Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stúlkan sem lýst var eftir fundin Kolbrún Sara Runólfsdóttir, stúlkan sem lögregla lét lýsa eftir fyrr í kvöld, er komin fram heil á höldnu. Hún fannst eftir að eftirtektarsamur vegfarandi sem hafði fylgst með fjölmiðlum sá hana. Hún hafði ekki sést í tvo daga. Lögregla vill þakka öllum sem að komu fyrir skjót og góð viðbrögð. 12.2.2007 20:39
Sýndi mikinn kjark og frumkvæði Skyndihjálparmaður ársins 2006 sýndi mikinn kjark og frumkvæði þegar hann bjargaði lífi móður sinnar í fyrrasumar. Almennt er þó mælt með að börn leiti fyrst aðstoðar og aðhafist svo eftir að neyð ber að höndum. 12.2.2007 20:00
Rifist um ábyrgð á alþingi Eignir ríkisins að Efri brú í Grímsnesi verða líklega seldar, að sögn forsætisráðherra, en meðferðarstarf þar verður lagt af. Skipað verður sérstakt áfallateymi til að aðstoða fyrrverandi skjólstæðinga Byrgisins og geðdeild Landspítalans stendur þeim opin. Stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar rifust á alþingi í dag um hver bæri mesta ábyrgð í Byrgismálinu. 12.2.2007 19:45
Fjöldi öryrkja kominn á atvinnumarkað Fjöldi öryrkja á Norðurlandi er kominn á atvinnumarkað eftir þátttöku í tilraunaverkefni. Fyrrum óvinnufær einstaklingur þakkaði þetta nýrri nálgun sem vakið hefur athygli fyrir utan landsteinana. 12.2.2007 19:37
Fórnarlömb forstöðumanns Byrgisins fá enga hjálp Aðstandendur stúlknanna úr Byrginu hrópa á hjálp. Móðir einnar þeirra segir tvær í bráðri sjálfsvígshættu en þrjár munu hafa lent í neyslu á nýjan leik. Í gær var einni stúlkunni neitað um áfallahjálp á Landspítalanum með þeim rökum að fórnarlömb forstöðumanns Byrgisins fengju hjálp annars staðar. Sú hjálp hefur þó enn ekki borist. 12.2.2007 19:28
Lögreglan lýsir eftir stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára gamalli stúlku, Kolbrúnu Söru Runólfsdóttur. Kolbrún er 168 sentímetrar að hæð, dökkhærð, stuttklippt og þéttvaxin. Kolbrún fór að heiman síðla dags, laugardaginn 10. febrúar og hefur ekkert til hennar spurst eftir þann tíma. Þeir sem gætu gefið upplýsingar um ferðir Kolbrúnar Söru eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1100. 12.2.2007 19:10
Kosningalykt af samgönguáætlun Eitthundrað og fimm milljörðum verður varið til vegamála á næstu fjórum árum, þar af verður tæpum tólf milljörðum ráðstafað til tveggja jarðganga, Óshlíðarganga og Héðinsfjarðarganga. Til samanburðar var varið áttatíu milljörðum til vegamála á árunum 2003 til 2006. 12.2.2007 19:00
Sakaður um ólöglega lántöku Sérstakur ríkissaksóknari reynir að sanna, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hafi m.a. staðið að ólöglegum lánveitingum frá Baugi til Gaums á tímabilinu 1999 - 2002, þegar Baugur var almenningshlutafélag. Þriggja daga yfirheyrslur hófust yfir Jóni Ásgeiri í héraðsdómi í morgun. 12.2.2007 18:30
Þrjátíu og tveir hætta á RÚV Þrjátíu og tveir starfsmenn Ríkisútvarpsins nýttu sér rétt til að fara á biðlaun, við stofnun hlutafélags um útvarpið hinn 1. apríl næstkomandi. Ekki er víst að ráðið verði í allar þessar stöður á nýjan leik. 12.2.2007 18:30
