Fleiri fréttir

Spilar á stórtónleikum í Noregi

Robert Plant, Annie Lennox, Nelson Mandela og Gulli Briem saman við ægifagra náttúru Norður-Noregs. Útkoman getur ekki orðið annað en stórfengleg. Mestu tónleikar í sögu Noregs verða haldnir í kvöld með þátttöku íslensku hljómsveitarinnar Earth Affair.

Vetnislundi í hringferð um landið

Japanskur vetnislundi hóf hringferð um landið í dag. Vetnislundinn er nokkurs konar þríhjól sem fimm japanskir áhugamenn um nýtingu hreinnar orku fluttu til landsins til hringferðarinnar. Með ferðinni vilja þeir vekja athygli á vetni sem framtíðarorkugjafa.

Góð þátttaka í Kvennahlaupi

Hátt í tuttugu þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupi Íþróttasambands Íslands á yfir níutíu stöðum á landinu í dag. Langflestar eða um fimm þúsund hlupu í Garðabænum.

Aldrei fleiri brautskráðir

Kandídatar voru brautskráðir frá Kennaraháskóla Íslands í gær og hafa aldrei fleiri verið brautskráðir en nú, alls 509 talsins.

Maður vopnaður loftbyssu

Lögreglaní Reykjavík fékk í um þrjúleytið gær tilkynningu um mann, vopnaðan skammbyssu, fyrir utan fjölbýlishús í Austurborginni.

Rógsherferð á hendur Halldóri

"Mér finnst það mjög alvarlegt þegar trúverðugleiki ríkisendurskoðunar er dreginn í efa. Hún var sett á stofn til að Alþingi gæti leitað til hennar og mér sýnist sem viðbrögð stjórnarandstöðunnar séu byggð á einhverju allt öðru en málefnalegri afstöðu," segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.

Mikilvægt að halda rétt á spilunum

Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ, segir að niðurfelling skulda hjá fátækustu ríkjum heims hafi gífurleg áhrif. "Þessi lönd bera mikinn vaxtakostnað og þar af leiðandi hafa tekjur þessara landa fyrst og fremst farið í fjármagnskostnað. Þau hafa ekki náð neinum möguleika á hagvexti, meðal annars vegna þess, en auðvitað geta verið fleiri þættir sem þar hafa áhrif," segir Tryggvi.

Kraftur í allt hjálparstarf

"Það skiptir stórkostlegu máli að losna við þennan skuldabagga og þetta hefur þau áhrif að það færist kraftur í allt hjálparstarf," segir Þórir Guðmundsson hjá Rauða krossi Íslands.

Fögnum niðurfellingu skulda

"Þetta er nokkuð sem hjálparsamtök hafa barist fyrir á annan áratug og ég fagna þessari ákvörðun," segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, um niðurfellingu skuldanna. "Þetta hefur ekki bein áhrif á okkar daglega starf því það er nóg af verkefnum sem þarf að vinna. En mér finnst það mikilvægasta í þessu að þeir fjármunir sem verða nú til í þessum löndum fari í uppbyggingu og að ástandinu sé ekki viðhaldið með sóun peninganna í óþarfa hluti."

Loka Kópavogshöfn

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir skipulagstillögur R-listans í Reykjavík gera ráð fyrir því að loka innsiglingunni í Kópavogshöfn. "Menn geta alltaf þvælt eitthvað fram og til baka. Með skipulagshugmyndum R-listans um tengingu yfir á Álftanes verður lokað fyrir allar siglingar inn í Kópavogshöfn," segir Gunnar, sem gefur lítið fyrir nýjustu tillögur R-listans í skipulagsmálum.

Átján þúsund konur tóku þátt

Kvennahlaupið var haldið hátíðlegt í gær með skokki um allt land. Að sögn Ellerts B. Schram, forstjóra ÍSÍ, fór allt vel fram í Garðabæ og konur á öllum aldri hlupu sér til ánægju í sól og blíðu.

Elsti leikskólinn á landsbyggðinni

Starfsfólk, foreldrar og börn á leikskólanum Pálmholti á Akureyri fögnuðu 55 ára afmæli skólans síðastliðinn föstudag en Sigrún Jónsdóttir leikskólastjóri segir að Pálmholt sé elsti starfandi leikskólinn utan höfuðborgarsvæðisins.

Fagnar ákvörðuninni

"Þetta er nokkuð sem hjálparsamtök hafa barist fyrir á annan áratug og ég fagna þessari ákvörðun," segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, um niðurfellingu skuldanna.

Neitar að ósamræmi sé í gögnum

Ríkisendurskoðandi segir ekkert ósamræmi í gögnum Ríkisendurskoðunar hvað varðar hæfi Halldórs Ásgrímssonar í sölu ríkisbankanna. Stofnunin hafi ekki vitað af eignarhlut fjölskyldufyrirtækis Halldórs í Hesteyri fyrr en á fundi fjárlaganefndar 28. apríl, þrátt fyrir að frá því hafi verið skýrt í fréttum í lok árs 2002.

Sátt hefur ekki skapast

Þrátt fyrir að tveir meðlimir stjórnar Landakotsskóla hafi sagt sig frá stjórninni, til að sátt megi skapast um framtíð skólans, sendu sjö kennarar frá sér harðorða yfirlýsingu í gær.

Segist læsa prestinn úti

Sóknarpresturinn Í Garðabæ ætlar ekki að hlíta úrskurði áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Hann segir nefndina og biskup ekki hafa völd til að færa hann til í starfi. Formaður sóknarnefndar íhugar að skipta um skrár í safnaðarheimilinu.

Hæfi Halldórs í rannsókn

Ríkisendurskoðandi rannsakar hvort eignatengsl Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans valdi því að hann hafi verið vanhæfur við sölu á Búnaðarbankanum. Sigurður Þórðarson segir verið sé að afla gagna um eignarhluti og atburðarrás.

Helmingur krefst afsagnar stjórnar

Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér þar sem hún vilji ekki veita skólastjóra skólans það vald sem honum beri að hafa samkvæmt grunnskólalögum. Fjölmennur fundur foreldra, kennara og stjórnar Landakotsskóla var haldinn í gærkvöldi og sendu kennarar frá sér yfirlýsingu að honum loknum þar sem þess var krafist að stjórnin segði af sér.

Velti bíl utan við Flateyri

Ölvaður ökumaður á stolnum bíl, að því að talið er, er nú á sjúkrahúsinu á Ísafirði eftir að hann velti bílnum utan við Flateyri á sjötta tímanum í morgun. Maðurinn er til rannsóknar á sjúkrahúsinu en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Bíllinn er hins vegar töluvert skemmdur.

Biskup hafnar ásökunum um vanhæfi

Karl Sigurbjörnsson biskup hafnar alfarið alvarlegum ásökunum lögmanns Hans Markúsar Hafsteinssonar, sóknarprests í Garðasókn, sem lýst hefur biskup vanhæfan til að fjalla um deilu prestins og hluta sóknarnefndar. Í yfirlýsingu frá Biskupsstofu, þar sem þessu er hafnað, segir enn fremur að Biskupsstofa tjái sig ekki frekar um innihald bréfs lögmannsins til biskups á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar.

Gripnir við hassreykingar

Þrír unglingspiltar voru gripnir glóðvoldir við hassreykingar við Hamraskóla í Grafarvogi á fjórða tímanum í nótt. Þeir voru utan við skólann og stöðvaði lögreglan reykinarnar, málið telst upplýst og var piltunum sleppt eftir skýrslutöku á staðnum.

9 mánaða fangelsi fyrir umboðssvik

Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í níu mánaða fangelsi í morgun og til að greiða sparisjóðnum liðlega átta milljónir króna fyrir umboðssvik en afgreiðslustjórinn sveik með ýmsum hætti umrædda fjárhæð út úr sparisjóðnum. Hluti fangelsisvistarinnar er skilorðsbundinn þar sem dráttur varð á rannsókn málsins hjá sýslumanninum í Hafnarfirði.

Fjórir sækja um forstjórastarf

Fjórir sækja um starf forstjóra Samkeppniseftirlitsins sem kemur í stað Samkeppnisstofnunar. Þeir eru Eggert B. Ólafsson héraðsdómslögmaður, Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar, Páll E. Halldórsson hag- og rekstrarfræðingur og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Umsóknarfrestur rann út í gær.

Íhuga að stofna nýjan barnaskóla

Óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga ásamt foreldrum að setja á fót nýjan barnaskóla þar sem séra Hjalti Þorkelsson yrði skólastjóri. Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér.

Stórskemmdu lögreglubíl

Fjórir karlar og ein kona réðust í nótt á lögreglumenn í Hafnarfirði og stórskemmdu lögreglubifreið.

Rjúpnastofninn vex um 80 prósent

Rjúpnastofninn stækkaði um tæplega 80 prósent milli ára samkvæmt tölum Náttúrufræðistofnunar Íslands. Stofnunin vill að veiðar verði takmarkaðar verulega, verði þær leyfðar á annað borð, svo að stofninn haldi áfram að vaxa.

Átelja seinagang embættis

Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í fangelsi í morgun fyrir að svíkja liðlega átta milljónir króna út úr sparisjóðnum. Hluti refsingarinnar er skilorðsbundinn, þar sem dráttur varð á rannsókn málsins. Dómstólar hafa ítrekað gert athugasemdir við seinagang hjá embættinu.

Segir forsendur leyfis brostnar

Forsendur fyrir starfsleyfi Alcoa eru brostnar segir Hjörleifur Guttormsson um þann dóm Hæstaréttar að ógilda umhverfismat vegna álvers í Reyðarfirði. Hjörleifur, sem höfðaði málið, segir umhverfisvernd vera sigurvegarann í málinu.

Lögreglumenn semja við ríkið

Landssamband lögreglumanna samþykkti kjarasamning sambandsins við fjármálaráðherra með 64 prósentum greiddra atkvæða gegn tæpu 31 prósenti. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var rúm 60 prósent. Talningu atkvæða lauk á hádegi í dag en samningurinn var undirritaður 30. apríl síðastliðinn.

Halldór á fund Noregskonungs

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, verður í opinberri heimsókn í Noregi boði Stórþingsins dagana 11.-14. júní þar sem hann hittir meðal annars Harald Noregskonung. Með þingforseta í för verða eiginkona hans, Kristrún Eymundsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, 1. varaforseti Alþingis, Jónína Bjartmarz, 2. varaforseti Alþingis, Birgir Ármannsson, 6. varaforseti Alþingis, og Karl M. Kristjánsson, rekstrar- og fjármálastjóri skrifstofu Alþingis.

Tjón mest á Suðurlandsvegi

Samfélagskostnaður vegna tjóna á Suðurlandsvegi er mun hærri en á öðrum vegum. Þetta kemur fram í úttekt sem Vinir Hellisheiðar létu gera í samstarfi við tryggingarfélögin. Á blaðamannafundi í dag var kynnt samantekt yfir tjón á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss frá 1990 og þar til í mars í ár og þar kom fram að kostnaðurinn nam fimm milljörðum króna.

Dæmdar bætur vegna vinnuslyss

Ísfélag Vestmannaeyja var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða manni rúmlega eina milljón króna í skaðabætur. Maðurinn varð fyrir slysi í febrúar í fyrra þegar hann var að vinna við svokallaða brettastöflunarvél sem er hluti af pökkunarvél í hraðfrystihúsi Ísfélagsins. Vélin bilaði með þeim afleiðingum að dragplata gekk út og dró með sér öskjur sem duttu yfir manninn þar sem hann stóð.

Komi ekki að stofnun nýs skóla

Séra Hjalti Þorkelsson, fyrrverandi skólastjóri Landakotsskóla, segist ekki eiga hlut að stofnun nýs grunnskóla sem óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga að setja á laggirnar í samvinnu við foreldra skólabarna. Samkvæmt heimildum fréttastofu Bylgjunnar er verið að setja saman undirbúningshóp fyrir stofnun nýs skóla, en kennarar og foreldrar eru ósáttir við ástandið í Landakotsskóla eins og það er, og telja að stjórn skólans sé með aðgerðum sínum að undanförnu að eyðileggja skólastarfið.

Bilun í háspennustreng í Garðabæ

Fyrir stundu varð bilun í háspennustreng í Garðabæ sem veldur því að stór hluti bæjarins er rafmagnslaus. Unnið er að viðgerð.

Víkja sæti úr stjórn skóla

Gunnar Örn Ólafsson, formaður stjórnar Landakotsskóla sjálfseignarfélags, og Jóhanna Long, ritari stjórnar, hafa ákveðið að víkja sæti úr stjórn félagsins í því skyni að sátt megi skapast um framtíð skólahalds að Landakoti. Í yfirlýsingu sem stjórn skólans sendi frá sér fyrir stundu segir að nýr stjórnarformaður, Björg Thorarensen, prófessor og foreldri, og Þórunn Erhardsdóttir, formaður foreldraráðs, hafi tekið sæti þeirra í stjórninni.

Nýir óháðir aðilar skoði bankasölu

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna telja það stórpólitísk tíðindi að bankasölumálið hafi komist á svo alvarlegt stig að hæfi sjálfs forsætisráðherra sé dregið í efa. Þeir segja óþægilega stöðu Ríksendurskoðunar í málinu kalla á þá spurningu hvort ekki sé tímabært að fá nýja óháða skoðun á sölu ríkisbankanna.

Rafmagn komið aftur á í Garðabæ

Rafmagn er nú komið á á ný í Garðabæ eftir að rafmagnslaust hafði verið í rúma klukkustund. Grafið var í háspennustreng við Móaflöt sem olli rafmagnsleysi í stórum hluta bæjarins og niður í Smárahverfi í Kópavogi.

Fellir úrskurð ráðherra úr gildi

Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi úrskurð dómsmálaráðherra, sem synjað hafði Lilju Sæmundsdóttir um að ættleiða barn frá Kína á þeim forsendum að hún væri of þung. Lilja, sem er 48 ára, er með kennaramenntun og sérkennaramenntun og sótti um að ættleiða barn frá Kína fyrir tveimur árum.

Töldu sig þekkja mann í löggubíl

Lögreglan í Hafnarfirði handtók rétt fyrir hádegi tvo karlmenn og eina konu í húsi í Reykjavík sem eru grunuð um að hafa í félagi við tvo aðra karla, sem handteknir voru í nótt, ráðist á óeinkennisklædda lögreglumenn og stórskemmt ómerkta lögreglubifreið. Árásarmennirnir töldu sig þekkja einhvern í lögreglubílnum sem þeir áttu sökótt við og þess vegna létu þeir til skarar skríða.

Sóknin á safnaðarheimilið

Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Hans Markúsar, segist ekki geta séð að það sé löglegt að úthýsa sóknarpresti með því að skipta um skrár í safnaðarheimili Garðasóknar. "Það er sóknin sem á safnaðarheimilið, en ekki sóknarnefndin."

Tveir fá styrk til listrannsókna

Rannsóknarsjóður Listasafns Háskóla Íslands úthlutaði í gær tveimur styrkjum, báðum að upphæð kr. 400.000. Hrafnhildur Schram listfræðingur fékk annan styrkinn vegna vinnslu bókar um listakonuna Júlíönu Sveinsdóttur. Hinn styrkinn fékk Viktor Smári Sæmundsson forvörður til að stunda rannsóknir á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar.

Velti stolnum bíl með þýfi

Á sjötta tímanum í gærmorgun valt lítil fólksbifreið í Önundarfirði. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni. Hann var fluttur á sjúkrahús en reyndist ekki alvarlega slasaður. Hann er grunaður um að hafa tekið bifreiðina ófrjálsri hendi og ekið henni undir áhrifum lyfja. Hann reyndist vera með útrunnin ökuréttindi.

Kjartan lagður af stað

Kjartan Jakob Hauksson komst loksins af stað frá Reykjafirði eftir hádegi í gær eftir að hafa verið veðurtepptur þar í fjóra daga. Vindur var þó enn nokkur og hann hélt sig nærri landi.

Ekki mat á umhverfisáhrifum í dómi

Alcoa Fjarðarál hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla sem höfð eru eftir Hjörleifi Guttormssyni í <em>Morgunblaðinu</em> í dag og tengjast umfjöllun um nýfallinn dóm Hæstaréttar, en samkvæmt honum þarf Alcoa að kosta nýtt umhverfismat vegna álvers í Reyðarfirði.

Sjá næstu 50 fréttir