Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sex meinatæknar hætta Sex af sjö meinatæknum sem vinna við blóðrannsóknir á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu hætta störfum frá og með morgundeginum, þar sem þeim hefur verið sagt upp. 30.6.2004 00:01
Þúsundir krafna á skuldseiga Óprúttnir skuldarar leika þann leik að gegna ekki boðun sýslumannsembættisins í Reykjavík, þannig að ekki er hægt að ná til þeirra til að gera fjárnám hjá þeim. Beiðnir hrannast upp hjá embættinu og eru nú orðnar á ellefta þúsund talsins. 30.6.2004 00:01
Héraðsdómur ámælir ákæruvaldið Maður var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af máli þar sem hann var ákærður fyrir að hafa svikið fé úr fjórum tryggingafélögum á árunum 1989 til 1991. Árið 1992 var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald en síðan lá málið hjá lögreglu til ársins 1999. 30.6.2004 00:01
Ekkert bendir til vélarbilunar Ekkert bendir enn til þess að vélarbilun hafi orðið til þess að Dornier-flugvél Íslandsflugs magalenti á flugvellinum á Siglufirði síðastliðinn þriðjudag að sögn Þormóðs Þormóðssonar rannsóknarstjóra. Tveir flugmenn voru í vélinni og sakaði ekki. 30.6.2004 00:01
Tónlistarhátíð MTV á Íslandi Forsvarsmenn MTV sjónvarpsstöðvarinnar tóku vel í hugmyndir kynningarhóps, um að halda tónlistarverðlaun stöðvarinnar hér á landi eftir tvö ár, á fundi sem fram fór í gær. 30.6.2004 00:01
Enn óvissa í varnarmálum Íslands Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að staða varnarliðsins á Miðnesheiði hafi ekki breyst á fundi aðildarríkja NATO. Ísland tekur sífellt aukinn þátt í öryggisstarfi NATO en er ekki að hervæðast, segir ráðherra. 30.6.2004 00:01
Jarðböð tekin í notkun Jarðböð Baðfélags Mývatnssveitar verða formlega tekin í notkun í dag eftir mikla uppbyggingu í svonefndum Jarðbaðshólum í Bjarnarflagi, sem er í fjögurra kílómetra fjarlægð frá Mývatni. Tugir hluthafa standa að Baðfélaginu og má þar nefna Byggðastofnun, KEA og Iðnaðarráðuneytið, auk þess sem Landsvirkjun hefur stutt við verkefnið. 30.6.2004 00:01
Nýtt fjós á Hvanneyri Nýtt kennslu- og rannsóknarfjós rís nú á Hvanneyri. Á vef Landssambands Kúabænda segir að með fjósinu verði mikil breyting á allri kennslu- og rannsóknaaðstöðu í nautgriparækt við Bændaskólann. Þar verður boðið upp á nútímalega aðstöðu fyrir gripi og fólk; kýr og uppeldi verður á legubásum, en kálfar í hálmstíum með sjálfvirkri mjólkurfóðrun. 30.6.2004 00:01
Konunglegri heimsókn lokið Þriggja daga heimsókn norsku krónprinshjónanna, til Íslands, er lokið. Flugu þau Hákon og Mette Marit af landi brott í morgun. Þau komu víða við í heimsókn sinni, og kváðust í ferðalok vera afskaplega ánægð með heimsóknina. Móttökurnar hafi verið yndislega hlýlegar, og þau hafi hitt margt fólk og skoðað marga áhugaverða staði. Hákon og Mette Marit báðu fyrir kveðju og þakklæti til íslensku þjóðarinnar. 30.6.2004 00:01
Hafís norðvestur af Tröllaskaga Skip sá í morgun um 300 metra langan hafísfleka um það bil 60 sjómílur norðvestur af Tröllaskaga. Hann er lágur í sjónum og sést illa með berum augum úr fjarlægð, en ratsjá nemur hann vel. Hann er utan venjulegrar siglingaleiðar og að líkindum ekki borgarís úr Grænlandsjökli, heldur brot úr fastaísnum við Grænlandsstrendur. Veðurstofan fylgist með ferðum flekans eftir því sem hún hefur tök á. 30.6.2004 00:01
Tilboð í línumannvirki opnuð í dag Það ræðst í dag hvaða verktakar munu á næstunni reisa 370 háspennulínumöstur ofan af hálendi til suðvesturhornsins, með tilheyrandi vegalagningu og undirstöðum. Útboðinu er skipt í þrjá áfanga leiðarinnar og verða tilboðin opnuð í dag. 30.6.2004 00:01
Grásleppukarlar fagna Grásleppukarlar um allan heim, eða þar sem þessar veiðar eru á annað borð stundaðar, fagna aldrei þessu vant tvöfalt. Annars vegar hefur veiðin sjaldan verið betri, ekki aðeins hér við land, heldur líka við Nýfundnaland og við Noreg. 30.6.2004 00:01
Vöruskiptahalli vindur upp á sig Vöruskiptahallinn heldur áfram að vinda upp á sig og var tveimur milljörðum króna meiri í síðasta mánuði, en á sama tíma í fyrra. Það er talsverður munur í prósentum talið því hallinn núna er 18,7 milljaðrar á móti 14,9 milljörðum í fyrra. 30.6.2004 00:01
Sektaður fyrir ósæmilega hegðun Sá óvenjulegi atburður varð við aðalmeðferð í opinberu sakamáli í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að dómari greip til þess örþrifaráðs að sekta lögmanninn, sem var verjandi í málinu, um 40 þúsund krónur fyrir ósæmilega hegðun í réttarsalnum. 30.6.2004 00:01
Möguleiki að afturkalla lögin Sá möguleiki er fyrir hendi að ríkisstjórnin afturkalli fjölmiðlalögin, og geri þannig þjóðaratkvæðagreiðslu óþarfa. Stjórnarandstaðan segir að ef svo fari, sé hún reiðubúin til samstarfs um að semja nýtt frumvarp. 30.6.2004 00:01
Skattlagning kemur á óvart Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að innheimta fjármagnstekjuskatt af þeim, sem skipta húsbréfum yfir í nýju peningabréfin. Þetta kemur öllum á óvart, að sögn Halls Magnússonar, sviðstjóra þróunarsviðs íbúðalánasjóðs. 30.6.2004 00:01
Ræða um samstarf eða sameiningu Ákveðið hefur verið að hefja viðræður um samstarf eða sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá formönnum félaganna. Markmiðið með því er að sameina alla þá sem starfa við vélstjórn, vélvirkjun, málmiðnað, veiðarfæragerð og í skyldum greinum í eitt öflugt landsfélag. 30.6.2004 00:01
Aukin aðsókn í kvennaathvarf Töluverð fjölgun er á dvalardögum í kvennaathvarfinu það sem af er árinu þó nokkuð rólegt hafi verið yfir athvarfinu í júní. Dvalardagar kvenna eru orðnir 575 og barna 367. Alls eru því dvalardagar kvenna og barna 942 á fyrri helmingi ársins. Þarna er um töluverða fjölgun að ræða á milli ára því dagar barna og kvenna í dvöl á síðasta ári numu 1501 degi allt árið. 30.6.2004 00:01
Afgreiðslutími skertur Afgreiðslutími Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns verður skertur talsvert í haust. Undanfarin ár hefur verið í gildi samningur milli safnsins og Háskóla Íslands um að Háskólinn borgi hluta af kostnaðinum við að hafa safnið opið fjögur kvöld í viku til klukkan tíu og á sunnudögum. 30.6.2004 00:01
Seinni ferð Herjólfs aflýst Seinni ferð Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs fellur niður í dag vegna bilunar en skipið mun sigla samkvæmt áætlun á morgun. Herjólfur átti að fara frá Eyjum kl. 16:00 og Þorlákshöfn kl. 19:30 og er þeirri ferð aflýst. Viðgerð fer fram í kvöld og fer skipið frá Vestmannaeyjum á morgun klukkan 8:15 samkvæmt áætlun. 30.6.2004 00:01
Sjónmengun af majónesdós "Haldi þetta áfram þá munu auglýsingar við þjóðveginn spretta upp sem gorkúlur og við munum aka um frumskóg af auglýsingaskiltum," segir Steingrímur Gunnarsson leiðsögumaður um risastóra majónesdós frá Gunnars majónes sem búið er að komna fyrir skammt frá Þjórsárbrú og á að vekja athygli ferðalanga. 30.6.2004 00:01
Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Á annan tug starsfmanna Morgunblaðsins hafa fengið uppsagnarbréf, samkvæmt upplýsingum Vísis og taka uppsagnirnar gildi frá og með morgundeginum. Ekki fengust upplýsingar um hve mörgum verður sagt upp. 30.6.2004 00:01
Jarðböð á Mývatni Margra ára draumur Mývetninga um baðlón í sveitinni varð að veruleika í dag þegar jarðböð Baðfélags Mývetninga voru formlega tekin í notkun. Starfsemin hefur verið í undirbúningi í um áratug og nemur kostnaðurinn um hundrað milljónum króna. 30.6.2004 00:01
Segja Heilsugæsluna gera mistök Formaður Meinatæknafélags Íslands segir Heilsugæsluna í Reykjavík hafa gert mistök með því að leggja niður störf allra meinatækna, með þriggja daga fyrirvara. Forstjóri heilsugæslunnar segir að tólf mánaða biðlaunaréttur þeirra tefji fyrir markmiðum um sparnað. 30.6.2004 00:01
Faldi e-töflur hjá ömmu sinni 26 ára gamall maður faldi 480 e-töflur hjá ömmu sinni. Lögreglan réðst inn á heimili ömmunnar og fann fíkniefnin. Maðurinn mætti ekki fyrir dóm í fyrradag og hefur verið gefin út handtökuskipun á manninn. Rætt er við manninn og ömmu hans í nýju DV í dag. 30.6.2004 00:01
Lögmaður dæmdur til sektar Lögmaður sem dæmdur var fyrir að sýna dómara óvirðingu segist ekki skilja hvað hann hafi gert ámælisvert og vill fá skýringar. Hann var dæmdur til sektar. Hann segist ekki hafa verið ókurteis auk þess sem dómarar verði að sætta sig við að vitni séu spurð ítarlega út úr. 30.6.2004 00:01
Tíu sagt upp hjá Morgunblaðinu Tíu starfsmönnum ritstjórnar Morgunblaðsins hefur verið sagt upp, og taka uppsagnirnar gildi um mánaðamótin. Uppsagnirnar byggjast meðal annars á tæknibreytingum og breytingum á skipulagi og efni blaðsins sjálfs. 30.6.2004 00:01
Greiða þarf skatt við skipti Greiða þarf skatt þegar skipt er á húsbréfum og nýju húsnæðisbréfunum sem taka gildi nú um mánaðamótin. Þetta kom forsvarsmönnum Íbúðalánasjóðs gjörsamlega í opna skjöldu. Þeir segja að með breytingunum sé ekki verið að innleysa hagnað, heldur breyta um fjárfestingu. 30.6.2004 00:01
Hitti Nistelrooy Gunnar Ari Kristjánsson, sonur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, hitti hollenska knattspyrnukappann Ruud Van Nistelrooy í Portúgal á dögunum. 30.6.2004 00:01
Andstaðan með eigið frumvarp Stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðsluna um fjölmiðlalögin. Samkvæmt því á einfaldur meirihluti að duga til þess að hafna lögunum. Formaður Samfylkingarinnar segir að ríkisstjórnin sé hrædd við vilja fólksins í landinu. 30.6.2004 00:01
Þögnin er gull, segir Guðni Forystumönnum í Framsóknarflokknum líst illa á hugmyndir sjálfstæðismanna um að gera kröfu um að 44 prósent kosningabærra manna þurfi, til að hafna lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, hvetur til þess að ófriðaröldur verði lægðar í samfélaginu, en telur þó sjálfur mikilvægt að lágmarksskilyrði verði sett. 30.6.2004 00:01
Lettar mótmæltu í Hafnarfirði Lettneskir sjómenn á skipinu Arnarborginni sem liggur við höfn í Hafnarfirði mótmæltu í gær. Þeir eru með 18 þúsund krónur á mánuði í laun og mótmæltu því að þeir fengu ekki borguð launin. Eigandi skipsins er Íslendingur. Meira um málið í DV í dag. 30.6.2004 00:01
Davíð fundar með Bush Davíð Oddsson forsætisráðherra væntir þess að niðurstaða geti fengist um framtíð Keflavíkurstöðvarinnar á fundi með George Bush í Hvíta húsinu á þriðjudaginn kemur. Bandaríkjaforseti býður til fundarins, en á honum á að ræða um alþjóðamál og samskipti landanna. Davíð segir fundinn í Washington engin áhrif hafa á fyrirhugaða fundi Alþingis á sama tíma. 30.6.2004 00:01
Hugsanlega sæst á skilyrði um 1/3 Enn á ný standa stjórnarflokkarnir frammi fyrir því að þurfa að ná lendingu í stórmáli sem flokkarnir eru í aðalatriðum ósammála um. Nú eru það lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Líklegt þykir að flokkarnir sættist á skilyrði um þriðjung. 30.6.2004 00:01
Þjóðarbókhlaðan minna opin Formaður Stúdentaráðs segir styttri afgreiðslutíma Þjóðarbókhlöðunnar bakslag fyrir baráttu stúdenta fyrir betri aðgangi að Háskólanum. Rektor segir þjónustu við nemendur aukast og Háskólann spara þrettán milljónir. 30.6.2004 00:01
Fá 260 milljónir fyrir hitaveituna Minnihluti bæjarstjórnar segir upphæðina ekki réttlæta söluna. Fjölmörg vafamál séu ekki afgreidd í samningnum. Forseti bæjarstjórnar segir söluna gríðarlegan kost fyrir bæjarbúa og verðið ásættanlegt. Meirihlutinn felldi tillögu minnihlutans um borgarafund. 30.6.2004 00:01
Lögreglan tekur ekki skuldarana Lögreglan hefur ekki sinnt þeim skyldum sínum að handtaka skuldara, sem hunsað hafa boðun sýslumanns, og færa þá til embættisins, að sögn formanns Lögmannafélags Íslands. Hann segir þetta óþolandi með öllu. 30.6.2004 00:01
Ónóg virðing fyrir öldruðum Ónóg virðing fyrir einkamálum aldraðra á fimm öldrunarstofnunum, og skortur á sjálfræði er meðal þess sem fram kemur í athyglisverðri könnun sem birt hefur verið. Æskilegt er að fólkið taki virkari þátt í sínu daglega umhverfi. 30.6.2004 00:01
93% ætla að kjósa um fjölmiðlalög 93% landsmanna telja líklegt að þeir taki þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. RÚV skýrði frá þessu í gær. Rúmlega sex af hverjum tíu sögðust ætla að greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum en þrír af hverjum tíu sögðust munu greiða atkvæði með þeim. 29.6.2004 00:01
Ákærður fyrir 480 e-töflur Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir að hafa haft, í október í fyrra, 480 e-töflur og tæp þrjú grömm af töflumulningi í sinni vörslu á heimili sínu. Hann er sakaður um að hafa ætlað fíkniefni til sölu hér á landi. 29.6.2004 00:01
Fimm fluttir á sjúkrahús Fimm ferðamenn voru fluttir með sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að bíll þeirra valt á Vatnaleið á Snæfellsnesi seinnipart sunnudags. Að sögn lögreglunnar í Stykkishólmi voru meiðsl þeirra ekki alvarleg en bíllinn er mjög illa farinn og talinn ónýtur. 29.6.2004 00:01
Skipið í Straumsvík í skoðun hér Súrálskipið sem losnaði af standstað út af Straumsvík í gær fer í sérstaka skoðun hér á landi samkvæmt Parísarsamkomulaginu svonefnda um öryggi skipa. Komið er í ljós að það hefur tvisvar verið stöðvað á jafn mörgum árum fyrir að framfylgja ekki samkomulaginu en það nær m.a. til ýmissa öryggisþátta. 29.6.2004 00:01
Tveir vélhjólaökumenn slasast Tveir ökumenn torfærumótorhjóla slösuðust í gærkvöldi þegar þeir voru að æfa sig. Annars vegar stakkst hjól inn í fyrirstöðu á æfingasvæðinu á Álfsnesi þannig að ökumaður kastaðist fram á stýrið og meiddist á brjósti. 29.6.2004 00:01
Kona slasast í bílveltu Þýsk ferðakona slasaðist alvarlega þegar bíll sem hún var í valt út af þjóðveginum sunnan við Húsavík í gærkvöldi. Hún var fyrst flutt ásamt annarri konu úr bílnum á Sjúkrahúsið á Akureyri og síðan með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík þar sem hún liggur nú. 29.6.2004 00:01
Fiskveiðideila í uppsiglingu Enn ein fiskveiðideilan við Norðmenn kann að bresta á í sumar og eru gagnkvæmar hótanir þegar hafðar uppi. Flestir muna líklega eftir Smugudeilunni svonefndu sem blossaði upp fyrir tæpum áratug vegna þorskveiða íslenskra skipa á alþjóðlegu hafsvæði á milli Noregs og Íslands. 29.6.2004 00:01
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent