Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sól í Hvalfirði sest Samtökin Sól í Hvalfirði börðust hatramlega gegn álverinu á Grundartanga en urðu undir. Verksmiðjan reis og álið kraumar í kerjunum. Lítið lífsmark hefur verið með samtökunum síðan Ólafur M. Magnússon hætti formennsku. Nýverið greiddi hann skuldir samtakanna upp á tæpa milljón krónur. </font /></b /> 9.11.2004 00:01
Dagur verður borgarstjóri Samkvæmt heimildum hefur verið ákveðið að Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi taki við stöðu borgarstjóra. Þórólfur Árnason víkur úr starfi. 9.11.2004 00:01
Vetnishúsið sigrar í Kína Stöllurnar Anna Sigríður Kristjánsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir báru sigur úr býtum í keppni í Kína þar sem verkfræðingar framtíðarinnar kynntu hugmyndir sínar. Lögðu þær fram verkefni sitt "Vetnishúsið" en það hafði áður unnið fyrstu verðlaun í Landskeppni ungra vísindamanna á Íslandi. 9.11.2004 00:01
Helga Jónsdóttir borgarstjóri? Flest bendir til þess að Þórólfur Árnason borgarstjóri láti af embætti í dag. Eins og greint var frá í DV í dag hvika Vinstrigrænir ekki frá því að hann njóti ekki lengur trausts allra flokka sem standa að Reykjavíkurlistanum en flokkurinn heldur fund í kvöld. Helst er rætt um að Helga Jónsdóttir borgarritari taki við borgarstjórastarfinu. 9.11.2004 00:01
Thomas hættir í stjórn Símans Thomas Möller hefur ákveðið að segja sig úr stjórn Símans. Í tilkynningu sem birt var á vef Kauphallar Íslands segir að hann hafi ákveðið að segja sig úr stjórninni í framhaldi af ákvörðun Samkeppnisráðs um samráð olíufélaganna. Thomas var framkvæmdastjóri markaðssviðs Olís og kemur ítrekað við sögu í skýrslu Samkeppnisstofnunar. 9.11.2004 00:01
Hækkun leikskólagjalda hörmuð Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík harma tillögu leikskólaráðs um að hækka leikskólagjöld í Reykjavík um 42% á fólk í sambúð þar sem annað foreldrið er í námi, að því er segir í tilkynningu frá stjórn UJR. 9.11.2004 00:01
Fólk farið að nýta 100% lán Húsnæðiskaupendur eru þegar farnir að nýta sér 100% lán, sem bankarnir bjóða upp á til að fjármagna fasteignakaup sín, að sögn Björns Þorra Viktorssonar hjá fasteignasölunni Miðborg. Hann er jafnframt formaður Félags fasteignasala. 9.11.2004 00:01
Skóli á Hellu braut stjórnsýslulög Grunnskólinn á Hellu braut stjórnsýslulög þegar tengdasonur skólastjórans var ráðinn til að aka börnum frá Þykkvabæ til skólans á Hellu. 9.11.2004 00:01
Reglur endurskoðaðar vegna brots Vinnureglur sem lúta að ráðningu skólabílstjóra í Rangárþingi ytra verða endurskoðaðar, að sögn Guðmundar I. Gunnlaugssonar sveitarstjóra. 9.11.2004 00:01
Einar hættur í stjórn Landsbankans Einar Benediktsson, forstjóri Olís, hefur sagt sig úr stjórn Landsbankans. 9.11.2004 00:01
Ríkisstjórnin grípi inn í verkfall Umboðsmaður barna beinir þeirri eindregnu áskorun til ríkisstjórnarinnar að beita sér nú þegar fyrir lausn á kjaradeilu kennara og sveitarfélaga, í samráði við deiluaðila til þess að endi verði bundinn á það ófremdarástand er ríkir, sem allra fyrst. 9.11.2004 00:01
Borgarstjóri boðar til fundar Þórólfur Árnason borgarstjóri hefur boðað til blaðamannafundar í Höfða klukkan 18. Þar mun hann að öllum líkindum tilkynna afsögn sína sem borgarstjóri Reykjavíkur. 9.11.2004 00:01