Þjóðarsátt um nýtingu og verndun náttúru Þjóðarsátt, til framtíðar um nýtingu og verndun auðlinda í jörðu, verður tilbúin eftir þrjú ár, segja ráðherrar iðnaðar- og umhverfis. Blekking, segir formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, sem telur að stjórnvöld séu að slá ryki í augu almennings nú rétt fyrir kosningar. 12.2.2007 18:30
Sól á Suðurnesjum funda vegna Helguvíkur Samtökin Sól á Suðurnesjum ætla annað kvöld að efna til opins fundar í Saltfisksetrinu í Grindavík til þess að ræða um fyrirhugað álver í Helguvík og tengdar framkvæmdir. Samtökin vilja meina að framkvæmdir vegna álversins muni setja mark sitt á dýrmætar náttúruperlur Grindvíkinga. 12.2.2007 17:27
380 milljarðar til samgöngumála á næstu 11 árum Reiknað er með að rúmlega 380 milljörðum króna verði varið til samgöngumála á árabilinu 2007 til 2018 samkvæmt samgönguáætlun sem kynnt var í dag. Stærstur hluti þess rennur til vegamála, eða 85 prósent, en annað til flug- og siglingamála. 12.2.2007 16:41
HR fær lóð í Vatnsmýrinni Á morgun verður undirritaður samningur í Höfða um lóð fyrir Háskólann í Reykjavík í Vatnsmýrinni. Þá verður einnig undirrituð samstarfsyfirlýsing Reykjavíkurborgar og HR vegna aukins samstarfs í kennslu, þróun og rannsóknum. Markmiðið er að styrkja Háskólann í Reykjavík og efla Reykjavíkurborg sem alþjóðlega háskólaborg. 12.2.2007 16:30
Reyndi að stinga lögregluna af Sextán ára drengur var stöðvarður á bíl í Breiðholti um helgina. Hann var ökuréttindalaus og reyndi að stinga lögregluna af með því að taka á rás. Hann komst hins vegar ekki langt áður en lögreglan hljóp hann uppi og handsamaði hann.Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, þrettán karlmenn og tvær konur. 12.2.2007 16:09
Fækkað á vitnalista í Baugsmálinu Málflutningi í Baugsmálinu svokallaða er lokið í dag en haldið verður áfram í fyrramálið. Eitthvað verður fækkað vitnalista, sem nú telur rúmlega 100 manns, en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið verður fækkað á listanum. 12.2.2007 15:42
Allir blekktir vegna Byrgisins Jón Kristjánsson fyrrverandi heilbrigðisráðherra sagði á Alþingi í dag að allir sem komu að máli Byrgisins varðandi fjárveitingar og styrki til þess, hafi verið blekktir. Aðalatriði nú væri að taka á þessu máli. Málefni meðferðarheimilisins urðu tilefni hvassra orðaskipta í umfjöllun Alþingis en Össur Skarphéðinsson og fleiri þingmenn lögðu ríka áherslu á ábyrgð í málefnum Byrgisins. 12.2.2007 15:11
Tilnefningar til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands verða afhent að Bessastöðum 28. febrúar næstkomandi. Fimm verkefni voru valin af dómnefnd úr hópi 145 sem fengu styrki á síðasta ári, en alls bárust 277 umsóknir. Martin Ingi Sigurðsson er tilnefndur fyrir verkefni sitt Áhrif aldurs á utangenamerki mannsins, Hildigunnur Jónsdóttir og Valdimar Olsen fyrir verkefnið Geo-Breeze, Hrafn Þorri Þórisson fyrir Nýsköpun í sýndarverum, Steinþór Bragason fyrir Rafmagnsfluguna og Guðfinna Halldórsdóttir og Björn Ómarsson fyrir Þráðlausa mælingu stökkkrafts. 12.2.2007 14:55
Ofsaakstur á Hafnarfjarðarvegi Tuttugu og fjögurra ára karlmaður var tekinn á 160 km hraða á Hafnarfjarðarvegi síðdegis í gær. Þetta er annað skiptið á innan við viku sem maðurinn er tekinn fyrir ofsaakstur. Sjötíu og tveir voru teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Meirihluti þeirra ók á yfir 100 km hraða, en sumir langt yfir það. Flestir voru það ungir karlkyns ökumenn. 12.2.2007 14:27
