Fleiri fréttir

Þarf ekki að afsaka skipunina

Geir H. Haarde, settur dómsmálaráðherra, skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson í stöðu hæstaréttardómara í gær. Geir segist hafa ákveðið að leggja til grundvallar reynslu viðkomandi af lögmannsstörfum og málflutningi, þörf sé á því í réttinum.

Segir Kristin hafa fengið viðvörun

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að Kristinn hafi fengið viðvörun. Hann rekist ekki í flokknum. Framsóknarmenn segja Kristin lagðan í einelti, athæfi þingflokksins sé refsivert og aðgerðirnar harkalegar. Aðeins sé einn sannleikur í Framsókn. </font /></b /></font /></b />

Grefur undan réttinum

"Ráðherrar hafa nú í tvígang virt algjörlega að vettugi álit Hæstaréttar um umsækjendur um stöðu hæstaréttardómara," segir Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og einn umsækjenda um stöðuna.

Grefur undan réttinum

"Ráðherrar hafa nú í tvígang virt algjörlega að vettugi álit Hæstaréttar um umsækjendur um stöðu hæstaréttardómara," segir Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og einn umsækjenda um stöðuna.

Samson herðir tökin í Straumi

Samson, félag Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar, treysti tök sín í fjármálalífinu þegar Landsbankinn og Burðarás eignuðust fjórðungs hlut í Straumi fjárfestingarbanka. Samhliða varð Straumur stærsti einstaki hluthafinn í Íslandsbanka.

Jón ákærður

Ríkissaksóknari hefur ákært Jón Ó. Ragnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóra Lykilhótela fyrir að hafa veðsett Hótel Valhöll vegna láns upp á 37 milljónir króna, sem hann tók hjá Framkvæmdasjóði Íslands, en var ótengt rekstrinum í Valhöll. Hann er sakaður um að hafa misnotað aðstöðu sína og að hafa notað lánið til að greiða upp gjaldfallnar skuldir, ótengdum Valhöll.

Strandaglóparnir heim í dag

Um það bil 150 farþegar Osloarvélar Icelandair, sem urðu strandaglópar í Noregi í gær, vegna verkfalls flugumferðarstjóra í Suður Noregi, komast væntanelga heim fyrir hádegi. Vélin lenti í Bergen í gær, þar sem flugumferð í Oslo var komin í hnút og að sögn farþega áttu þeir í mesta basli við að fá nánari upplýsingar um framhaldið hjá flugfélaginu.

Mikill bruni á Blönduósi

Tugmilljóna tjón varð í stórbruna á Blönduósi í nótt þegar stærsta hús á staðnum brann að stórum hluta. Slökkviliðinu á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga, sem kölluð voru til aðstoðar tókst um klukkan sjö að ráða niðurlögum eldsins, en áfram er verið að slökkva í glæðum.

Afkoma kúabænda á niðurleið

Afkoma kúabænda var heldur lakari á síðasta ári en árið 2002. Hagnaður fyrir laun eiganda sem var tæplega 2 milljónir króna á árinu 2002 lækkaði í tæplega 1,9 milljónir króna árið 2003 eða um 5%. Ástæðan er fyrst og fremst sú að meðalafurðir drógust saman um sem nemur 3.000 lítrum mjólkur á bú.

Rannsókn miðar vel

Rannsókn á innbroti og skemmdarverkum í Byggðasafni Austur-Skaftfellinga um helgina miðar vel að sögn lögreglunnar á Höfn. Enginn hefur þó enn verið handtekinn, að sögn lögreglu, þótt rannsóknin teljist í góðum farvegi. Að öðru leiti vill hún ekki tjá sig að svo stöddu.

Ekki vitað um eldsupptökin

Enn er allt á huldu um eldsuptök í stórhýsinu sem eyðilagðist í eldsvoða á Blönduósi í nótt. Það sem enn stendur uppi af rústunum, verður rifið niður. Tugmilljóna tjón varð í brunanum þegar húsið, sem er stærsta húsið á staðnum brann að stórum hluta.

Stefán ráðinn fjármálastjóri Baugs

Stefán Hilmarsson endurskoðandi hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Baugs Group. Gunnar Sigurðsson sem verið hefur fjármálastjóri félagsins hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra erlendra fjárfestinga, með aðsetur í London.

Tónlistarkennarar lýsa stuðningi

Tónlistarskólakennarar hafa lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu grunnskólakennara. Á svæðisþingi tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, sem haldið var í Reykjavík 24. september sl., var eindregnum stuðningi við launakröfur grunnskólakennara lýst yfir.

Sekt fyrir brottkast

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær útgerðarmann og skipstjóra til greiðslu einnar milljónar króna sektar hvorn fyrir brottkast. Í einni veiðiferð köstuðu þeir fimm og hálfu tonni af þorski aftur í hafið.

Strandaglóparnir komnir heim

Vél Icelandair, sem varð innlyksa í Noregi í gær, lenti í Keflavík á tólfta tímanum. Önnur vél fór til Óslóar í morgun, en ekki er ljóst hvort hún tefst, þar sem enn er mikil óreiða á Gardemoenflugvelli.

Sveitastjórnarmenn í málið

Kennarar telja að sveitarstjórnarmenn geri sér ekki alveg grein fyrir kröfum grunnskólakennara og skýli sér um of á bak við samninganefnd sveitarfélaganna. Þeir telja að sveitarstjórnarmenn gætu liðkað fyrir lausn verkfallsins.

Deilur útgerðarmanna og sjómanna

Það er víða hart deilt vegna kjaramála. Sjómenn eru með lausa samninga og reyna að semja við útgerðarmenn, en þeir hafa ekki samið með hefðbundnum hætti í meira en áratug. Útgerðarmenn segja samninga sjómanna tuttugu árum á eftir en sjómenn saka tiltekna útgerðarmenn á móti um að virða réttindi þeirra að vettugi.

Minnihlutinn vill úrskurð

Minnihluti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir því við félagsmálaráðuneytið að það úrskurði um lögmæti frestunar bæjarstjórnarfundar þann 16. þessa mánaðar og um lögmæti afgreiðslu miðnæturfundar, sem haldinn var að kvöldi sama dags.

Þjónusta lá niðri í 3 tíma

Þjónusta Reiknistofu bankanna við hraðbanka, heimilisbanka og þjónustusíma lá niðri þrjár klukkstundir í gær. Að sögn Helga Steingrímssonar forstjóra Reiknistofunnar varð bilun í diskakerfi fyrirtækisins. Hann segir að búið sé að lagfæra bilunina og allt sé nú eins og það á að vera.

120 lögmenn styðja Jón Steinar

Listi með 120 nöfnum þeirra lögmanna sem vilja að Geir H. Haarde virði umsögn Hæstaréttar um val á dómara við réttinn að vettugi og taki sjálfstæða ákvörðun um ráðninguna var afhentur ráðherranum í gær.

Vald ráðherra mikið við dómaraval

Fyrirkomulag við skipan dómara í hæstarétt er margvíslegt í nágrannalöndunum. Samanburðurinn er flókinn en þó verður ekki betur séð en að ráðherra hafi meira vald hér á landi en tíðkast annars staðar. </font /></b />

Heimili og Skóli krefjast úrlausna

Heimili og skóli – landssamtök foreldra, hafa sent frá sér ályktun, þar sem segir að staðan í kjaraviðræðum Kennarasambands Íslands og launanefndar sveitarfélaga sé með öllu óviðunandi. Þar segir jafnframt að Alþingi setji lög um grunnskóla og stjórnvöldum beri því að fylgjast með því að sveitarfélög uppfylli skyldur sínar um að halda úti skóla fyrir öll börn.

Bíður áhyggjulaust ævikvöld

Ellilífeyrisþegar munu búa við trausta afkomu í framtíðinni og verða óháðir vilja vinnandi fólks til að sjá þeim farborða og veita þeim þjónustu. Að þessu hefur Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari komist en hann flutti erindi um málið á fundi Tryggingastofnunar í gær undir yfirskriftinni Aldraðir - yfirstétt framtíðarinnar. </font /></b />

Hálfs árs fangelsi

Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt rúmlega tvítugan karlmann í hálfs árs fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Helmingur dómsins er skilorðsbundinn. Manninum var gefið að sök að hafa í desember 2002 slegið mann með glasi í höfuðið á skemmtistað í Bolungarvík og að hafa ráðist að öðrum manni fyrir utan veitingastað á Ísafirði í maí á síðasta ári og slegið hann.

Sameining sunnan Skarðsheiðar

Kosið verður um sameiningu hreppanna sunnan Skarðsheiðar þann tuttugasta nóvember næstkomandi. Um er að ræða Hvalfjarðarstrandahrepp, Innri-Akraneshrepp, Leirár- og Melahrepp og Skilamannahrepp. Viðræður um sameiningu og tilraunir til sameiningar hafa staðið yfir í um 15 ár og slitnaði upp úr á síðasta ári án þess að íbúar fengju að kjósa um.

Skorað á bæjarstjórn

Nú á fimmta tímanum ætla kennarar í Kópavogi að afhenda forseta bæjarstjórnar áskorun um að kynna sér kröfur kennara. Að lokinni afhendingu ætla kennarar að fjölmenna á bæjarstjórnarfund. Talsmaður þeirra segir sveitarstjórnarmenn almennt ekki vita nóg um kröfur kennara og skýla sér um of á bak við samninganefnd sína.

Ólíubrák á Ísafirði

Mikil olíubrák er nú á Pollinum á Ísafirði, samkvæmt fréttablaðinu Bæjarins besta. Þar kemur fram að mikinn olíufnyk hafi lagt yfir miðbæ Ísafjarðar í dag, eftir að olía sem verið var að dæla í togskip í höfninni, fór í höfnina. ekki liggur fyrir hversu mikið magn fór í sjóinn.

Kúgaðir í fangelsum

Kynferðisglæpamenn hafa löngum verið fyrirlitnir af samföngum sínum, sem gjarnan ráðast á þá með fúkyrðum og jafnvel ofbeldi, að sögn Ara Björns Thorarensen, formanns Fangavarðafélags Íslands.

Kýldi lögreglumann

Maður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en hann er sakaður um að hafa kýlt lögreglumann með krepptum hnefa í andlitið í maí í fyrra. Maðurinn mætti ekki í Héraðsdóm Reykjaness þegar átti að þingfesta málið í gær.

Bjóða upp á skyr

Vefritið Vantrú.is ætlar að bjóða þingmönnum upp á skyr þegar þing verður sett á föstudaginn, til að minna á málstað trúleysingja. Forsvarsmenn heimasíðunnar segja aðalmálefni vefritsins nú vera tengsl ríkis og kirkju sem þurfi að rjúfa. Þessi tengsl sjáist einna best við þingsetninguna, sem að stórum hluta sé kirkjuleg athöfn.

Tveir slasast í árekstri

Tveir karlmenn slösuðust þegar annar þeira missti stjórn á bíl sem þeir voru í á hringtorgi á mótum Lindavegar og Fífuhvammsvegar á fjórða tímanum í dag. Bíllinn hafnaði á ljósastaur og skemmdist töluvert. Svo virðist sem hvorugur mannanna hafi verið í belti og köstuðust þeir báðir í framrúðu bílsins með tilheyrandi afleiðingum.

Ákærður fyrir sex líkamsárásir

Hálfþrítugur þekktur ofbeldismaður í Hafnarfirði tók sér frest til að tjá sig um sex líkamsárásir og vopnalagabrot sem hann er ákærður fyrir þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Ákæra á hendur manninum, fyrir að hafa slegið mann í höfuðið með öxi á veitingastaðnum A.Hansen í Hafnarfirði síðasta dag ágústmánaðar, er í undirbúningi.

Tjaldferðalög að leggjast af

Gestum á tjaldsvæðum þjóðgarðanna á Þingvöllum og í Skaftafelli hefur fækkað um 50 til 60 prósent á fjórtán ára tímabili. Íslendingar gista síður á tjaldstæðunum meðan komur útlendinga standa nánast í stað.

Kviknaði í út frá rafmagni?

Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá rafmagni þegar iðnaðarhúsnæði brann til grunna á Blönduósi í nótt. Tugmilljóna tjón varð í brunanum. Bæjarstjórinn óttast um afleiðingarnar fyrir atvinnumál á staðnum.

Undanþágur í lok vikunnar?

Ef kennaraverkfall stendur enn við lok vikunnar gætu undanþágur vegna fatlaðra barna verið veittar. Tíu undanþágubeiðnir voru teknar fyrir á fundi undanþágunefndar í dag. Fjórar þeirra voru ítrekun á beiðnum vegna kennslu fyrir fötluð börn, sem áður hafði verið hafnað.

Verri afkoma kúabænda

Hagur kúabænda versnaði milli áranna 2002 og 2003 að því er fram kemur í árlegri skýrslu Hagþjónustu landbúnaðarins um uppgjör búreikninga. Skoðaður var rekstur 193 sérhæfðra kúabúa, en til að falla undir þá skilgreiningu þurfa búin að vera með 70 prósent búgreinatekna sinna af afurðum nautgripa.

Krafa um að framkvæmdir stoppi

Nágrannar gamla Eimskipafélagshússins hafa krafist þess að framkvæmdir verði stöðvaðar við fyrirhugað hótel í húsinu. Hvorki liggur fyrir byggingaleyfi né bráðabirgðaleyfi til framkvæmdanna.

Hálfur milljarður í kostnað

Umferðartafir í Reykjavík kosta sendibíla í borginni 525 milljónir á ári hverju, samkvæmt útreikningum Kristins Vilbergssonar, framkvæmdastjóra Dreifingarmiðstöðvarinnar og Vörubíls. Kristinn gerir ráð fyrir að um 5 prósent af heildaraksturstíma sendibíla fari í umferðartafir, eða um 275 klukkustundir í mánuði.

Sauðfjárbændur fá minna í vasann

Í tölum Hagþjónustu landbúnaðarins kemur fram að tekjur sauðfjárbúa, fyrir laun eiganda, hafi lækkað úr 979 þúsund krónum árið 2002 í 837 þúsund krónur árið 2003. Lækkunin nemur 14 prósentum.

Metfjöldi tjaldgesta í Ásbyrgi

Metfjöldi heimsótti Jökulsárgljúfur í sumar að sögn Árna Bragasonar, forstöðumanns umhverfisverndarsviðs Náttúrufræðistofnunar. Hann segir að aldrei hafi fleiri sótt tjaldstæðin í Ásbyrgi og í Vesturdal heim, hvorki Íslendingar né útlendir ferðamenn.

Hátt olíverð hefur minni áhrif hér

Hæsta olíuverð í sögunni hefur viðtæk áhrif, meðal annars hér á landi. Alls hefur olíuverð hækkað um 55% á árinu. Áhrifanna verður vart hér á landi, og ekki bara við bensíndæluna. Útgerðir og aðrir sem þurfa á olíu að halda greiða meira, flutningskostnaður eykst og sá kostnaður streymir að mestu út í verðlag.

Framsókn fundar

Þingflokkur Framsóknarflokksins kom saman til fundar klukkan sex í kvöld til að skipta með sér verkum fyrir komandi þing. Siv Friðleifsdóttir bætist nú í hóp óbreyttra þingmanna eftir að ráðherrum flokksins fækkaði þegar Halldór Ásgrímsson tók við forsætisráðuneytinu.

Munað getur kílói á hvern dilk

Sökum hita og þurrka í sumar kemur fé rýrara af fjalli í haust. Ástandið er misslæmt eftir landshlutum, verst á Norðausturlandi. Fleiri hlutir spila þó inn í varðandi afkomu í sauðfjárrækt.

Lýst eftir stúlku í Keflavík

Lögreglan í Keflavík lýsir eftir Sunnu Dögg Scheving. Hún er 16 ára, til heimilis að Birkiteig 12, Keflavík. Hún er með dökklitað, axlarsítt hár og er um 155 cm á hæð. Ekkert hefur spurst til Sunnu Daggar síðan á sunnudag en þá var hún stödd í Reykjavík og var hún þá í bláum íþróttabuxum og svörtum anorak.

Skorað á bæjarstjórn Kópavogs

Grunnskólakennarar í Kópavogi fjölmenntu á fund forseta bæjarstjórnar í dag til að skora á hann að beita sér fyrir lausn kjaradeilunnar við kennara. Að því loknu flykktust kennarar á bæjarstjórnarfund.

Sjá næstu 50 fréttir