný heimasíða Félags eigenda íslenskra hesta erlendis FEIF var opnuð á ársfundi félagsins sem haldinn var í Glasgow um helgina. Í félaginu eru 56 þúsund meðlimir frá 18 löndum. Á fundinum var ákveðið að færa öllum meðlimunum WorldFeng, upprunabók íslenska hestins. 20.2.2007 17:46
Falsaði tölvupóst til setts ríkissaksóknara Einn af aðstoðarlögmönnum Baugsmanna falsaði tölvupóst frá Sigurði Tómasi Magnússyni, settum saksóknara, til Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs. Pósturinn var í dag sýndur dómurum í Baugsmálinu af lögmanni Tryggva til að sýna fram á óáreiðanleika tölvupósta. 20.2.2007 16:45
Ofsakastur rannsakaður sem almannahættubrot Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mál tveggja ökuníðinga sem létu til sín taka um síðustu helgi sem almannahættubrot og þannig brot á hegningarlögum en ekki umferðarlögum. Við slíkum brotum er allt að tveggja ára fangelsi. Lögreglustjóri segir tíma til kominn að segja hingað og ekki lengra. 20.2.2007 16:28
Rændi glænýju fjórhjóli við verslun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í gær afskipti af bíræfnum þjófi sem rændi glænýju fjórhjóli fyrir utan verslun í austurborginni. Hjólið var ósamsett fyrir utan verslunina þegar því var stolið en lögregla fann það á verkstæði í öðru hverfi skömmu síðar. 20.2.2007 16:06
Tréverkshúsið á Bíldudal illa farið eftir bruna Miklar skemmdir urðu á Tréverkshúsinu á Bíldudal í dag þegar eldur kviknaði í húsinu. Eftir því lögreglan á Ísafirði segir var tilkynnt um eldinn um hádegisbil og var allt tiltækt lið frá Brunvörnum Vesturbyggðar og Tálknafjarðar kallað til að ráða niðurlögum eldsins. 20.2.2007 15:59
Kartöflugeymslur fá nýtt líf á Vetrarhátíð Gömlu kartöflugeymslurnar í Ártúnsbrekkunni ganga í endurnýjun lífdaga á föstudag og laugardag í tengslum við Vetrarhátíð 2007. Geymslunum verður breytt í listasmiðju þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir bæði unga og aldna eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 20.2.2007 15:38
Mýs eða kartöflur? - skorið úr um það í Íslandi í dag í kvöld Nokkur umræða hefur skapast um það á bloggsíðum landsins í dag hvort tvær mýs hafi skotist yfir gólfið í verslun Bónuss í Holtagörðum í úttekt Íslands í dag á matvöruverði á landinu á Stöð 2 í gærkvöld. Tveir litlir hlutir sjást í innslaginu skjótast yfir gólfið þar sem Sölvi Tryggvason, fréttamaður Íslands í dag, er að fara yfir verð á tiltekinni kextegund. 20.2.2007 15:22
Harma komu klámframleiðenda til landsins Félag kvenna af erlendum uppruna á Íslandi harma það að framleiðendur kláms skuli hafa valið Ísland sem samkomustað og ætli sér að nota dvöl sína hér til að styrkja viðskiptatengsl og tækifæri. Í yfirlýsingu til fjölmiðla fordæmir félagið komu hópsins til landsins og hvetur stjórnvöld til þess að fylgjast grannt með ferðum hans og athæfi á meðan á heimsókninni stendur. 20.2.2007 14:54
Breytingar á mælingu neysluverðsvísitölu Geir H. Haarde forsætisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum vísitölu neysluverðs. Með frumvarpinu er lagt til að vístalan verði reiknuð í hverjum mánuði miðað við verðlag í um það bil vikutíma um miðjan hvern mánuð en miðað við núverandi lög er vísitalan reiknuð út frá verðlagi fyrstu tveggja virkra daga í mánuði. 20.2.2007 14:33
Heilsuverndarstöðin verður hótel Nýir eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg hafa uppi hugmyndir um að breyta henni í hótel en þeir keyptu húsið af Mark-Húsum fyrir um mánuði. Mark-Hús keyptu húsið hins vegar af borginni og ríkinu í hitteðfyrra og var starfsemin sem þar var flutt í húsnæði í Mjódd og á Landspítalann. 20.2.2007 14:13
Laxaseiðum eytt á Laxeyri Nýrnaveiki kom upp í seiðum og hrognum í laxeldisstöðinni á Laxeyri. Þeim hefur öllum verið eytt. Veikin hefur ekki dreift sér um stöðina. 20.2.2007 14:08
Lýst eftir vitnum að ofsaakstri tveggja manna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að ofsaakstri tveggja ökumanna um síðustu helgi en hún segir að þá hafi nánast allar umferðarreglur verið þverbrotnar. Allt að sex ára fangelsi liggur við brotum mannanna. 20.2.2007 13:44
Harma það að almennir borgarar taki lögin í sínar hendur SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla - landssamtök foreldra, um örugga netnotkun barna og unglinga á Íslandi, harmar það að hinn almenni borgari skuli taka lögin í sínar eigin hendur og geri út tálbeitur fyrir barnaníðinga á netinu. 20.2.2007 13:15
Segir Vestfirði og Norðurland vestra hafa verið vanrækt Vestfirðir og Norðurland vestra hafa verið vanrækt, þar fækkar íbúum stöðugt, og það er til skammar að láta slíkt gerast árum saman. Þetta sagði þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í harðri ádeilu á ríkisstjórnina í fyrirspurnartíma á Alþingi. 20.2.2007 13:00
Draga barnaperra á tálar og hafa af þeim fé Svo virðist sem nýr leikur sé að ryðja sér til rúms meðal unglinga í Hafnarfirði. Leikur að eldi myndu margir kalla það, enda gengur hann út á að lokka til sín barnaperra, hafa af þeim fé og ná svo mynd af þeim. 20.2.2007 12:45