Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fækkar sveitarfélögum enn? Atkvæðagreiðsla um sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar í eitt sveitarfélag fer fram næstkomandi laugardag. Íbúar sveitarfélaganna tveggja samþykktu tillögu um sameiningu allra sveitarfélaga við Eyjafjörð í október 2005 og því verður kosið aftur í sveitarfélögunum tveimur. Samþykki íbúar þeirra sameiningu verður til nýtt sveitarfélag með 2.300 íbúa. Við það mun sveitarfélögum í landinu enn fækka og verða þau þá 85 er gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í vor. 25.1.2006 16:49
Þoka á Hellisheiði og í Þrengslum og víða hálka Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú síðdegis kemur fram að þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum og ýmist hálka eða hálkublettir á milli Kvískerja og Víkur í Mýrdal, á Sunnanverðum Vestfjörðum, á Eyrarfjalli, Steingrímsfjarðarheiði, Vatnsskarði, Öxnadalsheiði, Lágheiði og víða á Norðausturlandi. 25.1.2006 16:34
Refsingar krafist vegna einkadans í Goldfinger Fyrirtaka var í dag í máli sem sýslumaðurinn í Kópavogi rekur á hendur rekstraraðila og tveggja dansmeyja næturklúbbsins Goldfinger fyrir brot á lögreglusamþykkt. Dansmeyjarnar tvær eru sakaðar um að hafa sýnt nektardans í lokuðu rými með viðskiptamanni í næturklúbbnum að kvöldi föstudagsins 7. október 2005. Rekstraraðili klúbbsins er sakaður um að hafa staðið fyrir sýningunni og krefst ákærandi þess að öll þrjú verði dæmd til refsingar. 25.1.2006 16:15
Fljúga tvisvar í viku frá Akureyri Iceland Express flýgur tvisvar í viku milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í sumar. Flugið hefst 30. maí næstkomandi og kostar flugið hvora leið tæpar átta þúsund krónur auk flugvallarskatta. Flogið verður á þriðjudögum og fimmtudögum en farmiðasala hefst í næstu viku. 25.1.2006 15:59
Auglýsa gæslu án gjalds Foreldravefurinn Barnanet.is hefur opnað svæði þar sem dagforeldrar og aðrir þeir sem bjóða barnagæslu geta auglýst þjónustu sína án gjalds. Þetta er að sögn gert vegna þess ástands sem skapast hefur á leikskólum að undanförnuj vegna manneklu. Aðstandendur vefsins hvetja foreldra til að nýta sér þjónustuna. 25.1.2006 14:14
Fákeppni um sólarlandaferðir Með kaupum Sumarferða á Ferðaskrifstofu Íslands í gær bítast aðeins tvær ferðaskrifstofur um sólar- og orlofsferðir Íslendinga til útlanda. Rétt er að árétta að eins og staðan er á ferðamarkaðnum þá sjá flugfélögin Icelandair og Iceland Express um þrjá fjórðu hluta þeirra ferða sem Íslendingar fara. Ferðaskrifstofurnar bítast því aðeins um fjórðung markaðarins. Auk þess hefur sænska ferðaskrifstofan Appolo nýhafið sölu ferða hérlendis og er enn óþekkt stærð á markaði. 25.1.2006 12:03
Kristinn kommi og María mey Fulltrúi í miðstjórn og sveitarstjórnarmaður Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar vill að Kristinn H. Gunnarsson, samflokksmaður hans, segi af sér þingmennsku. Mælirinn sé einfaldlega fullur. Sveitarstjórnarfulltrúinn kallar Kristin komma, en líkir honum jafnframt við Maríu mey. 25.1.2006 12:02
Klámtölvuveira herjar á tölvuheiminn Klámtengd tölvuveira sem ber nafnið Kamasútra ræðst nú á tölvukerfi um allan heim og er þegar búinn að gera usla hérlendis. Að sögn sérfræðinga er langt síðan að fram hefur komið svo skæð veira sem valdið geti eins miklum skaða og Kamasútra. 25.1.2006 12:00
