Fleiri fréttir

Þrjú verkalýðsfélög sameinast

Félagar í þremur verkalýðsfélögum á Vesturlandi hafa samþykkt sameiningu félaganna undir nafni Verkalýðsfélags Vesturlands. Félögin eru Verkalýðsfélag Borgarness, Verkalýðsfélagið Hörður í Hvalfirði og Verkalýðsfélagið Valur í Búðardal.

Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi.

Kosningavaka NFS og Stöðvar 2 allt þar til yfir lýkur

Áhersla verður lögð á skjótar, áreiðanlegar og skýrar upplýsingar á kosningavöku NFS, Stöðvar tvö og tengdra miðla sem fram fer að kvöldi kjördags. Kosningavakan hefst strax að loknum fréttum á laugardag og stendur þar til öll úrslit liggja fyrir.

Gjaldskyld bílastæði við Landspítalann

Þeir sem heimsækja Landspítalann við Hringbraut eða í Fossvogi á næstu vikum mega eiga von á stöðumælasekt ef þeir leggja í stæði nærri aðalbyggingunum án þess að greiða fyrir. Framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs segir stöðumælum komið þar upp að ósk stjórnenda spítalans sem vilja tryggja sjúklingum og aðstandendum þeirra betra aðgengi að spítalanum.

Hægt að lækka lyfjaútgjöld um 160 milljónir með einu lyfi

Tryggingastofnun ríksins gæti sparað um 160 milljónir króna í lyfjakostnað á ári ef hægt væri að kaupa samheitalyfið Sivacor, sem lækkar blóðfitu, á sama verði og í Danmörku. Hlutur sjúklinga yrði þá einnig tíu þúsund krónum lægri.

Vonskuveður víða um land

Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og hálkublettir eru á Bröttubrekku og á Fróðárheiði. Vonskuveður er á Klettshálsi og vegurinn þungfær. Á Steingrímsfjarðarheiði er hálku og skafrenningur, hálkublettir eru á Ströndum og ófært er norðan Bjarnafjarðar. Í Húnavatnssýslum er víðast snjóþekja eða krapi á vegum og þæfingsfærð er fyrir Vatnsnes. Þá er sömuleiðis þæfingsfærð á Þverárfjalli, snjóþekja er á Siglufjarðarvegi og þungfært er í Fljótum.

Gæsluvarðhald stytt

Hæstiréttur stytti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem handtekinn var fyrir að hafa í félagi við tvo aðra veist að manni, sett hann í farangursgeymslu bifreiðar og farið með hann upp í Heiðmörk.

Segir marga bresti hafa myndast í íslensku velferðarkerfi

Mikil aukning hefur verið meðal þeirra sem þurfa að leita aðstoðar Fjölskylduhjálpar Íslands á síðustu árum. Allt starf samtakanna er unnið í sjálfboðastarfi en um 60 fyrirtækjum, sem stutt hafa við Fjölskylduhjálpina, voru veitt þakkarbréf í Ráðherrabústaðnum í dag.

20 prósent dýrara en yfirvinna Íslendinganna

Það verður 20 prósent dýrara að fá danska hjúkrunarfræðinga til starfa á Landspítalanum en að fá íslenska hjúkrunarfræðinga til að manna vaktirnar í yfirvinnu. Stjórnendur spítalans segja þetta hins vegar tryggja mönnun á þeim vöktum sem Danirnir eru ráðnir á meðan á sumarfríum starfsmanna stendur.

Kveikt var í sinu við Egilshöll

Kveikt var í sinu við Egilshöll á fjórða tímanum í dag. Að sögn Slökkviliðsins þá er ekki um stóran bruna að ræða en mikill reykur var á staðnum. Sinan var kveikt á opnu svæði fyrir aftan Egilshöll og eru slökkviliðsmenn á staðnum.

