Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
TM sendir frá sér afkomuviðvörun Tryggingamiðstöðin hefur líkt og Samherji gefið út afkomuviðvörun í tengslum við stórbrunann sem varð í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík í gær. Eignirnar voru tryggðar hjá Tryggingamiðstöðinni sem gerir ráð fyrir að áhrif þess á afkomu félagsins muni nema tvö hundruð milljónum króna að viðbættum viðbótariðgjöldum sem greiða þarf til endurtryggjenda þegar svona stórt tjón verður. 10.2.2005 00:01
Akademían fagnar framtaki Eimskips Stjórn ReykjavíkurAkademíunnar hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún fagnar því framtaki Eimskipafélags Íslands að styrkja Háskóla Íslands með því að veita 500 milljónir króna til að byggja upp háskólatorg og 100 milljónir króna árlega til styrktar doktorsnemum við skólann. 10.2.2005 00:01
Um 55% bóta eftir læknismeðferð Meiri hluti bótamála sjúklingatrygginga sem Tryggingastofnun samþykkti á árunum 2001 - 2004 fellur undir lagaákvæði um að "ekki hafi verið staðið eins vel að læknismeðferð og unnt var." Umsóknum um bætur hefur fjölgað mikið á milli ára. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Horfið frá stórum geðsjúkarhúsum Það þarf að endurskoða hlutverk geðheilbrigðisstofnana, hverfa frá uppbyggingu stórra geðsjúkarhúsa, og gera þjónustuna notendavænni. 10.2.2005 00:01
60 fjölmiðlamenn á matreiðsluhátíð Sextíu erlendir fjölmiðlamenn koma til landsins á vegum Icelandair til að fylgjast með Food and Fun hátíðinni sem haldin verður dagana 16. til 20. febrúar næstkomandi. Flestir koma fjölmiðlamennirnir frá Bandaríkjunum, eða um tuttugu talsins, og eru þeir jafnt frá sérritum og sjónvarpsstöðvum sem eingöngu fjalla um mat og almennum fjölmiðlum á borð við <em>The Washington Post</em>. 10.2.2005 00:01
Sýknaður af kynferðisbroti Karlmaður sem í héraðsdómi var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir langvarandi kynferðisbrot gagnvart ungri stúlku var sýknaður af Hæstarétti í dag. Stúlkan er dóttir konu sem starfaði hjá manninum og kom oft í vinnuna með móður sinni. Hafði héraðsdómur dæmt hann fyrir brot gegn stúlkunni, meðal annars fyrir samræði þegar hún var á aldrinum níu til þrettán ára. 10.2.2005 00:01
700 milljóna tekjutap Íslendingar verða hugsanlega af 700 milljónum króna vegna brunans í fiskimjölsverksmiðju Samherja í fyrradag að mati sjávarútvegsráðherra. Þetta kom fram á fundi Árna Mahiesen ráðherra með Ólafi Erni Ólafssyni, bæjarstjóra í Grindavík, Guðjóni Hjörleifssyni formanni sjávarútvegsnefndar Alþingis og Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja í gær. 10.2.2005 00:01
Sex hundruð í ólöglegri vinnu Sífellt fleiri stunda svarta vinnu á Íslandi. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir þetta áberandi í byggingargeiranum og telur allt að 600 manns í ólöglegri vinnu. Samiðn og Útlendingastofnun hefja samstarf. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Norðurál fær heimild til stækkunar Ekkert stendur lengur í vegi fyrir því að Norðurál á Grundartanga geti aukið afköst álverksmiðju sinnar í 260 þúsund tonn en samningur þess efnis var undirritaður í vikunni. Hafa framkvæmdir við stækkun álversins staðið yfir um tíma en í þessum áfanga er einungis gert ráð fyrir að afkastagetan verði 212 þúsund tonn. 10.2.2005 00:01
Dómtekið í Héraðsdómi Mál Valgerðar H. Bjarnadóttur, fv. framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu og formanns leikhússráðs Leikfélags Akureyrar, um greiðslu launa út ráðningartímabilið sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu hefur verið dómtekið hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. 10.2.2005 00:01
Vill fá konur í stjórn Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hvetur stjórnarformenn 80-90 helstu fyrirtækjanna í landinu til að beita sér fyrir því að konur fái tækifæri í stjórn og hefur sent þeim bréf þessa efnis, þó ekki þeim fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel. 10.2.2005 00:01
Hittust í gegnum stefnumótasíðu Norska blaðið Dagbladet birti nýlega viðtal við norskt-íslenskt par, Súsönnu Andreudóttur, 28 ára, og Christopher Landmark, 32 ára, sem kynntust á stefnumótasíðu. Þau byrjuðu að búa saman þremur dögum eftir að hafa hist í fyrsta skipti. 10.2.2005 00:01
Auðveldar mannahald Nokkuð er um að fiskvinnslufyrirtæki eigi húsnæði, jafnvel heilt fjölbýlishús, til að geta leigt út til erlendra farandverkamanna á höfuðborgarsvæðinu og er þar auðvitað um nútíma verbúðir að ræða. 10.2.2005 00:01
Uppgreiðslurnar námu milljarði Uppgreiðslur lána hjá Byggðastofnun námu tæpum 1.100 milljónum króna frá 1. september 2004 fram til dagsins í dag. Það er um 8-9 prósent af heildarútlánum. Uppgreiðslurnar hafa dregist umtalsvert saman upp á síðkastið en mega þó ekki verða mikið fleiri. 10.2.2005 00:01
Efast um trúverðugleikann Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar var dreginn í efa á Alþingi í gær. Stjórnarandstaðan hélt því fram að forsætisráðherra hefði staðfest í viðtali á Stöð 2 að þrýstingur frá Bandaríkjamönnum hefði leitt til ákvörðunarinnar um stuðning við innrásina í Írak. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Bíður eftir fréttum af særðum syni Arna Bára Arnarsdóttir, móðir Cesars Arnars Sanchez, íslenska hermannsins sem særðist í fyrrinótt í Írak, hefur ekki fengið neinar fregnir af líðan sonar síns í dag. Hún sagði í samtali við Stöð 2 í dag að hún ætti von á að heyra frá honum sem fyrst og bíður í ofvæni eftir því. Cesar Arnar meiddist illa á öðru auga og er með sprengjubrot í allri vinstri hlið líkamans. 10.2.2005 00:01
Fær forræði yfir dóttur sinni Hæstiréttur dæmdi í dag franskri konu forræði yfir dóttur hennar. Konan og franskur fyrrverandi eiginmaður hennar höfðu deilt um forræði yfir fimm ára dóttur þeirra. Barnið hafði búið hjá móður sinni og taldi Hæstiréttur að henni liði vel þar og breytingar á aðstæðum yrðu henni ekki til góðs. 10.2.2005 00:01
Gæsluvarðhaldið enn framlengt Gæsluvarðhald yfir brasilískri konu, sem reyndi að smygla 850 grömmum af kókaíni og um tvö þúsund skömmtum af LSD, var nú í vikunni framlengt til 22. mars. 10.2.2005 00:01
Áfram í gæsluvarðhaldi Íslendingi á þrítugsaldri var gert í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að sæta gæsluvarðhaldi í þrjár vikur til viðbótar, en hann var handtekinn fyrir þátttöku í fíkniefnasmygli í lok janúar. Vegna sama máls situr þýskur maður í gæsluvarðhaldi en hann var tekinn með fjögur kíló af amfetamíni á Keflavíkurflugvelli þann 26. janúar síðastliðinn. 10.2.2005 00:01
Reynt verði að frysta loðnu Töpuð útflutningsverðmæti vegna stórbrunans í Grindavík í gær geta numið allt að sjö hundruð milljónum króna. Forstjóri Samherja segir að reynt verði að halda áfram að frysta loðnu í Grindavík. 10.2.2005 00:01
Pressuball á morgun Blaðamannaverðlaunin 2004 verða afhent á Pressuballi Blaðamannafélags Íslands á Hótel Borg á morgun. Verðlaununum var komið á fót á síðasta ári og um leið var lífi blásið í Pressuböllin, sem þóttu með fínustu böllum bæjarins í eina tíð. Heilsteikt nautalund verður hryggjarstykkið í þrírétta málsverði. Hljómsveitin Vax leikur fyrir dansi. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Egill, Erlingur og Eyjólfur veikir Fyrirtækið Eldaskálinn er lokað vegna veikinda starfsmanna. Eigandinn vonar að viðskiptavinir fyrirgefi honum þó hann þurfi að loka. 10.2.2005 00:01
Fólk lætur lengja sig á Akureyri Fólki sem finnst eitthvað vanta uppá líkamshæð sína hefur hingað til þurft að sætta sig við fötlun sína. Nú eru stundaðar umfangsmiklar lengingar á fólki á Akureyri. 10.2.2005 00:01
Sagði vinnubrögð niðurlægjandi Formanni Vinstri - grænna var brugðið yfir viðtali við forsætisráðherra á Stöð tvö í gær og segir að vinnubrögðin, sem hann lýsti varðandi stuðninginn við innrásina í Írak, hafi verið niðurlægjandi fyrir íslensku þjóðina. Stjórnarliðar hvöttu stjórnarandstöðuna til að snúa sér að öðru. 10.2.2005 00:01
Vandamál vegna kynhegðunar "Þetta er raunverulegt vandamál sem þarf að fjalla um í samfélaginu," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir. Mikil aukning hefur orðið á því að ungar stúlkur leiti sér hjálpar vegna sárinda í endaþarmi -- afleiðingu endurtekinna endaþarmsmaka. 10.2.2005 00:01
Rumsfeld reiddist vegna þotna Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, brást reiður við og fannst hann sniðgenginn þegar George Bush Bandaríkjaforseti og Colin Powell, þáverandi utanríkisráðherra, ákváðu að fresta því að kalla orrustuþoturnar fjórar heim frá Keflavíkurflugvelli. „Þetta var dramatískt,“ segir forsætisráðherra. 10.2.2005 00:01
25-30 milljarðar vegna geðsjúkdóma Kostnaður vestrænna samfélaga vegna geðsjúkdóma nemur um þremur til fjórum prósentum af þjóðarframleiðslu samkvæmt útreikningum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Þetta jafngildir því að kostnaður íslenska þjóðfélagsins vegna þeirra sé um 25 til 30 milljarðar á ári. Einungis brot af þessu er kostnaður vegna meðferðar eða endurhæfingar. 10.2.2005 00:01
Óvenju snjóþungur vetur Óvenju mikið hefur snjóað það sem af er vetri. Aðeins draumkonur geta sagt til um hvernig veturinn verður þegar allt kemur til alls, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. 10.2.2005 00:01
Sjómenn gæðavottaðir Stýrimanna- og vélskólinn hefur sótt um gæðastaðalinn ISO-9001. Fáist vottun útskrifast nemendur með alþjóðaskírteini. 10.2.2005 00:01
Talstöðin FM 90,9 í loftið Ný útvarpsstöð, Talstöðin, hefur útsendingar í dag. Útvarpsstöðin sendir út á tíðininni FM 90,9. 10.2.2005 00:01
Sjálfstæðismenn vilja úttekt Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar geri úttekt á þeim stjórnkerfisbreytingum sem staðið hafa yfir frá því sumarið árið 2002. Tillaga þessa efnis var lögð fyrir borgarráð í gær en afgreiðslu hennar frestað. 10.2.2005 00:01
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot Hæstiréttur hefur sýknað karlmann af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á árunum 1990 til 1994 en þá var stúlkan 9 til 13 ára gömul. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í tveggja ára fangelsi og til að greiða 800 þúsund krónur í bætur. 10.2.2005 00:01
Óvíst með frekari leit Ekkert hefur verið ákveðið um frekari leit að skipverjunum tveimur sem enn er saknað eftir að Jökulfellið sökk norðaustur af Færeyjum í fyrrakvöld. Leitarskilyrði á svæðinu eru slæm vegna veðurs og verður staðan metin aftur þegar líður á daginn. 9.2.2005 00:01
Rán í öðrum söluturni Enn var framið vopnað rán í söluturni seint í gærkvöldi og nú í söluturni í Mjódd. Ræninginn var hettuklæddur með sólgleraugu og lét skína í einhvers konar barefli. Að kröfu hans lét afgreiðslumaðurinn hann hafa reiðufé og hvarf hann á braut með það. Hann er ófundinn. Í fyrrakvöld var framið svipað rán í söluturni í Grafarholti og er ræninginn þaðan líka ófundinn. 9.2.2005 00:01
Sluppu vel í hörðum árekstri Ökumenn jeppa og fólksbíls sluppu lítið meiddir þegar bílar þeirra skullu mjög harkalega saman á Norðurlandsvegi í Austur-Húnavatnssýslu í gær. Báðir bílarnir eru taldir gjörónýtir og þykir mildi hversu vel ökumennirnir sluppu, en þeir voru einir í bílum sínum. Áreksturinn varð með þeim hætti að öðrum bílnum var ekið inn á þjóðveginn í veg fyrir hinn bílinn sem þar var á fullri ferð. 9.2.2005 00:01
Loðnan fundin undan Ingólfshöfða Loðnuskipin hafa nú fundið loðnu vestan við Ingólfshöfða eftir að hún hvarf af Austfjarðamiðum í brælunni á mánudag. Þónokkur skip eru þar nú en veður er ekki ákjósanlegt og torfurnar ekki stórar. Það er helst að afli fáist alveg upp undir fjörunni. 9.2.2005 00:01
70 prósent telja Ingibjörgu hæfari Sjötíu prósent samfylkingarfólks telja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hæfari en Össur Skarphéðinsson, til að gegna formennsku í Samfylkingunni. Sextíu prósent sjálfstæðismanna telja Össur hins vegar hæfari til starfans. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Mannlíf í janúar og birtist í nýjasta tölublaði þess. 9.2.2005 00:01
Segir frágang farms ófullnægjandi Allar líkur benda til þess að frágangur á farmi Jökulfells, sem hvolfdi og sökk norðaustur af Færeyjum í fyrrakvöld, hafi verið ófullnægjandi þannig að farmurinn hafi kastast út í aðra síðu skipsins og valdið slysinu. 9.2.2005 00:01
Sakfelldur fyrir nefbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann á tvítugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að nefbrjóta sautján ára dreng fyrir utan Menntaskólann við Hamrahlíð í apríl síðastliðnum. Þá er honum einnig gert að greiða fórnarlambinu hundrað þúsund krónur í skaðabætur. 9.2.2005 00:01
Sjálfstæðismenn með langmest fylgi Sjálfstæðismenn bera höfuð og herðar yfir aðra flokka á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun Frjálsrar verslunar. Framsóknarflokkurinn mælist í annað sinn á einni viku með um fimm prósenta fylgi í höfuðborginni. 9.2.2005 00:01
Einkaviðtal við Halldór í kvöld Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra talar út um Íraksmálið í einkaviðtali sem hann féllst á að veita fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Í viðtalinu, sem verður sýnt í fréttatíma Stöðvar 2 og í Íslandi í dag í kvöld, skýrir hann í fyrsta sinn frá því hvað nákvæmlega varð til þess að nafn Íslands lenti á lista þeirra þjóða sem studdu innrás Breta og Bandaríkjamanna í Írak. 9.2.2005 00:01
Markið sett á 2015 Hægt er að ná svokölluðum þróunarmarkmiðum árþúsundsins árið 2015 með samhentu átaki alþjóðasamfélagsins. Þetta var meðal niðurstaðna fundar um sjálfbæra þróun sem haldinn var í Delí á Indlandi dagana 3. til 6. febrúar. 9.2.2005 00:01
Forleggjarar gefa milljón Félag íslenskra bókaútgefenda hefur gefið eina milljón króna til hjálparstarfs ABC barnahjálpar vegna hamfaranna við Indlandshaf. Sigurður Svavarsson formaður félagsins og Benedikt Kristjánsson framkvæmdastjóri afhentu Guðrúnu Margréti Pálsdóttur, frumkvöðli ABC barnahjálpar, upphæðina í janúar. 9.2.2005 00:01
Farmurinn líklega orsökin "Rannsókn stendur yfir og á meðan svo er vil ég ekki fara út í getgátur um hvað fór úrskeiðis þegar slysið átti sér stað," segir Claus Thornberg, framkvæmdastjóri Tesma-skipafélagsins, en það félag sá um rekstur og mönnun MS Jökulfells, sem sökk á mánudagskvöldið með þeim afleiðingum að fjórir létust og tveir eru taldir af. 9.2.2005 00:01
Brýn verkefni víðar en á Reykjanes "Réttlætingin fyrir því að frekari tvöföldun Reykjanesbrautarinnar var ákveðin þrátt fyrir að annars staðar sé umferð meiri og þyngri er fyrst og fremst vegna öryggisþátta," segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ákveðið hefur verið að bjóða það verk út í vor meðan vegir á borð við Vesturlandsveg og Suðurlandsveg bíða seinni tíma. 9.2.2005 00:01