Athugasemdir við stækkun álvers Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur gert athugasemdir við umhverfismat vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík um helming. Deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir og bæjarstjórnin fellst ekki á að mengun aukist við stækkunina. 25.1.2006 12:00
Essó lækkar bensínverð Bensínverð lækkar um eina og hálfa krónu líterinn á afgreiðslustöðvum Essó í dag og líterinn af dísil- og gasolíu lækkar um krónu. Eftir þessa breytingu verður algengt verð í sjálfsafgreiðslu á höfuðborgarsvæðinu 111,70 krónúr. 25.1.2006 11:35
„Fráleit byggðastefna“ Það er fráleit byggðastefna að ráðast í stórfellda uppbyggingu áliðnaðar á Suðvesturlandi á undan uppbyggingu álvers á Norðurlandi. Þetta segir í nýrri ályktun bæjarstjórnar Húsavíkurbæjar. 25.1.2006 10:30
Ákærð fyrir að aka ölvuð á unnusta sinn Ríkissaksóknari hefur ákært tvítuga konu fyrir alvarlega líkamsárás fyrir að aka ölvuð og af ásetningi á unnusta sinn og slasa hann. 25.1.2006 10:18
Tveir teknir vegna ölvunaraksturs Lögreglan í Kópavogi stöðvaði tvo ölvaða ökumenn í nótt og munu þeir báðir missa ökuréttindin. Svo stöðvaði hún tvo til viðbótar, báða blá edrú, en báða réttindalausa, eftir að hafa misst ökuskírteinin vegna ölvunaraksturs.Það dregst því eitthvað á langinn að þeir fái ökuréttindi á ný, því þeir höfðu ekki fengis syndaaflausn. 25.1.2006 08:12
Viðskiptahalli við útlönd áætluð 13% í ár Gert er ráð fyrir að vöruskiptahallinn við útlönd verði 13% í ár, í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. Það er aðeins tveimur prósentustigum minni halli en á nýliðnu ári, sem var met ár á þessu sviði,en svo á hallinn að minnka hratt á þarnæsta ári, eða niður í 6%. 25.1.2006 08:05
Útgjöld aukast um sex prósent umfram ráðstöfunartekjur Útgjöld heimilanna hafa aukist um sex prósent umfram ráðstöfunartekjur þeirra frá tímabilinu 2001-2003 til tímabilsins 2002-2004 samkvæmt rannsóknum Hagstofunnar. Þær leiða enn fremur í ljós að um gæludýr eru á þriðjungi heimila í landinu. 25.1.2006 08:00
Til Íslands fyrir aðeins 987 krónur með Iceland Express Ískalt tilboð til Reykjavíkur er fyrirsögn á vefnum Chep Flights en þar er Iceland Express að bjóða flugfar til íslands frá Stansted flugvelli í London á aðeins 9 pund aðra leiðina sem samsvarar um 987 íslenskum krónum. . 25.1.2006 07:34
Flughált á Steingrímsfjarðarheiði Vegagerðin varar við flughálku á Steingrímsfjarðarheiði. Hálka og hálkublettir eru einnig á sunnanverðum Vestfjörðum og á Eyrarfjalli. Hálka er á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði og þá er einnig hálka og hálkublettir víða á Norðausturlandi. Hálkublettir eru á milli Kvískers og Víkur í Mýrdal. Þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum. 25.1.2006 07:12
Ekki riðið út frá Glaðheimum ef skipulagi verður breytt Formaður hestamannafélagsins Gusts segir ljóst að ekki verði riðið út frá félagssvæði þess í Glaðheimum í framtíðinni ef ný tillaga bæjaryfirvalda að deiliskipulagi á reitum nærri svæðinu verður samþykkt. Formaðurinn er þó vongóður um að tekið verði tillit til athugasemda félagsins. 25.1.2006 00:11
