Fleiri fréttir Fallið hátt og skellurinn harður "Tímasetning skattalækkana ríkisstjórnarinnar er kolröng. Menn vissu að það væri von á ofhitnun í hagkerfinu og það að lækka skatta kallar á niðurskurð í ríkisútgjöldum. Þetta hafa Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Seðlabankinn og OECD sagt," segir Ólafur Darri Andrason hagfræðingur Alþýðusambandsins. 14.6.2005 00:01 Rétt staðið að ráðningum Umboðsmaður Alþingis hefur nú úrskurðað í máli tveggja umsækjanda sem töldu sig hlunnfarna við ráðningar í stöður hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Samkvæmt úrskurðinum telur umboðsmaður ólíklegt að þeir annmarkar, sem þó hafi verið á undirbúningi málsins, ættu að leiða til ógildingar á ráðningu þeirra sem störfin hlutu. 14.6.2005 00:01 Davíð á ráðsfundi EES Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat í dag ráðsfund Evrópska efnahagssvæðisins í Lúxemborg. Ráðið er samráðsvettvangur EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins. 14.6.2005 00:01 Árás umhverfissinna olli uppnámi Uppnám varð á ráðstefnu um álmál í dag þegar róttækir umhverfissinnar skvettu grænleitum vökva yfir fundargesti. Um var að ræða herskáa náttúruverndarsinna, fólk sem nýlega skipulagði einskonar námskeið í borgaralegri óhlýðni. 14.6.2005 00:01 Veruleg kostnaðarlækkun Vegna fréttatilkynningar sem Póst- og fjarskiptastofnun sendi frá sér í dag vill Síminn m.a. koma á framfæri þeim athugasemdum að fyrirtækið kynnti nýverið nýjar sparnaðarleiðir og tilboð sem munu hafa í för með sér fjölgun valkosta fyrir viðskiptavini og geta jafnframt þýtt verulega kostnaðarlækkun fyrir þá. 14.6.2005 00:01 Barnakláms leitað hjá Íslendingi Tölvubúnaður, disklingar og myndbönd eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík vegna gruns um að þar sé að finna barnaklám. Eigandinn, 32 ára karlmaður, var handtekinn í gær og yfirheyrður. Europol stýrði aðgerðum gegn barnaklámhring í 13 löndum. 14.6.2005 00:01 Þrír ungir menn fengu skilorð Þrír ungir menn á aldrinum 23 til 25 ára fengu skilorðsbundna dóma í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir margvísleg þjófnar-, umferðarlaga-, og fíkniefnalagabrot. 14.6.2005 00:01 Gunnar Valur hættir í haust Guðmundur G. Gunnarsson, forseti bæjarstjónar Álftaness, verður ráðinn í stöðu bæjarstjóra bæjarfélagsins frá og með 1. september næstkomandi. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi bæjarstjórnar síðdegis í gær. 14.6.2005 00:01 Ríkið ekki bótaskylt vegna eymsla Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær íslenska ríkið af kröfum fyrrum starfsmanns varnarliðsins um bætur vegna vinnuslyss sem hann lenti í árið 1993. Maðurinn klemmdist milli lyftara og kassa þegar verið var að tæma gám í einni af birgðastöðvum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. 14.6.2005 00:01 Slettu grænu sulli á gesti Yfirheyrslur yfir fólki sem sletti grænlitaðri súrmjólk yfir fjölda manns á álráðstefnu á Hótel Nordica í hádeginu í gær stóðu fram á kvöld. Fólkið, breskur karlmaður og Íslendingar, karl og kona, var handtekið á staðnum og gisti fangageymslur í nótt. 14.6.2005 00:01 Síminn hættur sekúndumælingum Póst- og fjarskiptastofnun vakti í gær athygli á breytingum sem Síminn hefur gert á tímamælingu símtala. Annan júní hætti fyrirtækið að innheimta gjöld samkvæmt sekúndumælingu í einstaklingsáskriftum farsíma. 14.6.2005 00:01 Ekki Halldórs að leiðrétta? Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra taldi það ekki sitt hlutverk að leiðrétta rangar upplýsingar sem einkavæðingarnefnd fékk. Þessar röngu upplýsingar gerðu það að verkum að hvergi kom fram í gögnum nefndarinnar að möguleiki væri á hagsmunaárekstri ríkis og ráðherra. 14.6.2005 00:01 Glæpapar framselt til Íslands Par af erlendum uppruna sem komst af landi brott á stolnum bílaleigubíl með tvær milljónir af sviknu fé í vasanum, eftir að hafa framselt falsaða tékka í banka og tekið peningana út í erlendum gjaldmiðli, var handtekið í Danmörku á laugardag. Parið verður framselt til Íslands á næstunni. 14.6.2005 00:01 Samtvinnun auglýsinga og viðtala Ritstjóri <em>Frjálsrar verslunar</em> segir það hafa tíðkast lengi hjá blaðinu að vera með aukablöð inni í blaðinu þar sem seldar eru opnur með auglýsingu á annarri síðunni og viðtali á hinni. Athafnakona í Reykjavík fékk símtal frá Frjálsri verslun fyrir skemmstu þar sem henni var boðið í heilsíðuviðtal ef hún keypti auglýsingu fyrir fyrirtæki sitt. 14.6.2005 00:01 Vitað um athæfi mannsins um hríð Íslendingur um þrítugt var handtekinn í dag í tengslum við alþjóðlega herferð gegn barnaklámi. Vitað hefur verið um athæfi hans um hríð en beðið var með handtökuna til að reyna að ná fleirum. 14.6.2005 00:01 Riðið yfir Hvítá Sex borgfirskir hestamenn tóku sig til og riðu þvert yfir Hvítá, frá Hvanneyri að Einarsnesi á sunnudaginn var. Ekki er vitað til þess að þessi leið hafi verið riðin fyrr, enda bæði álar og sandbleytur að fara yfir á þessari þriggja kílómetra leið. 14.6.2005 00:01 Ríkisskoðandi aftur á fund Fjárlaganefnd fjallar á ný um vanhæfismál forsætisráðherra á morgun. Framsóknarmenn eru áhyggjufullir en telja stjórnarandstöðuna nota sér málið til hins ýtrasta til að koma höggi á Framsóknarflokkinn og formann hans. 14.6.2005 00:01 Málinu ekki lokið Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkinarinnar, segir að mörg veigamikil atriði önnur en meint vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar varðandi söluna á ríkisbönkunum séu enn óupplýst. Málinu sé síður en svo lokið. 14.6.2005 00:01 Hagnaðurinn á Hesteyri Ekki er óvarlegt að ætla að hagnaður Hesteyrar af fjárfestingu sinni í Keri hf. árið 2002 sé um fjögurra milljarða króna virði í dag. Hesteyri er eigandi fjórðungshlutar í VÍS sem er stór hluthafi í KB banka. Skinney-Þinganes á nú þriðjungshlut í Hesteyri. 14.6.2005 00:01 Ríkisendurskoðun meirihlutans Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir nauðsynlegt fyrir ríkisendurskoðun að hafa trúnað minnihlutans. Ríkisendurskoðun sem sé bara endurskoðun fyrir meirihlutann sé ekki trúverðug. 14.6.2005 00:01 Umræðan ekki skaðað Framsókn Valgerður Sverrisdóttir segir að umræðan um einkavæðingu ríkisbankanna og ásakanir um vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar hafi hvorki skaðað flokkinn né ríkisstjórnina. Halldór hafi jafnsterka stöðu sem áður innan flokksins. Þau ræddu aldrei eignatengslin sín á milli. </font /></b /> 14.6.2005 00:01 Eiturefnakafarar í viðbragðsstöðu Búist er við Lagarfossi til Grundartanga á tíunda tímanum en tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru nú í viðbragðsstöðu þar vegna ammóníaksleka sem varð um borð. 13.6.2005 00:01 Búist við úrskurði í dag Búist er við að ríkisendurskoðandi skili í dag úrskurði um hvort Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var vanhæfur þegar ríkisbankarnir voru seldir. Þetta er vegna tengsla fyrirtækis í eigu ráðherrans og fjölskyldu hans við S-hópinn svokallaða en þau tengsl voru ekki gefin upp í byrjun ferlisins. 13.6.2005 00:01 Vara við álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði vara eindregið við þeirri stefnu stjórnvalda að einhæfa atvinnulíf þjóðarinnar með enn einu álveri, hugsanlega við Eyjafjörð. 13.6.2005 00:01 Gámurinn kominn á land Búið er að hífa ammóníaksgáminn úr Lagarfossi og á land í Grundartangahöfn. Tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru á staðnum til að tryggja öryggið. Breyting varð á vindáttinni sem gerði að verkum að slökkviliðið þurfti aðeins að breyta vinnulagi sínu við aðgerðina. 13.6.2005 00:01 Ný vefsíða tekin í notkun 13.6.2005 00:01 Skýlir sér á bak við embættismenn Stjórnarandstaðan segir forsætisráðherra skýla sér á bak við embættismenn og víkja sér undan pólitískri ábyrgð. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að málið sé að líkindum fallið um sjálft sig komist Ríkisendurskoðun að því að ráðherrann hafi verið hæfur til að koma að einkavæðingu bankanna. 13.6.2005 00:01 Aukning á iðrasýkingum í sumar Kampýlóbakter- og nóróveirusýkingar eiga eftir að aukast hér á landi eftir því sem líður á sumarið, að mati Haraldar Briem smitsjúkdómalæknis. Nóróveirusýkingar verða meðal annars þegar rotþrær fyllast og mengun kemst í neysluvatn. Þá eru miklar sýkingar um borð í skemmtiferðaskipum tengdar veirunni. 13.6.2005 00:01 Hvatt til samstarfs R-listans Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem hvatt er til viðræðna um endurnýjað samstarf í borgarstjórn undir merkjum Reykjavíkurlistans. 13.6.2005 00:01 Flugleiðir gefa 530 flugmiða Flugleiðir hafa gefið fimm hundruð og þrjátíu farþegum sem urðu fyrir óskemmtilegum töfum á flugi til og frá San Fransisco farmiða að eigin vali á flugleiðum félagsins. Tvö hundruð og sextíu manns héldu áleiðis til San Fransisco um þrjú leytið í nótt en tvö hundruð og sjötíu manns biðu þess ytra að komast í flug til Íslands. 13.6.2005 00:01 Athugasemdir vegna sameiningar Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári. 13.6.2005 00:01 Vörubifreið ók á tíu ára telpu Vörubifreið ók á tíu ára telpu á hjóli á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á þriðja tímanum í dag. Stúlkan var að hjóla yfir á grænu en bifreiðin að taka hægri beygju þegar slysið varð. Telpan var flutt á slysadeild með slæman skurð á lærinu en talið var að hún gæti verið mjaðmagrindarbrotin. 13.6.2005 00:01 Fluttu inn 130 g og 1000 töflur Héraðsdómur Reykjaness dæmdi sex ungmenni, fimm karla og eina konu, til fangavistar í dag fyrir aðild að innflutningi á eitt þúsund amfetamíntöflum og rúmlega 130 grömmum af kókaíni. Efnin voru keypt í Rotterdam og flutt til landsins með Íslandspósti, falin inni í vaxkertum. 13.6.2005 00:01 Blaðamannafundur klukkan 17 Blaðamannafundur hefur verið boðaður í ráðherrabústaðnum klukkan fimm þar sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ætlar að skýra frá niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sem rannsakaði hvort hann hefði verið hæfur eða vanhæfur til að taka þátt í sölu ríkisbankanna. 13.6.2005 00:01 Rignir líklega um helgina Þó að margir fagni regnleysinu þá eru þurrkar farnir að valda vandræðum í landbúnaði um allt land. Ólafur Dýrmundsson, ráðgjafi hjá Bændasamtökunum, segir að ef ekki fari fljótlega að rigna þá gæti það valdið skaða í úthaga og ekki síður á túnum. 13.6.2005 00:01 Halldór ekki vanhæfur Ríkisendurskoðun segir hugleiðingarnar um óhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í sölu ríkisbankanna í raun óþarfar því hann hafi verið í veikindaleyfi þegar gengið var frá sölunni. Hagsmunir hans við söluna hafi reyndar verið óverulegir miðað við umfang viðskiptanna og því hefði hann ekki talist vanhæfur, hefði hann séð um söluna. 13.6.2005 00:01 Þrettán akreinar á kafla Framkvæmdir við breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru nýhafnar og hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins væntanlega ekki farið varhluta af þeim í gær. 13.6.2005 00:01 Grunur um nauðgun í heimahúsi Grunur er uppi um nauðgun í heimahúsi í Keflavík um helgina. Lögreglu var tilkynnt um málið um hádegi í gær en fólkið sem á í hlut er um tvítugt. Víkurfréttir greina frá þessu og segja að búist hafi verið við að kæra yrði lögð fram í dag. 13.6.2005 00:01 Flaggað í hálfa við álráðstefnu Þjóðfánar blöktu í hálfa stöng utan við ráðstefnu um áliðnað á Nordica-hótelinu síðdegis. Ekki var það þó skipuleggjendum ráðstefnunnar sem fannst þetta viðeigandi heldur náttúruvinum sem stóðu fyrir mótmælum á fundarstað. 13.6.2005 00:01 Ný samtök gegn álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirðinum voru stofnuð á fjölmennum fundi á Akureyri þann 28. maí síðastliðinn. <font face="Helv"></font> 13.6.2005 00:01 Vill fyrirbyggja málverkafalsanir Viktor Smári Sæmundsson, forvörður, fékk á síðasta föstudag 400.000 króna styrk frá Rannsóknarsjóði Listasafns Háskóla Íslands til að vinna sjálfstætt að söfnun og rannsóknum á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar. 13.6.2005 00:01 Landsvirkjun býður tvö verk út Landsvirkjun óskaði í gær eftir tilboðum í tvær stórframkvæmdir vegna Kárahnúkavirkjunar. Annað verkefnið er gröftur og gangagerð vegna botnrásar við Jökulsá í Fljótsdal vegna væntanlegrar Ufsarstíflu. Þau göng eiga að vera 57 metra löng og sjö metra breið.<font face="Helv"></font> 13.6.2005 00:01 Útgjöld vaxa hraðar en tekjur Þjóðarútgjöld Íslendinga, sem eru samanlögð einkaneysla hér á landi og fjárfestingar, hafa vaxið um 11,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra þótt landsframleiðsla hafi ekki vaxið nema um 2,9 prósent á sama tíma. Útgjöldin hafa því aukist meira en tekjurnar. 13.6.2005 00:01 Kominn yfir Húnaflóa Hringróðurinn kringum Ísland sóttist vel yfir helgina. Kjartan lagði af stað frá Reykjafirði á föstudaginn og fór þá í einni lotu fram að Kaldbaksvík, alls 35 sjómílur. 13.6.2005 00:01 Verst settir fá enga hjálp Skilyrði geta komið í veg fyrir að ávinningur af skuldaniðurfellingu margra af fátækustu ríkja heims komist til þeirra sem mest þurfa á að halda. "Skilyrði um stjórnhætti, baráttu gegn spillingu og þróun í lýðræðisátt útiloka mörg fátækustu landanna," sagði Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar í Hádegisútvarpi Talstöðvarinnar í gær. 13.6.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Fallið hátt og skellurinn harður "Tímasetning skattalækkana ríkisstjórnarinnar er kolröng. Menn vissu að það væri von á ofhitnun í hagkerfinu og það að lækka skatta kallar á niðurskurð í ríkisútgjöldum. Þetta hafa Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Seðlabankinn og OECD sagt," segir Ólafur Darri Andrason hagfræðingur Alþýðusambandsins. 14.6.2005 00:01
Rétt staðið að ráðningum Umboðsmaður Alþingis hefur nú úrskurðað í máli tveggja umsækjanda sem töldu sig hlunnfarna við ráðningar í stöður hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Samkvæmt úrskurðinum telur umboðsmaður ólíklegt að þeir annmarkar, sem þó hafi verið á undirbúningi málsins, ættu að leiða til ógildingar á ráðningu þeirra sem störfin hlutu. 14.6.2005 00:01
Davíð á ráðsfundi EES Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat í dag ráðsfund Evrópska efnahagssvæðisins í Lúxemborg. Ráðið er samráðsvettvangur EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins. 14.6.2005 00:01
Árás umhverfissinna olli uppnámi Uppnám varð á ráðstefnu um álmál í dag þegar róttækir umhverfissinnar skvettu grænleitum vökva yfir fundargesti. Um var að ræða herskáa náttúruverndarsinna, fólk sem nýlega skipulagði einskonar námskeið í borgaralegri óhlýðni. 14.6.2005 00:01
Veruleg kostnaðarlækkun Vegna fréttatilkynningar sem Póst- og fjarskiptastofnun sendi frá sér í dag vill Síminn m.a. koma á framfæri þeim athugasemdum að fyrirtækið kynnti nýverið nýjar sparnaðarleiðir og tilboð sem munu hafa í för með sér fjölgun valkosta fyrir viðskiptavini og geta jafnframt þýtt verulega kostnaðarlækkun fyrir þá. 14.6.2005 00:01
Barnakláms leitað hjá Íslendingi Tölvubúnaður, disklingar og myndbönd eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík vegna gruns um að þar sé að finna barnaklám. Eigandinn, 32 ára karlmaður, var handtekinn í gær og yfirheyrður. Europol stýrði aðgerðum gegn barnaklámhring í 13 löndum. 14.6.2005 00:01
Þrír ungir menn fengu skilorð Þrír ungir menn á aldrinum 23 til 25 ára fengu skilorðsbundna dóma í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir margvísleg þjófnar-, umferðarlaga-, og fíkniefnalagabrot. 14.6.2005 00:01
Gunnar Valur hættir í haust Guðmundur G. Gunnarsson, forseti bæjarstjónar Álftaness, verður ráðinn í stöðu bæjarstjóra bæjarfélagsins frá og með 1. september næstkomandi. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi bæjarstjórnar síðdegis í gær. 14.6.2005 00:01
Ríkið ekki bótaskylt vegna eymsla Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær íslenska ríkið af kröfum fyrrum starfsmanns varnarliðsins um bætur vegna vinnuslyss sem hann lenti í árið 1993. Maðurinn klemmdist milli lyftara og kassa þegar verið var að tæma gám í einni af birgðastöðvum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. 14.6.2005 00:01
Slettu grænu sulli á gesti Yfirheyrslur yfir fólki sem sletti grænlitaðri súrmjólk yfir fjölda manns á álráðstefnu á Hótel Nordica í hádeginu í gær stóðu fram á kvöld. Fólkið, breskur karlmaður og Íslendingar, karl og kona, var handtekið á staðnum og gisti fangageymslur í nótt. 14.6.2005 00:01
Síminn hættur sekúndumælingum Póst- og fjarskiptastofnun vakti í gær athygli á breytingum sem Síminn hefur gert á tímamælingu símtala. Annan júní hætti fyrirtækið að innheimta gjöld samkvæmt sekúndumælingu í einstaklingsáskriftum farsíma. 14.6.2005 00:01
Ekki Halldórs að leiðrétta? Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra taldi það ekki sitt hlutverk að leiðrétta rangar upplýsingar sem einkavæðingarnefnd fékk. Þessar röngu upplýsingar gerðu það að verkum að hvergi kom fram í gögnum nefndarinnar að möguleiki væri á hagsmunaárekstri ríkis og ráðherra. 14.6.2005 00:01
Glæpapar framselt til Íslands Par af erlendum uppruna sem komst af landi brott á stolnum bílaleigubíl með tvær milljónir af sviknu fé í vasanum, eftir að hafa framselt falsaða tékka í banka og tekið peningana út í erlendum gjaldmiðli, var handtekið í Danmörku á laugardag. Parið verður framselt til Íslands á næstunni. 14.6.2005 00:01
Samtvinnun auglýsinga og viðtala Ritstjóri <em>Frjálsrar verslunar</em> segir það hafa tíðkast lengi hjá blaðinu að vera með aukablöð inni í blaðinu þar sem seldar eru opnur með auglýsingu á annarri síðunni og viðtali á hinni. Athafnakona í Reykjavík fékk símtal frá Frjálsri verslun fyrir skemmstu þar sem henni var boðið í heilsíðuviðtal ef hún keypti auglýsingu fyrir fyrirtæki sitt. 14.6.2005 00:01
Vitað um athæfi mannsins um hríð Íslendingur um þrítugt var handtekinn í dag í tengslum við alþjóðlega herferð gegn barnaklámi. Vitað hefur verið um athæfi hans um hríð en beðið var með handtökuna til að reyna að ná fleirum. 14.6.2005 00:01
Riðið yfir Hvítá Sex borgfirskir hestamenn tóku sig til og riðu þvert yfir Hvítá, frá Hvanneyri að Einarsnesi á sunnudaginn var. Ekki er vitað til þess að þessi leið hafi verið riðin fyrr, enda bæði álar og sandbleytur að fara yfir á þessari þriggja kílómetra leið. 14.6.2005 00:01
Ríkisskoðandi aftur á fund Fjárlaganefnd fjallar á ný um vanhæfismál forsætisráðherra á morgun. Framsóknarmenn eru áhyggjufullir en telja stjórnarandstöðuna nota sér málið til hins ýtrasta til að koma höggi á Framsóknarflokkinn og formann hans. 14.6.2005 00:01
Málinu ekki lokið Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkinarinnar, segir að mörg veigamikil atriði önnur en meint vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar varðandi söluna á ríkisbönkunum séu enn óupplýst. Málinu sé síður en svo lokið. 14.6.2005 00:01
Hagnaðurinn á Hesteyri Ekki er óvarlegt að ætla að hagnaður Hesteyrar af fjárfestingu sinni í Keri hf. árið 2002 sé um fjögurra milljarða króna virði í dag. Hesteyri er eigandi fjórðungshlutar í VÍS sem er stór hluthafi í KB banka. Skinney-Þinganes á nú þriðjungshlut í Hesteyri. 14.6.2005 00:01
Ríkisendurskoðun meirihlutans Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir nauðsynlegt fyrir ríkisendurskoðun að hafa trúnað minnihlutans. Ríkisendurskoðun sem sé bara endurskoðun fyrir meirihlutann sé ekki trúverðug. 14.6.2005 00:01
Umræðan ekki skaðað Framsókn Valgerður Sverrisdóttir segir að umræðan um einkavæðingu ríkisbankanna og ásakanir um vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar hafi hvorki skaðað flokkinn né ríkisstjórnina. Halldór hafi jafnsterka stöðu sem áður innan flokksins. Þau ræddu aldrei eignatengslin sín á milli. </font /></b /> 14.6.2005 00:01
Eiturefnakafarar í viðbragðsstöðu Búist er við Lagarfossi til Grundartanga á tíunda tímanum en tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru nú í viðbragðsstöðu þar vegna ammóníaksleka sem varð um borð. 13.6.2005 00:01
Búist við úrskurði í dag Búist er við að ríkisendurskoðandi skili í dag úrskurði um hvort Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var vanhæfur þegar ríkisbankarnir voru seldir. Þetta er vegna tengsla fyrirtækis í eigu ráðherrans og fjölskyldu hans við S-hópinn svokallaða en þau tengsl voru ekki gefin upp í byrjun ferlisins. 13.6.2005 00:01
Vara við álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði vara eindregið við þeirri stefnu stjórnvalda að einhæfa atvinnulíf þjóðarinnar með enn einu álveri, hugsanlega við Eyjafjörð. 13.6.2005 00:01
Gámurinn kominn á land Búið er að hífa ammóníaksgáminn úr Lagarfossi og á land í Grundartangahöfn. Tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru á staðnum til að tryggja öryggið. Breyting varð á vindáttinni sem gerði að verkum að slökkviliðið þurfti aðeins að breyta vinnulagi sínu við aðgerðina. 13.6.2005 00:01
Skýlir sér á bak við embættismenn Stjórnarandstaðan segir forsætisráðherra skýla sér á bak við embættismenn og víkja sér undan pólitískri ábyrgð. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að málið sé að líkindum fallið um sjálft sig komist Ríkisendurskoðun að því að ráðherrann hafi verið hæfur til að koma að einkavæðingu bankanna. 13.6.2005 00:01
Aukning á iðrasýkingum í sumar Kampýlóbakter- og nóróveirusýkingar eiga eftir að aukast hér á landi eftir því sem líður á sumarið, að mati Haraldar Briem smitsjúkdómalæknis. Nóróveirusýkingar verða meðal annars þegar rotþrær fyllast og mengun kemst í neysluvatn. Þá eru miklar sýkingar um borð í skemmtiferðaskipum tengdar veirunni. 13.6.2005 00:01
Hvatt til samstarfs R-listans Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem hvatt er til viðræðna um endurnýjað samstarf í borgarstjórn undir merkjum Reykjavíkurlistans. 13.6.2005 00:01
Flugleiðir gefa 530 flugmiða Flugleiðir hafa gefið fimm hundruð og þrjátíu farþegum sem urðu fyrir óskemmtilegum töfum á flugi til og frá San Fransisco farmiða að eigin vali á flugleiðum félagsins. Tvö hundruð og sextíu manns héldu áleiðis til San Fransisco um þrjú leytið í nótt en tvö hundruð og sjötíu manns biðu þess ytra að komast í flug til Íslands. 13.6.2005 00:01
Athugasemdir vegna sameiningar Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári. 13.6.2005 00:01
Vörubifreið ók á tíu ára telpu Vörubifreið ók á tíu ára telpu á hjóli á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á þriðja tímanum í dag. Stúlkan var að hjóla yfir á grænu en bifreiðin að taka hægri beygju þegar slysið varð. Telpan var flutt á slysadeild með slæman skurð á lærinu en talið var að hún gæti verið mjaðmagrindarbrotin. 13.6.2005 00:01
Fluttu inn 130 g og 1000 töflur Héraðsdómur Reykjaness dæmdi sex ungmenni, fimm karla og eina konu, til fangavistar í dag fyrir aðild að innflutningi á eitt þúsund amfetamíntöflum og rúmlega 130 grömmum af kókaíni. Efnin voru keypt í Rotterdam og flutt til landsins með Íslandspósti, falin inni í vaxkertum. 13.6.2005 00:01
Blaðamannafundur klukkan 17 Blaðamannafundur hefur verið boðaður í ráðherrabústaðnum klukkan fimm þar sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ætlar að skýra frá niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sem rannsakaði hvort hann hefði verið hæfur eða vanhæfur til að taka þátt í sölu ríkisbankanna. 13.6.2005 00:01
Rignir líklega um helgina Þó að margir fagni regnleysinu þá eru þurrkar farnir að valda vandræðum í landbúnaði um allt land. Ólafur Dýrmundsson, ráðgjafi hjá Bændasamtökunum, segir að ef ekki fari fljótlega að rigna þá gæti það valdið skaða í úthaga og ekki síður á túnum. 13.6.2005 00:01
Halldór ekki vanhæfur Ríkisendurskoðun segir hugleiðingarnar um óhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í sölu ríkisbankanna í raun óþarfar því hann hafi verið í veikindaleyfi þegar gengið var frá sölunni. Hagsmunir hans við söluna hafi reyndar verið óverulegir miðað við umfang viðskiptanna og því hefði hann ekki talist vanhæfur, hefði hann séð um söluna. 13.6.2005 00:01
Þrettán akreinar á kafla Framkvæmdir við breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru nýhafnar og hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins væntanlega ekki farið varhluta af þeim í gær. 13.6.2005 00:01
Grunur um nauðgun í heimahúsi Grunur er uppi um nauðgun í heimahúsi í Keflavík um helgina. Lögreglu var tilkynnt um málið um hádegi í gær en fólkið sem á í hlut er um tvítugt. Víkurfréttir greina frá þessu og segja að búist hafi verið við að kæra yrði lögð fram í dag. 13.6.2005 00:01
Flaggað í hálfa við álráðstefnu Þjóðfánar blöktu í hálfa stöng utan við ráðstefnu um áliðnað á Nordica-hótelinu síðdegis. Ekki var það þó skipuleggjendum ráðstefnunnar sem fannst þetta viðeigandi heldur náttúruvinum sem stóðu fyrir mótmælum á fundarstað. 13.6.2005 00:01
Ný samtök gegn álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirðinum voru stofnuð á fjölmennum fundi á Akureyri þann 28. maí síðastliðinn. <font face="Helv"></font> 13.6.2005 00:01
Vill fyrirbyggja málverkafalsanir Viktor Smári Sæmundsson, forvörður, fékk á síðasta föstudag 400.000 króna styrk frá Rannsóknarsjóði Listasafns Háskóla Íslands til að vinna sjálfstætt að söfnun og rannsóknum á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar. 13.6.2005 00:01
Landsvirkjun býður tvö verk út Landsvirkjun óskaði í gær eftir tilboðum í tvær stórframkvæmdir vegna Kárahnúkavirkjunar. Annað verkefnið er gröftur og gangagerð vegna botnrásar við Jökulsá í Fljótsdal vegna væntanlegrar Ufsarstíflu. Þau göng eiga að vera 57 metra löng og sjö metra breið.<font face="Helv"></font> 13.6.2005 00:01
Útgjöld vaxa hraðar en tekjur Þjóðarútgjöld Íslendinga, sem eru samanlögð einkaneysla hér á landi og fjárfestingar, hafa vaxið um 11,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra þótt landsframleiðsla hafi ekki vaxið nema um 2,9 prósent á sama tíma. Útgjöldin hafa því aukist meira en tekjurnar. 13.6.2005 00:01
Kominn yfir Húnaflóa Hringróðurinn kringum Ísland sóttist vel yfir helgina. Kjartan lagði af stað frá Reykjafirði á föstudaginn og fór þá í einni lotu fram að Kaldbaksvík, alls 35 sjómílur. 13.6.2005 00:01
Verst settir fá enga hjálp Skilyrði geta komið í veg fyrir að ávinningur af skuldaniðurfellingu margra af fátækustu ríkja heims komist til þeirra sem mest þurfa á að halda. "Skilyrði um stjórnhætti, baráttu gegn spillingu og þróun í lýðræðisátt útiloka mörg fátækustu landanna," sagði Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar í Hádegisútvarpi Talstöðvarinnar í gær. 13.6.2005 00:01