Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Metár í útgáfu atvinnuleyfa Aldrei áður í sögunni hafa verið gefin út jafnmörg atvinnuleyfi hér á landi og það sem af er þessu ári. Morgunblaðið greinir frá því í dag að útgefin atvinnuleyfi séu nú orðinn rúmlega 4800 á þessu ári, en til samanburðar voru gefin út rúmlega 3700 atvinnuleyfi allt árið í fyrra. 14.11.2005 08:10
Aðalmeðferð í Baugsmálinu ákveðin í dag Taka á fyrir þau átta ákæruatriði sem eftir standa í Baugsmálinu í dag og verður aðalmeðferð í málinu væntanlega ákveðin í dag. Fyrirtakan nú er sú fyrsta frá því hæstiréttur ákvað að vísa 32 af 40 ákæruliðum á hendur forsvarsmönnum Baugs og endurskoðendum frá dómi í haust. 14.11.2005 08:07
Forystumenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins funda eftir hádegi Ákveðið hefur verið að svonefnd forsendunefnd Samtaka atvinnulífisins og ASÍ komi enn saman eftir hádegi í dag eftir fundahöld um helgina. 14.11.2005 08:00
CIA reyndi að leyna dauða fanga í Abu Ghraib Bandaríska leyniþjónustan CIA reyndi að leyna dauða írasks fanga í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Segir fréttatímaritið Time að meðal skjala, sem það hafi fengið um málið, séu myndir sem sýni limlest lík mannsins sem síðan var settur í frysti. 14.11.2005 07:54
Kviknaði í bíl Eldur kviknaði í jeppa þegar honum var ekið upp vestanvert Víkurskarðið í nótt, en ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur. Þegar bíllinn missti afl, nam ökumaðurinn staðar og ætlaði að kíkja á vélina, en þá gaus eldurinn á móti honum. Ekki varð við neitt ráðið og var bíllinn alelda þegar lögregla og slökkvilið komu frá Akureyri. Kranabíll fjarlægði flakið en ekki er vitað um eldsupptök. 14.11.2005 07:53
Ölóðir menn í Keflavík Lögreglan í Keflavík þurfti að taka tvo ölóða menn úr umferð á krá í bænum í nótt , eftir að þeir tóku að berja hvorn annan. Annar þurfti læknishjálp eftir ósköpin. Lögreglan á Akureyri þurfti líka að taka tvo ölvaða menn eftir að þeir fóru að berja veitingastað að utan, en þeim hafði verið hent þaðan út. Lögreglumönnum víða um land finnst nú komið eftir óvenju erilssama helgi vegna ofneyslu áfengis og fíkniefna. 14.11.2005 07:50
Fæddist í Ártúnsbrekkunni Lítilli telpu lá svo á í heiminn í nótt að hún yfirgaf móðurkvið í skyndingu, þegar verið var að flytja móðurina í sjúkrabíl á fæðingardeildina við Landsspítalann. Sjúkarbíllinn var þá neðst í Ártúnsbrekkunni og tóku sjúkraflutnignamenn og faðirinn á móti stúlkunni, auk þess sem lögregla kom til aðstoðar. Að sögn lögreglu heilsast móður og dóttur vel. 14.11.2005 07:45
Kárahnjúkavirkjun sögð vera meðal sex verstu virkjanna heims Kárahnjúkavirkjun er meðal sex verstu virkjanna heims, með tillliti til náttúruspjalla og félagslegrar röskunar, að mati umhverfissamtakanna World Wildlife fund. 14.11.2005 07:42
Um sextíu börn bíða eftir leikskólaplássi Enn vantar um 68 starfsmenn á leikskóla höfuðborgarsvæðisins og um 60 börn bíða eftir leikskólaplássi. Formaður Félags leikskólakennara segir vandann liggja í launakjörum sem augljóslega þurfi að bæta. Vandinn er mestur í Breiðholtinu. 14.11.2005 07:00
Aldraðir geti búið út af fyrir sig "Við höfum lagt allt of mikla áherslu á það að aldraðir búi á stofnunum en of litla áherslu á það að aldraðir geti búið í sínu eigin húsnæði og fengið þjónustu þar," sagði Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, á miðstjórnarfundi í Kópavogi á föstudag. 14.11.2005 06:45
Byrgið vill kaupa Ljósafossskóla "Við höfum lagt inn tilboð í Ljósafossskóla en ég held að það sé búið að yfirbjóða okkur," segir Guðmundur Jónsson forstöðumaður Byrgisins. Allri starfsemi var hætt í Ljósafossskóla í Grímsnesi í fyrravor og hún flutt í Minni-Borg. Samanlagt er húsnæðið 1.200 fermetrar og er þar með talið íþróttahús. 14.11.2005 06:45
Reykt kengúra og strútur í boði Veitingastaðurinn Narfeyrarstofa í Stykkishólmi ætlar að bjóða upp á kengúru, dádýr og lynghænu á fjögurra rétta matseðli í stað hefðbundins jólahlaðborðs á aðventunni. 14.11.2005 06:45
Hafa áhyggjur af litlu fylgi Framsóknarmenn hafa áhyggjur af stöðu flokksins samkvæmt skoðanakönnunum. Þetta kom fram á eftir ræðu formanns á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins á föstudag. Flokkurinn mælist með aðeins þriggja prósenta fylgi í borginni en þyrfti um 10 prósent til að koma manni inn. 14.11.2005 06:30
Minnka má eldsneytisflutninga Hægt væri að minnka eldsneytisflutninga um höfuðborgarsvæðið um 130 þúsund tonn á ári með því að nýta olíubirgðarstöðina í Helguvík undir flugvélaeldsneyti. Minnstu munaði að rýma þyrfti hluta Hafnarfjarðar nýverið þegar tengivagn með flugvélaeldsneyti losnaði frá olíuflutningabíl. 13.11.2005 22:53
Íbúðalánasjóður hækki vextina líka Guði sé lof fyrir vaxtahækkunina, segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra í pistli á heimasíðu sinni og vísar þar til þess að Landsbanki Íslands hækkaði vexti á íbúðalánum síðasta föstudag. 13.11.2005 15:00
Freista þess að ná samkomulagi Fulltrúar í forsendunefnd Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands komu saman til fundar klukkan tvo í dag til að fara yfir stöðuna í kjaramálum. 13.11.2005 14:15
Mótsagnakenndar klisjur Yfirlýsingar formanns Samfylkingar um að íhaldsmenn og frjálshyggjumenn reyni að skreyta sig fjöðrum jafnaðarmennsku eru mótsagnakenndar og klisjukenndar segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. 13.11.2005 14:00
Heldur upp á 105 ára afmæli sitt Elsti karlmaður Íslands heldur upp afmæli sitt í dag. Hann er 105 ára. Það er Guðmundur Daðason, sem hefur á stundum verið nefndur elsti Framsóknarmaður í heimi. Guðmundur var áður bóndi á Ósi á Skógarströnd en býr nú á dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ. 13.11.2005 13:30
Baugur kaupir skartgripaverslanir Baugur Group er að ganga frá kaupum á breskri verslunarkeðju sem rekur á fjórða tug skartgripaverslana undir nafninu Mappin & Webb og Watches of Switzerland. 13.11.2005 13:00
Varað við ferðalögum Vegagerðin varar fólk við því að vera á ferð á Möðrudalsöræfum. Þar er hvasst og flughált þannig að lítið má út af bera ef ekki á illa að fara. Flughált er víða um land og því ástæða til að hafa aðgát þegar fólk er á ferð. 13.11.2005 12:34
Litlu munaði á efstu mönnum Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi hrósaði sigri í prófkjöri Framsóknarmanna í Kópavogi sem fram fór í gær. Sigur hans var þó naumur því aðeins munaði sjötíu atkvæðum á honum og Samúel Erni Erlingssyni sem lenti í öðru sæti. 13.11.2005 12:30
Flug að hefjast á ný Ekkert hefur var flogið innanlands í morgun vegna veðurs. Veðurstofan gaf út viðvörun um ísingu yfir landinu og því seinkaði fjórum ferðum í morgun. Nú er hins vegar að rofa til og flugið að hefjast. 13.11.2005 12:05
Flughált á vegum úti Flughált er á Mývatnsheiði, Mývatnsöræfum, Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og á Mýrdalssandi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka eða hálkublettir eru á Suðurlandi, Vesturlandi og á Norðurlandi. Hálka, snjóþekja og éljagangur víða á Vestfjörðum, Norðaustur og Austurlandi, og er mokstur þar hafinn. Öxi er ófær. 13.11.2005 11:08
Tveir stútar lentu í árekstri Erilsamt var hjá lögreglunni í Reykjavík. Lögregluþjónar þurftu að hafa afskipti af fimm minniháttar líkamsárásum og sex voru teknir vegna ölvunaraksturs. Tveir þeirra höfðu endað ferð sína á því að lenda í árekstri. Þar fór þó betur en svo að nokkur meiddist. 13.11.2005 10:30
Tvær bílveltur fyrir norðan Lögreglan á Akureyri var kölluð af stað vegna tveggja bílveltna síðustu nótt. Bíll valt á Öxnadalsheiði um þrjúleytið í nótt og annar í Fnjóskadal um sexleytið í morgun. Enginn slasaðist í bílveltunum tveimur en bílarnir skemmdust eitthvað. 13.11.2005 09:45
Þrír gistu fangaklefa Þrír gistu fangaklefa lögreglunnar í Reykjanesbæ, tveir vegna slagsmála en einn vegna ölvunar. Lögreglan var tvívegis kölluð að sama skemmtistaðnum vegna áfloga og handtók einn mann en honum var sleppt skömmu síðar. 13.11.2005 09:30
Flug liggur niðri Ekkert hefur verið flogið innanlands vegna veðurs það sem af er morgni. Veðurstofan gaf út viðvörun um ísingu yfir landinu og því frestast það flug sem hafði verið áætlað. Næst á að athuga með flug klukkan ellefu samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands. 13.11.2005 09:12
Ófært á Öxi og víða hálka Öxi er ófær og víða er hált á vegum þannig að vegfarendum er hollt að fara varlega. Hálka eða hálkublettir eru á Suðurlandi, Vesturlandi og á Norðurlandi. Hálka, snjóþekja og éljagangur er víða á Vestfjörðum, Norðaustur- og Austurlandi, og er mokstur þar hafinn. 13.11.2005 09:01
Réðist á lögreglumenn með skóflu Tveir fengu að gista fangaklefa lögreglunnar á Ísafirði eftir dansleik á Bolungarvík, báðir vegna slagsmála. Annar var ekki reiðubúinn að hlýða þegar lögregla ætlaði að stöðva hann heldur réðist hann að lögreglumönnum vopnaður skóflu. 13.11.2005 08:54
Ómar leiðir listann Ómar Stefánsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Hann bar sigur úr býtum í prófkjöri Framsóknarflokksins í gær og hlaut 666 atkvæði í fyrsta sæti listans. 2.556 greiddu atkvæði. Ómar er eini sitjandi bæjarfulltrúi flokksins sem gaf kost á sér í prófkjörinu. 13.11.2005 08:51
Ómar Stefánsson leiðir í prófkjöri Framsóknarmanna Ómar Stefánsson leiðir í prófkjöri Framsóknarmanna í Kópavogi þegar búið er að telja 720 atkvæði af tvöþúsund. Samúel Örn Erlingsson kemur næstur Ómari í baráttunni um efsta sætið og Una María Óskarsdóttir kemur næst honum. 12.11.2005 21:25
Gelda á útigangandi fressketti Kattaeigendur í Reykjavík þurfa að láta örmerkja ketti sína og gelda fress eldri en sex mánaða eigi þeir að fá að fara út. Þetta hefur verið samþykkt í borgarráði. 12.11.2005 19:56
Blóðbankinn í of smáu húsnæði Starfsmenn Blóðbankans þurfa að sýna mikla útsjónarsemi við störf sín og jafnvel að skáskjóta sér, því húsnæði bankans er fyrir löngu orðið allt of lítið. Tillögur að viðbyggingu liggja fyrir, en ákvörðunar stjórnvalda er beðið. 12.11.2005 19:55
Segir frjálshyggjuna á undanhaldi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir frjálshyggjuna á hröðu undanhaldi út um allan heim og líka á Íslandi. Á Flokksstjórnarfundi í dag deildi hún hart á Sjálfstæðismenn og sagði þá ekki hafa verið brautryðjendur í íslenskum stjónmálum í áratugi. 12.11.2005 19:52
Mikil uppbygging í Reykjanesbæ Sjötíu til eitthundrað ný störf verða til árlega, næstu tíu árin, á alþjóðaflugvellinum í Keflavík. Fjöldi íbúða er í byggingu í Reykjanesbæ, og bæjarbúum hefur fjölgað um þrjú prósent það sem af er árinu. 12.11.2005 19:49
Eftirlitsnefndin virkar ekki sem skyldi Eftirlitsnefnd fasteignasala er bara pappírstígrisdýr, sem slær á puttana á lögbrjótum og segir skamm, þrátt fyrir að brotin séu mjög alvarleg, segir formaður Húseigendafélagsins. Félag fasteignasala hefur leitað til dómsmálaráðuneytisins vegna þess hve nefndin vinnur hægt og tekur lítt á málum. 12.11.2005 19:41
Dregur úr virkni undir Mýrdalsjökli Þrjár eldstöðvar hafa að undanförnu sýnt merki sem gætu verið undanfari umbrota; Hekla, Bárðarbunga og neðansjávareldstöð austan Grímseyjar. Hins vegar hefur Katla róast mjög og verulega hefur dregið úr skjálftavirkni og þenslu undir Mýrdalsjökli. 12.11.2005 19:37
Annar fundur boðaður á morgun Fundi forsendunefndar samtaka launamanna og atvinnurekenda lauk um fimmleytið í dag. Að sögn Ara Edwald framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins er ekki hægt að greina að svo stöddu frá því sem fram fór á fundinum en boðað hefur verið til annars fundar á morgun klukkan tvö. 12.11.2005 18:03
Skilgreina pólitísku miðjuna Framsóknarmenn vilja fara yfir og skilgreina hvað felst í hugtakinu pólitísk miðja, ekki síst í ljósi þess að bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur sækja nú inn á miðjuna. Ályktun þessa efnis var samþykkt undir lok miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins sem lauk um klukkan fjögur. 12.11.2005 16:41
Góð þátttaka í prófkjöri Framsóknar Um tólfhundruð manns höfðu kosið í prófkjöri Framsóknarmanna nú klukkan fjögur en kjörstaðir eru opnir til átta í kvöld. Haukur Ingibergsson formaður kjörstjórnar sagði kjörsókn hafa verið jafna og þétta í allan dag. Um opið prófkjör er að ræða og geta allir þeir sem eru á kjörskrá í Kópavogi tekið þátt. Kjörfundur fer fram í Smáraskóla í Kópavogi. 12.11.2005 16:12
Telja sig hafa sett heimsmet "Við erum bjartsýn á að þetta hafi tekist," sagði Kristján B. Jónasson, þróunarstjóri hjá Eddu útgáfu, sem stýrði tilraun til að setja heimsmet í Smáralind rétt í þessu. Þá var reynt að setja heimsmet í fjölda fólks sem leikur sér með jójó í einu. 12.11.2005 15:30
Eyddu tundurdufli sem kom í veiðarfæri Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu í gærkvöldi tundurdufli sem kom í veiðarfæri togarans Þórunnar Sveinsdóttur frá Vestmannaeyjum í gær. 12.11.2005 15:26
Bíllinn ekki vanbúinn Það er alrangt að sementsflutningabíll fyrirtækisins sem valt við Egilsstaði fyrr í vikunni hafi á nokkurn hátt verið vanbúinn til vetraraksturs, segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri BM Vallár, og gerir athugasemd við frétt Stöðvar 2 af veltunni. 12.11.2005 15:20
Forystan endurkjörin Ingibjörg R. Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna á þingi samtakanna sem lauk í dag. Aðrir stjórnarmenn voru einnig endurkjörnir utan þess að Ágúst H. Óskarsson, formaður Verslunarmannafélags Húsavíkur gaf ekki kost á sér til endurkjörs. 12.11.2005 14:45
Ógelt fress mega ekki ganga laus Kettir voru fyrirferðamiklir á síðasta fundi borgarráðs. Á fundi borgarráðs voru bæði lögð fram drög að verklagsreglum um handsömun katta og drög að nýrri gjaldskrá um kattahald. Það er skemmst frá því að segja að hvort tveggja var samþykkt samhljóða. 12.11.2005 13:45