Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gosið gjörbreytist með lækkandi sól Nokkur kraftur virðist vera í eldgosinu í Fagradalsfjalli um þessar mundir. Þegar þetta er skrifað er tekið að rökkva og því sést eldhraunið enn betur en í björtu, hvort sem það er á staðnum sjálfum eða með hjálp vefmyndavélar Vísis. 10.8.2021 22:28
Segir ósamræmi í stefnu ríkisstjórnar og menntamálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður í allsherjar- og menntmálanefnd þingsins, er gagnrýnin á Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, vegna óljósra skilaboða um hvernig skólahaldi verður háttað í haust. 10.8.2021 22:03
Ráðherra samþykkir bólusetningu barna Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19, með bóluefni Pfizer. 10.8.2021 21:44
Tveir fullbólusettir bættust á gjörgæslu Þeim sem lagst hafa inn á gjörgæslu á Landspítalanum í þessari bylgju kórónuveirufaraldursins hefur fjölgað úr sex í átta í dag. Þetta má ráða úr tilkynningu sem spítalinn sendi frá sér í dag. 10.8.2021 21:30
Fjórðungur landsmanna kominn með Covid-kvíða Kvíði landsmanna hefur aukist mikið samhliða vexti faraldursins og segist nú fjórðungur þjóðarinnar kvíðinn vegna Covid-19. Biðlistar eftir sálfræðiaðstoð hjá Kvíðameðferðarstöðinni hafa aldrei verið eins langir og nú. 10.8.2021 21:01
Władze planują przedłużenie obecnych obostrzeń Do 27 sierpnia będzie obowiązywać zakaz zgromadzeń powyżej 200-osób i zasada jednego metra odległości. 10.8.2021 20:43
Gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir svifasein viðbrögð við skýrslu um loftslagsmál Þingmaður stjórnarandstöðunnar gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir svifasein viðbrögð við skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og spyr hvort gripið verði til aðgerða. 10.8.2021 20:30
Islandia odradzana jako cel podróży Amerykańskie Centrum Kontroli i Zapobiegania Chorobom (CDC) w pełni odradza Amerykanom podróżowanie do Islandii. 10.8.2021 20:17
Sjö byssum stolið á síðasta ári Flestar byssur sem notaðar eru í glæpum hér á landi eru þýfi. Sjö byssum var stolið á síðasta ári og segir lögreglufulltrúi að þær finnist yfirleitt hjá góðkunningjum lögreglunnar. 10.8.2021 19:47
Áhyggjufull vegna loftslagsbreytinga: „Aumingja barnabarnabarnabörnin mín“ Fólk sem fréttastofa ræddi við hefur áhyggjur af hlýnun jarðar. Sumir telja ríkisstjórnina ekki gera nóg og ein óttast að barnabarnabarnabörnin muni eiga slæma tíma á jörðinni. 10.8.2021 19:38
Taka þurfi mark á ábendingum varðandi spítalann Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skipta miklu máli að tekið sé mark á þeirri vinnu sem unnin hefur verið í tengslum við stöðuna á Landspítalanum og afköst innan stofnunarinnar. 10.8.2021 18:54
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum á samtengdum rásum Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30 fjöllum við ítarlega um blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og ræðum við ráðherra. 10.8.2021 18:15
Telur ótækt að láta veiruna ganga óhindraða um samfélagið Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að á hverjum degi sé unnið að því að bregðast við stöðunni á Landspítalanum, en líkt og fjallað hefur verið um eru blikur á lofti um hvort spítalinn ráði við mikið fleiri innlagnir af völdum Covid-19. Hún segir ljóst að óhindruð útbreiðsla myndi valda miklu álagi á heilbrigðiskerfið. 10.8.2021 17:55
Vill rjúfa þing á fimmtudag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun leggja til við forseta Íslands að þing verði rofið fimmtudaginn 12. ágúst. Alþingiskosningar fara fram 25. september næstkomandi. 10.8.2021 16:58
Cuomo hættir í skugga ásakana Andrew Cuomo hefur sagt af sér sem ríkisstjóri New York-ríkis. Það gerir hann eftir að ríkissaksóknari ríkisins birti skýrslu þar sem ríkisstjórinn er sakaður um áreitni í garð ellefu kvenna. 10.8.2021 16:14
200 manna samkomubann framlengt um tvær vikur Heilbrigðisráðherra hyggst framlengja gildandi sóttvarnatakmarkanir innanlands um tvær vikur í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Verður því 200 manna samkomumann og eins metra regla í gildi til og með 27. ágúst. Núgildandi reglugerð átti að gilda til og með næsta föstudegi. 10.8.2021 16:14
Nýjar sprungur á Gónhóli við eldstöðvarnar Nýjar sprungur sjást nú í Gónhóli nálægt eldstöðvunum við Fagradalsfjall og virðast þær hafa myndast á síðastliðnum tveimur vikum. Ekki er hægt að útiloka að sprungumyndanirnar séu til marks um að kvika sé að færast nær yfirborði við Gónhól, þar sem þyrlum hefur meðal annars verið lent með farþega. 10.8.2021 15:24
Ríkisstjórnin kynnti aðgerðir á blaðamannafundi Ríkisstjórnin mun kynna næstu skref í innanlandsaðgerðum á blaðamannafundi klukkan 16. Fundurinn er sendur út frá Grindavík þar sem ríkisstjórnin hefur fundað í dag. 10.8.2021 15:00
Tíminn nýttur til hins ýtrasta til að ræða atvinnuleysi og ógn af eldgosinu Fulltrúar sveitarstjórna á Suðurnesjum funda nú með ríkisstjórninni í Grindavík. Þeir ætla sér að nýta þá tvo tíma sem þeir fá með ráðherrum vel til að vekja athygli á helstu hagsmunamálum svæðisins. 10.8.2021 13:55
Hver borgin fellur á fætur annarri Vígamenn Talibana hafa hert tök sín á yfirráðasvæðum þeirra í norðurhluta Afganistans og virðast þeir vera að undirbúa sig fyrir það að stjórna svæðum þessum til lengri tíma. Stjórnarher landsins á undir högg að sækja en Bandaríkjamenn segja það á ábyrgð Afgana sjálfra að verjast Talibönum. 10.8.2021 13:14
Ekki ástæða til að herða aðgerðir á meðan flestir eru með væg einkenni Sóttvarnalæknir telur ekki ástæðu til að grípa til harðari innanlandsaðgerða á meðan faraldurinn valdi mestmegnis tiltölulega vægum einkennum hjá bólusettu fólki. Hann telur þó óráðlegt að slaka á aðgerðum eins og staðan er núna. 10.8.2021 12:12
Haraldur Ingi efstur á lista Sósíalista í Norðausturkjördæmi Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ, mun leiða lista Sósíalista í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Framboðslisti flokksins í kjördæminu var birtur nú á tólfta tímanum en Margrét Pétursdóttir, verkakona, mun taka annað sæti á listanum. 10.8.2021 12:07
Telur að lykkja á línu John Snorra hafi reynst örlagarík Úkraínski fjallgöngugarpurinn Valentyn Sypavin telur að John Snorri Sigurjónsson hafi lent í eins konar sjálfheldu eftir að línan sem hann hékk í á niðurleið niður K2 hafi verið föst í lykkju. Hann telur ólíklegt að John Snorri hafi haft þrek til þess að koma sér úr þessum aðstæðum. 10.8.2021 11:36
Fundi ríkisstjórnar lokið en ráðherra veitir ekki viðtal Ríkisstjórnin situr á árlegum sumarfundi sínum í Salthúsinu í Grindavík þar sem aðgerðir innanlands vegna Covid-19 eru til umræðu. Núverandi aðgerðir til þriggja vikna, sem fela meðal annars í sér 200 manna samkomubann og eins metra reglu, gilda til föstudagsins 13. ágúst. 10.8.2021 11:26
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum greinum við frá nýjustu tölum í kórónuveirufaraldrinum. Við heyrum einnig í Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra sem gagnrýnir stjórnendur í heilbrigðiskerfinu fyrir hvernig spilað hafi verið úr auknum framlögum til heilbrigðismála á undanförnum árum. 10.8.2021 11:24
Hvetur efasemdafólk um bólusetningar til að rölta um kirkjugarða borgarinnar Ónæmisfræðingur segir mikinn sigur að bóluefnin sem hafi ekki verið þróuð gegn delta-afbrigðinu veiti eins góða vörn gegn alvarlegum veikindum og raun ber vitni. Hann hvetur þá sem vilja ekki láta bólusetja sig til að skoða legsteina barna sem fallið hafa í fyrri faröldrum. 10.8.2021 11:12
Fiðluleikararnir megi sín lítils ef stjórnandinn er ekki með á nótunum Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skýtur föstum skotum að stjórnendum Landspítalans og segir ótækt að „stíflur í kerfinu“ séu að valda því að grípa þurfi til almennra sóttvarnaaðgerða til að standa vörð um spítalann. 10.8.2021 10:56
Að minnsta kosti 97 greindust smitaðir af veirunni Að minnsta kosti 97 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum. 10.8.2021 10:51
Fjöldi gekk langt inn á hraunið til að komast að rauðglóandi hrauni Töluverður fjöldi fólks lagði leið sína upp á nýtt hraunið við eldgosið í Fagradalsfjalli í gær, til þess að komast nær rauðglóandi hrauni. Ítrekað hefur verið varað við slíku athæfi. 10.8.2021 10:22
Segir upplýsingar um framhald aðgerða eiga að liggja fyrir í hádeginu Spurð að því hvaða sóttvarnaaðgerðir tækju við í lok vikunnar, þegar núverandi aðgerðir falla úr gildi, hvatti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra til þolinmæði og sagði að það myndi liggja fyrir í hádeginu. 10.8.2021 10:13
