Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meðferð Palestínumannanna gagnrýnd Tveimur af þremur Palestínumönnum, sem handteknir voru með fölsuð vegabréf fyrir skömmu, var í dag vísað úr landi, og sá þriðji fer á morgun. Meðferð mannanna er gagnrýnd og segja lögmenn þeirra málsmeðferð brenglaða. 22.6.2004 00:01
Greenpeace mótmælt á Ísafirði Sonur ísfirsks hvalveiðimanns sigldi ítrekað í veg fyrir flaggskip Grænfriðunga þegar það var að leggjast að í Ísafjarðarhöfn í morgun. Flaggskip Greenpeace samtakanna Esperanza sigldi inn á Skutulsfjörð í morgun en Ísafjörður er fyrsti viðkomustaðurinn í tveggja vikna heimsókn skipsins til Íslands. 22.6.2004 00:01
Stjórnvalda að lækka matvöruverð Varaformaður Samfylkingarinnar segir það í höndum stjórnvalda að lækka matvælaverð hér á landi og þau geti ekki vísað ábyrgðinni á því eitthvert annað. Nær væri að lækka skatt á matvöru en tekjuskatt. 22.6.2004 00:01
Svartsýnisspá um stjórnarskrá Ný stjórnarskrá Evrópusambandsins kemur endanlega í veg fyrir að Ísland og Noregur gangi nokkurn tímann í sambandið, segir í umfjöllun norska Fiskeríblaðsins um nýju stjórnarskrána. Íslenska sérfræðinga í Evrópumálum greinir á um hvort hér sé einungis um að ræða svartsýnisspá. 22.6.2004 00:01
Gífurlegar væntingar Gríðarlegar væntingar eru til fyrirtækja á íslenska hlutabréfamarkaðnum sem er í algerum sérflokki á heimsvísu. Úrvalsvísitalan hefur hækkað meira en 40 prósent á árinu og hefur skilað þrefaldri ávöxtun miðað við norska markaðinn sem næstur kemst þeim íslenska. 22.6.2004 00:01
Hvellir hvekktu flugfarþega "Það komu þrír háværir hvellir hver á eftir öðrum og eldtungur stóðu úr einum hreyflinum í smástund," segir Vernharður Linnet dagskrárgerðarmaður, en hann var ásamt 150 öðrum Íslendingum á leið úr sumarfríi á eynni Krít þegar miklir hvellir heyrðust í hreyfli vélar Icelandair við flugtak. 22.6.2004 00:01
Húsflugan að drepa allt og alla "Húsflugan er að drepa allt og alla núna," sagði Smári Sveinsson, meindýraeyðir hjá Varnir og eftirlit. "Það er allt fullt hjá fólki og fyrirtækjum og Mosfellsbær er gjörsamlega að kafna í þessu," bætti hann við. 22.6.2004 00:01
Nemar komast í framhaldsskóla Alls hafa 6.606 nemendur sótt um innritun í framhaldskóla á næstu haustönn sem eru um 700 fleiri en gert er ráð fyrir í fjárlögum. Aðstoðarmaður menntamálaráðherra segir í fjarveru hans að allir sem komi beint úr grunnskólum landsins fái að stunda nám í framhaldskóla óski þeir þess. 22.6.2004 00:01
Öruggt endurkjör Ólafs Ragnars Ólafur Ragnar Grímsson hlýtur öruggt endurkjör sem forseti Íslands, ef niðurstöður forsetakosninga á laugardag verða í samræmi við skoðanakönnun Fréttablaðsins. Af þeim sem gerðu upp á milli frambjóðendanna þriggja ætluðu níu af hverjum tíu að kjósa Ólaf Ragnar, tæplega átta prósent sögðust myndu styðja Baldur Ágústsson og um tvö prósent Ástþór Magnússon. 22.6.2004 00:01
Hafna þúsund nemendum Að óbreyttu mun Kennaraháskóli Íslands neyðast til að hafna samanlagt tæplega eitt þúsund umsækjendum á næsta skólaári. Þetta kemur fram í frétt frá skólanum. 22.6.2004 00:01
Ólafur Ragnar með 70% fylgi Ólafur Ragnar Grímsson hlýtur öruggt endurkjör sem forseti Íslands, ef niðurstöður forsetakosninga á laugardag verða í samræmi við skoðanakönnun Fréttablaðsins. 22.6.2004 00:01
Fimmtungur skilar auðu á laugardag Útlit er fyrir að fimmtungur kjósenda skili auðu í forsetakosningunum á laugardaginn kemur, að því er fram kemur í skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var í gær. Þegar allt er talið ætlar fjórðungur landsmanna annað hvort að sitja heima eða skila auðu. 22.6.2004 00:01
Mikill hraði á Mýrdalssandi Lögreglan í Vík og á Kirkjubæjarklaustri stöðvaði fimm ökumenn í gær, sem óku á yfir 140 kílómetra hraða og mældist sá sem hraðast fór á 167 kílómetra hraða. Hefði hraði hanns mælst einum kílómetra meiri, hefði hann verið sviptur ökuréttindum á staðnum í þrjá mánuði. 21.6.2004 00:01
Eldur í Erlingi Allt tiltækt lið brunavarna Suðurnesja var í nótt kvatt að fiskiskipinu Erlingi, sem var í Njarðvíkurhöfn, þar sem rauðbleikar eldtungur stóðu upp úr skipinu aftanverðu og mikinn reyk lagði frá því. Þegar til kom reyndist hafa kviknað í neyðarbauju og hlaust lítið tjón af. Verið er að rannsaka hvers vegna eldur kviknaði í baujunni. 21.6.2004 00:01
Sjúkir fluttir loftleiðis Karlmaður, sem var einn á ferð, var fluttur á heilsugæslustöðina í Patreksfirði í nótt eftir að hann velti bíl sínum í Mikladal, skammt frá bænum. Eftir aðhlynningu var hann fluttur með sjúkarflugvél til Reykjavíkur og lagður inn á Landsspítalann, en mun þó ekki vera alvarlega slasaður. 21.6.2004 00:01
0,33 % hækkun á byggingavísitölu Vísitala byggingakostnaðar hækkaði um 0,33% frá fyrri mánuði en vísitalan fyrir júlímánuð er 300,8 stig. Er hún er reiknuð eftir verðlagi um miðjan júní. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingakostnaðar hækkað um 5%. 21.6.2004 00:01
Dvdmyndir.com ákærð Forsvarsmenn vefsins dvdmyndir.com voru kærðir til lögreglu þann 16. júní af SMÁÍS, samtökum myndrétthafa. Samkvæmt fréttatilkynningu frá samtökunum hefur þessi síða verið starfrækt undanfarna mánuði en á henni á að vera hægt að kaupa DVD myndir sem sumar hverjar eigi enn eftir að sýna í kvikmyndahúsum. 21.6.2004 00:01
Jarlinum skipt út Eimskipafélag Íslands ehf. hefur gert samning um smíði á færanlegum hafnarkrana og verður kraninn sá stærsti sinnar tegundar hér á landi. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að fjárfestingin sé liður í að auka framleiðni skipaafgreiðslu félagsins í Sundahöfn og bæta þjónustu við viðskiptavini. 21.6.2004 00:01
19 þúsund fleiri á kjörskrá Hátt í nítján þúsund fleiri verða á kjörskrá fyrir forsetakosningarnar núna, en voru fyrir síðustu forsetakosningar árið 1996. Þetta er fjölgun upp á tæp tíu prósent. Samkvæmt kjörskrárstofni sem Hagstofan hefur unnið fyrir sveitarfélögin til að semja kjörskrár eftir, mega 213.553 kjósa núna. 21.6.2004 00:01
30 hreinar hafnir Aðeins 30 hafnir af 76 hér á landi verða svonefndar hreinar hafnir um næstu mánaðamót, samkvæmt alþjóðlegum staðli um siglingavernd gegn hryðjuverkum. Hinsvegar munu 80 hafnarsvæði falla undir hugtakið en mörg hafnarsvæði geta verið í einni höfn, til dæmis eru níu hafnarsvæði í Reykjavíkurhöfn. 21.6.2004 00:01
Ísland, dýrast í heimi Ísland er dýrasta ferðamannaland í heimi og Egyptaland það ódýrasta, samkvæmt útreikningum breska fyrirtækisins ECA fyrir norska blaðið Verdens Gang. Þar er ferðamannavísitalan stillt á hundrað í Noregi, og skoðað í allar áttir. 21.6.2004 00:01
Ísland, dýrast í heimi Ísland er dýrasta ferðamannaland í heimi og Egyptaland það ódýrasta, samkvæmt útreikningum breska fyrirtækisins ECA fyrir norska blaðið Verdens Gang. Þar er ferðamannavísitalan stillt á hundrað í Noregi, og skoðað í allar áttir. 21.6.2004 00:01
Geir H. Haarde í Eistlandi Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, situr fyrir Íslands hönd, forsætisráðherrafund ríkja Eystrasaltsráðsins, sem haldinn er í Tallinn í Eistlandi í dag. Ráðið var sett á laggirnar árið 1992, en auk Íslands sitja meðal annars Rússar, Þjóðverjar, Norðmenn, og Eystasaltsríkin Lettland, Litháen og Eistland. 21.6.2004 00:01
Jón Steinar íhugar umsókn Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor í lögfræði, segist vera að íhuga að sækja um stöðu dómara við Hæstarétt. Hann telur það verðugt fyrir mann sem gagnrýnt hefur Hæstarétt að starfa innan réttarins. 21.6.2004 00:01
UMFÍ íhugar að höfða mál Björn B. Jónsson, formaður Ungmennafélags Íslands, segir það óréttlátt og ósanngjarnt að aðstandendur landsmótanna séu skikkaðir til að greiða löggæslukostnað vegna mótanna. UMFÍ íhugar að höfða mál vegna greiðslu löggæslukostnaðar á unglingalandsmóti. 21.6.2004 00:01
Fleiri uppsagnir hjá varnarliðinu Um tuttugu starfsmönnum flotastöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem varnarliðið sendi frá sér í dag og hafa þessar ráðstafanir verið kynntar íslenskum stjórnvöldum. 21.6.2004 00:01
Líklega tekin afstaða í dag Hæstiréttur tekur væntanlega afstöðu í dag til kæru á gæsluvarðhaldsúrskurði yfir þremur Palestínumönnum, sem vísa á úr landi. Mennirnir komu til Íslands með Norrænu í byrjun maí og framvísuðu fölsuðum eða stolnum vegabréfum við komuna til landsins. 21.6.2004 00:01
Störf ráðsins áfram mikilvæg Samstarfið við Rússland innan Eystrasaltsráðsins hefur skilað góðum árangri, sagði Geir Haarde, fjármálaráðherra, á leiðtogafundi ráðsins sem haldinn var í Eistlandi í dag, en Geir sat fundinn í fjarveru Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra. 21.6.2004 00:01
Minni sala á nautakjöti Sala á nautakjöti var 13,5 % minni í maí miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt yfirliti frá Landssamtökum sláturleyfishafa. Sömu sögu má segja um sölu á 12 mánaða tímabili, frá 1. júní 2003 til 31. maí 2004 hefur salan dregist saman um 18.1 tonn miðað við sama tímabil árið áður. 21.6.2004 00:01
Lítill áhugi meðal ungmenna Þeir sem fá að kjósa í fyrsta sinn í forsetakosningum að þessu sinni, vegna aldurs, eru 16,2 prósent kjósenda. Nokkur ungmenni voru spurð út í kosningarnar á förnum vegi en kosningarnar fara eins og flestir vita fram á laugardag. 21.6.2004 00:01
Ólafur með álíka fylgi og Vigdís Ólafur Ragnar Grímsson virðist njóta álíka fylgis og Vigdís Finnbogadóttir í forsetakosningunum 1988, þegar litið er til þeirra sem taka afstöðu til frambjóðenda. Samkvæmt könnun Gallup stefnir þó í að auðir seðlar og ógildir verði margfalt fleiri að þessu sinni. 21.6.2004 00:01
Vesturlandsvegur tvöfaldaður Vegagerðin bauð í dag út tvöföldun Vesturlandsvegar milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Verkið er boðið út í samvinnu við sveitarfélögin tvö en tvöfalda á kaflann milli Víkurvegar í Reykjavík og Skarhólabrautar í Mosfellsbæ, samtals þrjá og hálfan kílómetra. 21.6.2004 00:01
Samningar í sjónmáli Sjónvarpsstjóri Skjás eins segir samningaviðræður um enska boltann vera á lokametrunum og að allar líkur séu á að samningar náist á næstu dögum. Tilkynning um hvernig útsendingum verður háttað og hverjir sjái um lýsingar leikja verði gefin út öðru hvoru megin við næstu helgi. 21.6.2004 00:01
Dýrðarveður á Suðvesturhorninu Dýrðarveður hefur verið á Suðvesturhorninu þennan lengsta dag ársins. Sumarsólstöður eru í dag, og munu nótt og dagur renna saman í eitt á norðanverðu landinu. Hitinn á höfuðborgarsvæðinu fór víða í tuttugu gráður. 21.6.2004 00:01
Aðgangur barna að klámefni eykst Aðgangur barna að ýmis konar klámefni eykst stöðugt og veldur áhyggjum víða. Starfsmenn Barnahúss sjá skýra tengingu á milli þess og fjölgunar tilfella þar sem grunur leikur á að ósakhæf börn beiti önnur börn kynferðislegu ofbeldi. 21.6.2004 00:01
Opinberum gjöldum um að kenna Ísland er dýrasta ferðamannaland í heimi samkvæmt útreikningum breska fyrirtækisins ECA fyrir norska blaðið Verdens Gang. Fólk í ferðaþjónustu og veitingarekstri segir opinberum gjöldum um að kenna og að smásöluálagning sé hlægilega lág hér á landi miðað við önnur lönd. 21.6.2004 00:01
600 skólapláss vantar Fjárveitingu vantar fyrir að minnsta kosti fimm- til sjöhundruð nemendur sem sótt hafa um framhaldsskólanám næsta haust. Formaður félags íslenskra framhaldsskóla segir að vandinn hafi verið fyrirsjáanlegur, en ekkert hafi verið að gert og úr því sem komið er verði hann líkast til leystur með því að troða í skólana. 21.6.2004 00:01
Aðeins Íslendingum sagt upp Aðeins Íslendingum er fórnað á niðurskurðarborðinu hjá Varnarliðinu. Nærri 150 manns hefur verið sagt upp frá því í október á síðasta ári, þar af 20 frá næstu mánaðamótum. Óbreyttum, bandarískum starfsmönnum hefur hins vegar ekki fækkað 21.6.2004 00:01
Tillögur að þjóðarblómi kynntar Tuttugu tillögur að þjóðarblómi verða kynntar í Árbæjarsafninu í Reykjavík í dag. Fyrir nokkru var lýst eftir tilnefningum við góðar undirtektir en þetta er niðurstaða þeirrar vinnu. 20.6.2004 00:01
Albatros heldur frá landinu Skemmtiferðaskipið Albatros var strandaglópur hér á landi í þrjá daga vegna skemmda. Skipið hélt úr Straumsvíkurhöfn í hádeginu í gær eftir að gert hafði verið við skemmdir á skipinu. 20.6.2004 00:01
Erill hjá lögreglunni Mikill erill hefur verið hjá lögreglu víða um land um helgina og jafnvel frá því fyrir sautjánda júní. Á Akureyri hefur verið í ýmsu að snúast, ölvun, ölvunarakstur og pústrar, án þess þó að stórslys hafi hlotist af. 20.6.2004 00:01
Ráðherra tekur undir með rektor HÍ Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tekur undir með Páli Skúlasyni, rektor Háskóla Íslands í ræðu hans við brautskráningu við skólann í gær, að nauðsynlegt sé að vanda umræður og huga að rökum viðmælenda sinna. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns, <a href="http://www.bjorn.is" target="_blank">www.bjorn.is</a> 20.6.2004 00:01
Lögregla óskar aðstoðar Lögreglan í Reykjavík biður almenning um aðstoð við að upplýsa hver konan er sem fannst látin í fjörunni neðan við Fossvogskirkjugarð í Fossvogi rétt fyrir klukkan þrjú í gær. 20.6.2004 00:01
Ólafur hefði neitað EES-samningnum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar því að Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti landsins, telji málskotsréttinn svo virkan að hún hefði talið rétt að vísa Kárahnjúkamálinu til þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann segir að ummæli Vigdísar styrki ákvörðun hans um að skrifa ekki undir fjölmiðlalögin. 20.6.2004 00:01
Kennsl borin á konuna Lögreglan í Reykjavík hefur fengið upplýsingar um hver konan er sem fannst látin í fjörunni í Fossvogi síðdegis í gær. Eftir að gefin var út lýsing á konunni í fjölmiðlum í hádeginu hafði einstaklingur kunnugur henni samband við lögregluna. 20.6.2004 00:01