Hvetja til kosninga um álver í Helguvík Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum hvetja bæjarfulltrúa til að efna til kosninga um fyrirhugað álver í Helguvík og aðrar framkvæmdir tengdar því, eins og raflínur og virkjanir. Þeir halda opinn fund um álverið á miðvikudagskvöldið kl 20.30 á veitingastaðnum Ránni við Hafnargötu í Reykjanesbæ. 12.2.2007 14:12
Húsnæðisverð hækkar enn Hækkun á húsnæðisverði var meiri í síðasta mánuði en áætlað var, og mest á landsbyggðinni en þar hækkaði húsnæðisverð um rúm þrjú prósent. Á höfuðborgarsvæðinu hækkaði einbýli um 1,6 prósent en um eitt prósent í fjölbýli. Þetta kemur fram í morgunkorni Greiningar Glitnis en þar segir að vísitala neysluverðs í febrúar hafi hækkað meira en spá bankans gerði ráð fyrir, eða um 0,4 prósent. 12.2.2007 12:58
Íslensk-indversk lyfjasamvinna Íslenska lyfjafyrirtækið Invent Farma ehf. hefur í samvinnu við indverska lyfjaframleiðandann Strides Arcolab Ltd. stofnað tvö ný samstarfsfyrirtæki. Annars vegar Domac Laboratories sem mun leggja áherslu á að þróa og selja lyf til sjúkrastofnana á Spáni og í Portúgal, og hins vegar eignarhaldsfélagið Plus Farma á Íslandi sem nýlega festi kaup á lyfjafyrirtækinu Farma Plus í Osló í Noregi. Farma Plus er vaxandi aðili í sölu á lyfjum til sjúkrahúsa á Norðurlöndum. 12.2.2007 12:37
Jón Ásgeir yfirheyrður í þrjá daga Hádegishlé er í aðalmeðferð í Baugsmálinu en hún hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun með vitnisburði Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Sérstakur ríkissaksóknari reiknar með að yfirheyra Jón Ásgeir í þrjá daga en tekist var á um tilteknar lánveitingar Baugs til Gaums. 12.2.2007 12:32
Yfirstjórn RÚV við talningu Enn er á huldu hversu margir starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa ákveðið hvort þeir muni hætta störfum þegar stofnunin breytist í opinbert hlutafélag. 12.2.2007 11:59
Þjóðarsátt um auðlindanýtingu og náttúruvernd Þjóðarsátt á að nást um auðlindanýtingu og náttúruvernd segja Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra en þau kynntu nú fyrir hádegi frumvarp um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu. Ráðherrarnir kynntu tvö frumvörp á blaðamannafundi í morgun sem þau munu mæla fyrir á þingi á morgun. 12.2.2007 11:58
Virkjanaáform í Þjórsá óásættanleg Náttúruverndarfélagið Sól á Suðurlandi mótmæla harðlega virkjanaáformum Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár. Í fréttatilkynningu skorar félagið á stjórnvöld að fórna ekki íslenskri náttúru til framkvæmda sem nýtast eiga til mengangi starfsemi. Í tilkynningunni segir að í framhaldi af umræðu um hlýnun jarðar af mannavöldum sé óásættanlegt að fara í slíkar framkvæmdir. 12.2.2007 11:22
Neysla áfengis dregst saman Svo virðist sem landsmenn hafi verið heldur hógværari í neyslu áfengis í upphafi þorra í ár, en á síðasta ári. Sala á áfengi dróst saman um tæp 11 prósent á föstu verðlagi á milli janúarmánuða árið 2006 og 2007. Þetta kemur fram í nýjum niðurstöðum rannsóknarseturs verslunarinnar á smásöluvísitölu fyrir janúar 2007. Sé miðað við breytilegt verðlag hefur sala áfengis dregist saman um tæp 6 prósent. 12.2.2007 10:33
