Aðstaða til skammar á flugvellinum 30. nóvember 2004 00:01
Verið er að kanna hugmyndir um gerð samgöngumiðstöðvar sem komið gæti í stað flugstöðvarinnar við Reykjavíkurflugvöll, en hún ber þess greinilega merki að hafa verið bráðabirgðahúsnæði um áratuga skeið. "Við höfum haldið því fram lengi að ekki þurfi bara nýja flugstöð heldur þurfi að athuga miklu betur þörfina á samgöngumiðstöð í Reykjavík, sem næði til flugs, rútna eða bíla," segir Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. "Eins og staðan er í dag er þetta allt okkur til skammar, sérstaklega gagnvart erlendum ferðamönnum." Jón Karl segir flugstöðina augljóslega barn síns tíma, byggða til bráðabirgða fyrir um 50 árum. "Hún átti að þola að hámarki kannski hundrað þúsund farþega, en er að taka í gegn um sig tæplega 500 þúsund farþega á ári, þannig að auðvitað er aðstaðan þarna sprungin fyrir löngu síðan." Jón Karl segir að unnið hafi verið að því að koma að koma af stað viðræðum milli aðila sem reka samgöngufyrirtæki. "Svo held ég að borgin ætti að sjá sér hag í því líka að setja upp einhvers konar miðstöð þar sem fólk getur keypt, eða að minnsta kosti fengið upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði, hvort sem flugið verður þarna áfram eða ekki. Það skiptir svo sem ekki máli í þessu samhengi," segir hann og telur að slíka samgöngumiðstöð mætti helst staðsetja niður undir Nauthólsvík, eða á svæðinu austan megin flugvallar. "Við erum þeirrar skoðunar að þetta sé nokkuð sem ætti að skoða og það sem fyrst." Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands, segir nefnd á vegum samgönguráðuneytisins hafa um skeið skoðað hugmyndir um byggingu samgöngumiðstöðvar í Reykjavík. Hann segir flugstöðvarhúsið upphaflega hafa verið byggt af breska hernum, en Bretar afhentu þjóðinni völlinn og tengdar byggingar laugardaginn 6. júlí 1946. "Síðan er margsinnis búið að staga og bæta í bygginguna," segir Heimir Már og telur öllum ljóst sem sæki flugstöðina heim að hún verði tæpast kölluð reisuleg og eigi orðið erfitt með að sinna hlutverki sínu, bæði hvað varði innanlandsflug og flug til Færeyja og Grænlands. "Það hefur þó með útsjónarsemi tekist að koma þarna fyrir vopnaleitarbúnaði og öðru sem þurfti."
Fréttir Innlent Mest lesið Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Innlent Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fleiri fréttir Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Sjá meira