Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Varúðarráðstafanir á Grundartanga Miklar varúðarráðstafanir voru gerðar á Grundartanga í morgun þegar Lagarfoss lagðist þar að bryggju eftir að ammóníakleki varð um borð. Talið er að fjögur hundruð og fimmtíu lítrar af efninu hafi lekið úr tanki í flutningagámi. 13.6.2005 00:01
Ekki hægt að tryggja sig Ekki er hægt að tryggja sig gegn tjóni vegna veggjatítlna hjá tryggingafélögunum og stendur ekki til að bæta þar úr. Þeir eigendur timburhúsa sem fá þessa óboðnu gesti geta þannig staðið uppi með verðlausa húseign. 13.6.2005 00:01
Vörubíl ekið á stúlku Vörubíl var ekið á tíu ára stúlku á gatnamótum Kringlumýrar- og Miklubrautar laust eftir hádegið í gær. 13.6.2005 00:01
Halldór ekki vanhæfur Halldór Ásgrímsson áréttar það að hann hafi ekkert haft með rekstur Skinneyjar-Þinganess að gera þegar félagið gerðist óbeinn aðili að S-hópnum í aðdragandanum að Búnaðarbankasölunni. Ríkisendurskoðandi segir Halldór ekki hafa verið vanhæfan til að fjalla um málið.</font /> 13.6.2005 00:01
Skóflustunga að nýrri álmu við ME Fyrsta skóflustunga að nýrri álmu við Menntaskólann á Egilsstöðum var tekin í dag. Hún mun bylta starfi skólans og stórbæta aðstöðu þar. 13.6.2005 00:01
Valgerður ber alla ábyrgð Ríkisendurskoðandi segir að Halldór Ásgrímsson hafi ekki verið vanhæfur til að fjalla um sölu Búnaðarbankans árið 2002 þrátt fyrir óbein eignatengsl við kaupendur bankans, S-hópinn. Ríkisendurskoðandi segir ábyrgðina á bankasölunni alfarið á höndum Valgerðar Sverrisdóttur, viðskiptaráðherra. </font /></b /> 13.6.2005 00:01
Þeistareykir og Landsvirkjun semja Stjórn Þeistareykja hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Landsvirkjun um orkuöflun fyrir álver á Norð-Austurlandi. 13.6.2005 00:01
Rætt um staðsetningu álvers Fulltrúar frá Akureyrarbæ, Húsavíkurbæ og Sveitarfélaginu Skagafirði áttu í gær fund í Reykjavík með starfsmönnum Fjárfestingastofu og Alcoa varðandi staðsetningu nýs álvers á Norðurlandi. 13.6.2005 00:01
Ógnaði fólki með skrúfjárni Úlpuklæddur maður framdi rán á bensínafgreiðslustöð Olís í Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan fimm í gærdag. Ógnaði hann tveimur starfsmönnum stöðvarinnar með skrúfjárni áður en hann hvarf brott með sölu dagsins. 13.6.2005 00:01
Eldur í Breiðholti Eldur kviknaði í viftu í eldhúsi í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Vesturbergi 138 í Breiðholti um miðjan dag á sunnudag. 13.6.2005 00:01
Á 187 km hraða á Reykjanesi Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjanesbæ í nótt. Fjórir voru kærðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók var á 187 kílómetra hraða. Tvívegis var lögreglan kölluð að skemmtistaðnum Traffic við Hafnargötu. Í annað skiptið var það vegna stúlku sem sparkaði í bíl þar fyrir utan eftir að hafa verið vísað út. 12.6.2005 00:01
Ekið á unga stúlku í Kvennahlaupi Ekið var á níu ára stúlku sem þátt tók í Kvennahlaupinu í gær. Stúlkan hljóp í veg fyrir bíl á mótum Vífilsstaðavegar og Elliðavatnsvegar og var bílnum ekið á rólegum hraða að sögn lögreglu. Stúlkan var flutt á slysadeild og er talið að hún sé fótbrotin. Á átjánda þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupinu í gær og var hlaupið á 90 stöðum á landinu. 12.6.2005 00:01
Rólegt á Akureyri í gærkvöld Skemmtanalífið fór vel fram á Akureyri í nótt. Tveir þurftu þó að gista fangageymslur lögreglunnar þar sem þeir gátu ekki greitt reikning sem þeir höfðu stofnað til á veitingastað í bænum. Þeir voru báðir í annarlegu ástandi þegar þeir voru teknir klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi. Fjórir voru teknir fyrir hraðakstur, tveir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur án réttinda. 12.6.2005 00:01
Teknir fyrir fíkniefnaneyslu Fjórir voru teknir höndum og færðir á lögrelgustöðina á Ísafirði eftir að bifreið sem þeir voru í var stöðvuð við eftirlit. Mennirnir eru grunaðir um neyslu fíkniefna en þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum. 12.6.2005 00:01
Kveikt í þremur ruslagámum Tólf voru teknir fyrir hraðakstur í gærkvöld og nótt í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Sá sem fór hraðast ók á 138 kílómetra hraða. Þá var ungur maður tekinn grunaður um ölvun við akstur. Eins hafði slökkvilið á staðnum í nógu að snúast en kveikt var í þremur ruslagámum á Eyrarbakka, Selfossi og í Grímsnesi. 12.6.2005 00:01
Ammoníakleki í Lagarfossi Ammoníakeiturefni lak úr Lagarfossi, flutningaskipi Eimskips, undan ströndum Skotlands í fyrrinótt. Áhöfnin hafði strax samband við skosku strandgæsluna í Aberdeen og lét vita af óhappinu en skipinu var bannað að halda áfram för sinni til Íslands fyrr en tekist hefði að stöðva lekann. 12.6.2005 00:01
Ryksugur á mannauð landsbyggðar Háskólarnir í Reykjavík virka eins og ryksugur á mannauðinn af landsbyggðinni, segir Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst. Hann telur að eina raunhæfa byggðastefnan til framtíðar sé að efla háskóla um landið allt. 12.6.2005 00:01
Sameinast verði um samgöngubætur Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir að landsmenn eigi að sameinast um samgöngubætur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Kjördæmapot komi í veg fyrir að ráðist sé í átak sem dragi verulega úr banaslysum. 12.6.2005 00:01
Bændur langeygir eftir rigningu Þurrt er víða á landinu og er úrkoma síðasta mánuðinn langt undir meðaltali. Bændur á Norðurlandi og víðar eru orðir langeygir eftir rigningu. 12.6.2005 00:01
Vongóð um að leysa deilu Björg Thorarensen, nýr stjórnarformaður Landakotsskóla, er vongóð um að hægt verði að leysa deiluna sem staðið hefur um skólastarfið að undanförnu. Hún hefur þegar rætt við deilendur og mun eiga fund með stjórn skólans í vikunni. Uppstokkun í stjórn skólans varð þó ekki til að lægja öldurnar. 12.6.2005 00:01
Teknir með hass Fjórir menn voru handteknir á Ísafirði laust fyrir klukkan 23.00 á laugardagskvöldið með lítilræði af fíkniefnum í fórum sínum. 12.6.2005 00:01
Veifaði kynfærum sínum Stúlku var hrint fyrir utan skemmtistaðinn Traffic í Hafnargötu í Keflavík rétt upp úr fjögur í gærnótt og var óskað eftir aðstoð lögreglunnar í Keflavík þar eð stúlkan meiddist lítillega. 12.6.2005 00:01
Beltin björguðu Ökumaður missti stjórn á bíl sínum og keyrði út af á Norðfjarðarvegi um miðnætti aðfaranótt sunnudags. 12.6.2005 00:01
Of greitt ekið Mikil umferð var í umdæmi lögreglunnar í Keflavík aðfaranótt sunnudags og talsvert um umferðarlagabrot. 12.6.2005 00:01
Í lauginni undir áhrifum áfengis "Það eru margir rússneskir og lettneskir togarar í Hafnarfirði þessa dagana og sjómennirnir koma í hópum í laugina til okkar. Þetta eru afskaplega prúðir drengir og eru ekki með nein leiðindi en við höfum ansi oft þurft að vísa þeim frá þar sem þeir hafa verið undir áhrifum áfengis," segir forstöðumaður Suðurbæjarlaugar í Hafnarfirði. 12.6.2005 00:01
Veggjatítlur í miðborginni Veggjatítlur finnast æ oftar í gömlum húsum í miðborginni. Kaupandi íbúðar í Þingholtunum, þar sem veggjatítlur fundust, fer fram á riftun kaupsamnings. 12.6.2005 00:01
Fundu tundurdufl Tundurdufl fannst yst í norðanverðum Reyðarfirði um hádegisbil í gær. Það var skipið Sólborg ÞH 270 sem fann tundurduflið við svokallaðan Lagga og tilkynnti lögreglunni á Eskifirði strax um málið. 12.6.2005 00:01
Bilun í vél Icelandair Töf varð á vél Icelandair til San Francisco frá Keflavík síðdegis á laugardag vegna bilunar. Vélin lagði ekki af stað á áfangastað fyrr en um miðnætti í gær. 12.6.2005 00:01
Æfir vegna seinkunar á flugi Erlendir ferðamenn, sem eru strandaglópar á Keflavíkurflugvelli, eru æfir yfir meira en sólarhringsseinkun á flugi Icelandair til San Francisco. Bilun í hreyfli veldur seinkuninni en ekki reyndist unnt að útvega aðra vél til að fljúga með mannskapinn. 12.6.2005 00:01
Fleira komi til en kennslan Stærðfræðikunnátta stúdenta í háskóla er mjög mismunandi eftir því úr hvaða framhaldsskóla þeir koma. Stærðfræðikennari við Menntaskólann við Sund segir að athuga verði fleiri þætti en bara kennsluna, þegar skýringa er leitað. 12.6.2005 00:01
Eiturefnaleki í Lagarfossi Flutningaskipið Lagarfoss fékk að halda áfram siglingunni hingað til lands eftir að komist var fyrir ammóníakleka í gámi í skipinu í fyrradag. Skipið var statt undan ströndum Skotlands þegar lekinn kom upp og taka tíu eiturefnakafarar á móti skipinu þegar það kemur til hafnar snemma dags í dag.</b /> 12.6.2005 00:01
Endurskoðunar þörf Stofnunin hlýtur að endurskoða stöðu sína í ljósi breyttra aðstæðna," segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ræddi um vanda stofnunarinnar á ársfundi hennar fyrir helgina og sagði núverandi lánastefnu fremur þjóna stöðnuðu atvinnulífi en framsæknum iðnaði. 12.6.2005 00:01
Hittast í dag og ræða álver Fulltrúar sveitarfélaga á Norðurlandi og iðnaðarráðuneytisins hittast í dag að máli til þess að ræða möguleika á álveri á Norðurlandi. Tilgangur fundarins er að reyna að ná samstöðu Norðlendinga um undirbúning álversins. 12.6.2005 00:01
Hópnauðgun á Tjörninni Stokkandarsteggir ráðast mjög harkalega að kollum á Tjörninni í Reykjavík. Sjónarvottar standa á öndinni og líkja þessu við hópnauðgun sem óhugnanlegt sé að horfa upp á. 12.6.2005 00:01
Kotbýli kuklarans í Bjarnarfirði Kotbýli kuklarans verður ímyndaður bústaður galdramanns á sautjándu öld. Galdrasafnið á Hólmavík reisir það í Bjarnarfirði þar sem gestir geta kynnt sér kukl og aðra óáran. 12.6.2005 00:01
Við eggjatöku í Drangey Her manns fór á dögunum í eggjatöku í Drangey - og gekk bara vel. Sigflokkur kom í eyna fyrir viku í blíðskaparveðri eins og á hverju ári um ómunatíð og á móti honum tók sjófuglinn, langvían, sem orpið hefur hinum eftirsóttu eggjum í bjarginu. Eftir hressingu í Drangeyjarskála var haldið út á bjargbrún. 12.6.2005 00:01
Hljómgrunnur fyrir þjóðaratkvæði Að forsetaembættið verði lagt niður, bannað verði að stofna íslenskan her og að vatn verði lýst almannaeign voru meðal tillagna um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem fram komu á ráðstefnu sem stjórnarskrárnefnd hélt á Hótel Loftleiðum á laugardag. 12.6.2005 00:01
Eldur í íbúð Eldur kviknaði í viftu í eldhúsi í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Vesturbergi 138 í Breiðholti um miðjan dag í gær. 12.6.2005 00:01
Hlé á R-listaviðræðum Viðræðunefnd flokkanna þriggja sem standa að R-listanum ákvað á síðasta fundi sínum á fimmtudag að gera hlé á viðræðum sín á milli. Næsti fundur flokkanna verður haldinn mánudaginn 27. júní. 12.6.2005 00:01
Lögmaður kennir endurskoðanda um Mistök endurskoðunarfyrirtækis urðu til þess að fjölskyldufyrirtækis forsætisráðherra var ekki getið í upplýsingagjöf S-hópsins til framkvæmdanefndar um einkavæðingu. Lögmaður S-hópsins segir mistökin ekki hafa neina þýðingu. 12.6.2005 00:01
Meta íslensku þjóðvegina Rannsóknir verða gerðar á íslenska vegakerfinu í sumar út frá alþjóðlegum vegaöryggisstaðli EuroRAP. 12.6.2005 00:01
Slasaðist töluvert í veltu Ungur maður slasaðist talsvert eftir að hafa velt bíl sínum á veginum upp að Laugarvatni í nótt. Hann var ekki talinn í lífshættu en var fluttur á slysadeild til Reykjavíkur. Maðurinn er grunaður um ölvun við akstur en tildrög slyssins eru í rannsókn. Bíllinn er gjörónýtur og þykir mildi að ekki hafi farið enn verr. 11.6.2005 00:01
30 gripnir fyrir of hraðan akstur Þrjátíu voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri síðastliðinn sólarhring. Flestir þeirra voru teknir í gærkvöldi eða 23, í Öxnadal og á Svalbarðsströnd. Sá sem hraðast ók var á 149 kílómetra hraða. Enn fremur var einum stungið inn í fangageymslur í nótt sökum ölvunar. 11.6.2005 00:01
Á stolnum bíl með þýfi Maður velti stolnum bíl rétt fyrir innan Flateyri í Önundarfirði í gærmorgun. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði en reyndist ekki alvarlega slasaður. Í bílnum fannst þýfi úr innbroti sem framið var sömu nótt. Maðurinn, sem grunaður er um akstur undir áhrifum lyfja, ók án þess að hafa ökuréttindi. Hann gisti fangageymslur þar til síðdegis í gær þegar honum var sleppt. Málið er í rannsókn. 11.6.2005 00:01
Ferðamaður velti bíl í Dýrafirði Þýskur ferðamaður slapp ómeiddur eftir að hafa velt bíl sem hann ók í Dýrafirði í fyrrinótt. Bíllinn lenti utan vegar og fór að minnsta kosti eina veltu en lenti aftur á hjólunum. Ökumaður, sem tilkynnti sjálfur um óhappið, segist hafa fipast þegar lamb hljóp í veg fyrir bílinn. Bíllinn skemmdist mikið en hægt var að aka honum á lögreglustöðina þar sem hann var tekinn úr umferð. 11.6.2005 00:01