Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný ríkisstjórn kynnt eftir klukkustund Ný ríkisstjórn undir forystu Geirs H. Haarde verður að líkindum kynnt á blaðamannafundi sem hefst á eftir klukkan hálf þrjú. Það er Halldór Ásgrímsson sem boðar til fundarins sem verður í Alþingishúsinu. NFS sendir beint út frá fundinum. 10.6.2006 13:26
Ráðist á 17 ára ungling á Eiðistorgi Ráðist var á 17 ára ungling á Eiðistorgi um klukkan eitt í nótt og hann laminn og sparkað í höfuð hans. Hann var fluttur á slysadeild en ekki talinn alvarlega slasaður. Árásarmaðurinn, sem er tvítugur, er í haldi lögreglu. 10.6.2006 11:15
Þingmenn stjórnarflokkanna í viðbragðsstöðu Þingmenn stjórnarflokkana hafa verið beðnir um að vera í viðbragðsstöðu til þess að geta í skyndi komið á þingflokksfundi vegna breytinga á ríkisstjórninni. 10.6.2006 11:00
Rýma þurfti íbúðarhús vegna bruna í Keflavík Slökkviliðsmenn börðust við eld í Hjólbarðaverkstæði í Keflavík í nótt. Rýma þurfti íbúðarhús vegna brunans. 10.6.2006 10:39
Eldur logar í dekkjaverkstæði í Keflavík Slökkviliðsmenn berjast nú við eld sem kviknaði í dekkjaverkstæði í Keflavík. Í húsinu er nokkuð magn dekkja en þar er einnig smurstöð. Lögreglan fékk tilkynningu um eldinn á ellefta tímanum í kvöld. Að sögn lögreglunnar í Keflavík virðist eldurinn eitthvað vera í rénun en slökkvistarf er enn í fullum gangi. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja ásamt slökkviliðinu í Hafnarfirði og frá Keflavíkurflugvelli vinna að slökkvistarfinu. 9.6.2006 23:57
Einn hefur lýst yfir framboði í stjórn Framsóknarflokksins Haukur Logi Karlsson, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna, tilkynnti á miðstjórnarfundi flokksins í dag að hann hefði ákveðið að bjóða sig fram til ritara Framsóknarflokksins. Hann er sá eini sem hefur gefið út að hann ætli að bjóða sig fram í stjórn Framsóknarflokksins. Kosið verður um nýja stjórn á flokksþingi í ágúst. 9.6.2006 22:41
Fannst látinn í morgun Karlmaður á þrítugsaldri sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í vikunni fannst látinn í morgun. Lögreglan lýsti eftir manninum, Hauki Frey Ágústssyni, á miðvikudaginn. Ekkert hafði þá spurst til hans síðan 1. júní. Lögreglan rannsakar nú lát Hauks. 9.6.2006 21:27
Landhelgisgæslan stendur veiðiþjófa að verki Eftirlitsflugvélin Syn var í flugi yfir úthafskarfamiðin á Reykjaneshrygg í dag þegar áhöfnin stóð flutningaskip að því að þjónusta sjóræningjaskipið Carmen. Flutningaskipið heitir Polestar og er skráð í Panama sem frystiskip. 9.6.2006 19:00
Ekki nógu vel staðið að björguninni Formaður rannsóknarnefndar sjóslysa segir ekki nægilega vel hafa verið staðið að björgunaraðgerðum á Viðeyjarsundi í september, þegar skemmtibáturinn Harpa fórst með þeim afleiðingum að tveir létust. Hann segir brýnt að samræma fjarskiptabúnað leitar-, björgunar- og stjórnunaraðila. 9.6.2006 18:45
Fækkun í rjúpnastofninum Talningar Náttúrufræðistofnunar Íslands í vor sýna fækkun á rjúpum. Sums staðar kom fram kyrrstaða og aukning mældist á Austurlandi en að meðaltali sýna talningar 12% fækkun frá síðasta ári. Ástand stofnsins er því ekki í samræmi við væntingar eftir tveggja ára uppsveiflu. Fækkunin nú kemur jafnt fram á friðaða svæðinu á Suðurlandi og á þeim svæðum þar sem rjúpnaveiðar hófust að nýju síðasta haust eftir tveggja ára hlé. 9.6.2006 18:00
Jónas Garðarsson segir af sér sem formaður Sjómannafélags Reykjavíkur Tilkynning hefur borist frá Jónasi Garðarssyni, formanni Sjómannafélags Reykjavíkur og stjórnarmanni í Sjómannasambandi Íslands, um að hann muni draga sig út úr öllum trúnaðarstörfum fyrir SR og SÍ. Ástæðuna segir hann vera að koma í veg fyrir að persónuleg mál hans í kjölfar sjóslyssins þann 10. september síðastliðinn trufli hagsmunabaráttu sjómanna. 9.6.2006 16:54
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins hófst með stóryrtri ræðu Halldórs Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins stendur nú yfir á Hótel Sögu. Fundur hófst klukkan fjögur með ræðu Halldórs Ásgrímssonar, fráfarandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins. Halldór sagði að sátt væri um að flokksþing verði haldið seinni hluta ágúst mánaðar. Tillaga þess efnis hefði stuðning hans, varaformannsins, framkvæmdarstjórnar flokksins og þingflokksins. Halldór sagði misklíð innan flokksins hafa verið erfið en framsóknarmenn kæmu þó sterkari út úr þeim átökum. 9.6.2006 16:16
Landhelgisgæslan semur við Air Lift um leigu á þyrlu Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Georg Kr. Lárusson forstjóri LHG undirrituðu í dag samning við forsvarsmenn fyrirtækisins Air Lift, þá Bjarne Slapgard framkvæmdastjóra og Erlend Folstad markaðsstjóra, um leigu á Super Puma þyrlu frá og með 1. október næstkomandi. 9.6.2006 16:12
Fróði gefur út blað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Fróði hafa gert með sér samning um dreifingu á tímariti í flugstöðinni. Tímaritið verður afþreyingar- og auglýsingatímarit með ferðatengdu efni. Áætlað er að tímaritið komi út annan hvern mánuð og mun fyrsta tölublaðið koma út í júlí. 9.6.2006 16:00
TM semur við SOS um neyðarþjónustu Tryggingamiðstöðin hefur samið við SOS International í Danmörku um neyðarþjónustu við korthafa VISA Ísland. Auk þess hefur TM samið við SOS um neyðarþjónustu við handahafa Fjölskyldutrygginga og stakra ferðatrygginga hjá TM. Símtöl sem berast Europe Assistant, fyrri neyðarþjónustu TM, verða send á SOS í Danmörku eftir 1. júlí. 9.6.2006 15:45
Metár hjá Nordjobb hér á landi Aldrei hafa jafn margir komið til Íslands á vegum Nordjobb verkefnisins. 140 einstaklingar koma hingað til lands til vinnu í sumar og er þetta því metár hjá Nordjobb. Til samanburðar voru 96 norrænir starfsmenn hér á landi í fyrra á vegum Nordjobb. 9.6.2006 15:29
Samnýta upplýsingar úr læknisvottorði Tilraunaverkefni um samnýtingu upplýsinga úr læknisvottorði vegna krabbameinssjúklinga hófst um síðustu mánaðamót. Um er að ræða samvinnuverkefni Tryggingastofnunar ríkisins og Landspítala - háskólasjúkrahúss. 9.6.2006 15:22
Flestar hálendisleiðir enn lokaðar Flestar hálendisleiðir er enn lokaðar allri umferð á meðan frost er að fara úr jörð samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þó er búið að opna leiðina frá Sigöldu í Landmannalaugar, um Hólsand frá Grímsstöðum í Ásbyrgi og frá Kelduhverfi að Hljóðaklettum. 9.6.2006 15:15
Sorg á sjómannadaginn á Akureyri Sjómannadagurinn á Akureyri verður með öðru sniði í ár en verið hefur. Dagurinn verður haldinn hátíðlegur í skugga sjóslyssins sem varð þann 27. maí síðastliðinn þegar eldur kviknaði um borð í Akureyrinni með þeim afleiðingum að tveir létust. 9.6.2006 15:00
272 milljóna króna tap af rekstri Byggðastofnunar Tvö hundruð sjötíu og tveggja milljóna króna tap varð af rekstri Byggðastofnunar á síðasta ári og minnkaði um rúmar hundrað milljónir frá árinu 2004. Þetta kemur fram í nýrri árssýrslu stofnunarinnar. 9.6.2006 13:49
OR kaupir fjórar vatnsveitur af Borgarfjarðarsveit Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við Borgarfjarðarsveit um kaup á fjórum vatnsveitum. Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að um sé ræða veitur á Hvanneyri, í Bæjarsveit, á Kleppjárnsreykjum og í Reykholti. 9.6.2006 13:15
Þarf að hreinsa andrúmsloftið í kringum orkusamninga Það þarf að hreinsa andrúmsloftið í kringum fjárfestingar við Kárahnjúkavirkjun og því er mikilvægt að aflétta trúnaði af orkusölusamningi við Alcoa. Þetta segir Helgi Hjörvar, þingmaður og stjórnarmaður í Landsvirkjun, sem ætlar að leggja fram tillögu þar að lútandi á næsta stjórnarfundi Landsvirkjunar. 9.6.2006 13:00