Mannréttindi barna séu virt Stjórn „Barnaheilla - Save the Children“ á Íslandi gerir þá kröfu að mannréttindi barna séu virt og að starf í grunnskólum í landinu hefjist aftur án tafar. Í ályktun félagsins segir að samkvæmt Barnasáttmálanum séu það ein af grundvallar mannréttindum barna að fá að ganga í skóla. 9.11.2004 00:01
Þórólfur sagði af sér Þórólfur Árnason sagði af sér sem borgarstjóri á blaðamannafundinum sem boðað var til í Höfða klukkan 18. Hann sagðist hafa komið hratt inn í starfið og farið hratt úr því. Hann hættir störfum 30. nóvember. Þórólfur kveðst ekki vita hver taki við af honum sem borgarstjóri. Nánar verður fjallað um málið í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30. 9.11.2004 00:01
Fullnaðarsigur í Sólbaksmáli "Við náðum fullnaðarsigri," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, en málið sem Sjómannasambandið höfðaði fyrir Félagsdómi gegn Útgerðarfélaginu Sólbaki ehf. vegna ráðningarsamninga við skipverja hefur verið fellt niður. 9.11.2004 00:01
Væg hlýnun eflir fiskistofna Niðurstöður alþjóðlegs rannsóknarteymis á vegum Norðurskautsráðsins gera ráð fyrir að loftslag á Íslandi og Grænlandi hlýni næstu hundrað árin um 2 til 3 gráður á Celsius, en slík breyting gæti eflt þá fiskistofna sem mikilvægastir eru fyrir hagkerfi þjóðanna, svo sem þorsk og síld. 9.11.2004 00:01
Gallaður áburður óbættur Sumir kúabændur hafa enn ekki fengið endurgreiðslu vegna gallaðs áburðar sem fluttur var til landsins síðasta vor, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda. 9.11.2004 00:01
Ungmenni eiga nær öll farsíma 99 prósent fólks á aldrinum 16 til 24 ára eiga eða hafa aðgang að farsíma, samkvæmt nýrri neytendakönnun Póst- og fjarskiptastofnunar. Jafnframt kemur fram að einungis fimmtungur fólks hefur nokkurn tímann skipt um símafyrirtæki. 9.11.2004 00:01
Kristinn hættir í stjórn Straums Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, sendi frá sér tilkynningu nú rétt fyrir fréttir og lýsti því yfir að hann myndi frá og með deginum í dag hætta þátttöku í störfum stjórnar Straums Fjárfestingarbanka. 9.11.2004 00:01
Símafyrirtæki fá samkeppni Upplýsingatæknigeirinn horfir til símaþjónustu yfir internetið sem sóknarfæris. Nú hillir undir reglur um IP-símaþjónustu sem ýtt gæti undir samkeppni við hefðbundin fjarskiptafyrirtæki. IP-símar gætu jafnvel ógnað farsímum. </font /></b /> 9.11.2004 00:01
Framburður Jónasar þótti ótrúlegur Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas, þremenningarnir í líkfundarmálinu, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Þeir voru fundnir sekir um fíkniefnabrot, fyrir að koma manni í lífshættu ekki til hjálpar og fyrir illa meðferð á líki. 9.11.2004 00:01
Íslandsbanki fellur frá kröfunum Íslandsbanki hefur ákveðið að falla frá kröfum um lánatryggingu fyrir veitingu hundrað prósent húsnæðisláns. Fjallað hefur verið ítarlega um þessi skilyrði í fréttum Stöðvar tvö en þeir sem taka lánatryggingu þurfa að veita lífssýni og gefa upplýsinga um sjúkdómasögu fjölskyldunnar. 9.11.2004 00:01
Fyrrum forstjóri SÍF fyrir dómi Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi endurskoðandi Tryggingasjóðs lækna og fyrrum forstjóri SÍF, stóð í ströngu í gær þegar mál ákæruvaldsins gegn honum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann er ákærður fyrir alvarlega vanrækslu í endurskoðendastarfi sínu. 9.11.2004 00:01
R-listinn harmar aðstæðurnar Reykjavíkurlistinn harmar að þær aðstæður hafi komið upp að Þórólfur Árnason borgarstjóri hefur kosið að láta af störfum, í tilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér á sjöunda tímanum. Þar lýsa borgarfulltrúar listans því yfir að samstarfið um Reykjavíkurlistann og þau stefnumál sem hann stendur fyrir haldi áfram. 9.11.2004 00:01
Ekkert nýtt um verkfall á Alþingi Menntamálaráðherra gagnrýndi stjórnarandstöðuna fyrir að óska eftir utandagskrárumræðum en hafa ekkert ábyrgt fram að færa. Stjórnarandstaðan kallaði eftir stefnu ríkisstjórnarinnar í kennaradeilunni en fékk ekki skýr svör. 9.11.2004 00:01
Átta missa vinnu við hagræðingu Öllum starfsmönnum Búrfells- og Hrauneyjarfossstöðvar hefur verið sagt upp störfum vegna sameiningar starfsstöðvanna. Átta hætta og gera starfslokasamning en öðrum hefur verið boðið að ráða sig aftur til starfa undir breyttum starfsskilyrðum. 9.11.2004 00:01
Grátlega erfiður hnútur Launanefnd sveitarfélaganna telur tilboð kennara ekki samningsgrundvöll. Þar hafi verið stigin skref í átt frá sáttum. Þau vilja sá samninga kennara einfaldaða og hverfa frá miðlunartillögu ríkissáttasemjara. 9.11.2004 00:01
Stjórnarandstaðan elur á falsvonum Stjórnarandstaðan hvetur ríkið til að treysta tekjustofna sveitarfélaga svo að unnt sé að ná samningum við kennara. Menntamálaráðherra fullyrðir að slíkt myndi ógna stöðugleikanum og sakar stjórnarandstöðuna um að ala á falsvonum. 9.11.2004 00:01
Þórólfur segir af sér Þórólfur Árnason sagði af sér embætti borgarstjóra í Reykjavík í gær með þeim orðum að það væri best fyrir Reykjavíkurlistann og hann sjálfan. 9.11.2004 00:01
Stjórnin grípur ekki inn í Svo virðist sem ríkisstjórnin muni ekki grípa inn í kennaradeiluna í bráð. Verkfallið var rætt á fundi hennar í morgun, en lagasetningu bar ekki á góma. Að mati forsætisráðherra er sú umræða ekki tímabær. Sjöunda vika kennaraverkfalls hófst í dag. 9.11.2004 00:01
Thomas hættir í stjórn Símans Thomas Möller, fyrrverandi markaðsstjóri Olís, sagði sig úr stjórn Símans í gær vegna niðurstöðu samkeppnisráðs um verðsamráð olíufélaganna. Samkvæmt niðurstöðunni átti Thomas aðild að samráðinu, meðal annars í viðskiptum við Símann. 9.11.2004 00:01
Kristinn hætti í stjórn Straums Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, hætti sem stjórnarformaður fjárfestingarbankans Straums í gær, vegna opinberrar umræðu um meint samráð olíufélaganna. Með þessu segist Kristinn gæta hagsmuna Straums og koma í veg fyrir að bankinn blandist í umræðu sem sé bankanum algerlega óviðkomandi. 9.11.2004 00:01
Ærðist í Hrauneyjum Maður á sjötugsaldri var handtekinn í íbúðaskála við Hrauneyjarfossvirkjun í gærmorgun eftir að hafa skotið upp í loftið úr riffli. Lögreglunni á Hvolsvelli barst tilkynning um skothríðina á fimmta tímanum í fyrrinótt. 9.11.2004 00:01
Áfram samstarf milli olíufélaganna Olíufélögin þrjú stofnuðu fyrir tveimur mánuðum nýtt félag sem á að sjá um afgreiðslu á flugeldsneyti á Keflavíkurflugvelli og aðra þjónustu við olíu- og flugfélög á vellinum. Þetta félag er stofnað á grunni annars félags sem lagt hefur verið niður. Forstjóri Esso segir að áfram verði ríkt samstarf á milli olíufélaganna. 9.11.2004 00:01
Framsókn vill óháðan borgarstjóra Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður krefst þess að leitað verði nýs borgarstjóra utan raða kjörinna borgarfulltrúa til þess að sátt ríki um eftirmann Þórólfs Árnasonar. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi stjórnarinnar í gærkvöld. 9.11.2004 00:01
Samfylkingin stærsti flokkurinn Vinstriflokkarnir tveir myndu bæta mikið við sig og ná meirihluta á alþingi ef kosið væri nú. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var nú um helgina. 9.11.2004 00:01
Vinstri grænir á flugi Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins myndu Vinstri grænir rúmlega tvöfalda fylgi sitt ef boðað væri nú til kosninga. Helmingur þingmanna Frjálslynda flokksins myndi hins vegar falla af þingi. Fylgi Samfylkingar eykst frá síðustu könnun, en fylgi stjórnarflokkanna dalar. 9.11.2004 00:01
Olíudreifing var skálkaskjól Forystumenn Essó og Olís fullyrtu þegar Olíudreifing var stofnuð árið 1995 að samkeppni yrði ekki minni en áður. Á sama tíma nýttu þeir Olíudreifingu til að miðla upplýsingum sín á milli um viðskiptaleyndarmál. 9.11.2004 00:01
Stefán Jón harmi sleginn Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-listans, er harmi sleginn yfir uppsögn Þórólfs Árnasonar. Hann vill ekki staðfesta að Dagur B. Eggertsson verði næsti borgarstjóri - enn sé eftir að ákveða hver taki við af Þórólfi. 9.11.2004 00:01
Hættir störfum í bankaráðinu Einar Benediktsson, forstjóri Olís, hefur ákveðið að taka ekki þátt í störfum bankaráðs Landsbanka Íslands fyrst um sinn, þar til annað hefur verið ákveðið. Segir í yfirlýsingu frá honum að þessi ákvörðun sé tekin í ljósi þeirrar umræðu sem orðið hefur í þjóðfélaginu í kjölfar birtingar skýrslu Samkeppnisstofnunar um meint samráð olíufélaganna. 9.11.2004 00:01
Þórólfur hættir 30. nóvember Þórólfur Árnason mun hætta sem borgarstjóri 30. nóvember. Hann tilkynnti þetta á blaðamannafundi á sjöunda tímanum og sagði ekki sitt að dæma hvort það væri sanngjarnt eða ekki. Þetta eru vissulega tíðindi þótt ekki sé hægt að tala um að ákvörðun hans komi algerlega á óvart. Það hefur verið fátítt á Íslandi að háttsettir embættismenn segi af sér embætti vegna pólitískra álitamála. 9.11.2004 00:01
Borgarstjóraembættið þrískipt Líkur eru taldar á því að þrír menn skipti með sér borgarstjóraembættinu láti Þórólfur Árnason af störfum. Sá möguleiki hefur að minnsta kosti verið ræddur af fullri alvöru meðal félagsmanna þeirra þriggja flokka sem standa að Reykjavíkurlistanum. Borgarfulltrúar meirihlutans funduðu í dag en þeir segja við fréttastofu að ekkert hafi verið ákveðið um framtíð Þórólfs. 8.11.2004 00:01
Fíkniefni í húsleit Nokkuð af fíkniefnum fannst í húsleit í Grafarvogi sem gerð var hjá manni á þrítugsaldri síðastliðinn föstudag. Þar fundust um 200 grömm af hassi, 200 grömm af maríjúana, átján grömm af kókaíni og sextán grömm af amfetamíni. 8.11.2004 00:01
Amfetamín falið í loftpressu Fimm eru enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á einu stærsta fíkniefnamáli síðari ára þar sem um ellefu kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni var smyglað með Dettifossi í tveimur ferðum. Tvö þúsund skammtar af LSD komu með póstinum. 8.11.2004 00:01
Færri glæpir en fleiri fangar Bandarískum föngum fjölgaði á síðasta ári þrátt fyrir að bæði ofbeldisglæpum og þjófnuðum fækkaði samkvæmt nýrri skýrslu bandaríska dómsmálaráðuneytisins. 8.11.2004 00:01