Loftslagsaðgerðir verði kosningamál allra flokka Loftslagsstefna Íslands þarf að taka róttökum breytingum og allir flokkar og fjölmiðlar verða að gera loftslagsaðgerðir að ríkjandi kosningamáli sínu í Alþingiskosningunum í september. Þetta eru kröfur náttúruverndarsamtakanna Landverndar eftir að nýjasta vísindaskýrsla Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar birtist í gær. 10.8.2021 09:33
Jónas Þórir Þórisson er látinn Jónas Þórir Þórisson kristniboði lést á Landspítalanum sunnudaginn 8. ágúst, 77 ára að aldri. Jónas starfaði sem kristniboði í Eþíópíu ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Ingvarsdóttur, á árunum 1973 til 1987. 10.8.2021 09:23
Langtíma sóttvarnaaðgerðir ekki kynntar í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki reiknað með að í dag verði kynntar sóttvarnaaðgerðir til lengri tíma. En ríkisstjórnin kemur saman til reglulegs fundar á Suðurnesjum í dag og fundar einnig með sveitarstjórnarfólki þar. 10.8.2021 08:36
Vald Sjálfstæðisflokksins byggi á þjónkun annarra flokka Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segir Sjálfstæðisflokkinn ekki í neinum tengslum við meginþorra almennings en sækja sterka stöðu sína til „þjónkunnar forystu annarra flokka við auðvaldið“. 10.8.2021 08:32
Óttast útrýmingu eftir svarta loftslagsskýrslu Fulltrúar fimmtíu þróunarríkja sem eru í einna mestri hættu vegna loftslagsbreytinga af völdum manna óttast að ríkin séu á barmi útrýmingar verði ekki gripið til aðgerða hratt. Í nýrri loftslagsskýrslu er gert ráð fyrir að markmið um takmörkun hlýnunar sem var sett til að vernda viðkvæm eyríki bresti líklega strax á næsta áratug. 10.8.2021 08:30
Sjálfsvígum fjölgar í Kenía Nærri 500 manns hafa tekið eigið líf í Kenía það sem af er ári en allt árið í fyrra nam fjöldinn 320. Yngsta manneskjan var níu ára og sú elsta 76 ára, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti landsins. 10.8.2021 08:07
Umferð stöðvaðist þegar stóð á Turnbrúnni Turnbrúin sögufræga í London festist í stöðu í nærri því hálfan sólarhring í gær með tilheyrandi umferðartöfum. Lögregla sagði að brúin hefði verið lokuð vegna „tæknilegrar bilunar“. 10.8.2021 07:24
Biðst afsökunar á því að gróðureldarnir geisi enn Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands, hefur beðist afsökunar á að ekki hafi tekist að ráða niðurlögum skógarelda í landinu. Jafnvel þótt allt hafi verið gert sem í mannlegu valdi standi til að kæfa eldana hafi það oft á tíðum ekki reynst nóg. 10.8.2021 07:13
Ísland komið í hæsta áhættuflokk vestanhafs Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) ráðleggur Bandaríkjamönnum nú alfarið frá ferðalögum til Íslands vegna stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi. Ísland er nú komið í hæsta áhættuflokk; orðið „rautt“ í bókum vestanhafs. 10.8.2021 07:01
Kínverskur áfrýjunardómstóll staðfestir dauðadóm yfir Kanadamanni Áfrýjunardómstóll í Kína hefur staðfest þyngingu á dómi yfir Kanadamanni úr fimmtán ára fangelsi í dauðadóm fyrir að hafa reynt að smygla tæplega 230 kílóum af metaamfetamíni frá Kína til Ástralíu árið 2014. 10.8.2021 06:42
Fluttur á Landspítala eftir hópárás Lögregla var kölluð á vettvang rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi þegar tilkynnt var um líkamsárás í miðborginni. Þar hafði hópur manna ráðist á mann, með þeim afleiðingum að hann verkjaði um allan líkamann. 10.8.2021 06:34
Kraumandi kvika og stríður hraunelgur Magnað myndband af kraumandi kviku og stríðum hraunelg náðist þegar flogið var yfir eldgosið í Fagradalsfjalli í gær. „Gígurinn er barmafullur af kviku og byrjað að flæða yfir barmana,“ segir á Facebook-síðu Eldfjallafræði og náttúruvárhóp Háskóla Íslands. 10.8.2021 06:22
Fleyttu kertum til minningar um fórnarlömbin í Hírósíma og Nagasaki Í kvöld fór fram kertafleyting á Reykjavíkurtjörn, til minningar um fórnarlamba kjarnorkusprengjuárásar Bandaríkjanna á japönsku borgirnar Nagasakí og Hírósíma árið 1945. Samtarfshópur friðarhreyfinga hefur staðið fyrir atburðinum síðastliðin 36 ár. 9.8.2021 23:18
Tók á að lesa skýrslu um loftslagsbreytingar Samtök ungra umhverfissinna stóðu fyrir loftslagsmótmælum á Austurvelli í dag í tilefni nýrrar skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Formaður samtakanna segir að sér hafi brugðið þegar hún las skýrsluna. 9.8.2021 23:00
Andrés prins kærður fyrir nauðgun Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Kærandi í málinu er Virginia Giuffre, sem segir brot Andrésar gegn sér hafa átt sér stað þegar hún var sautján ára gömul. 9.8.2021 22:34