Kona ákærð fyrir að aka á kærasta sinn Ríkissaksóknari hefur ákært tvítuga konu fyrir alvarlega líkamsárás fyrir að aka ölvuð og af ásetningi á unnusta sinn og slasa hann. Atvikið varð á Flúðum í Árnssýslu í fyrrasumar, þegar unnustinn ætlaði að koma í veg fyrir að konan æki ölvuð. Þegar hún ók á hann kastaðist hann fyrst í framrúðuna, braut hana, þeyttist svo yfir bílinn og hafnaði í roti aftan við hann. 25.1.2006 08:07
Stefnt að mikilli uppbyggingu umhverfis Hlemm Íbúum á svæðum umhverfis Hlemm gæti fjölgað um allt að þrjú þúsund á næstu árum ef nýtt deiliskipulag verður að veruleika. Fyrstu reitirnir koma að öllum líkindum til uppbyggingar strax á þessu ári. 24.1.2006 23:45
Setbergsskóli stækkaður Hafnarfjarðarbær tók formlega í notkun nýbyggingu við Setbergsskóla. Fánar blöktu við hún við skólann enda verið að taka í notkun nýja viðbyggingu við hann. Í henni er tvískiptanlegur íþróttasalur ásamt búning- og baðaðstöðu, fyrirlestrarsalur, þrjár kennslustofur, hópherbergi ásamt tilheyrandi rýmum. Með byggingunni er síðasta áfanganum að einsetningu grunnskólanna í Hafnarfirði lokið. 24.1.2006 23:30
Mengun vegna stækkunar álvers má ekki aukast Mengun vegna álvers í Straumsvík má ekki aukast að mati Lúðvíks Geirssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Afstaða bæjarstjórnar er skýr hvað þetta varðar. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan telur óhjákvæmilegt að einhver mengunaraukning verði við stækkunina. 24.1.2006 22:47
Íslensk stjórnvöld höfðu ekki vitund um mannrán og fangaflug Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki haft neina vitneskju um fangaflug á vegum Bandaríkjastjórnar en segist ekki geta fullyrt neitt um hvort slíkt hafi átt sér stað án þeirra vitneskju. Hann segir að íslensk stjórnvöld muni ekki leita frekari svara Bandaríkjamanna og telur ekki ástæðu til þess að þau sendi sjálfstæða fyrirspurn um málið til bandarískra stjórnvalda. 24.1.2006 21:59
Lægsta boð í tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar 727 milljónir króna. Tilboð voru opnuð í dag í tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar og reyndist lægsta boð 727 milljónir króna. Til stendur að sporna gegn hægri umferð á þessum kafla með fjölgun akreina milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika úr tveimur í fjórar. 24.1.2006 21:44
Enn fleiri uppsagnir á leikskólum í Kópavogi Tugir ófaglærðra starfsmanna á leikskólum Kópavogs hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Átta starfsmenn leikskólans Dals skiluðu inn uppsagnarbréfum í dag. Myndmenntarkennari í skólanum fær um það bil sextíu þúsund krónum hærri laun í Reykjavík. 24.1.2006 21:36
Tíunda hvert barn í leikskólum Reykjavíkur af erlendum uppruna Tíunda hvert barn í leikskólum Reykjavíkur er af erlendum uppruna. Þessi börn eiga rætur að rekja til áttatíu og tveggja þjóða í öllum heimsálfum. Reykjavíkurborg kynnti fjölmenningarstefnu leikskóla Reykjavíkur í dag, en vonir eru bundnar við að þetta átak dragi úr brottfalli þessara barna úr skóla síðar á lífsleiðinni. 24.1.2006 21:28
Nýr líkbrennsluofn ekki keyptur fyrr en eftir tíu ár Kirkjugarðar Reykjavíkur telja ekki ástæðu til að kaupa nýjan líkbrennsluofn, fyrr en eftir tíu ár, þrátt fyrir að sá gamli sé að verða sextugur. Á síðustu árum hefur tekist að draga verulega úr brunalykt í nágrenni líkbrennslunnar með endurbótum á ofninum og með því að byrja líkbrennslu fyrr á daginn þegar flestir eru í fastasvefni. 24.1.2006 21:20
Líknardráp leyfð á Íslandi? Á Íslandi er dauðvona sjúklingum hjálpað til að lina þjáningar og stundum er tekin ákvörðun um að hætta læknismeðferð og sjúklingum leyft að deyja. Aðstoðarlandlæknir segir að það sé þó langur vegur frá líknardrápi. Hollensk kona sem býr hér á landi segir það einungis tímaspursmál hvenær líknardráp verði leyft á Íslandi. Faðir hennar fékk aðstoð við að binda enda á líf sitt á hollensku sjúkrahúsi. 24.1.2006 20:37
Mengunarkvótinn uppurinn Stækkun álversins í Straumsvík klárar það sem eftir er af mengunarkvóta Íslands, samkvæmt Kyoto-samningnum. Til að byggja fleiri álver þarf Ísland því annaðhvort að biðja um frekari undanþágur við endurskoðun samningsins eða kaupa mengunarkvóta frá öðrum ríkjum. 24.1.2006 20:07
Álver í Straumsvík tekið fram yfir álver í Helguvík Stjórn Landsvirkjunar tók stækkun álversins í Straumsvík fram yfir nýtt álver í Helguvík þar sem Alcan bauðst til að greiða hærra verð fyrir raforkuna. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin án samráðs við sig. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir þetta hins vegar hafa verið pólitíska ákvörðun. 24.1.2006 19:55
Fyrirhugaðar framkvæmdir umfangsmeiri en þær yfirstandandi Í hálffimm fréttum KB banka kemur fram að allt bendi til þess að álversframkvæmdir muni áfram knýja hagvöxt á næstu árum og gengi krónunnar haldist því hærri en ella. Þá sé efnahagslegt umfang fyrirhugaðra álversframkvæmda eftir árið 2008 að öllum líkindum meiri en af yfirstandandi byggingu Fjarðaráls og stækkunar Norðuráls. 24.1.2006 19:14
Ekki vegið að starfsheiðri umferðareftirlitsmanna Landssamband lögreglumanna sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem segir að fullyrðing Vegagerðarinnar þess eðlis að landssambandið hafi vegið að starfsheiðri og trúverðugleika umferðareftirlitsmanna sé með öllu órökstudd. Landssambandið neitar því að málflutningur þess, um framkomið frumvarp til breytinga á umferðarlögum, byggist á misskilningi en því hélt talsmaður Vegagerðarinnar fram í gær. 24.1.2006 17:17
Sterk staða krónunnar hefur komið hátækniiðnaðinum illa Í ávarpi sínu í dag á UT-deginum sagði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, að sterk staða krónunnar hafi að undanförnu komið útflutnings- og samkeppnisgreinum illa, þar á meðal hátækniiðnaðinum. Vísbendingar séu þó um að gengi krónunnar muni gefa eftir á þessu ári. 24.1.2006 16:15
Flughálka á Kjósarskarði, í Barðastrandarsýslu og á Mjóafjarðarheiði Vegagerðin varar við hálku á nokkrum stöðum á landinu. Flughálka er á Kjósarskarði, í Barðastrandarsýslu frá Brjánslæk að Bjarkarlundi og á Mjóafjarðarheiði. Að öðru leyti er þokkaleg vetrarfærð um allt land segir í tilkynningu Vegagerðarinnar. 24.1.2006 15:53
Þriðjungur starfsmanna á Dal hefur sagt upp Um þriðjungur starfsmanna leikskólans Dals í Kópavogi, eða tíu manns, hefur sagt upp störfum vegna óánægju með þá bið sem orðið hafi á því að bæta kjör þeirra. Sóley Gyða Jörundsdóttir, leikskólastjóri á Dal, segir fólk orðið langþreytt á biðinni en eins kunnugt er er ekki að vænta tillögu frá Launanefnd sveitarfélaga fyrr en 10. febrúar. 24.1.2006 15:02
Skeljungur hækkar einnig Skeljungur hækkaði nú síðdegis verð á bensíni um eina krónu og tuttugu aura lítrann. Verð á dísilolíu hækkaði um eina krónu. Olíufélagið Essó hækkaði bensínverð um eina krónu og 50 aura á miðnætti og Olís hækkaði um sömu upphæð í morgun. 24.1.2006 14:55
Hundruð manna um allan heim læra íslensku á Netinu Hundruð manna um allan heim leggja stund á íslenskunám á Netinu. Námið kallast Icelandic Online og er þróað við Háskóla Íslands. Mikill áhugi er fyrir íslenskunáminu og eru dæmi þess að nemar hafi klárað námi og síðan komið til landsins til að læra málið enn betur. 24.1.2006 13:59
Átta manns segja upp á Leikskólanum Dal í Kópavogi Það stefnir í enn meiri vandræði hjá Leikskólanum Dal í Kópavogi og virðist sem starfsmönnum lítist ekki á þá biðstöðu sem kom út á launaráðstefnu sem haldin var 20 janúar síðastliðin. 24.1.2006 13:31
Má rífa öll húsin á svæðinu Fyrirhugað er að byggja allt að 240 íbúðir á Rauðarárholti í Reykjavík. Samkvæmt deiliskipulagstillögu má rífa öll húsin á svæðinu sem standa þar nú. 24.1.2006 12:04
FL Group selur ferðaskrifstofu Íslands FL Group hefur selt ferðaskrifstofu Íslands sem er eigandi Úrvals Útsýnar og Plúsferða. Kaupandi ferðaskrifstofunnar er fyrirtækið Exit ehf. sem einnig rekur Ferðaskrifstofuna Sumarferðir. Áætlaður söluhagnaður FL Group er um einn milljarður króna, en ársvelta Ferðaskrifstofu Íslands fyrir árið 2005 nam tveimur komma fjórum milljörðum króna. 24.1.2006 11:56
Dagsbrún hf. Móðurfélag 365 Fjölmiðla hefur keypt allt hlutafé í Securitas Dagsbrún hf. Móðurfélag 365 Fjölmiðla hefur keypt allt hlutafé í Securitas hf. af Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Dagsbrún hf greiðir fyrir fyrirtækið með hlutabréfum í sjáfum sér að upphæð 421,7 milljónir króna. 24.1.2006 10:35
Vistvæn og rafræn innkaup í Hafnarfjarðarbæ Hafnarfjarðarbær og upplýsingatæknifyrirtækið ANZA hf. Undirrituðu samning í gær um tilraunaverkefni um rafræn innkaup hjá bænum. Verkefnið fellur vel að vistvænni stefnu Hafnarfjarðarbæjar sem meðal annars nær til innkaupa. 24.1.2006 09:12
Hestar og vélhjól fara ekki saman. Hestamenn á Hvolsvelli eru ekki hressir þessa dagana þar sem akstur torfæruhjóla hefur aukist verulega á reiðvegum þeirra. Hestamenn hafa kvartað mikið útaf þessu við lögregluna á staðnum, en það er stórhættulegt að blanda þessum reiðskjótum saman. 24.1.2006 07:27
Pælingar Halldórs Laxnes um kynhneigð á þriðja áratuginum Pælingar Halldórs Laxnes um kynhneigð á þriðja áratuginum er aðal umræðuefni á fyrirlestri sem haldin verður í Háskóla Íslands næstkomandi föstudag á vegum Samtakana 78. 24.1.2006 07:09
Óvíst með loðnukvótann Ekkert liggur enn fyrir um það hvort, eða hvenær kvóti verður gefinn út fyrir loðnuvertíðina í vetur þar sem Hafrannsóknastofnun hefur ekki enn náð nægilegum stofnmælingum til að geta metið veiðiþol stofnsins. Skip hafa nú orðið vör við loðnu úr af Norðurlandi og austur fyrir Langanes, og nokkur skip, sem hafa takmarkaðar veiðiheimildir gegn því að stunda leit, hafa fengið slatta hér og þar, en loðnan hefur verið full af átu og ekki hentað til fyrstingar til manneldis. 24.1.2006 07:07