Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Halldór skýrir skatta Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ætlar að boða forystu verkalýðshreyfingarinnar á sinn fund til að skýra skattastefnu stjórnvalda. 11.10.2004 00:01
14 mánuðir fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag Litháa á þrítugsaldri í fjórtán mánaða fangelsi fyrir fíkniefnasmygl. Maðurinn var tekinn í Leifsstöð í ágúst með tæplega 300 grömm af kókaíni innvortis í um sjötíu pakkningum. Þess má geta að maðurinn er frá sama bæ og Vaidas Jucevicius sem fannst látinn í Norðfjarðarhöfn 11. febrúar síðastliðinn. 11.10.2004 00:01
Ráðherra kannar skólahald Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra segist ætla að láta kanna starfsemi svokallaðs Hávallgötuskóla sem Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur starfrækir í verkfalli kennara. 11.10.2004 00:01
Meirihlutinn að springa Allt útlit er fyrir að meirihlutasamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði sé að springa. Útlitið er ekkert alltof bjart, ég viðurkenni það alveg," segir forseti sveitarstjórnar. 11.10.2004 00:01
Skipin á heimleið Eftirlitsvélar á vegum Atlantshafsbandalagsins hafa vaktað rússnesku herskipin í allan dag en skipin eru nú að tínast heim á leið, hvert á fætur öðru. Rússar segja að óveður hafi valdið því að þrír björgunarbátar skoluðust fyrir borð. 11.10.2004 00:01
Óvíst um ákæru Ekki hefur verið ákveðið hvort máli manns sem skaut um tíu skotum á tvö hús á Reykhólum um verslunarmannahelgina ljúki með sektum eða ákæru, að sögn Þórólfs Halldórssonar, sýslumanns á Patreksfirði. 11.10.2004 00:01
Rússar í sókn Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og yfirmaður Landhelgisgæslunnar segir að koma rússneskra herskipa að ströndum Íslands sé til marks um að rússneski flotinn sé í sókn að nýju. 11.10.2004 00:01
Skilorð fyrir líkamsárás Nítján ára piltur var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið, fyrir fíkniefnabrot, eignaspjöll og líkamsárás. Refsingu annars, sem einnig var ákærður fyrir innbrot og eignaspjöll, var frestað og fellur hún niður haldi hann skilorð í tvö ár. 11.10.2004 00:01
Lögreglan finnur ekki eigendurna Tuttugu og þriggja ára Lithái, var í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi, fyrir innflutning á rúmum 297 grömmum af kókaíni, í lok ágúst. Hann ákvað að una dómnum eftir ráðlegginum verjanda síns, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur. Sækjandinn lagði til fimmtán mánaða fangelsi. Ekkert er vitað um vitorðsmenn Litháans. 11.10.2004 00:01
Hótaði lífláti Fertugur maður var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir gegn dóttur sambýliskonu sinnar og kærasta hennar. 11.10.2004 00:01
Skaðabætur fyrir símhleranir Íslenska ríkinu var gert að greiða tveimur mönnum, fimmtíu þúsund krónur hvorum, fyrir símhleranir lögreglunnar á Blönduósi, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Mennirnir voru búsettir á sveitabæ í Húnavatnssýslu og grunaði lögregluna að kannabisræktun færi fram á bænum. Mennirnir voru ekki viðriðnir ræktun kannabisplantna. 11.10.2004 00:01
Ekkert verkfall hjá krökkunum Verkfall grunnskólakennara hefur sett daglegt líf grunnskólabarna verulega úr skorðum. Krakkarnir deyja þó ekki ráðalausir heldur taka sér ýmislegt fyrir hendur á meðan skólinn er lokaður. Því er nóg að gera í myndbandaleigum, sundlaugum og bókasöfnum landsins svo dæmi séu nefnd. 11.10.2004 00:01
Bara heræfing? Rússnesku herskipin sem hafa haldið sig við norðausturstrendur Íslands síðustu dagana eru aðeins á hefðbundinni heræfingu. Þetta segir Sergej S. Gúsjín, talsmaður rússneska sendiráðsins, sem fullyrðir einnig að engir kafbátar hafi tekið þátt í æfingunni og ekkert slys hafi orðið. 11.10.2004 00:01
Vont ef tæki til eftirlits vantar Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir mjög óheppilegt ef ekki séu tæki á Keflavíkurflugvelli til að halda uppi nauðsynlegu eftirliti á varnarsvæðinu. Hann segir að vera rússnesku herskipanna við Ísland sýni að rússneski flotinn sé greinilega að sækja í sig veðrið, en lítur þó ekki á málið sem ögrun á neinn hátt. 11.10.2004 00:01
Ríkið þarf að veita peninginn Formaður Kennarasambandsins segir fjárframlag frá ríkinu nauðsynlegt til að leysa kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaganna. Kennarar komu saman á baráttufundi í Háskólabíói í dag, á 22. degi kennaraverkfalls. 11.10.2004 00:01
Ríkið kemur ekki að deilunni Menntamálaráðherra ítrekaði það á Alþingi í dag að ríkisstjórnin ætlaði ekki að blanda sér í kennaradeiluna og sagðist ekki trúa öðru en að deiluaðilar næðu saman.Staðan í kennaradeilunni kom til umræðu í fyrirspurnartíma þegar Björgvin Sigurðsson spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hvort ríkisstjórnin hygðist koma að málinu. 11.10.2004 00:01
Iðnnemar bitbein HÍ og ríkisins Nemendur í iðn- og verknámi hafa ónothæf stúdentspróf í höndunum og eru notaðir sem bitbein í deilu Háskóla Íslands og ríkisins, segir Jónína Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Iðnnemasambands Íslands. Hún segir aðhaldsaðgerðir Háskólans aðför að verknámi. 11.10.2004 00:01
Hunda leitað Hundaeftirlit Reykjavíkurborgar leitar tveggja hunda sem rifu í sig heimiliskött í Seljahverfi fyrir helgi. Fólk í hverfinu hefur ítrekað kvartað yfir því að hundarnir gangi lausir. 11.10.2004 00:01
Ráðningin gagnrýnd Það þýðir ekkert fyrir konur að sækja um stöðu hæstaréttardómara, því strákarnir sjá um sína, sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingunni á Alþingi í dag í umræðu um skipan í dómaraembætti. Settur dómsmálaráðherra var sakaður um geðþóttaákvörðun þegar Jón Steinar Gunnlaugsson var skipaður. 11.10.2004 00:01
Kennarar: Peningar í pakkann "Það vantar einfaldlega meiri peninga í pakkann," segir Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, á vef Kennarasambandsins. 11.10.2004 00:01
Banki stefnir Vélaborg KB banki krefst opinberrar rannsóknar á viðskilnaði fyrri eigenda á fyrirtækinu Vélum og þjónustu hf. Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur hjá KB banka, segir að óskað verði eftir opinberri rannsókn á ákveðnum þáttum í rekstri félagsins. 11.10.2004 00:01
Nýr skóli í verkfalli kennara Einkaskóli með á annan tug grunnskólabarna úr þriðja til sjöunda bekk hefur verið starfræktur frá fyrsta degi verkfalls kennara. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er skólastjóri og kennir með aðstoð kennaranema og foreldra barnanna. 11.10.2004 00:01
Menntamálaráðuneytið ónauðsynlegt "Ef ríkisstjórninni kemur ekki við hvað er að gerast í skólum landsins þá legg ég til að menntamálaráðuneytið verði lagt niður og það strax," segir Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands. 11.10.2004 00:01
Rannsaka vinnuferli við sprengingu "Við förum í gegnum þetta, bæði með okkar eftirliti og með verktökunum sem eru þarna að störfum," segir Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri um rannsókn stofnunar sinnar á því hvers vegna sjö menn lentu í hættu þegar síðasta haftið í Almannaskarðsgöngum var sprengt þrettán mínútum of snemma á föstudag. 11.10.2004 00:01
Konan á batavegi Ekki er vitað hvað olli því bílslysi á Þjórsárdalsvegi að morgni sunnudags en lögreglan á Selfossi og Rannsóknarnefnd umferðarslysa rannsakar málið. Ljóst er að bílnum var ekið út á hægri vegaröxl og svo aftur inn á veginn þar sem hann valt. Talið er að hann hafi farið fleiri en eina veltu. 11.10.2004 00:01
Sólbakur á leið í land Talið er að Sólbakur, skip Brims, komi í höfn á morgun. Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, segist ekkert gefa upp um það hvort sjómenn ætli aftur að reyna að stöðva löndun úr skipinu. 11.10.2004 00:01
Fjögur fíkniefnamál í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði kom upp um fjögur fíkniefnamál um helgina. Á föstudagskvöldið lagði hún hald á fimmtíu grömm af meintu amfetamíni eftir leit í bifreið og í framhaldi af því í íbúð manns. 11.10.2004 00:01
Stærðfræði hjálpar fiskifræðingum Með stærðfræðiútreikningum á að segja til um göngur fiskistofna hér við land með nákvæmari hætti en verið hefur. Kjartan G. Magnússon stærðfræðingur kynnti á fundi Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir helgi reiknilíkan sem nota á til að segja fyrir um loðnugöngur. 11.10.2004 00:01
Vill ljósleiðaravæða bæinn Níu hafa þegar sótt gögn til Seltjarnarnesbæjar eftir að bærinn auglýsti eftir samstarfsaðilum til að ljósleiðaravæða bæinn. Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, segir að 22. október verði innsendar hugmyndir opnaðar og skoðaðar. 11.10.2004 00:01
Sjómenn styðja forystuna Áhöfn Þerneyjar RE-101 lýsir fullum stuðningi við forystu samtaka sjómanna í svokölluðu Sólbaksmáli, sem og í öðrum málum, að því er fram kemur í tilkynningu frá áhöfninni. 11.10.2004 00:01