Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Farþegi sem réðst á leigubílstjóra dæmdur í fimm ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag Guðbjart J. Sigurðsson í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, auk greiðslu skaðabóta upp á tæplega 700.000 krónur. Hann er dæmdur fyrir að veita leigubílstjóra stórhættulegan áverka á hálsi með eggvopni. 8.6.2006 17:30
Og Vodafone forgangsraðar gögnum um Netið Ný þjónusta sem Og Vodafone hefur tekið í gagnið gerir það að verkum að viðskiptavinir geta síður átt von á því að verða fyrir truflunum þegar þeir vafra um netið. Vefsíðum, póstþjónustu og gögnum vegna fjarvinnutenginga er forgangsraðað þannig að fólk verður minna vart við bilanir og aðrar truflanir á netinu. 8.6.2006 16:11
Hundruð nýrra botndýrategunda hafa fundist við landið Fjörutíu prósent af þeim botndýrum sem fundist hafa við Ísland í svokölluðu BIOICE-botndýraverkefni hafa ekki fundist áður hér við land. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Hafrannsóknarstofnunarinnar sem unnið hefur að verkefninu ásamt nokkrum aðilum. 8.6.2006 15:45
Ný sveitarstjórn mun velja nafn á sameinað sveitarfélag í Borgarfirði Ný sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði mun taka ákvörðun um nafn á sveitarfélagið eftir að kosning á sameiginilegum fundi fráfarandi sveitarstjórna féll á jöfnu. Frá þessu er greint á vef Skessuhorns. 8.6.2006 15:30
Læknanemar mæta til vinnu á morgun Samningar hafa náðst í kjaradeilu læknanema og yfirstjórnar Landspítalans. Á fundi fulltrúa spítalans og fulltrúa læknanema sem lauk fyrir stundu lagði spítalinn fram tilboð sem fulltrúar nema samþykktu, eftir að hafa borið tilboðið undir samnemendur sína. 8.6.2006 15:27
Ný sveitarstjórn þarf að ákveða nafn Ný sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði mun taka ákvörðun um nafn á sveitarfélagið eftir að kosning á sameiginilegum fundi fráfarandi sveitarstjórna féll á jöfnu. 8.6.2006 15:24
Litlar líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi Í vefriti fjármálaráðuneytisins í dag eru ræddar líkur á harðri lendingu efnahagslífsins. Hörð lending er skilgreind sem djúp niðursveifla sem einkennist af ört vaxandi atvinnuleysi og vanskilum heimila og fyrirtækja. Forsvarsmenn fjármálaráðuneytisins telja litlar líkur á harðri lendingu. 8.6.2006 15:00
Litlar breytingar á fylgi stjórnmálaflokkanna Mjög litlar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokka í landinu milli mánaða samkvæmt nýjum Þjóðarpúsli Gallups. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 40 prósent, Samfylkingarinnar 29 prósent og Vinstri - grænna 17 prósent. Tíundi hver maður kysi Framsóknarflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú og Frjálslyndir njóta stuðnings fjögurra prósenta landsmanna. 8.6.2006 13:57
Bruni í húsnæði í Súðarvogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að verksmiðjuhúsnæði við Súðarvog laust fyrir hádegi vegna elds sem þar hafði komið upp. Að sögn slökkviliðs voru menn að vinnu inni í húsnæðinu við slípun nærri loftræstistokki og svo virðist sem neisti hafi hlaupið í óhreinindi í loftræstistokknum með þeim afleiðingum að eldurinn kviknaði. 8.6.2006 13:15
Slasaðist minna en í fyrstu var talið Maðurinn, sem varð undir járnbita við byggingu mislægra gatnamóta á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvega í morgun, meiddist minna en óttast var. Það tók björgunarmenn um hálfa klukkustund að losa manninn, sem var svo fluttur í sjúkrabíl á Landsspítalann í Fossvogi, þar sem gert var að sárum hans og hann gekkst undir rannsóknir. 8.6.2006 13:15