Bóluefni líklega skráð hér á landi um áramót Nýtt bóluefni gegn leghálskrabbameini verður að öllum líkindum skráð hér á landi um næstu áramót. Bóluefnið getur haft mikla þýðingu fyrir konur framtíðarinnar. 9.6.2006 12:45
Kaup Baugs á House of Fraiser að óbreyttu í höfn Kaup Baugs á bresku verslanakeðjunni House of Fraser eru að öllu óbreyttu í höfn, eftir að stjórn verslanakeðjunnar samþykkti í morgun yfirtökutilboð Baugs upp á 50 milljarða króna. 9.6.2006 12:30
Sátt felur ekki í sér afsögn Guðna Sátt sem formaður og varaformaður Framsóknarflokksins gerðu í gærkvöld felur ekki í sér að Guðni Ágústsson segi af sér æðstu embættum í flokknum. Flokksþing verður í þriðju viku ágústmánaðar. 9.6.2006 12:15
Vilja vitnisburð um samskipti dómsstjóra og saksóknara Verjendur tveggja sakborninga í Baugsmálinu krefjast þess að settur saksóknari í málinu og dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur beri vitni um samskipti sín áður en ákæra var gefin út að nýju. Þeir telja samskiptin óeðlileg og brjóta í bága við lög. 9.6.2006 12:00
Vilja settan ríkissaksóknara í vitnastúku Fyrirtaka hófst í Baugsmálinu í morgun en þar verður meðal annars tekin afstaða til þeirrar kröfu verjenda í málinu um að Sigurður Magnús Tómasson, settur ríkissaksóknari, og Helgi I. Jónsson, dómsstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, verði leiddir í vitnastúku í tengslum við skipan dómara í málinu. 9.6.2006 11:15
Taka undir hugmyndir um Lyfjastofnun ríkisins Neytendendasamtökin taka undir hugmyndir landlæknis um að nauðsynlegt geti reynst að stofna á nýjan leik Lyfjaverslun ríkisins til að ná niður lyfjaverði hér á landi. Á heimasíðu samtakanna kemur fram að það sé óþolandi að íslensk lyfsölufyrirtæki geti ekki boðið neytendum upp á sambærilegt verð á lyfjum og í nágrannalöndunum og að íslensk stjórnvöld verði þess vegna að grípa til aðgerða. 9.6.2006 11:00
Hafnar kröfu um bætur frá ríkinu vegna árásar á Litla-Hrauni Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu Þórhalls Ölvers Gunnlaugssonar, oftast kenndum við Vatnsberann, um bætur frá íslenska ríkinu vegna árásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni fyrir þremur árum. 9.6.2006 10:45
Gripnir með stolna fartölvu Tveir grunsamlegir menn vopru gripnir glóðvolglir með fartölvu í fórum sínum í vesturborginni undir morgun og taldi lögreglan sig vera búna að finna þjófa, sem skömmmu áður höfðu brotist inn i fasteignasölu í miðborginni og stolið þaðan fartölvu. Mennirnir reyndust hinsvegar blá saklausir af því, en þó ekki saklausir eftir allt, því tölvan reyndist vera úr íbúð í vesturborginni, þar sem þeir höfðu brotist inn og stolið henni. 9.6.2006 10:00
Segir fullum sáttum náð í deilu innan Framsóknar Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við NFS að þeir Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, hafi náð fullum sáttum á fundi þeirra í gærkvöld; handtakið sem sjá má á forsíðu Morgunblaðsins hafi verið traust. 9.6.2006 09:48
Fundu stolinn bíl við fíkniefnaleit Glænýr pick up bíll fanst falinn inni í bílskúr þegar lögreglan í Keflavík var að gera húsleit í Garðinum í nótt vegna gruns um fíkniefnamisferli. Þegar lögreglumenn höfðu fundið kannabis á ýmsum vinnslustigum og nokkrar kannabisplöntur á heimili hins gurnaða, datt þeim í hug að líta inn í bílskurinn, þar sem bíllinn fanst. 9.6.2006 09:30
Tekinn fyrir handrukkun vegna fasteignaviðskipta Eins konar handrukkari var handtekinn á Akureyri í nótt eftir að fórnarlamb hans kallaði á lögreglu þegar rukkarinn var farinn af vettvangi. Það sem er óvenjulegt við þennan sjálfskipaða innheimtumann er að hann tengist ekki fíkniefnaheiminum heldur tengist málið fasteignaviðskiptum. 9.6.2006 09:00
Bjargað úr sundlaug í Reykjanesi Maður slasaðist í sundlauginni í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp í nótt og lá meðvitundarlaus á laugarbotninum og farinn að blána þegar félagar hans fundu hann. 9.6.2006 08:45
Urðu bensínlausir á sportbáti vestur af Engey Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Reykjavík var kallað út laust fyrir miðnætti til að aðstoða tvo menn á bensínlausum sportbáti vestur af Engey. Bátinn rak stjórnlaust og kölluðu bátsverjar eftir hjálp. 9.6.2006 08:15
Aðsúgur gerður að lögreglu á Akureyri Aðsúgur var gerður að lögreglumönnum i miðbæ Akureyrar í nótt, þegar þeir ætluðu að handtaka skemmdarvarg og urðu þeir að beita pipargasi, eða meis, til að verja sig. 9.6.2006 07:45
Sættir hjá Guðna og Hallóri Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðhera og varaformaður flokksins, náðu fullum sáttum á heimili Halldórs í gærkvöldi, að því er Morgunblaðið greinir frá. 9.6.2006 07:26
Efla á kennslu í fornleifafræði Sveitarfélagið Skagafjörður og Hólaskóli ákváðu í dag að leggja til stöðu við skólann fyrir fornleifafræðing til að halda áfram Hólarannsókninni og efla kennslu í fornleifafræði. 8.6.2006 23:13
Gæsluvarðhald yfir grunuðum fíkniefnainnflytjendum Hæstiréttur veitti í gær lögreglunni í Reykjavík gæsluvarðhald yfir þremur mönnum fram til 14. júlí. Mennirnir voru viðriðnir innflutning á fíkniefnum og tveir þeirra játuðu að nokkru leyti á sig brotin. Um var að ræða rúmlega 15 kíló af bæði amfetamíni og 10 kíló af hassi sem fundust í bifreið sem hafði verið flutt til landsins frá Hollandi. Héraðsdómur hafði synjað gæsluvarðhaldi yfir einum mannanna en yfir hinum tveimur var gæsluvarðhaldsúrskurðurinn staðfestur. 8.6.2006 22:45
Stígamót minna öryggismál á útihátíðum Stígamót vilja minna skipuleggjendur útihátíða sumarsins að huga að öryggismálum í tíma. Í fréttatilkynningu frá Stígamótum kemur fram að ellefu stúlkur hafai leitað samtakanna vegna nauðganna á útihátíðum en allar hjálparbeiðnirnar bárust löngu eftir að útihátíðunum lauk. 8.6.2006 22:35
J og B meirihluti í Dalvíkurbyggð Nýr meirihluti er kominn fram í Dalvíkurbyggð. J-listi óháðra og B-listi Framsóknarmanna hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar. Svanfríður Jónasdóttir verður bæjarstjóri fyrri hluta kjörtímabilsins en auglýst verður eftir bæjarstjóra fyrir seinna tímabilið í samræmi við stefnuskrá Framsóknarflokksins. Ráðið verður í starfið samkvæmt tilnefningu B-listans. 8.6.2006 22:28
LSH var ekki heimilt að víkja Tómasi Zoega úr starfi yfirlæknis Ákvörðun Landspítala-Háskólasjúkrahúss að svipta Tómas Zoega yfirlæknisstöðu sinni var ólögmæt. Þetta var úrskurður hæstaréttar í dag. Tómas var yfirlæknir á geðsviði hjá Landspítalanum frá 1991. Eftir að spítalarnir voru sameinaðir ákvað stjórn spítalans árið 2001 að yfirlæknum yrði ekki leyft að reka eigin stofur samhliða vinnu á LSH. Tómasi var gert að hætta rekstri stofu sinnar og þegar hann gerði það ekki var honum tilkynnt árið 2005 að hann myndi ekki gegna áfram yfirlæknastöðunni. 8.6.2006 22:00
Nokkuð um hraðakstur í Langadal 15 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi síðdegis í dag. Allir voru þeir stöðvaðir í Langadal. Sá sem ók hraðast mældist á 126 km hraða eða 36 kílómetra hraða yfir leyfilegum hámarkshraða. 8.6.2006 22:00
Níu verk keppa í dansleikhús samkeppninni í ár 25 tíma dansleikhús samkeppni stendur nú yfir í Borgarleikhúsinu. Samkeppnin er nú haldin í fjórða sinn. Það eru Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn sem standa að samkeppninni og SPRON er einnhelsti styrktaraðili keppninnar. 8.6.2006 21:53
Unnið verði að endurreisn þorskstofnsins Þingflokkur Vinstri - grænna hvetur stjórnvöld til að vinna markvisst að endurreisn þorskstofnsins og annarra mikilvægra nytjastofna í hafinu kringum Ísland. Flokkurinn tekur líka undir það sem fram kemur í nýrri skýrslu Hafrannsóknastofnunar þar sem segir meðal annars að nýting fiskistofnananna þurfi að lúta lögmálum sjálfbærrar þróunar. 8.6.2006 19:02
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent