Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lagaskilyrði skorti fyrir leyfi Lagaskilyrði skortir fyrir starfsleyfi Alcoa, segir dósent í umhverfisrétti við Háskóla Íslands. Í framhaldi af dómi Hæstaréttar verður að fara fram nýtt umhverfismat um álver í Reyðarfirði. Engu að síður verður starfsleyfi, sem byggist á umhverfismati, ekki afturkallað, meðal annars vegna þess að leyfishafinn gerir sér réttmætar væntingar um að halda leyfinu hann hafi ekkert brotið af sér. Dómurinn varði stjórnsýslu ríkisins. 11.6.2005 00:01
Hátt í 20 þúsund í Kvennahlaupi Kvennahlaup ÍSÍ fer fram víða um land í dag. Þetta er í sextánda sinn sem hlaupið fer fram en alls verður hlaupið á 90 stöðum á landinu. Talið er að hátt í 20 þúsund konur á öllum aldri muni taka þátt í hlaupinu en flestir þátttakendur voru í Garðabæ, eða fimm þúsund, en þar hófst hlaupið klukkan tvö. 11.6.2005 00:01
Sýknaður af ákæru um hasssmygl Héraðsdómur Reykjaness sýknaði síbrotamann af ákæru um tilraun til að smygla hassi til landsins, en það fannst við gegnumlýsingu á farangri hans á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Í skýrslu lögreglunnar í Danmörku segir að maðurinn hafi viðurkennt að hafa ætlað að flytja efnið til Íslands fyrir vin sinn en ekki viljað upplýsa hver það væri. 11.6.2005 00:01
HR útskrifar 259 nemendur Háskólinn í Reykjavík útskrifaði í dag 259 manns við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu. Í fyrsta sinn úrskrifaði skólinn nemendur með BA-gráðu í lögfræði en alls voru 42 útskrifaðir frá lagadeild, 73 af tölvunarfræðideild og 144 frá viðskiptadeild háskólans. 11.6.2005 00:01
Útskrift frá KÍ í dag Kennaraháskóli Íslands brautskráði í fyrsta sinn nemendur með BA-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði í dag en úrskrift skólans fór fram í íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Tveir voru útskrifaðir með þessa nýju gráðu og eru þeir í hópi 509 kandídata sem fengu afhent prófskírteini á athöfninni í dag. 11.6.2005 00:01
Saka kennararáð um rógburð Sjö kennarar við Landakotsskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirra deilna sem staðið hafa í skólanum að undanförnu. Þar segir m.a. að aðför fyrrverandi kennararáðs og skólanefndar að skólastjóra, aðstoðarskólastjóra, kennurum og nemendum hafi verið neiðkvæð gagnrýni í óhuggulegasta skilningi þess orðs. 11.6.2005 00:01
Veifaði skammbyssu í Bústaðahverfi Maður, sem veifaði loftskammbyssu utandyra í Bústaðahverfinu, var handtekinn á heimili móður sinnar og færður í fangageymslur í dag. 11.6.2005 00:01
Ótækt að stofnun skoði eigin verk Lúðvíki Bergvinssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, finnst ótækt að Ríkisendurskoðandi rannsaki sjálfur meint vanhæfi forsætisráðherra varðandi bankasöluna. Hann segir erfitt fyrir Ríkisendurskoðanda að rannsaka eigin verk. 11.6.2005 00:01
Barneignir hafi góð áhrif á MS Það hefur góð áhrif á konur með MS-sjúkdóminn að eignast börn, samkvæmt nýlegum rannsóknum, en lengi var það talið slæmt. 11.6.2005 00:01
Kettir geymdir í gámi Tuttugu og einn köttur var fjarlægður úr gámi þar sem þeir voru geymdir við ómannúðlegar aðstæður í þrjár vikur. Þetta er í þriðja sinn sem yfirvöld bregðast við vegna slæms aðbúnaðar kattanna. 11.6.2005 00:01
Spilar á stórtónleikum í Noregi Robert Plant, Annie Lennox, Nelson Mandela og Gulli Briem saman við ægifagra náttúru Norður-Noregs. Útkoman getur ekki orðið annað en stórfengleg. Mestu tónleikar í sögu Noregs verða haldnir í kvöld með þátttöku íslensku hljómsveitarinnar Earth Affair. 11.6.2005 00:01
Vetnislundi í hringferð um landið Japanskur vetnislundi hóf hringferð um landið í dag. Vetnislundinn er nokkurs konar þríhjól sem fimm japanskir áhugamenn um nýtingu hreinnar orku fluttu til landsins til hringferðarinnar. Með ferðinni vilja þeir vekja athygli á vetni sem framtíðarorkugjafa. 11.6.2005 00:01
Góð þátttaka í Kvennahlaupi Hátt í tuttugu þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupi Íþróttasambands Íslands á yfir níutíu stöðum á landinu í dag. Langflestar eða um fimm þúsund hlupu í Garðabænum. 11.6.2005 00:01
Nemendur með BA í lögfræði Háskólinn í Reykjavík útskrifaði í gær í fyrsta sinn nemendur með BA-gráðu í lögfræði. 11.6.2005 00:01
Aldrei fleiri brautskráðir Kandídatar voru brautskráðir frá Kennaraháskóla Íslands í gær og hafa aldrei fleiri verið brautskráðir en nú, alls 509 talsins. 11.6.2005 00:01
Maður vopnaður loftbyssu Lögreglaní Reykjavík fékk í um þrjúleytið gær tilkynningu um mann, vopnaðan skammbyssu, fyrir utan fjölbýlishús í Austurborginni. 11.6.2005 00:01
Rógsherferð á hendur Halldóri "Mér finnst það mjög alvarlegt þegar trúverðugleiki ríkisendurskoðunar er dreginn í efa. Hún var sett á stofn til að Alþingi gæti leitað til hennar og mér sýnist sem viðbrögð stjórnarandstöðunnar séu byggð á einhverju allt öðru en málefnalegri afstöðu," segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. 11.6.2005 00:01
Mikilvægt að halda rétt á spilunum Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ, segir að niðurfelling skulda hjá fátækustu ríkjum heims hafi gífurleg áhrif. "Þessi lönd bera mikinn vaxtakostnað og þar af leiðandi hafa tekjur þessara landa fyrst og fremst farið í fjármagnskostnað. Þau hafa ekki náð neinum möguleika á hagvexti, meðal annars vegna þess, en auðvitað geta verið fleiri þættir sem þar hafa áhrif," segir Tryggvi. 11.6.2005 00:01
Kraftur í allt hjálparstarf "Það skiptir stórkostlegu máli að losna við þennan skuldabagga og þetta hefur þau áhrif að það færist kraftur í allt hjálparstarf," segir Þórir Guðmundsson hjá Rauða krossi Íslands. 11.6.2005 00:01
Fögnum niðurfellingu skulda "Þetta er nokkuð sem hjálparsamtök hafa barist fyrir á annan áratug og ég fagna þessari ákvörðun," segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, um niðurfellingu skuldanna. "Þetta hefur ekki bein áhrif á okkar daglega starf því það er nóg af verkefnum sem þarf að vinna. En mér finnst það mikilvægasta í þessu að þeir fjármunir sem verða nú til í þessum löndum fari í uppbyggingu og að ástandinu sé ekki viðhaldið með sóun peninganna í óþarfa hluti." 11.6.2005 00:01
Loka Kópavogshöfn Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir skipulagstillögur R-listans í Reykjavík gera ráð fyrir því að loka innsiglingunni í Kópavogshöfn. "Menn geta alltaf þvælt eitthvað fram og til baka. Með skipulagshugmyndum R-listans um tengingu yfir á Álftanes verður lokað fyrir allar siglingar inn í Kópavogshöfn," segir Gunnar, sem gefur lítið fyrir nýjustu tillögur R-listans í skipulagsmálum. 11.6.2005 00:01
Átján þúsund konur tóku þátt Kvennahlaupið var haldið hátíðlegt í gær með skokki um allt land. Að sögn Ellerts B. Schram, forstjóra ÍSÍ, fór allt vel fram í Garðabæ og konur á öllum aldri hlupu sér til ánægju í sól og blíðu. 11.6.2005 00:01
Elsti leikskólinn á landsbyggðinni Starfsfólk, foreldrar og börn á leikskólanum Pálmholti á Akureyri fögnuðu 55 ára afmæli skólans síðastliðinn föstudag en Sigrún Jónsdóttir leikskólastjóri segir að Pálmholt sé elsti starfandi leikskólinn utan höfuðborgarsvæðisins. 11.6.2005 00:01
Fagnar ákvörðuninni "Þetta er nokkuð sem hjálparsamtök hafa barist fyrir á annan áratug og ég fagna þessari ákvörðun," segir Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, um niðurfellingu skuldanna. 11.6.2005 00:01
Neitar að ósamræmi sé í gögnum Ríkisendurskoðandi segir ekkert ósamræmi í gögnum Ríkisendurskoðunar hvað varðar hæfi Halldórs Ásgrímssonar í sölu ríkisbankanna. Stofnunin hafi ekki vitað af eignarhlut fjölskyldufyrirtækis Halldórs í Hesteyri fyrr en á fundi fjárlaganefndar 28. apríl, þrátt fyrir að frá því hafi verið skýrt í fréttum í lok árs 2002. 11.6.2005 00:01
Sátt hefur ekki skapast Þrátt fyrir að tveir meðlimir stjórnar Landakotsskóla hafi sagt sig frá stjórninni, til að sátt megi skapast um framtíð skólans, sendu sjö kennarar frá sér harðorða yfirlýsingu í gær. 11.6.2005 00:01
Segist læsa prestinn úti Sóknarpresturinn Í Garðabæ ætlar ekki að hlíta úrskurði áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. Hann segir nefndina og biskup ekki hafa völd til að færa hann til í starfi. Formaður sóknarnefndar íhugar að skipta um skrár í safnaðarheimilinu. 10.6.2005 00:01
Hæfi Halldórs í rannsókn Ríkisendurskoðandi rannsakar hvort eignatengsl Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans valdi því að hann hafi verið vanhæfur við sölu á Búnaðarbankanum. Sigurður Þórðarson segir verið sé að afla gagna um eignarhluti og atburðarrás. 10.6.2005 00:01
Helmingur krefst afsagnar stjórnar Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér þar sem hún vilji ekki veita skólastjóra skólans það vald sem honum beri að hafa samkvæmt grunnskólalögum. Fjölmennur fundur foreldra, kennara og stjórnar Landakotsskóla var haldinn í gærkvöldi og sendu kennarar frá sér yfirlýsingu að honum loknum þar sem þess var krafist að stjórnin segði af sér. 10.6.2005 00:01
Velti bíl utan við Flateyri Ölvaður ökumaður á stolnum bíl, að því að talið er, er nú á sjúkrahúsinu á Ísafirði eftir að hann velti bílnum utan við Flateyri á sjötta tímanum í morgun. Maðurinn er til rannsóknar á sjúkrahúsinu en ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður. Bíllinn er hins vegar töluvert skemmdur. 10.6.2005 00:01
Biskup hafnar ásökunum um vanhæfi Karl Sigurbjörnsson biskup hafnar alfarið alvarlegum ásökunum lögmanns Hans Markúsar Hafsteinssonar, sóknarprests í Garðasókn, sem lýst hefur biskup vanhæfan til að fjalla um deilu prestins og hluta sóknarnefndar. Í yfirlýsingu frá Biskupsstofu, þar sem þessu er hafnað, segir enn fremur að Biskupsstofa tjái sig ekki frekar um innihald bréfs lögmannsins til biskups á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar. 10.6.2005 00:01
Gripnir við hassreykingar Þrír unglingspiltar voru gripnir glóðvoldir við hassreykingar við Hamraskóla í Grafarvogi á fjórða tímanum í nótt. Þeir voru utan við skólann og stöðvaði lögreglan reykinarnar, málið telst upplýst og var piltunum sleppt eftir skýrslutöku á staðnum. 10.6.2005 00:01
9 mánaða fangelsi fyrir umboðssvik Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í níu mánaða fangelsi í morgun og til að greiða sparisjóðnum liðlega átta milljónir króna fyrir umboðssvik en afgreiðslustjórinn sveik með ýmsum hætti umrædda fjárhæð út úr sparisjóðnum. Hluti fangelsisvistarinnar er skilorðsbundinn þar sem dráttur varð á rannsókn málsins hjá sýslumanninum í Hafnarfirði. 10.6.2005 00:01
Fjórir sækja um forstjórastarf Fjórir sækja um starf forstjóra Samkeppniseftirlitsins sem kemur í stað Samkeppnisstofnunar. Þeir eru Eggert B. Ólafsson héraðsdómslögmaður, Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar, Páll E. Halldórsson hag- og rekstrarfræðingur og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Umsóknarfrestur rann út í gær. 10.6.2005 00:01
Íhuga að stofna nýjan barnaskóla Óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga ásamt foreldrum að setja á fót nýjan barnaskóla þar sem séra Hjalti Þorkelsson yrði skólastjóri. Átta kennarar af fimmtán í Landakotsskóla krefjast þess að stjórn skólans segi af sér. 10.6.2005 00:01
Stórskemmdu lögreglubíl Fjórir karlar og ein kona réðust í nótt á lögreglumenn í Hafnarfirði og stórskemmdu lögreglubifreið. 10.6.2005 00:01
Rjúpnastofninn vex um 80 prósent Rjúpnastofninn stækkaði um tæplega 80 prósent milli ára samkvæmt tölum Náttúrufræðistofnunar Íslands. Stofnunin vill að veiðar verði takmarkaðar verulega, verði þær leyfðar á annað borð, svo að stofninn haldi áfram að vaxa. 10.6.2005 00:01
Átelja seinagang embættis Fyrrverandi afgreiðslustjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar var dæmdur í fangelsi í morgun fyrir að svíkja liðlega átta milljónir króna út úr sparisjóðnum. Hluti refsingarinnar er skilorðsbundinn, þar sem dráttur varð á rannsókn málsins. Dómstólar hafa ítrekað gert athugasemdir við seinagang hjá embættinu. 10.6.2005 00:01
Segir forsendur leyfis brostnar Forsendur fyrir starfsleyfi Alcoa eru brostnar segir Hjörleifur Guttormsson um þann dóm Hæstaréttar að ógilda umhverfismat vegna álvers í Reyðarfirði. Hjörleifur, sem höfðaði málið, segir umhverfisvernd vera sigurvegarann í málinu. 10.6.2005 00:01
Lögreglumenn semja við ríkið Landssamband lögreglumanna samþykkti kjarasamning sambandsins við fjármálaráðherra með 64 prósentum greiddra atkvæða gegn tæpu 31 prósenti. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var rúm 60 prósent. Talningu atkvæða lauk á hádegi í dag en samningurinn var undirritaður 30. apríl síðastliðinn. 10.6.2005 00:01
Halldór á fund Noregskonungs Halldór Blöndal, forseti Alþingis, verður í opinberri heimsókn í Noregi boði Stórþingsins dagana 11.-14. júní þar sem hann hittir meðal annars Harald Noregskonung. Með þingforseta í för verða eiginkona hans, Kristrún Eymundsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, 1. varaforseti Alþingis, Jónína Bjartmarz, 2. varaforseti Alþingis, Birgir Ármannsson, 6. varaforseti Alþingis, og Karl M. Kristjánsson, rekstrar- og fjármálastjóri skrifstofu Alþingis. 10.6.2005 00:01
Tjón mest á Suðurlandsvegi Samfélagskostnaður vegna tjóna á Suðurlandsvegi er mun hærri en á öðrum vegum. Þetta kemur fram í úttekt sem Vinir Hellisheiðar létu gera í samstarfi við tryggingarfélögin. Á blaðamannafundi í dag var kynnt samantekt yfir tjón á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss frá 1990 og þar til í mars í ár og þar kom fram að kostnaðurinn nam fimm milljörðum króna. 10.6.2005 00:01
Dæmdar bætur vegna vinnuslyss Ísfélag Vestmannaeyja var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða manni rúmlega eina milljón króna í skaðabætur. Maðurinn varð fyrir slysi í febrúar í fyrra þegar hann var að vinna við svokallaða brettastöflunarvél sem er hluti af pökkunarvél í hraðfrystihúsi Ísfélagsins. Vélin bilaði með þeim afleiðingum að dragplata gekk út og dró með sér öskjur sem duttu yfir manninn þar sem hann stóð. 10.6.2005 00:01
Komi ekki að stofnun nýs skóla Séra Hjalti Þorkelsson, fyrrverandi skólastjóri Landakotsskóla, segist ekki eiga hlut að stofnun nýs grunnskóla sem óánægðir kennarar við Landakotsskóla íhuga að setja á laggirnar í samvinnu við foreldra skólabarna. Samkvæmt heimildum fréttastofu Bylgjunnar er verið að setja saman undirbúningshóp fyrir stofnun nýs skóla, en kennarar og foreldrar eru ósáttir við ástandið í Landakotsskóla eins og það er, og telja að stjórn skólans sé með aðgerðum sínum að undanförnu að eyðileggja skólastarfið. 10.6.2005 00:01
Bilun í háspennustreng í Garðabæ Fyrir stundu varð bilun í háspennustreng í Garðabæ sem veldur því að stór hluti bæjarins er rafmagnslaus. Unnið er að viðgerð. 10.6.2005 00:01