Alvarlegt bílslys á mótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar Tvær konur slösuðust mjög alvarlega þegar jeppi þeirra lenti í hörðum árkestri við stóran hópferðabíl á mótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar um klukkan ellefu í morgun. Allt lögreglulið og sjúkrabílar frá Selfossi voru send á vetvang og tækjabíll frá Slökkviliðinu í Hveragerði til að klippa flakið utan af konunum. 8.6.2006 12:56
Þurfa líklega að brenna matvæli frá herstöð Líkur eru á að varnarliðinu verði gert að brenna tugi tonna af fyrsta flokks matvælum, sem nú eru í stórmörkuðum og frystigeymslum á Keflavíkurflugvelli, í stað þess að fá að gefa þau íslenskum sjálfseignarstofnunum sem vinna að líknarmálum. 8.6.2006 12:45
Þora ekki út á kvöldin eftir árásir Skemmtiferð útskriftarnema frá Verzlunarskóla Íslands til Búlgaríu hefur tekið heldur óskemmtilega stefnu því að minnsta kosti þrír þeirra hafa orðið fyrir árásum og þá hafa nokkrir verið rændir. Kveður svo rammt að þessu að hluti hópsins þorir ekki lengur út á lífið af ótta við árásir og nokkrir hafa þegar haldið heim, fyrr en áætlað var. 8.6.2006 12:30
Ekki farið út í ævintýrafjárfestingar í OR Verðandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, segir að ekki verði farið út í neinar ævintýrafjárfestingar í Orkuveitunni. Eitt fyrsta verk nýs borgarstjórnarmeirihluta verði að fara rækilega ofan í áform um kaup hennar á grunnneti Símans. 8.6.2006 12:15
Meirihlutasamstarf J og B lista í Dalvíkurbyggð Joð - listi - óháð framboð og Bé - listi - Framsóknarmanna hafa gert með sér samkomulag um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar. Svanfríður Jónasdóttir, Joð-lista verður bæjarstjóri fyrri hluta kjörtímabilsins og síðan verður auglýst eftir bæjarstjóra. Bjarnveig Ingvadóttir, Bé-lista verður forseti bæjarstjórnar. 8.6.2006 10:47
Vinnuslys á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar Vinnuslys varð nú rétt í þessu á mótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar, þar sem unnið er að gerð mislægra gatnamóta. Járnstykki sem verið var að hífa upp datt niður úr kranaklónni og á mann á jörðu niðri. Verið er að flytja manninn á sjúkrahús og er ekki enn kunnugt um meiðsli hans en að sögn vitna slapp hann ótrúlega vel miðað við aðstæður. 8.6.2006 10:02
Tengivagn valt þegar vegkantur gaf sig Tengivagn aftan í flutningabíl valt þegar vegkantur á þjóðveginum undir austanverðu Ingólfsfjalli gaf sig í gærkvöldi. Minnstu munaði að vagninn tæki flutningabílinn með sér í veltuna. Unnið er að vegaframkvæmdum á þessum slóðum og er talið að rekja megi óhappið til þess. 8.6.2006 09:30
Hafa orðið fyrir aðkasti í útskriftarferð í Búlgaríu Stúlkur úr hópi útskriftarnema úr Verslunarskóla Íslands hafa orðið fyrir aðkasti og að minnsta kosti tvisvar meiðst í strandbæ í Búlgaríu síðustu daga. 8.6.2006 09:15
Enn leitað að 24 ára karlmanni Eftirgrennslan lögreglunnar í Reykjavík eftir Hauki Frey Ágústssyni, sem er tuttugu og fjögurra ára, þrekvaxinn og einn og áttatíu á hæð, hefur engan árangur borið. 8.6.2006 08:45
Stóru olíufélögin hafa öll hækkað bensínlítrann Olíufélagið Skeljungur fylgdi í gær fordæmi Essó og hækkaði bensínlítrann um tvær krónur og fimmtíu aura. Olís varð svo hinum félögunum samstíga með hækkanir í gærkvöldi. 8.6.2006 08:00
Lögreglan lýsir eftir ungum manni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Hauki Frey Ágústssyni sem ekkert hefur spurst til frá 1. júní. Haukur Freyr er fæddur 1982; hann er 180 sentimetrar á hæð, um 100 kíló, hokinn, ljósskolhærður með ljóst skegg umhverfis munninn. 7.6.2006 23:22
Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Tveir ungir menn voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás sem framin var við skíðahótelið í Hlíðarfjalli í október í fyrra. Annar maðurinn var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi en hinn í 30 daga. 7.6.2006 23:06
Framúrskarandi Íslendingar Íslandsdeild JCI kynnti í dag í Norræna húsinu árlega útnefningu sína á sex framúrskarandi ungum Íslendingum. JCI er alþjóðleg hreyfing sem leitast eftir því að efla stjórnunarhæfileika og frumkvæði ungs fólks. Hreyfingin útnefnir árlega framúrskarandi þjóðfélagsþegna, ungt fólk sem þykir skara fram úr á sínu sviði. 7.6.2006 22:30
Ártúnsskóli fær Íslensku menntaverðlaunin í ár Ártúnsskóli fékk íslensku Menntaverðlaunin í ár sem Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í kvöld. Alls voru veitt verðlaun í fjórum flokkur en þrír grunnskólakennarar fengu einnig viðurkenningu fyrir störf sín. 7.6.2006 22:27
Nemendur skoða kynímyndir á MTV Viðamikið jafnréttisverkefni félagsfræðikennara við Menntaskólann í Kópavogi tryggði skólanum jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar í dag. 7.6.2006 22:15
Stjórnarformaður Árs og dags hefur átt í samningaviðræðum um kaup á Fróða Stjórnarformaður Árs og dags, sem meðal annars gefur út Blaðið, hefur átt í samningaviðræðum um kaup á tímaritaútgáfunni Fróða. 7.6.2006 22:12
Framsóknarkonur í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík vill að landsþingi flokksins verði flýtt og að konum flokksins í ríkisstjórn verði fjölgað. Stjórn félagsins sendi frá sér ályktun í dag þar sem skorað er á alla flokksmenn að nýta tækifærið á næsta flokksþingi til að jafna hlut kvenna í forystusveit Framsóknarflokksins. 7.6.2006 19:59
Megn stækja í frystihólfaleigu í Reykjavík Viðskiptavini frystihólfaleigu í Dugguvoginum brá heldur betur þegar hann kom að sækja matvæli í frystihólf sitt í dag. Frost hafði verið tekið af geymslunni og blóð úr matvælum rann eftir gólfinu. 7.6.2006 19:49
Tvöfalt hærra orkuverð á Íslandi en í Brasilíu Alcoa greiðir helmingi lægra verð fyrir raforkuna frá Kárahnjúkavirkjun en fyrir orku frá álveri í Brasilíu, samkvæmt grein sem birt var á heimasíðu Alcoa í Brasilíu. Verðið er sagt þrjátíu Bandaríkjadalir á megavattsstund í Brasilíu en helmingi lægra, eða fimmtán dollarar, á Íslandi. Greinin hvarf af neti Alcoa í dag í kjölfar fyrirspurnar um hana - og hið lága verð - til Landsvirkjunar. 7.6.2006 18:59
Framsókn í Reykjavík klofin Framsóknarfélög í norðurkjördæmi Reykjavíkur þakka Halldóri Ásgrímssyni fyrir að víkja til að efla frið innan flokksins og hvetja um leið Guðna Ágústsson og Siv Friðleifsdóttur til að axla ábyrgð með sama hætti og víkja. Framsóknarmenn í borginni eru klofnir í afstöðu sinni: Framsóknarfélögin í Reykjavík suður taka ekki undir þessa kröfu. 7.6.2006 18:54
Sjálfstæðismenn þrýsta á endurnýjun ríkisstjórnar Sjálfstæðismenn leggja ofurkapp á að endurnýjuð ríkisstjórn undir forsæti Geirs H. Haarde taki til starfa á allra næstu dögum. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segir að of löng óvissa geti reynst skaðleg. Björn Bjarnason er nú talinn líklegastur til að verða utanríkisráðherra, fari fjármálaráðuneytið til framsóknarmanna. 7.6.2006 18:43
Íslenska ríkið sýknað af kröfum Nígeríumanns sem sótti um hæli hér á landi Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Nígeríumanns sem sótt hafði um hæli hér á landi sem flóttamaður en umsókn hans var hafnað. 7.6.2006 18:23
Oddný Hanna er fundin Oddný Hanna Helgadóttir, sem lögreglan í Kópavogi hefur leitað að frá því síðastliðinn sunnudag, er fundin heil á húfi. Lögreglan í Kópavogi vill þakka öllum sem komu að málinu og veittu aðstoð. 7.6.2006 17:52
Tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnt Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og verndari Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnti þá sem tilnefndir eru til Grímunnar árið 2006 í Borgarleikhúsinu í dag og var leikkonan Björk Jakobsdóttir honum til halds og trausts. Þetta er í fjórða sinn sem tilnefningar til verðlaunanna fara fram en þau voru fyrst veitt sumarið 2003. 7.6.2006 17:06
Engin sérstök rök fyrir því að einkaaðilar leggi Sundabraut Engin sérstök rök mæla með því að einkaaðilar leggi og reki Sundabraut fremur en ríkið þar sem lítil óvissa er um verkið og kostnað við það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um mat á kostum og göllum einkaframkvæmdar. 7.6.2006 15:46
Vilja að Siv og Guðni víki Öll Framsóknarfélög í kjördæmi Halldórs Ásgrímssonar, Reykjavík norður, vilja að Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir víki líka úr forystusveit flokksins til þess að binda enda á áralanga togstreitu í flokknum. 7.6.2006 14:12
Aðalmeðferð í meiðyrðamáli vegna Skerjafjarðarskýrslu Aðalmeðferð var í morgun í meiðyrðamáli Friðriks Þór Guðmundssonar á hendur Sigurði Líndal lagaprófessor vegna ummæla Sigurðar í tenglsum við rannsókn flugslyssins í Skerjafirði. Sigurður Líndal var formaður nefndar sem rannsakaði rannsóknina á flugslysinu og fleiri skýrslur því tengdu og skilaði skýrslu um málið. 7.6.2006 13:15
Sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum og efnum Formaður Læknafélags Íslands, Sigurbjörn Sveinsson, segir fólk sem þurfi að leita til hjartalækna ekki hafa sömu fjárhagslegu stöðu og aðra sem þurfi að leita sér lækninga. Það fyrirkomulag sem nú er í gildi mismuni fólki eftir sjúkdómi þeirra og efnum. Til útskýringar bendir Sigurbjörn á að erfitt geti reynst öldruðum og efnalitlu fólki að leggja út fyrir þeim rannsóknum sem það þarf að ganga í gegnum. Sigurbjörn bendir einnig á að þó sjúklingar geti fengið endurgreiðslu frá Tryggingastofnun eftir að hafa fengið greiðsluheimild frá heimilislækni geti falist í því mikil fyrirhöfn fyrir aldraða eða sjúka einstaklinga. Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að hyggist þau koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi, þá verði þær fyrirætlanir gerðar opinberar og ræddar undanbragðalaust með þátttöku þjóðarinnar. Stjórn Læknafélags Íslands lýsti í ályktun sem gerð var í gær yfir áhyggjum sínum yfir að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skuli ekki geta boðið landsmönnum þjónustu samningsbundinna hjartalækna. Ástæður þeirra stöðu sem hjartalæknar og sjúklingar þeirra eru nú komir í segir Sigurbjörn þá að hjartalæknar vildu ekki starfa lengur undir þeim samningum sem þeim voru gerðir. Ekki hafi verið ágreiningur um taxta heldur afsláttarákvæði sem fól í sér að læknum voru ætluð ákveðið mörg verk á ári og ef þeir fóru fram úr þeim fjölda áttu þeir að gefa ríkinu afslátt af verulegum hluta af andvirði verka þeirra. Litlar sem engar viðræður hafi verið til að rétta hlut þeirra. 7.6.2006 12:37
