Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verðið sagt platverð Tugir einyrkja flytja inn ameríska bíla fyrir aðra einstaklinga, einkum notaða bíla. Bílarnir eru í mörgum tilfellum fluttir inn í nafni viðskiptavinarins og firrar innflytjandinn sig þar með ábyrgð. Stóru bílainnflytjendurnir telja að verðið sé "fixað" og þess vegna sé það svo lágt. </font /></b /> 10.5.2005 00:01
Skuggagarðar stúdenta Félagsstofnun stúdenta og Mótás undirrituðu í gær samning um byggingu nýrra stúdentagarða í miðborg Reykjavíkur. Garðarnir, sem hafa hlotið nafnið Skuggagarðar, munu rísa við Lindargötu þar sem Ríkið var áður til húsa. Húsin verða þrjú með samtals 98 einstaklingsíbúðum. 10.5.2005 00:01
Flest salmonellusmit í útlöndum 103 tilkynningar um salmonellusmit bárust til sóttvarnarlæknis á síðasta ári. Meirihluti smitanna tengdist ferðum Íslendinga til útlanda og höfðu flestir smitast á Spáni og Portúgal. Flest smitanna greinast yfir sumarmánuðina í tengslum við sólarlandaferðir. 31 tilfelli eða 30 prósent voru innlend salmonellusmit. 10.5.2005 00:01
Brynja óskar eftir rökum Tveir umsækjendur um starf framkvæmdastjóra Dvalarheimilisins Höfða hafa óskað skriflega eftir rökstuðningi um ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi alþingismanns. 10.5.2005 00:01
Leiguskip losar um stífluna Eimskip hefur kallað inn leiguskipið MS Rebekku til að losa um stíflu sem hefur myndast í innflutningi á amerískum bílum. Skipið hefur farið eina ferð með bíla frá Bandaríkjunum og svo hafa bílar verið sendir með öðrum félögum til Evrópu. 10.5.2005 00:01
Mikið um lúsasmit í skólum Mikið hefur verið um lúsasmit í skólum landsins að undanförnu ef marka má fjölda fyrirspurna og frétta af lús hjá Sóttvarnarlækni. Fjöldi smita liggur þó ekki fyrir þrátt fyrir að lúsasmit hafi orðið tilkynningaskyld árið 1999. Allir geta smitast en lúsin greinist helst hjá þriggja til tólf ára börnum. Mikilvægt er að nota kamb og lúsdrepandi efni til að ráð niðurlögum smitsins. 10.5.2005 00:01
Vill máli vísað frá dómi Hannes Hólmsteinn Gissurarson fer fram á að máli erfingja Halldórs Laxness gegn honum vegna brota á höfundarrétti, verði vísað frá dómi. 10.5.2005 00:01
Pöddurnar vakna til lífsins Þegar hlýnar í veðri fara pöddurnar á stjá. Kóngulær spinna vefi, mýflugur suða í eyrum og járnsmiðir tölta um blómabeð. En hvar var allur þessi fjöldi í vetur? Hvert fór hann og hvaðan kom hann? 10.5.2005 00:01
Gervigreindarsetur stofnað Tölvukerfi sem læra af reynslunni, bregðast við ófyrirséðum uppákomum og taka sjálfstæðar ákvarðanir, eru hluti af því sem nýstofnað Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík vinnur að. Yngvi Björnsson og Kristinn R. Þórisson, forstöðumenn setursins eru báðir doktorsmenntaðir í gervigreind. 10.5.2005 00:01
Kvikmyndafræði kennd í HÍ Til stendur að hefja kennslu í kvikmyndafræði við hugvísindadeild Háskóla Íslands í haust og hefur skólinn samið við Samskip um að styðja námið með því að kosta stöðu kennara. Til að byrja með verður kvikmyndafræðin 30 eininga aukagrein á BA-stigi en stefnt er að því að byggja upp framhaldsnám í greininni á næstu árum, eftir því sem fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá Háskólanum og Samskipum. 10.5.2005 00:01
Lögregla leitar bifreiðar Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir bifreið af gerðinni Subaru Legacy með bílnúmerið Zeta Magnús 912. Hann er ljósgrár, árgerð 1996, og talið að bíllinn sé einhvers staðar í Borgarfirði eða nágrenni. Ef einhver hefur orðið var við þennan bíl er sá hinn sami beðinn að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100. 10.5.2005 00:01
Virðisauki lagður á olíugjald Ríkissjóður nýtir sér upptöku olíugjalds í stað þungaskatts til nærri 500 milljóna króna skattahækkunar. Það gerist með því að á nýja olíugjaldið verður lagður virðisaukaskattur sem var ekki á þungaskatti. 10.5.2005 00:01
Þörf á varanlegri lausn Hjúkrunarfræðingur sem starfaði á geðdeild Landspítalans telur samfélaginu stafa hætta af sjúku fólki sem útskrifað hefur verið af geðdeild. Lögreglan í Reykjavík segir úrbóta þörf því oft lendi lögreglumenn í hættu í samskiptum við veikt fólk sem þurfi varanlegri lausn á sínum vanda en vist í fangaklefa. 10.5.2005 00:01
Braust inn til að eiga fyrir efnum Nítján ára síbrotamaður var í gær dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa haft undir höndum rúm ellefu grömm af amfetamíni auk eilítils af tóbaksblönduðum kannabisefnum. Maðurinn braust þar að auki í fyrravor inn í bíla og íbúðir og hafði þaðan á brott með sér ýmis verðmæti. 10.5.2005 00:01
Braust inn og barði konu Ríflega fertugur maður var í gær dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að brjótast síðastliðið sumar inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og lemja hana í andlitið. Maðurinn var þegar á skilorði og varð það til að þyngja dóminn. 10.5.2005 00:01
Skotið á erni með loftdælu Ólöglegum aðferðum var beitt til að verja æðavarp á norðanverðum Breiðafirði þegar skotið var á haferni með loftdælu. Upp komst um málið í eftirlitsflugi Náttúrufræðistofnunnar sem hefur eftirlit með arnarsetrum á varptíma. 10.5.2005 00:01
Samskip styrkja Háskóla Íslands Samskip og Háskóli Íslands hafa undirritað samstarfssamning um fjármögnun á nýju námi í kvikmyndafræðum við Hugvísindadeild Háskóla Íslands. 10.5.2005 00:01
Struku saman af Litla Hrauni Jón Ólafsson, öryggisvörður sem særðist í bílsprengingu í Írak á laugardaginn var, og yfirmaður hans Donald Feeney sátu saman á Litla-Hrauni árið 1993. Jón afplánaði þá dóm fyrir nauðgun og auðgunarbrot og átti þá að baki nokkra refsidóma fyrir ofbeldisbrot. 10.5.2005 00:01
Tekinn með nammi Ferðalangur sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar bíður nú dóms eftir að hann kom til landsins með 30 kíló af sælgæti sem hann keypti um borð. Aðeins er leyfilegt að hafa með sér þrjú kíló. 10.5.2005 00:01
53% meðlagsgreiðenda í vanskilum 53 prósent meðlagsgreiðenda eru í vanskilum við Innheimtustofnun sveitarfélaga og skulda samtals yfir 13 milljarða króna í meðlög og dráttarvexti. Þetta kom fram í svari félagsmálaráðherra á Alþingi í dag. 10.5.2005 00:01
Arnarvarp truflað í Breiðafirði Gasbyssu var stillt upp við arnarhreiður í hólma á Breiðafirði og fældu hvellirnir ernina og aðra fugla frá varpi í hólmanum. Vitað er hver var að verki, en samkvæmt lögum er stranglega bannað að hrófla við arnarhreiðrum. 10.5.2005 00:01
Annað en fyrningarafnám mögulegt Bjarni Benediktsson alþingismaður sem ekki hefur viljað samþykkja frumvarp um afnám fyrningar kynferðisbrota óbreytt, segir aðra leið mögulega, það er að breyta refsiramma þannig að alvarlegustu brotin varði lífstíðarfangelsi. 10.5.2005 00:01
Síðasta dreifing fyrir Landgræðslu Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson hóf í gær sína síðustu áburðardreifingu á vegum Landgræðslunnar og lýkur fluginu í næstu viku. Í næsta mánuði verður þessi fornfræga flugvél afhent Þristavinafélaginu sem vonast til geta haldið henni áfram flughæfri. 10.5.2005 00:01
Geta útskrifast án samræmds prófs Menntamálaráðherra hefur breytt reglugerð tímabundið um samræmd stúdentspróf þannig að nemendur geti útskrifast stúdentar í vor án þess að hafa þreytt samræmd próf. Nemendur sem tóku samræmdu prófin eru ekki ánægðir með lausn ráðherrans. 10.5.2005 00:01
Reyna að sleppa við veggjald Dæmi eru um að ökumenn sem fara í gegnum Hvalfjarðargöngin taki númeraplöturnar af bílum sínum svo þeir sleppi við að borga veggjaldið. 10.5.2005 00:01
Barðist við 100 kílóa stórlúðu Hundrað kílóa stórlúða kom á land í Bolungarvík í dag. Viðureign sjómanns og fisks stóð í á aðra klukkustund áður en lúðan varð að játa sig sigraða. 10.5.2005 00:01
Skuldum þjóðartekjur þriggja ára Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í gærkvöldi að viðskiptahalli þjóðarinnar næmi nú um tíu prósentum af þjóðartekjum. Slíkt gæti ekki gengið til eilífðarnóns. Skuldir hefðu vaxið verulega og næmu nú tvöfaldri til þrefaldri vergri þjóðarframleiðslu. 10.5.2005 00:01
Vantalið í svari utanríkisráðherra Eiríkur Bergmann Einarsson sérfræðingur í Evrópusambandsmálum segir að upplýsingar utanríkisráðherra um samþykkt Evrópusambandsgerða hér á landi séu villandi. Í svari ráðherrans við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar Sjálfstæðisflokki kom fram að undanfarinn áratug hafi 2527 Evrópusambandsgerðir verið teknar upp í EES samninginn eða aðeins um sex og hálft prósent af heildarfjölda ESB gerða á sama tímabili 10.5.2005 00:01
10 milljarða króna vanskil Foreldrar sem greiða meðlög með börnum sínum voru á þrettánda þúsund um síðustu áramót. Meira en helmingur þeirra var þá í vanskilum við Innheimtustofnun sveitarfélaga, liðlega 53 prósent. Þetta kom fram í svari Árna Magnússonar félagsmálaráðherra við fyrirspurn Helga Hjörvar og fleiri Samfylkingarþingmanna á alþingi í gær. 10.5.2005 00:01
Ótímabær gagnrýni á ritgerðarefni Sverrir Þórisson starfsmaður námsmatsstofnunnar telur gagnrýni á ritgerðarefnið á samræmda prófinu í íslensku ótímabæra. Niðurstaða samræmdu prófanna hljóti að vera hinn eini sanni prófsteinn á það hvort efnið sé óviðeigandi eða ekki. 10.5.2005 00:01
Hafna nýrri flugstöð Höfuðborgarsamtökin hafna áformum um samgöngumiðstöð í Vatnsmýri. Þau telja augljóst að framkvæmdin sé til þess fallin að festa flugstarfsemina þar í sessi. 10.5.2005 00:01
Stjórnin næði ekki meirihluta Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins myndu ríkisstjórnarflokkarnir fá 29 þingmenn af 63 ef boðað yrði til kosninga nú. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur bæta aðeins við sig frá síðustu könnun. 10.5.2005 00:01
Strætó líklega frá Kirkjusandi Starfsemi Strætó bs. mun að öllum líkindum flytja af Kirkjusandslóð á þessu ári og lóðin verða seld. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir lóðina vera eina þá bestu í bænum og að verðið verði eftir því. Starfsemi Strætó bs. hefur verið fundin ný lóð. 9.5.2005 00:01
Hissa á viðkvæmni barnageðlækna Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er hissa á því hversu viðkvæmir barnageðlæknar eru fyrir umræðu um þá miklu aukningu sem orðið hefur á notkun barna á ofvirknilyfjum. 9.5.2005 00:01
Mótmæltu háu olíugjaldi Eigendur dísilbíla flautuðu fyrir utan Alþingishúsið nú síðdegis til að mótmæla háu olíugjaldi. FÍB furðar sig hins vegar á mótmælunum. 9.5.2005 00:01
Fasteignasölu lokað Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala, sem nýverið tók til starfa, hefur þurft að loka einni fasteignasölu. Þar starfaði enginn löggildur fasteignasali á þeim tíma. Langflestum málum nefndarinnar lýkur án þess að nokkuð þurfi að aðhafast. 9.5.2005 00:01
Ný jarðhitahola Jarðboranir og Hitaveita Egilsstaða og Fella hafa undirritað samning um borun nýrrar jarðhitaholu á virkjunarsvæði hitaveitunnar við Urriðavatn. 9.5.2005 00:01
Kókaínkaupin undu upp á sig Sjö sæta ákæru fyrir innflutning á rúmum 130 grömmum af kókaíni og þúsund e-töflum í ársbyrjun í fyrra. Við sögu koma blómasali, dóttir konu hans og kærastinn hennar, frænka blómasalans, marokkóskur maður hennar og tveir til viðbótar sem áttu pening til kaupanna. 9.5.2005 00:01
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem gefin er að sök aðild á smygli á rúmum 7,5 kílóum af amfetamíni með Dettifossi frá Þýskalandi til Íslands síðasta sumar. 9.5.2005 00:01
Frávísun stendur í máli lækna Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Félagsdóms frá 15. apríl þar sem máli Læknafélags Íslands á hendur íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Læknafélagið, sem kærði úrskurðinn 20. apríl, þarf að greiða ríkinu 150 þúsund krónur í kærumálskostnað. 9.5.2005 00:01