Ný samgönguáætlun kynnt á morgun Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ætlar að kynna samgönguáætlun fyrir árin 2007 til 2018 á Ísafirði á morgun. Stefnt er að því að henni verði dreift á Alþingi síðdegis á morgun. Fundur samgönguráðherra verður í húsnæði Vegagerðarinnar á Ísafirði 11.2.2007 19:45
Innihald í íslenskum kjötvörum oft á tíðum óljóst Eftirlit með notkun bindiefna í kjötvörur er lítið hér á landi. Umhverfisstofnun veit ekki hvað helsta bindiefnið í kjötvörum, svokallað tendin, inniheldur. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í fréttaskýringaþættinum Kompási í kvöld. 11.2.2007 19:15
Vígslubiskup harmar atburðina í Breiðuvík Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, kveðst harma þá atburði sem gerðust í Breiðuvík, en hann starfaði þar um tíma á sjöunda áratugnum. Hann kveðst þó aldrei hafa séð líkamlegu ofbeldi beitt þar en eftir að hann heyrði orðróm um slíkt frá drengjunum hafi hann gengið á fund yfirvalda og hvatt til að heimilinu yrði breytt. 11.2.2007 19:11
Vill að einhver axli ábyrgð Það er til skammar fyrir íslensk stjórnmál hvernig allir hlaupa frá Byrgismálinu. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í Silfri Egils í dag. Forsætisráðherra sagði mikinn þrýsting hafa verið á stjórnvöld að láta fé í Byrgið og stjórnarandstaðan hefði verið framarlega í flokki. 11.2.2007 18:55
Verðlaunaður fyrir að bjarga lífi móður sinnar Átta ára drengur, sem bjargaði lífi móður sinnar síðasta sumar, var í dag valinn skyndihjálparmaður ársins af Rauða krossinum. "Hundrað og tólf" dagurinn er í dag og í ár var hann tileinkaður sjálfboðaliðum. 11.2.2007 18:52
Ráðuneytið kannar hvort lög hafi verið brotin Verið er að kanna í fjármálaráðuneytinu hvor farið hafi verið að lögum þegar fjárfestingarbankinn, Straumur-Burðarás, fékk heimild til að skrá bókhald sitt í evrum. 11.2.2007 17:42
Aðalmeðferð í Baugsmálinu á morgun Aðalmeðferð hefst í Baugsmálinu á morgun en alls verða tæplega eitt hundrað vitni kölluð til. Verið er að taka fyrir átján ákæruliði í endurákæru. Það eru þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi Baugs, Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins og Jón Gerald Sullenberger, sem nú eru ákærðir. 11.2.2007 16:54
Til skammar hvernig allir hlaupa frá Byrgismálinu Það er til skammar fyrir íslensk stjórnmál hvernig allir hlaupa frá Byrgismálinu. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í Silfri Egils í dag. 11.2.2007 16:38
Fuglar valda óþægindum á Akranesi Fuglar hafa valdið nokkrum óþægindum í Akraneshöllinni undanfarið. Framkvæmdanefnd mannvirkja Akraneskaupstaðar er nú að leita leiða til að koma í veg fyrir fuglalíf í höllinni. Á vef Skessuhorns er greint frá því að opnar ristar séu á göflum hússins og fuglar hafa átt greiða inngönguleið þar um. 11.2.2007 15:31
Fjölmenni á baráttufundi í Árnesi Félagsheimilið í Árnesi er þétt setið en þar stendur nú yfir baráttufundur andstæðinga þriggja virkjana sem áformaðar eru í neðri hluta Þjórsár. Talið er að um fjögur hundruð manns séu á fundinum en meðal fundargesta eru þingmenn, frambjóðendur í kjördæminu og úr öðrum landshlutum, heimafólk og höfuðborgarbúar. 11.2.2007 15:21
Gangsæjar pípur reistar við Hellisheiðavirkjun Listahópurinn Norðan Bál átti vinningstillöguna í samkeppni Orkuveitu Reykjavíkur um útilistaverk við Hellisheiðarvirkjun. Hugmynd þeirra felur í sér að reistar verða sverar gagnsæjar pípur framan við stöðvarhúsið. Gufa og litað ljós leika svo um þær og gefa þær jafnframt frá sér djúpa tóna. 11.2.2007 14:45
Drengur sem bjargaði lífi móður sinar skyndihjálparmaður ársins Egill Vagn, átta ára drengur sem bjargaði lífi móður sinnar síðasta sumar, var í dag valinn skyndihjálparmaður ársins af Rauða krossinum. Egill Vagn brást fljótt við þegar móðir hans missti meðvitund vegna bráðaofnæmis. Hann sótti adrenalínpenna í veski móður sinnar, sprautaði hana í handlegginn og hringdi síðan í neyðarlínuna eftir hjálp. 11.2.2007 14:13
Baráttufundur gegn virkjunum í Þjórsá í dag Andstæðingar þriggja virkjana, sem áformaðar eru í neðri hluta Þjórsár, boða til baráttufundar gegn þeim í félagsheimilinu Árnesi í dag. Nær engin andstaða var gegn þessum virkjunum þegar þær fóru í gegnum umhverfismat fyrir þremur árum. 11.2.2007 13:20
Gerð Helgafellsbrautar hitamál Gerð Helgafellsbrautar er orðið mikið hitamál hjá íbúum í Mosfellsbæ og sást það glöggt á opnum fundi Varmársamtakanna í gær. Samtökin telja marga þætti ekki hafa verið skoðaða nógu vel og vilja að hætt verði við framkvæmdirnar. Bærinn ætlar að halda opinn fund um málið í næstu viku. 11.2.2007 13:00
Ósáttir við lögreglumann og sprengdu upp flugeld Lögreglan telur ekki tilviljun að flugeldur hafi verið sprengdur upp við heimili lögregluþjóns á Skagaströnd í nótt. Lítið tjón var af spengingunni sem var við dyr hússins. Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, segir lögregluþjóninn hafa haft afskipti af vélhjólamönnum á svæðinu og telur lögreglan sprenginguna eins konar svar við því. 11.2.2007 12:40
Samfylking og Vinstri-grænir gætu myndað ríkisstjórn Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekki geta tekið mark á skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi stjórnmálaflokkanna sem birt var í dag en könnunin sýnir flokkinn með 3,9% fylgi. Samkvæmt könnuninni geta Samfylkingin og Vinstri-grænir myndað ríkisstjórn ef gengið yrði til kosninga nú. 11.2.2007 12:30
112 dagurinn helgaður sjálfboðaliðum Í dag er 112 dagurinn og af því tilefni verður fjölbreytt dagskrá víða um land á vegum viðbragðsaðila í björgun og almannavörnum. Á hádegi lagði 112 lestin af stað frá Skógarhlíð en á bilinu þrjátíu til fjörtíu bílar lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita eru í lestinni, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flýgur með. 11.2.2007 12:17
Skipverjar á Castor Star fá launin greidd Góðar líkur eru á að uppskipun úr flutningaskipinu Castor Star sem stendur við Grundartangahöfn geti hafist á ný á morgun. Samkomulag náðist í gær við útgerðina um greiða skipverjum laun sem þeir hafa ekki fengið greidd síðan í september. 11.2.2007 12:11
Á 106 kílómetra hraða þar sem 50 kílómetra hraði er leyfður Ökumaður var tekinn í gærkvöldi á 106 kílómetra hraða á Drottningarbraut við Kaupvangsstræti á Akureyri en þar er hámarkshraði 50 kílómetrar á klukkustund. Mikil hálka var á götum bæjarins og þegar ökumaðurinn var inntur eftir skýringu á háttalagi sínu, sagðist hann hafa ætlað að ná yfir gatnamótin á grænu ljósi. 11.2.2007 10:30