Landhelgisgæslan fjölgar þyrlum sínum

Ákveðið hefur verið að fjölga þyrlum Landhelgisgæslunnar um tvær. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun en leigja á tvær þyrlur, sambærilegar þeim sem nú er í rekstri hjá Landhelgisgæslunni, til viðbótar þeim sem fyrir eru. Miðað er við að þyrlurnar verði komnar til landsins eigi síðar en í september á þessu ári. Samhliða verður unnið að því að fjölga starfsfólki hjá Landhelgisgæslunni svo unnt sé að halda úti tveimur þyrluvöktum allan sólarhringinn allt árið.

Heildarkostnaður RÚV 19 milljónir

Heildarkostnaður Ríkisútvarpsins við þátttöku og útsendingar frá undanúrslitum og úrslitum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Aþenu nam um 19 milljónum króna segir í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.

Eimskip eykur umsvif sín

Eimskip hefur gengið frá kaupum á helmings hlut í Kursia Linija, sem er eitt stærsta skipafélag í Eystarsaltsríkjunum í einkaeign. Heildartekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru tæpir 4,3 milljaðrar króna.

Greiningardeild Glitnis mælir með KB banka

Greiningardeild Glitnis hefur uppfært verðmat sitt á KB banka. Verðmatsgengi á KB banka hefur verið lækkað úr 1.014 í 979 kr. á hlut. Í ljósi verðmatsins mælum við með að fjárfestar kaupi bréf í KB banka.

Áttundi þjóðmálafundur NFS í beinni útsendingu

Áttundi þjóðmálafundur NFS í beinni útsendingu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, verður haldinn í Kópavogi í kvöld. Þar situr nú meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, en klukkan fimm í dag birtum við fyrstu niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar, sem sýnir hvort breyting er að verða á því.

Framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar stöðvuð

Samkeppni Reykjavíkurborgar um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar hefur verið stöðvuð af kærunefnd útboðsmála. Um 18 arkitektastofur kærðu útboðið til nefndarinnar. Niðurstaða kærunefndarinnar kemur á óvart segir borgarstjóri.

Éljagangur og vetrarfæri er á Vestfjörðum

Éljagangur og vetrarfæri er á Vestfjörðum, Norður- og Norðausturlandi og víða hálka. Sums staðar hefur verði þæfingsfærð í morgun og eru vegagerðarmenn að störfum á öllum þessum svæðum við að hreinsa snjó af vegum.

Stór byggingakrani sporðreistist í Öskjuhlíð

Stór byggingakrani sporðreistist á byggingarsvæði við Keiluhöllina í Öskjuhlíð í morgun. Verið er að byggja við Keiluhöllina og mun kranastjórinn hafa teygt um of á bómu kranans með þeim afleiðingum að hann reis upp á endann. Engin slys urðu á fólki. Talið er að það þurfi tvo svipaða krana til að rétta kranann við.

Samningar hafa náðst milli Félags hjúkrunarfræðinema og Landspítalans

Samningar hafa náðst milli Félags hjúkrunarfræðinema og Landspítalans að því er heimildarmenn fréttastofu herma. Samningurinn verður kynntur á blaðamannafundi síðar í dag en upphaflega ætluðu nýútskriftaðir hjúkrunarfræðingar ekki að ráða sig til starfa við spítalann vegna launanna.

TF-LÍF enn biluð

Stóra þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, er enn biluð og hefur þá verið frá í viku, að minnsta kosti. Litla þyrlan, TF SIF, er enn í Noregi, þar sem unnið er að endurbótum á henni. Þyrlur Gæslunnar hafa verið óflughæfar samtímis fimmta hvern dag frá áramótum. Þá daga hefur þurft að treysta alfarið á þyrlur varnarliðsins eða dönsku strandgæslunnar.

Yfirdráttarlán heimilanna aukist um milljarð á mánuði

Yfirdráttarlán heimilanna hafa aukist um milljarð á mánuði síðastliðna tólf mánuði. Þau bera hærri vexti en þekkjast í öllum vestrænum hagkerfum og greiða íslensk heimili nú um það bil 15 milljarða króna í yfirdráttarvexti á ári.

Efling veiðarfærarannsókna á Ísafirði

Kynningarfundur um veiðarfærarannsóknir við Ísland var haldinn föstudaginn 19. maí í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði, þar sem miðstöð rannsóknanna er á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar. Á fundinum var ráðinn nýr veiðarfærasérfræðingur að stofnuninni, Ólafur Arnar Ingólfsson.

VÍS dæmt til að greiða konu skaðabætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Vátryggingafélag Íslands í morgun til að greiða konu tæplega 1,2 miljónir króna í bætur vegna umferðarslyss sem hún lenti í nóvember í árið 1995.

Ölvuð á Miklubraut

Ölvuð 17 ára stúlka á Vespu mótorhjóli var stöðvuð á Miklubraut undir morgun og færð í blóðprufu. Ferðir Vespu á þessum tíma sólarhirngs vöktu athygli lögreglumanna , sem ákváðu að kanna málið nánar og kom þá hið sanna í ljós

Létu greipar sópa á hugleiðslunámskeiði

Þjófar létu greipar sópa um yfirhafnir fólks, sem var á hugleiðslunámskeiði í menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti í gærkvöldi og stálu mörgum bíllyklum, veskjum og greiðslukortum. Einn lyklanna gekk að svörtum Bens, sem stóð fyrir utan, og stálu þjófarnir honum. Bíllinn og þjófarnir eru ófundnir en hugleiðslufólkið lét þegar loka öllum reikningum sínum, svo kortin yrðu ekki misnotuð. Málið er í rannsókn.

Þæfingur og krapi víða um land

Talsverð ofankoma var víða um norðanvert landið og Vestfirði í nótt, þannig að hálka og jafnvel þæfingur er víða á fjallvegum, en krapi og blota-snjór í byggð. Þannig er það til dæmis á Akureyri eftir talsverða snjókomu í nótt. Hinsvegar er komið sumar í höfuðstöðvum Veagerðarinnar þannig að engin hefur verið á vakt í morgun til að miðla færðarfréttum.

Hálka víða um land

Hálka og vond færð er víða á þjóðvegum landsins. Á Holtavörðuheiði er hálka og hálkublettir eru á Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er Þorskafjarðarheiði ófær, hálka og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði en snjóþekja eða hálkublettir víðar.

Breyting Íbúðalánasjóðs gegn sáttmála

Það brýtur í bága við stjórnarsáttmála að leggja Íbúðalánasjóð niður í núverandi mynd, í það minnsta meðan bankarnir bjóða ekki 90 prósenta lán, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Vija skýr svör um skipulag á Blómsturvallalóð

Íbúar í vesturbæ Reykjavíkur hafa safnað undirskriftum þar sem þess er krafist að allir flokkar sem bjóða fram til borgarstjórnarkosninga svari spurningum um skipulag á lóð á mótum Bræðraborgarstígs og Hávallagötu. Íbúarnir óttast að þar muni rísa fjölbýlishús en verktakinn sem keypt hefur lóðina segist ætla að reisa þar raðhús.

Skoða verði möguleika á nýju afli ef orð standa ekki

Skoða verður þann möguleika vel að stofna nýtt stjórnmálaafl fyrir næstu þingkosningar ef stjórnmálaflokkarnir standa ekki við yfirlýsingar sínar um vilja til breytinga á velferðarkerfinu, segir formaður Öryrkjabandalags Íslands. Hann vonast til að raunhæfar tillögur liggi fyrir í mars eða apríl á næsta ári.

Forseti Íslands farinn til Finnlands

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hélt til Finnlands í dag en í hádeginu á morgun mun hann eiga fund með frú Tarja Halonen, forseta Finnlands. Auk þess tekur hann þátt í atburðum síðdegis sem helgaðir eru sölu og markaðssetningu á íslenskri síld í Finnlandi.

90 hjúkrunarrými á Lýsislóðina

Hjúkrunarheimili með 90 rými verður reist á Lýsislóðinni. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og Jónmundur Sigmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag.

Foreldrar og vinir mikilvægastir fyrir vellíðan skólabarna

Yfirgnæfandi meirihluta grunnskólabarna í 5. til 7. bekk í Reykjavík líður vel í skóla. Samvera barna og foreldra virðist hafa mest að segja um líðan barnanna. Þetta kom fram í dag í kynningu Menntasviðs Reykjavíkurborgar á niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal rúmlega 4000 grunnskólabarna vorið 2005.

Ólína fær full laun í þrjú ár

Ólína Þorvarðardóttir, fráfarandi skólameistari á Ísafirði, fær full laun skólameistara í þrjú ár eftir að hún lýkur störfum í sumar. Fréttavefurinn Mannlíf.is greinir frá þessu og segir að þetta sé samkvæmt samkomulagi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.

Krefst 20 milljóna í miskabætur vegna umfjöllunar DV

Málflutningur fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í máli Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings gegn Jónasi Kristjánssyni og Mikael Torfasyni, fyrrverandi ritstjórum DV. Málið var höfðað því Gunnari fannst að sér vegið í umfjöllun DV um störf sín og krefst hann miskabóta upp á 20 milljónir króna.

Hyggjast leysa húsnæðisvanda ungs fólks

Samfylkingin svaraði kalli Stúdentaráðs í dag varðandi húsnæðisvanda ungs fólks, með því að reisa skilti á gatnamótum Hringbrautar og Sæmundargötu. Á skiltinu stendur hvað Samfylkingin hyggist gera til að bæta húsnæðisvanda ungs fólks. Flokkurinn hyggst beita sér fyrir byggingu átta hundrað íbúða fyrir stúdenta í miðbænum og í nágrenni við Háskóla Íslands.

Umferðarslys á Reykjanesbraut

Umferðarslys varð á Reykjanesbrautinni á Fitjum um klukkan hálf tvö. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Keflavík er um tveggja bíla árekstur að ræða og þurfti að flytja einhverja á slysadeild. Ekki er þó vitað um meiðsl þeirra að svo stöddu.

Fundu hass og amfetamín

Ökumaður var handtekinn í Reykjavík nótt eftir að eitthvað af hassi og amfetamíni fundust í bíl hans. Efnunum var pakkað í söluumbúðir og er maðurinn grunaður um að hafa ætlað þau til sölu. Hann er í vörslu lögreglu og mun fíkniefnalögreglan yfirheyra hann í dag.

Læra að skrifa fréttir og taka þær upp

Í Lindaskóla er heill bekkur níu og tíu ára barna sem gæti mannað helstu fréttastöður á Íslandi innan fárra ára. Krakkarnir í fjórða S.H. kunna nú þegar að skrifa fréttir, taka þær upp og klippa þær til.

Játar að hafa framið vopnað rán í Apótekaranum

Liðlega fertugur karlmaður hefur játað að hafa framið vopnað rán í Apótekaranum við Smiðjuveg á fimmtudagsmorgun í síðustu viku. Hann ógnaði starfsfólki með exi og komst undan með talsvert af lyfjum.

Ölvaður, ökuréttindalaus og eftirlýstur

Maður sem stöðvaður var við reglubundið eftirlit lögreglu í Reykjavík í nótt reyndist vera bæði ölvaður og ökuréttindalaus vegna fyrri ölvunaraksturs. Það var þó ekki það versta, því bíllinn var líka ótryggður og sjálfur var hann eftirlýstur af lögreglu um allt land vegna fjölda afbrota, sem búið var að dæma hann fyrir.

Handtóku fjóra innbrotsþjófa í Breiðholti

Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra innbrotsþjófa í Breiðholti í nótt þegar þeir brutust þar inn í fyrirtæki. Einn var gripinn glóðvogur þegar hann var að skríða þar út um glugga, lögreglumenn hlupu aðra tvo uppi, en sjá fjórði, sem slapp undan þeim, hljóp í flasið á þeim skömmu síðar.

Líkfundur

Björgunarsveitarmenn fundu í gærkvöldi lík Péturs Þorvarðarsonar, 17 ára pilts, sem saknað hefur verið frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan aðfararnótt sunnudagsins fjórtánda maí.

Sjá næstu 50 fréttir