Þurfa að endurskoða frístundabyggð við Úlfljótsvatn Orkuveita Reykjavíkur og fasteignafélagið Klasi þurfa að endurskoða hugmyndir sínar um frístundabyggð við Úlfljótsvatn vegna óskar borgarstjórnar Reykjavíkur þar um. Endurskoðunin hefst þó væntanlega ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin. 7.6.2006 12:30
Olíufélagið hækkar bensínverð Olíufélagið, sem rekur meðal annars ESSO-stöðvarnar, hefur hækkað verð á öllu eldsneyti. Bensín hækkar um tvær og hálfa krónu á lítrann og verður algengasta verð á bensíni tæpar 127 krónur eftir hækkunina. Skýringin er hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu og veik staða krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. 7.6.2006 12:20
Von á svari á tilboði Samtaka avinnulífsins um launahækkanir Alþýðusamband Íslands mun að öllum líkindum svara tilboði Samtaka atvinnulífsins um taxta- og launahækkanir í kringum helgina. Tilboðið miðar að því að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga um næstu áramót, en miðað við verðbólguhorfur í landinu eru forsendur kjarasamninga að óbreyttu brostnar. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir aðildarfélög sambandsins enn að skoða hugmyndir Samtaka atvinnulífsins en svör ættu að liggja fyrir í kringum helgina. 7.6.2006 12:11
Íslensku menntaverðlaunin afhent Íslensku menntaverðlaunin verða veitt annað sinni í kvöld. Athöfnin fer fram í Hjallaskóla og er það Ólafur Ragnar Grímsson sem afhendir verðlaunahöfum þau. 7.6.2006 11:38
Íþróttasamband Fatlaðra styrkt til næstu Ólympíuleika Íþróttasamband Fatlaðra og Visa Ísland hafa framlengt samstarfssamningi sínum til þriggja ára. Styrkurinn er ætlaður til undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fer í Peking 2008. Í fréttatilkynningu segir að árangur fatlaðra íþróttamanna að undanförnu árum hafi vakið verðskuldaða athygli og hafi íslenskt íþróttafólk staðið sig afar vel á Ólympíumótum sem og öðrum mótum. Árangurinn sé afrakstur markvissrar vinnu en Íþróttasambands Fatlaðra kappkosti að undirbúa keppendur sína sem best undir þau verkefni sem framundan séu hverju sinni. .Ljóst sé að á næstu Óllympíuleikum muni nýtt afreksfólk halda hróðri landsins og því sé nauðsyn á markvissum undirbúningi. Styrkveiting til Íþróttasambands Fatlaðra, fellur að mati Visa Íslands því vel að stefnu fyrirtækisins varðandi stuðning við framúrskarandi afreksfólk hvort heldur úr röðum fatlaðra eða ófatlaðra en fatlaðir íslenskir afreksmenn hafa um langt árabil verið á meðal þeirra bestu í heiminum. 7.6.2006 11:04
Orri verður framkvæmdastjóri Frumherja Orri Hlöðversson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frumherja í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Á fréttavefnum suðurland.is kemur fram að Orra hafi verið boðin staða bæjarstjóra í mörgum nýmynduðum meirihlutum á landinu, meðal annars Árborg, Mosfellsbæ og Fjarðarbyggð. 7.6.2006 10:00
Ólína formaður Vestfjarðaakademíunnar Ólína Þorvarðardóttir, fráfarandi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, var kjörin formaður Vestfjarðaakademíunnar á fyrsta aðalfundi félagsins fyrir helgi. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins besta í dag. 7.6.2006 09:30
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent