Fleiri fréttir Vinnuslys í Árbænum Lögregla og sjúkralið var kallað út upp úr klukkan eitt vegna vinnuslyss í Árbænum. Vinnueftirlitið hefur verið sent á staðinn, en meiðsl á fólki liggja ekki fyrir að svo stöddu að sögn lögreglunnar í Reykjavík. 12.10.2004 00:01 Framlög til túlkaþjónustu hækkuð Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu menntamálaráðherra um að hækka fjárframlög til túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa. Fjárframlögin verða hækkuð um 2 milljónir það sem eftir lifir þessa árs og í fjárlögum næsta árs hækka þau úr 4 milljónum króna í 10 milljónir. 12.10.2004 00:01 Fjölgað í nefndinni Tillaga menntamálaráðherra um að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd úr fimm í sjö var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Mikil óánægja var með það að stjórnarandstöðuflokkarnir þrír ættu að deila tveim sætum í nefndinni og nú hefur verið komið til móts við það og fær Frjálslyndi flokkurinn því líkast til sinn fulltrúa í nefndina. 12.10.2004 00:01 Lögbann sett á aðgerðir Sýslumaðurinn á Akureyri féllst í dag á að setja lögbann á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga sem stöðvuðu löndun úr togaranum Sólbaki. Lögbannið, sem var sett að kröfu útgerðarfélags skipsins, tekur gildi þegar í stað, en Útgerðarfélagið þarf að höfða mál því til staðfestingar innan viku. 12.10.2004 00:01 Á slysadeild eftir fall Karlmaður var fluttur á slysadeild um klukkan hálf tvö í dag, eftir að hafa fallið niður af tveggja metra háum vinnupalli í Árbænum. Maðurinn var að rétta verkfæri niður af pallinum, þegar pallurinn, sem var á hjólum fór af stað, með þeim afleiðingum að hann féll af honum og lenti á bakinu. 12.10.2004 00:01 Össur ánægður með breytingu Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar segist fagna því að menntamálaráðherra hafi séð að sér varðandi fjölda fulltrúa í fjölmiðlanefnd. Hún hafi farið afar ógætilega af stað í málinu, en samstillt viðbrögð stjórnarandstöðunnar hafi orðið til þess að hún hafi séð að sér. 12.10.2004 00:01 Bensín hækkar Bensínverð hækkaði í gær. 12.10.2004 00:01 Undarleg ósamstaða andstöðunnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Menntamálaráðherra, segist hafa ákveðið að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd vegna þeirrar óánægju sem fram hafi komið hjá stjórnarandstöðunni vegna málsins. Hún segir að aldrei hafi komið til greina að fara af stað með nefnd sem væri ósætti um frá upphafi og því hafi verið sjálfsagt að bregðast við beiðni stjórnarandstöðunnar 12.10.2004 00:01 Vilja takmarkað botnvörpubann Vernda þarf viðkvæm svæði á hafsbotni til að koma í veg fyrir tjón á lífríki nytjafiska í kringum landið. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Vinstri grænna, sem lögð er fram í þriðja sinn á þingi nú í haust. Í tillögunni segir að stöðugt fjölgi vísbendingum um tjón á lífríki hafsbotnsins við hömlulitla notkun botnveiðarfæra. 12.10.2004 00:01 Lögbann á sjómenn Lögbann hefur verið sett á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga við löndun úr togaranum Sólbaki frá Akureyri. Útgerðarfélag skipsins fór fram á bannið hjá sýslumanninum á Akureyri í gær. 12.10.2004 00:01 25 milljónir í ferðastyrk Landsbanki Íslands mun styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 25 milljónir króna til utanferða. Í samkomulagi bankans og hljómsveitarinnar segir að í ferðum hljómsveitarinnar skuli faglegur metnaður og kynning íslenskrar tónlistar vera í fyrirrúmi. 12.10.2004 00:01 Brennuvargur enn ófundinn Ríflega tvær vikur eru nú liðnar síðan Votmúli, atvinnuhúsnæði á Blönduósi, brann nánast til kaldra kola. Enn er talið að kveikt hafi verið í húsinu en Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, segir að rannsókn hafi engu skilað. 12.10.2004 00:01 Telja sjálfstæðismann vanhæfan Vinstri grænir í sveitarstjórn Skagafjarðar telja að Bjarni Maronsson, sveitarstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem lagði fram tillögu um að fara með Villinganesvirkjun í kynningu, sé vanhæfur í málinu. 12.10.2004 00:01 Kirkjan styrkir stöðu sína Meirihluti landsmanna telur stöðu Þjóðkirkjunnar sterka enda þótt stór hluti þjóðarinnar segi að greina eigi á milli ríkis og kirkju. Fleiri telja sig eiga mikla samleið með kirkjunni en áður en þátttaka hennar í þjóðfélagsumræðum er hins vegar umdeild. 12.10.2004 00:01 Hóta að loka sorpstöðinni Mikill ágreiningur er enn risinn vegna Sorpstöðvar Suðurlands. 12.10.2004 00:01 Tvö rússnesk herskip á leiðinni Tvö rússnesk herskip sem tóku þátt í rússnesk-bandarísku heræfingunni á Norður-Atlantshafi munu slást í hóp þeirra fjögurra herskipa sem enn halda til úti af Langanesi. 12.10.2004 00:01 Gruna að ein byssan sé illa fengin Fjöldi vopna fundust í þremur húsleitum á Hellissandi um síðustu helgi. Leitarheimild var fenginn eftir að par, á fertugs og fimmtugsaldri, var handtekið grunað um fíkniefnamisferli. Parið hafi húsin, þrjú sem leitað var í, til umráða. 12.10.2004 00:01 Rótleysið eykst með degi hverjum Lítil hætta er talin á að kennaraverkfallið leiði til brottfalls á meðal grunnskólanema. Sérfræðingar óttast þó að ákveðinn hluti nemenda muni eiga í vaxandi erfiðleikum eftir því sem líða tekur á verkfallið. 12.10.2004 00:01 Sögð hafa flutt 14 kíló af hassi 37 ára kona er ákærð af ríkissaksóknara fyrir innflutning á tæpleg fjórtán kílóum af hassi. 25 ára gamall maður er ákærður fyrir að hafa staðið að, ásamt konunni, að innflutningi á tæpum níu kílóum af hassinu. Hassið var flutt til landsins með tveimur fraktsendingum, bæði með skipi og flugi, í febrúar síðastliðinn. 12.10.2004 00:01 Próföstum og prestssetrum fækkað Kirkjuþing hefst á sunnudaginn en samkoman fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Ýmis mál liggja fyrir þinginu og má búast við heitum umræðum um sum þeirra. 12.10.2004 00:01 Fundur í undanþágunefnd á morgun Að öllum líkindum verður haldinn fundur í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara á morgun, eftir vikuhlé. Fyrir nefndinni liggja tuttugu undanþágubeiðnir sem allar eru vegna fatlaðra barna. Fulltrúi sveitarfélaga í nefndinni segist ítrekað hafa óskað eftir fundi frá 4. október, en þá lágu tíu umsóknir fyrir. 12.10.2004 00:01 Lögbann á aðgerðir Sjómannasamtaka Lögbann var sett á aðgerðir sjómannasamtakanna vegna Sólbaks í dag. Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar segist hryggur yfir þessari niðurstöðu, en að baráttunni sé alls ekki lokið. Útgerðarmaður Sólbaks segir þetta staðfesta rétt útgerðarinnar í málinu og að Sólbakur landi á Akureyri á morgun. 12.10.2004 00:01 Ekki í höndum sveitarfélaga Sveitarstjórnarmenn taka ekki afstöðu í kennaradeilunni og skýla sér á bak við Launanefnd Sveitarfélaganna, segir formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi bendir á að samningagerð sé ekki í höndum sveitarstjórnarmanna og segist bera fullt traust til samninganefndarinnar. 12.10.2004 00:01 Kennarar út fyrir sitt svið Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að forystumenn kennara skipti sér af starfsemi utan verkfallsins í þeim tilgangi að valda sem mestum óþægindum og formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að átök eigi eftir að verða á bryggjunni vegna útgerðar Sólbaks. 12.10.2004 00:01 Bera þau kjarnavopn? Óljóst er hvort rússnesku herskipin sem verið hafa við æfingar norðaustur af Íslandi beri kjarnorkuvopn. Eitt skipanna er þó kjarnorkuknúið og hefur getu til að bera tuttugu kjarnorkuflaugar. Líklegt er að herskipin verði við Íslandsstrendur í einhverja daga til viðbótar. 12.10.2004 00:01 Óttast ekki fjárhaginn Karl Sigurbjörnsson biskup segist ekki óttast um fjárhag kirkjunnar þótt ríki og kirkja yrðu skilin að eins og helmingur landsmanna vill. Kirkjan gerði þá kröfu til hundraða gamalla kirkjujarða. Hann segist hinsvegar óttast um siðinn í landinu og þau grunvallargildi sem tilvera þjóðarinnar byggist á. 12.10.2004 00:01 Stal senunni á Alþingi í dag Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra stal senunni í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag um táknmálstúlkun þar sem lág fjárframlög og óvissa um túlkaþjónustu voru til umræðu. Ráðherrann lýsti því yfir að hún hefði þegar tryggt að tíu milljónum yrði árlega varið til táknmálstúlkunar. 12.10.2004 00:01 Viðbúnaður vegna smygls Tollgæslan hafði töluverðan viðbúnað við Sundahöfn í dag vegna smygls í fóðurflutningaskipi. Skipið heitir Sylvia og er skrá á Gibraltar. Það er hefur um skeið flutt fóður hingað til lands, en í morgun þótti sérstök ástæða til að skipta sér af af skipverjum. 12.10.2004 00:01 Kirkjuþing ræðir peningaprestinn Séra Guðjón Skarphéðinsson á Staðastað á Snæfellsnesi vill að Kirkjuþing ræði málefni séra Láru G. Oddsdóttur á prestssetrinu Valþjófstað. Lára fékk rúmar átta milljónir króna í eigin vasa af fimmtán milljóna bótum sem Landsvirkjun greiddi til Valþjófsstaðar. Lára er í fríi á Spáni en Guðjón mætir á Kirkjuþing. 12.10.2004 00:01 Undanþágunefnd fundar í dag Tuttugu beiðnir um undanþágur vegna verkfalls kennara verða teknar fyrir á fundi undanþágunefndar síðdegis í dag. 12.10.2004 00:01 Fengu blys í veiðarfæri Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fjarlægðu og eyddu fosfórblysi sem kom upp með veiðarfærum fiskiskipsins Draupnis á Selvogsbanka suður af landinu. Skipverjar höfðu samband við Landhelgisgæsluna og sögðust hafa fengið upp "torkennilegan og illa lyktandi hlut". 12.10.2004 00:01 Gæslan í sprengjuleit Mikið fannst af sprengifimum hlutum, sprengjubrotum, skotfærum og púðri í leit sem Landhelgisgæslan stóð fyrir á svæðinu norðvestur af Stapafelli á Reykjanesi í síðustu viku. Svæðið er merkt með skiltum en ekki afgirt. 12.10.2004 00:01 Heyrnarlausir fagna framlagi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra tilkynnti í gær á fundi með fulltrúum heyrnarlausra að framlög til heyrnleysingjatúlkunar hefðu verið aukin um 2 milljónir í ár og 6 milljónir á næsta ári. 12.10.2004 00:01 Flogið til fárra staða innanlands 12.10.2004 00:01 Konum fækkar í stétt blaðamanna Konum fækkaði mikið í blaðamannastétt milli áranna 2002 og 2003 ef marka má tölur um aðild að Blaðamannafélagi Íslands og Félagi fréttamanna. Fækkunin nam tæpum 28 prósentum, meðan körlum fjölgaði um tæp 11 prósent, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Hagstofunnar, Konur og karlar 2004. 12.10.2004 00:01 Látinn eftir árekstur Ökumaðurinn sem lést í bílslysinu á Þjórsárdalsvegi í gærmorgun hét Þórarinn Björn Magnússon. Hann var 23 ára, ókvæntur og barnlaus og bjó á Vatnsendabletti 6 í Kópavogi. Ekki er hægt að greina frá nafni Brasilíumanns sem einnig lést í slysinu. Erlend kona sem haldið var sofandi í öndunarvél í gær er komin til meðvitundar og er hún á batavegi að sögn lækna. 11.10.2004 00:01 Lifrarbólga A geisar meðal homma Hópsýkingar af völdum lifrarbólgu A geisa nú meðal homma í nágrannalöndunum. Landlæknisembættið vill að hommar hér á landi láti bólusetja sig. Formaður Samtakanna ´78 hvetur til hins sama, en segir bóluefnið vera fokdýrt. </font /></b /> 11.10.2004 00:01 Norðmenn snuðra um Rússana Norski flugherinn er farinn að sýna rússnesku herskipunum við Íslandsstrendur áhuga og sendi Orion kafbátarleitarflugvél að skipunum í morgun. Fyrir stundu virtust þau vera að búa sig til brottfarar. 11.10.2004 00:01 Litlar líkur á árangri í bráð Litlar sem engar líkur eru taldar á því að samningar takist í þessari fjórðu viku kennaraverkfallsins, sem nú er hafin. Ríkissáttasemjari sló viðræðunum ótímabundið á frest undir kvöld en ætlar að ræða við hvorn deiluaðilla fyrir sig á miðvikudag. Færi svo að þær viðræður skiluðu einhverju, er talið útilokað að ganga mætti frá samningum fyrir helgi. 11.10.2004 00:01 Óánægja með töf Mikillar óánægju gætti hjá farþegum Flugleiða sem urðu fyrir klukkutíma töf á leið sinni heim til Íslands frá Lundúnum í gærkvöldi. Rangar upplýsingar frá afgreiðslufólki Flugleiða á flugvellinum leiddu til þess að fjórtán farþegar misstu af vélinni og varð að snúa henni á flugbrautinni og sækja farþeganna þar sem farangur þeirra var kominn um borð. 11.10.2004 00:01 Styrkurinn jákvæður fyrir krónuna Ætla má að styrkur bandarísku smitsjúkdóma- og ónæmisfræðistofnunarinnar til Decode Genetics fyrir helgi hafi jákvæð áhrif á gengi krónunnar. Morgunkorn Íslandsbanka greinir frá þessu. Komið hefur fram að 80% af styrknum verði varið hérlendis en það eru um 270 milljónir á ári næstu fimm ár. 11.10.2004 00:01 Fólk þyrpist í flensusprautu Fólk þyrpist þessa dagana í bólusetningu gegn inflúensu. Ekki hefur flensunnar enn orðið vart hér á landi en Haraldur Briem sóttvarnarlæknir telur aðeins spurningu um tíma hvenær hún stingi sér niður. 11.10.2004 00:01 Helmingslækkun matarskattar Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp þar sem lagt er til að svokallaður matarskattur verði lækkaður úr 14 í 7%. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. "Með þessu myndi matarreikningur íslenskra heimila verða lækkaður um 5 milljarða króna. 11.10.2004 00:01 Engir ábyrgðarmenn Námsmenn þurfa ekki lengur ábyrgðarmenn vegna lána úr Lánasjóði íslenskra námsmanna. Samkvæmt samkomulagi fulltrúa sjóðsins við Landsbanka íslands sem undirritað var núna á hádegi tryggir Landsbankinn nú námslánin. Steingrímur Ari Arason, framkvæmdastjóri LÍN, segir að nú þurfi námsmenn ekki skilyrðislaust uppáskrift frá ábyrgðarmanni 11.10.2004 00:01 Styðja flugfreyjur Iceland Express Starfsgreinasamband Íslands segir fyrirætlun Iceland Express um að segja upp flugfreyjum félagsins til þess að endurráða þær hjá erlendu félagi tilraun til félagslegra undirboða. Fyrirætlunin verði ekki túlkuð öðruvísi en sem aðför að skipulagðri verkalýðshreyfingu hér á landi og umsömdum lágmarkskjörum launafólks. 11.10.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Vinnuslys í Árbænum Lögregla og sjúkralið var kallað út upp úr klukkan eitt vegna vinnuslyss í Árbænum. Vinnueftirlitið hefur verið sent á staðinn, en meiðsl á fólki liggja ekki fyrir að svo stöddu að sögn lögreglunnar í Reykjavík. 12.10.2004 00:01
Framlög til túlkaþjónustu hækkuð Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu menntamálaráðherra um að hækka fjárframlög til túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa. Fjárframlögin verða hækkuð um 2 milljónir það sem eftir lifir þessa árs og í fjárlögum næsta árs hækka þau úr 4 milljónum króna í 10 milljónir. 12.10.2004 00:01
Fjölgað í nefndinni Tillaga menntamálaráðherra um að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd úr fimm í sjö var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Mikil óánægja var með það að stjórnarandstöðuflokkarnir þrír ættu að deila tveim sætum í nefndinni og nú hefur verið komið til móts við það og fær Frjálslyndi flokkurinn því líkast til sinn fulltrúa í nefndina. 12.10.2004 00:01
Lögbann sett á aðgerðir Sýslumaðurinn á Akureyri féllst í dag á að setja lögbann á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga sem stöðvuðu löndun úr togaranum Sólbaki. Lögbannið, sem var sett að kröfu útgerðarfélags skipsins, tekur gildi þegar í stað, en Útgerðarfélagið þarf að höfða mál því til staðfestingar innan viku. 12.10.2004 00:01
Á slysadeild eftir fall Karlmaður var fluttur á slysadeild um klukkan hálf tvö í dag, eftir að hafa fallið niður af tveggja metra háum vinnupalli í Árbænum. Maðurinn var að rétta verkfæri niður af pallinum, þegar pallurinn, sem var á hjólum fór af stað, með þeim afleiðingum að hann féll af honum og lenti á bakinu. 12.10.2004 00:01
Össur ánægður með breytingu Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar segist fagna því að menntamálaráðherra hafi séð að sér varðandi fjölda fulltrúa í fjölmiðlanefnd. Hún hafi farið afar ógætilega af stað í málinu, en samstillt viðbrögð stjórnarandstöðunnar hafi orðið til þess að hún hafi séð að sér. 12.10.2004 00:01
Undarleg ósamstaða andstöðunnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Menntamálaráðherra, segist hafa ákveðið að fjölga fulltrúum í fjölmiðlanefnd vegna þeirrar óánægju sem fram hafi komið hjá stjórnarandstöðunni vegna málsins. Hún segir að aldrei hafi komið til greina að fara af stað með nefnd sem væri ósætti um frá upphafi og því hafi verið sjálfsagt að bregðast við beiðni stjórnarandstöðunnar 12.10.2004 00:01
Vilja takmarkað botnvörpubann Vernda þarf viðkvæm svæði á hafsbotni til að koma í veg fyrir tjón á lífríki nytjafiska í kringum landið. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Vinstri grænna, sem lögð er fram í þriðja sinn á þingi nú í haust. Í tillögunni segir að stöðugt fjölgi vísbendingum um tjón á lífríki hafsbotnsins við hömlulitla notkun botnveiðarfæra. 12.10.2004 00:01
Lögbann á sjómenn Lögbann hefur verið sett á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga við löndun úr togaranum Sólbaki frá Akureyri. Útgerðarfélag skipsins fór fram á bannið hjá sýslumanninum á Akureyri í gær. 12.10.2004 00:01
25 milljónir í ferðastyrk Landsbanki Íslands mun styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 25 milljónir króna til utanferða. Í samkomulagi bankans og hljómsveitarinnar segir að í ferðum hljómsveitarinnar skuli faglegur metnaður og kynning íslenskrar tónlistar vera í fyrirrúmi. 12.10.2004 00:01
Brennuvargur enn ófundinn Ríflega tvær vikur eru nú liðnar síðan Votmúli, atvinnuhúsnæði á Blönduósi, brann nánast til kaldra kola. Enn er talið að kveikt hafi verið í húsinu en Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, segir að rannsókn hafi engu skilað. 12.10.2004 00:01
Telja sjálfstæðismann vanhæfan Vinstri grænir í sveitarstjórn Skagafjarðar telja að Bjarni Maronsson, sveitarstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem lagði fram tillögu um að fara með Villinganesvirkjun í kynningu, sé vanhæfur í málinu. 12.10.2004 00:01
Kirkjan styrkir stöðu sína Meirihluti landsmanna telur stöðu Þjóðkirkjunnar sterka enda þótt stór hluti þjóðarinnar segi að greina eigi á milli ríkis og kirkju. Fleiri telja sig eiga mikla samleið með kirkjunni en áður en þátttaka hennar í þjóðfélagsumræðum er hins vegar umdeild. 12.10.2004 00:01
Hóta að loka sorpstöðinni Mikill ágreiningur er enn risinn vegna Sorpstöðvar Suðurlands. 12.10.2004 00:01
Tvö rússnesk herskip á leiðinni Tvö rússnesk herskip sem tóku þátt í rússnesk-bandarísku heræfingunni á Norður-Atlantshafi munu slást í hóp þeirra fjögurra herskipa sem enn halda til úti af Langanesi. 12.10.2004 00:01
Gruna að ein byssan sé illa fengin Fjöldi vopna fundust í þremur húsleitum á Hellissandi um síðustu helgi. Leitarheimild var fenginn eftir að par, á fertugs og fimmtugsaldri, var handtekið grunað um fíkniefnamisferli. Parið hafi húsin, þrjú sem leitað var í, til umráða. 12.10.2004 00:01
Rótleysið eykst með degi hverjum Lítil hætta er talin á að kennaraverkfallið leiði til brottfalls á meðal grunnskólanema. Sérfræðingar óttast þó að ákveðinn hluti nemenda muni eiga í vaxandi erfiðleikum eftir því sem líða tekur á verkfallið. 12.10.2004 00:01
Sögð hafa flutt 14 kíló af hassi 37 ára kona er ákærð af ríkissaksóknara fyrir innflutning á tæpleg fjórtán kílóum af hassi. 25 ára gamall maður er ákærður fyrir að hafa staðið að, ásamt konunni, að innflutningi á tæpum níu kílóum af hassinu. Hassið var flutt til landsins með tveimur fraktsendingum, bæði með skipi og flugi, í febrúar síðastliðinn. 12.10.2004 00:01
Próföstum og prestssetrum fækkað Kirkjuþing hefst á sunnudaginn en samkoman fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Ýmis mál liggja fyrir þinginu og má búast við heitum umræðum um sum þeirra. 12.10.2004 00:01
Fundur í undanþágunefnd á morgun Að öllum líkindum verður haldinn fundur í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara á morgun, eftir vikuhlé. Fyrir nefndinni liggja tuttugu undanþágubeiðnir sem allar eru vegna fatlaðra barna. Fulltrúi sveitarfélaga í nefndinni segist ítrekað hafa óskað eftir fundi frá 4. október, en þá lágu tíu umsóknir fyrir. 12.10.2004 00:01
Lögbann á aðgerðir Sjómannasamtaka Lögbann var sett á aðgerðir sjómannasamtakanna vegna Sólbaks í dag. Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar segist hryggur yfir þessari niðurstöðu, en að baráttunni sé alls ekki lokið. Útgerðarmaður Sólbaks segir þetta staðfesta rétt útgerðarinnar í málinu og að Sólbakur landi á Akureyri á morgun. 12.10.2004 00:01
Ekki í höndum sveitarfélaga Sveitarstjórnarmenn taka ekki afstöðu í kennaradeilunni og skýla sér á bak við Launanefnd Sveitarfélaganna, segir formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi bendir á að samningagerð sé ekki í höndum sveitarstjórnarmanna og segist bera fullt traust til samninganefndarinnar. 12.10.2004 00:01
Kennarar út fyrir sitt svið Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að forystumenn kennara skipti sér af starfsemi utan verkfallsins í þeim tilgangi að valda sem mestum óþægindum og formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að átök eigi eftir að verða á bryggjunni vegna útgerðar Sólbaks. 12.10.2004 00:01
Bera þau kjarnavopn? Óljóst er hvort rússnesku herskipin sem verið hafa við æfingar norðaustur af Íslandi beri kjarnorkuvopn. Eitt skipanna er þó kjarnorkuknúið og hefur getu til að bera tuttugu kjarnorkuflaugar. Líklegt er að herskipin verði við Íslandsstrendur í einhverja daga til viðbótar. 12.10.2004 00:01
Óttast ekki fjárhaginn Karl Sigurbjörnsson biskup segist ekki óttast um fjárhag kirkjunnar þótt ríki og kirkja yrðu skilin að eins og helmingur landsmanna vill. Kirkjan gerði þá kröfu til hundraða gamalla kirkjujarða. Hann segist hinsvegar óttast um siðinn í landinu og þau grunvallargildi sem tilvera þjóðarinnar byggist á. 12.10.2004 00:01
Stal senunni á Alþingi í dag Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra stal senunni í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag um táknmálstúlkun þar sem lág fjárframlög og óvissa um túlkaþjónustu voru til umræðu. Ráðherrann lýsti því yfir að hún hefði þegar tryggt að tíu milljónum yrði árlega varið til táknmálstúlkunar. 12.10.2004 00:01
Viðbúnaður vegna smygls Tollgæslan hafði töluverðan viðbúnað við Sundahöfn í dag vegna smygls í fóðurflutningaskipi. Skipið heitir Sylvia og er skrá á Gibraltar. Það er hefur um skeið flutt fóður hingað til lands, en í morgun þótti sérstök ástæða til að skipta sér af af skipverjum. 12.10.2004 00:01
Kirkjuþing ræðir peningaprestinn Séra Guðjón Skarphéðinsson á Staðastað á Snæfellsnesi vill að Kirkjuþing ræði málefni séra Láru G. Oddsdóttur á prestssetrinu Valþjófstað. Lára fékk rúmar átta milljónir króna í eigin vasa af fimmtán milljóna bótum sem Landsvirkjun greiddi til Valþjófsstaðar. Lára er í fríi á Spáni en Guðjón mætir á Kirkjuþing. 12.10.2004 00:01
Undanþágunefnd fundar í dag Tuttugu beiðnir um undanþágur vegna verkfalls kennara verða teknar fyrir á fundi undanþágunefndar síðdegis í dag. 12.10.2004 00:01
Fengu blys í veiðarfæri Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fjarlægðu og eyddu fosfórblysi sem kom upp með veiðarfærum fiskiskipsins Draupnis á Selvogsbanka suður af landinu. Skipverjar höfðu samband við Landhelgisgæsluna og sögðust hafa fengið upp "torkennilegan og illa lyktandi hlut". 12.10.2004 00:01
Gæslan í sprengjuleit Mikið fannst af sprengifimum hlutum, sprengjubrotum, skotfærum og púðri í leit sem Landhelgisgæslan stóð fyrir á svæðinu norðvestur af Stapafelli á Reykjanesi í síðustu viku. Svæðið er merkt með skiltum en ekki afgirt. 12.10.2004 00:01
Heyrnarlausir fagna framlagi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra tilkynnti í gær á fundi með fulltrúum heyrnarlausra að framlög til heyrnleysingjatúlkunar hefðu verið aukin um 2 milljónir í ár og 6 milljónir á næsta ári. 12.10.2004 00:01
Konum fækkar í stétt blaðamanna Konum fækkaði mikið í blaðamannastétt milli áranna 2002 og 2003 ef marka má tölur um aðild að Blaðamannafélagi Íslands og Félagi fréttamanna. Fækkunin nam tæpum 28 prósentum, meðan körlum fjölgaði um tæp 11 prósent, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Hagstofunnar, Konur og karlar 2004. 12.10.2004 00:01
Látinn eftir árekstur Ökumaðurinn sem lést í bílslysinu á Þjórsárdalsvegi í gærmorgun hét Þórarinn Björn Magnússon. Hann var 23 ára, ókvæntur og barnlaus og bjó á Vatnsendabletti 6 í Kópavogi. Ekki er hægt að greina frá nafni Brasilíumanns sem einnig lést í slysinu. Erlend kona sem haldið var sofandi í öndunarvél í gær er komin til meðvitundar og er hún á batavegi að sögn lækna. 11.10.2004 00:01
Lifrarbólga A geisar meðal homma Hópsýkingar af völdum lifrarbólgu A geisa nú meðal homma í nágrannalöndunum. Landlæknisembættið vill að hommar hér á landi láti bólusetja sig. Formaður Samtakanna ´78 hvetur til hins sama, en segir bóluefnið vera fokdýrt. </font /></b /> 11.10.2004 00:01
Norðmenn snuðra um Rússana Norski flugherinn er farinn að sýna rússnesku herskipunum við Íslandsstrendur áhuga og sendi Orion kafbátarleitarflugvél að skipunum í morgun. Fyrir stundu virtust þau vera að búa sig til brottfarar. 11.10.2004 00:01
Litlar líkur á árangri í bráð Litlar sem engar líkur eru taldar á því að samningar takist í þessari fjórðu viku kennaraverkfallsins, sem nú er hafin. Ríkissáttasemjari sló viðræðunum ótímabundið á frest undir kvöld en ætlar að ræða við hvorn deiluaðilla fyrir sig á miðvikudag. Færi svo að þær viðræður skiluðu einhverju, er talið útilokað að ganga mætti frá samningum fyrir helgi. 11.10.2004 00:01
Óánægja með töf Mikillar óánægju gætti hjá farþegum Flugleiða sem urðu fyrir klukkutíma töf á leið sinni heim til Íslands frá Lundúnum í gærkvöldi. Rangar upplýsingar frá afgreiðslufólki Flugleiða á flugvellinum leiddu til þess að fjórtán farþegar misstu af vélinni og varð að snúa henni á flugbrautinni og sækja farþeganna þar sem farangur þeirra var kominn um borð. 11.10.2004 00:01
Styrkurinn jákvæður fyrir krónuna Ætla má að styrkur bandarísku smitsjúkdóma- og ónæmisfræðistofnunarinnar til Decode Genetics fyrir helgi hafi jákvæð áhrif á gengi krónunnar. Morgunkorn Íslandsbanka greinir frá þessu. Komið hefur fram að 80% af styrknum verði varið hérlendis en það eru um 270 milljónir á ári næstu fimm ár. 11.10.2004 00:01
Fólk þyrpist í flensusprautu Fólk þyrpist þessa dagana í bólusetningu gegn inflúensu. Ekki hefur flensunnar enn orðið vart hér á landi en Haraldur Briem sóttvarnarlæknir telur aðeins spurningu um tíma hvenær hún stingi sér niður. 11.10.2004 00:01
Helmingslækkun matarskattar Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp þar sem lagt er til að svokallaður matarskattur verði lækkaður úr 14 í 7%. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. "Með þessu myndi matarreikningur íslenskra heimila verða lækkaður um 5 milljarða króna. 11.10.2004 00:01
Engir ábyrgðarmenn Námsmenn þurfa ekki lengur ábyrgðarmenn vegna lána úr Lánasjóði íslenskra námsmanna. Samkvæmt samkomulagi fulltrúa sjóðsins við Landsbanka íslands sem undirritað var núna á hádegi tryggir Landsbankinn nú námslánin. Steingrímur Ari Arason, framkvæmdastjóri LÍN, segir að nú þurfi námsmenn ekki skilyrðislaust uppáskrift frá ábyrgðarmanni 11.10.2004 00:01
Styðja flugfreyjur Iceland Express Starfsgreinasamband Íslands segir fyrirætlun Iceland Express um að segja upp flugfreyjum félagsins til þess að endurráða þær hjá erlendu félagi tilraun til félagslegra undirboða. Fyrirætlunin verði ekki túlkuð öðruvísi en sem aðför að skipulagðri verkalýðshreyfingu hér á landi og umsömdum lágmarkskjörum launafólks. 11.10.2004 00:01