Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gagnrýna samtryggingu stjórnmála Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, harma hvernig staðið er að skipun sendiherra fyrir Íslands hönd og segja ljóst að samtrygging íslenskra stjórnmálamanna liggi í sumum tilvikum þvert á flokkslínur. 21.6.2005 00:01
Vilja nágrannavörslu í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og frjálslyndra og óháðra lögðu til við borgarstjórn Reykjavíkur á fundi fyrir stundu að að óskað yrði eftir samstarfi við lögregluna í Reykjavík. Vilja þeir að það verði gert til að efla innbrotsvarnir í þágu almennings og koma á fót skipulagðri nágrannavörslu í öllum hverfum Reykjavíkur, en árlega verða þúsundir Reykvíkinga fyrir fjárhagslegu og tilfinningalegu tjóni af völdum innbrota í hús og bifreiðar. 21.6.2005 00:01
Alþjóðadagur MND-félaga í dag Lækning hefur ekki enn fundist við MND-sjúkdómnum sem þrír til fimm einstaklingar greinast með á Íslandi á hverju ári. Formaður MND-félagsins vill að rannsóknir á sjúkdómnum verði hafnar af fullum krafti hér á landi. Í dag er alþjóðadagur MND-félaga um allan heim. 21.6.2005 00:01
Kosið um sameiningu Ölfuss og Flóa Hafin er vinna að undirbúningi um sameiningu Ölfuss og Flóa en kosið verður um sameiningu í byrjun október. Farið verður í kosningarnar í framhaldi af samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytisins um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Kosið verður um sameiningu Árborgar, Hraungerðishrepps, Hveragerði, Gaulverjabæjarhrepps, Villingaholtshrepps og Ölfuss. 21.6.2005 00:01
SMÁÍS fær verðlaun fyrir baráttu Alheimssamtök Kvikmyndaframleiðenda veitti Samtökum myndrétthafa á Íslandi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í baráttunni gegn ólöglegri dreifingu á síðasta ári. Verðlaunin voru veitt framkvæmdastjóra SMÁÍS við formlega athöfn á í Flórens á Ítalíu í síðustu viku. Verðlaun sem þessi eru veitt þeim löndum sem sýna framúrskarandi árangur gegn ólöglegri dreifingu myndefnis og er þetta í fyrsta sinn sem eitt af norrænu ríkjunum hlýtur þessi verðlaun. 21.6.2005 00:01
Íslenskt félag flutti inn Pólverja Í ljós hefur komið að íslenskt fyrirtæki hefur flutt tólf Pólverja hingað til lands á fölskum forsendum, einungis í þeim tilgangi að leigja þá út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Laun og kjör mannanna voru langt undir lámarkskjörum sem kjarasamningar og íslensk lög kveða á um. Í samningi sem fyrirtækið gerði við Pólverjana sagði að þeir hefðu 480 krónur á tíma í jafnaðarkaup og að þeir þyrftu að vinna 250 vinnustundir á mánuði. 21.6.2005 00:01
10 milljarða tjón í Reykjavík Samkvæmt útreikningum Sjóvár var heildarkostnaður vegna slysa í umferðinni í Reykjavík ekki undir 10 milljörðum króna á síðasta ári. Gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar eru orðin tjónahæstu gatnamótin og taka við þeim vafasama titli af gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem hafa verið tjónahæst í mörg ár. 21.6.2005 00:01
Falsaði undirskrift á skuldabréfi Fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Þrír mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn hefur játað að hafa greitt starfsmönnum bílaumboðs með skuldabréfi með falsaðri undirskrift. Skuldabréfið hljóðaði upp á rúma 1,3 milljónir króna. 21.6.2005 00:01
Sigrún eini umsækjandinn Sigrún Stefánsdóttir sótti ein um laust starf dagskrárstjóra Rásar 2 og landshlutastöðva Ríkisútvarpsins, en umsóknarfrestur rann út á sunnudag. 21.6.2005 00:01
Ekki viðrað til róðurs Kjartan Hauksson ræðari er nú úti fyrir miðju Norðurlandi. Hann tók land á Höfðaströnd á Tröllaskaga á laugardag og hefur þurft að halda þar kyrru fyrir vegna veðurs. 21.6.2005 00:01
Athuga staðarval vegna álvers Fulltrúar Fjárfestingarstofu, Alcoa, sveitarfélaga Skagafjarðar, Húsavíkurbæjar og Akureyrarkaupstaðar ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga undirrituðu í gær samkomulag um áætlun um staðarvalsathuganir vegna hugsanlegs álvers á Norðurlandi. 21.6.2005 00:01
Alfreð forseti borgarstjórnar Alfreð Þorsteinsson var kjörinn forseti borgarstjórnar á fundi borgarstjórnar í dag. Hann mun gegna starfinu til loka kjörtímabilsins. Alfreð tekur við af Árna Þór Sigurðssyni, sem gengt hefur forsetastarfi frá 2002, en í leyfi hans hefur Stefán Jón Hafstein gegnt forsetastörfum undanfarna mánuði. Þeir Árni Þór og Stefán Jón voru kjörnir varaforsetar. 21.6.2005 00:01
RKÍ og Sjóvá semja um vátryggingar Rauði kross Íslands og Sjóvá-Almennar hafa skrifað undir samstarfssamning um vátryggingaviðskipti. Samningurinn felur meðal annars í sér að Sjóvá tryggir sjúkrabíla Rauða krossins og sendifulltrúa við hjálparstörf erlendis á vegum félagsins. Jafnframt mun Sjóvá styrkja starfsemi Rauða krossins á næstu árum. 21.6.2005 00:01
Úthlutað úr minningarsjóði 61 milljón króna hefur verið úthlutað úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur til 178 verkefna. Féð fór til menningarmála, forvarna, heilbrigðismála, íþrótta, menntamála og námsstyrkja. Sjóðnum bárust samtals umsóknir. Björgólfur Guðmundsson er formaður sjóðsstjórnar. Markmið sjóðsins er að auka almannaheill og bæta mannlíf á Íslandi. 21.6.2005 00:01
Þjónustusamningur í endurskoðun Þjónustusamningur heilbrigðisráðuneytis og Reykjalundar er nú til endurskoðunar, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. 21.6.2005 00:01
Heilsugæslan neydd á brott Hafinn er undirbúningur að flutningi Heilsugæslunnar úr gömlu Heilsuverndarstöðinnni við Barónsstíg. Þá þarf að flytja miðstöð heimahjúkrunar við Grensásveg. Það er leiguhúsnæði sem nú hefur verið selt og verður tekið til annarra nota 21.6.2005 00:01
Segir félag ekki hafa greitt gjöld Efling - stéttarfélag segir sautján atvinnuleyfi frá fyrirtækinu Geymi ehf. hafa komið til umsagnar félagsins en þeim hafi verið hafnað. Lögreglan og ASÍ vinna nú að málum Geymis ehf. vegna tólf Pólverja sem höfðu laun langt undir lágmarkssamningum og bjuggu við óviðunandi aðstæður. Ástæður þess voru þær að Geymir hefur ekki greitt lögbundin gjöld af starfsmönnum sínum, svo sem í lífeyrissjóð og önnur gjöld. 21.6.2005 00:01
Forsætisráðuneytið mest Tuttugu prósent fjárheimilda forsætisráðuneytisins koma af aukafjárlögum að meðaltali og er það hlutfallslega mest allra ráðuneyta. Iðnaðarráðuneyti og Hagstofa Íslands fara mest fram úr fjárheimildum að meðaltali. </font /></b /> 21.6.2005 00:01
Samið um álversrannsóknir nyrðra Samkomulag hefur tekist milli Alcoa, þriggja sveitarfélaga á Norðurlandi og iðnaðarráðuneytis um undirbúningsrannsóknir vegna álvers norðan heiða. Stefnt er að því að eftir átta mánuði verði unnt að ákveða staðsetningu verksmiðjunnar. 21.6.2005 00:01
Segja málflutning ASÍ rangan Dularfullt, íslenskt fyrirtæki fékk erlenda verkamenn hingað til lands á fölskum forsendum og braut á þeim lög og kjarasamninga, að mati ASÍ. Þeir nutu engra réttinda og voru látnir búa við aðstæður sem uppfylla engan veginn íslenskar kröfur. Rangur og villandi málflutningur, segja talsmenn fyrirtækisins. 21.6.2005 00:01
Segjast vera á slóð kortasvikara Sérfræðingar í tölvuglæpum telja sig komna á slóð tölvusvikaranna sem náðu upplýsingum af um fjörutíu milljónum krítarkorta nýverið, þar á meðal af um 140 íslenskum kortum að því talið er. 21.6.2005 00:01
Niðurstaða í Suður-Kóreu vonbrigði "Þessi niðurstaða er auðvitað vonbrigði. Við vorum að vonast til þess að niðurstaðan myndi miða eitthvað í áttina," sagði Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra eftir að ljóst var að tillaga Japana á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins um að hafnar yrðu hvalveiðar í atvinnuskyni, var felld. 21.6.2005 00:01
Fylgst náið með barnaníðingum Dómsmálaráðherrar iðnveldanna skera á alþjóðlegt tengslanet barnaníðinga með því að setja á laggirnar sameiginlegan gagnagrunn með upplýsingum um þá og framleiðendur barnakláms. Lögreglan á Íslandi fagnar þessu framtaki og telur að það muni auðvelda rannsókn slíkra mála hér á landi. 21.6.2005 00:01
Furðulegar ásakanir og ósannindi "Það er alveg sjálfsagt og eðlilegt að taka undir ýmislegt sem kemur fram í máli ASÍ en mér finnst málatilbúnaður sambandsins í heild sinni mjög furðulegur og því til skammar," segir Eiríkur Elís Þorláksson, lögmaður fyrirtækisins Geymis ehf. 21.6.2005 00:01
Tjalda í lónstæði Hálslóns Hópur mótmælenda er nú á leið upp á Kárahnjúka og stefnir að því að slá upp tjöldum í lónstæði fyrirhugaðs Hálslóns í kvöld. Þar var í dag slydda og eins stigs hiti. Landsvirkjunarmenn segja tjaldbúðirnar sér að meinalausu svo fremi sem fólkið fari ekki inn á vinnusvæðið. 21.6.2005 00:01
MIsjafnar skoðanir um Pólverjana Tólf pólskir verkamenn hafa leitað á náðir Alþýðusambands Íslands þar sem þeir telja að kjör og aðbúnaður í húsnæði sem þeim hefur verið úthlutað til að búa í hér á landi séu með öllu óviðunandi. Verkamennirnir komu hingað til lands í apríl síðastliðnum til starfa í byggingageiranum. 21.6.2005 00:01
Gæsluvarðhald yfir Breta staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir breskri konu sem grunuð er um ávísanamisferli hér á landi í maí síðastliðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna um miðjan júní í gæsluvarðhald sem renna á út á morgun, 23. júní. 21.6.2005 00:01
Segir Samkeppnisstofnun vanhæfa Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri Iceland Express, segir Samkeppnisstofnun vanhæfa til að taka á deilum fyrirtækis hans og Flugleiða því Gylfi Magnússon, formaður Samkeppniseftirlitsins, hafi unnið launuð störf fyrir Flugleiðir tengd deilum við Iceland Express. Um næstu mánaðamót tekur Samkeppniseftirlitið við af Samkeppnisstofnun. 21.6.2005 00:01
Jón Gerald mætti í yfirheyrslu Jón Gerald Sullenberger mætti til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra klukkan níu í gærmorgun í tengslum við rannsókn á hugsanlegum fjárdrætti núverandi og fyrrverandi forstjóra Baugs og öðrum mögulegum brotum þeirra gegn fyrirtækinu. Rannsókn lögreglu hefur staðið í tæp þrjú ár, frá ágústlokum 2002. 21.6.2005 00:01
Ók dópaður um borgina Tvítugur maður hefur verið dæmdur til greiðslu 200.000 króna fyrir margvísleg fíkniefnabrot og fyrir að aka bifreið víða um Reykjavíkurborg um miðjan október í fyrra undir áhrifum slævandi lyfs og fíkniefna. Hann var sviptur ökurétti í þrjá mánuði og þarf að greiða málskostnað upp á rúmar 310.000 krónur. 21.6.2005 00:01
Maður dæmdur fyrir skjalafals Fertugur maður hlaut í gær sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að falsa áritun þrítugrar konu á skuldabréf sem hann notaði til að kaupa bíl á bílasölu í Reykjavík. Bréfið var gefið út í júní 2001 og konan óafvitandi komin í ábyrgð fyrir rúmar 1,3 milljónir króna. 21.6.2005 00:01
Upplýsingar um rán í gagnabanka Upplýsingar um rán framin á Íslandi síðustu 5 ár verða settar í sérstakan gagnabanka hjá Ríkislögreglustjóra sem mun nýtast við rannsókn ránsmála. 21.6.2005 00:01
Ný gatnamót verst Áætlaður heildarkostnaður vegna slysa í umferðinni í Reykjavík á síðasta ári er ekki undir tíu milljörðum króna, að því er fram kemur í tilkynningu Sjóvár-Almennra trygginga í gær. Fyrirtækið tók saman helstu tölur úr umferðinni í fyrra og framreiknaði miðað við markaðshlutdeild. 21.6.2005 00:01
Fái að kvikmynda við Krýsuvík Flest bendir til að Clint Eastwood og Steven Spielberg verði leyft að kvikmynda í Arnarfelli við Krýsuvík þrátt fyrir að umhverfisnefnd Hafnarfjarðar leggist gegn því. Byggingar- og skipulagsráð Hafnarfjarðar leggst ekki gegn kvikmyndagerðinni og það ræður. 21.6.2005 00:01
Helmingur starfsmanna verði konur Álverið í Reyðarfirði er hannað með það í huga að það henti konum sem vinnustaður. Alcoa-Fjarðaál hefur sett sér það markmið að helmingur starfsmanna verði konur, en einnig að frá upphafi verði starfsmenn á öllum aldri. 21.6.2005 00:01
Bruni í rafmagnstöflu í Fnjóskadal Slökkvilið Akureyrar og Þingeyjarsveitar voru kölluð út síðdegis í gær vegna bruna í skúr utan um rafstöð við bæinn Hróarsstaði í Fnjóskadal. Tjón af völdum brunans varð ekki mikið og gekk að sögn lögreglu á Húsavík greiðlega að slökkva eldinn, sem átti upptök sín í rafmagnstöflu. 21.6.2005 00:01
Ungur maður ók á kind sem drapst 25 ára gamall maður ók um klukkan níu í gærmorgun fólksbíl sínum á kind þannig að hún drapst og bíllinn skemmdist. Áreksturinn varð í Holtsmúlasundi, miðja vegu milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. 21.6.2005 00:01
Níu sækja um Níu sóttu um starf forstjóra Neytendastofu, átta karlar og ein kona. Þau eru Egill Heiðar Gíslason, Ingibjörg Björgvinsdóttir, Ingólfur Oddgeir Georgsson, Jóhannes Þorsteinsson, Jón Egill Unndórsson, Jón Magnússon, Leo J.W. Ingason, Páll Haraldsson og Tryggvi Axelsson. 21.6.2005 00:01
Alfreð forseti Alfreð Þorsteinsson var kjörinn forseti borgarstjórnar í gær. Tekur hann við forsetastarfinu af Árna Þór Sigurðssyni sem gegnt hefur starfinu frá árinu 2002 en í leyfi hans að undanförnu hefur Stefán Jón Hafstein gegnt starfi forseta borgarstjórnar. 21.6.2005 00:01
Lenging Akureyrarflugvallar Til að koma á hagkvæmu millilandaflugi til og frá Akureyri þarf að lengja flugvöllinn. Kostnaðurinn er talinn vera 300 til 350 milljónir króna og er KEA tilbúið að leggja fram umtalsverða fjármuni svo hægt verði að ráðast í framkvæmdir hið fyrsta. 21.6.2005 00:01
Vegið að starfsheiðri "Guðjón Arnar Kristjánsson hefur ekki áttað sig á því að árið 2003 breyttum við aðferðafræði við útreikning á hrygningarstofninum og hann er því að bera saman epli og appelsínur," segir Björn Ævarr Steinarsson, forstöðumaður veiðiráðgjafasviðs Hafrannsóknastofnunarinnar. 21.6.2005 00:01
Tólf sækja um Tólf sækja um stöðu talsmanns neytenda, sem viðskiptaráðherra skipar í. Meðal umsækjenda eru Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sem og Drífa Sigfúsdóttir, fyrrverandi formaður samtakanna. 21.6.2005 00:01
Framsal auðveldað Dómsmálaráðherrar Norðurlandanna náðu samkomulagi um ný samningsdrög um framsal sakamanna. Gert er ráð fyrir að málsmeðferð um framsal sakamanna milli Norðurlandanna verði stytt og einfölduð 21.6.2005 00:01
Hafnfirðingar tvístígandi Hugmyndir kvikmyndafyrirtækis um upptökur í Krísuvík voru kynntar á fundi skipulags- og bygginganefndar Hafnarfjarðar í gær. Um er að ræða stríðsmynd, en einn af forsvarsmönnum fyrirtækisins er leikarinn og leikstjórinn frægi, Clint Eastwood. 21.6.2005 00:01
Töfðust í borginni Alþjóðlegar mótmælabúðir við Kárahnjúka risu ekki í gær eins og fyrirhugað var. Birgitta Jónsdóttir, einn talsmanna mótmælenda, segir að hópurinn hafi tafist í Reykjavík. 21.6.2005 00:01