Störf Íslendinganna mjög hættuleg 30. nóvember 2004 00:01
Einkarekin öryggisfyrirtæki, eins og tveir íslenskir lögregluþjónar starfa hjá í Írak, borga himinhá laun en störfin geta verið mjög hættuleg. Lögregluþjónarnir fá aðstoð frá utanríkisráðuneytinu ef á þarf að halda. Lögregluþjónarnir Þórjón Pétursson og Þórir Marinó Sigurðsson eru nú staddir í Írak þar sem þeir starfa fyrir breskt einkafyrirtæki sem sinnir öryggisgæslu. Fjölmörg slík fyrirtæki starfa í Írak, bæði á vegum Bandaríkjahers og eins á vegum einkafyrirtækja sem hafa tekið að sér einhver verkefni í Írak. Launin sem menn fá greidd fyrir öryggisgæslu eru himinhá en störfin eru líka hættuleg. Sem dæmi má nefna að vegakaflinn frá flugvellinum við Bagdad og inn í höfuðborgina er ekki nema nokkrir kílómetrar. Árásir eru hins vegar tíðar á þessum spotta og öryggisgæsla á leiðinni kostar hundruð þúsunda króna. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að þeir Þórjón og Þórir hafi farið í sérstaka þjálfun í Bretlandi, áður en þeir héldu til Íraks. Báðir höfðu þeir fyrir þjálfun hjá sérsveitum. Þórir var í víkingasveit lögreglunnar og Þórjón, sem er fallhlífastökkvari, hefur þjálfað með úrvalssveitum í Bandaríkjunum. Í mars á síðasta ári ráðlagði utanríkisráðuneytið íslenskum ríkisborgurum að ferðast ekki til Íraks, og ef slíkt væri nauðsynlegt að veita þá ráðuneytinu upplýsingar um ferðir sínar. Það gerðu þeir Þórjón og Þórir ekki, enda ber þeim engin skylda til þess. Hjá utanríkisráðuneytinu fékk fréttastofan þær upplýsingar að ef til þess kæmi myndi ráðuneytið að sjálfsögðu veita lögregluþjónunum alla þá aðstoð sem það gæti.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira