Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fólk verður að yfirgefa svæðið í síðasta lagi klukkan fimm Seinni partinn í dag og á morgun verður ekki óhætt að vera nálægt eldstöðvunum í Geldingadal vegna gasmengunar. Náttúruvársérfræðingur segir að fólk verði að hafa yfirgefið svæðið fyrir klukkan fimm, í síðasta lagi. Við eldgosið séu skaðlegar gastegundir og meðal annars ein sem fólk hvorki sér né finnur lykt af. 23.3.2021 12:10
Frumstæðasta kvika sem komið hefur upp í 7000 ár Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir niðurstöður rannsókna á hraunsýnum úr eldgosinu í Geldingadal mjög athyglisverðar og spennandi. 23.3.2021 12:06
Leigja hótel og skikka fólk af eldrauðu svæðunum í sóttvarnahús Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tvær tillögur sóttvarnalæknis um aðgerðir er tengjast landamærunum og kórónuveirufaraldrinum. 23.3.2021 11:46
Þjóðverjar skella í lás yfir páskana Sóttvarnaaðgerðir í Þýskalandi verða framlengdar um þrjár vikur og hertar verulega yfir páskana. Ástæðan er þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins sem gengur nú yfir Þýskaland og ýmis önnur Evrópuríki. 23.3.2021 11:44
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Við tökum stöðuna á kórónuveirufaraldrinum í hádegisfréttum okkar en jákvæðar fregnir bárust í morgun þegar í ljós kom að eitt smit hafði greinst í gær þrátt fyrir að blikur væru á lofti og var sá í sóttkví. 23.3.2021 11:35
Vatnsskortur hrjáir eitt af hverjum fimm börnum í heiminum Rúmlega 1.4 milljarður manna býr á svæðum þar sem mikill eða mjög mikill vatnsskortur er. 23.3.2021 11:33
Eltihrellirinn ekki gefið sig fram við lögreglu Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um frelsissviptingu, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, hótanir og eignaspjöll og var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær hefur ekki gefið sig fram við lögreglu. 23.3.2021 11:27
Rúmlega 400 manns í sóttkví Þeim fjölgar mjög á milli daga sem eru í sóttkví vegna kórónuveirusmita. Í gær voru tæplega 200 einstaklingar í sóttkví en í dag eru þeir 435 samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. 23.3.2021 11:10
Kynsvall og misnotkun í ástralska þinghúsinu Einn háttsettur ráðgjafi áströlsku ríkisstjórnarinnar hefur þegar verið látinn taka poka sinn eftir að myndbönd af kynsvalli starfsfólks í þinghúsinu voru birt í gær. Kona sem vann fyrir ríkisstjórnina segist hafa verið nauðgað af samstarfsmanni en hún hafi verið beitt þrýstingi um að tilkynna það ekki lögreglu. 23.3.2021 11:03
Reyndust allir tíu vera með brasilíska afbrigðið Skipverjar um borð í súrálskipinu Taurus Confidence sem smitaðir eru af Covid-19 eru allir með brasilíska afbrigðið. Þetta staðfestir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, við Fréttablaðið en raðgreiningu á smitunum er lokið. 23.3.2021 11:03
Löng bílaröð á slóðum gossins Fallegt veður er á suðvesturhorninu í dag og greinilega fjölmargir sem ætlað að nota daginn til að heimsækja gösstöðvarnar við Fagradalsfjall. 23.3.2021 10:50
Gætu lagt fjársektir á þá sem reyna að ferðast frá Englandi Breska ríkisstjórnin ætlar að leggja hundruð þúsunda króna sekt á Englendinga sem reyna að ferðast til útlanda fyrir lok júní. Sektirnar eru hluti af hertum aðgerðum breskra stjórnvalda á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. 23.3.2021 10:32
Guðmundur leiðir Viðreisn í Norðvesturkjördæmi Guðmundur Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar mun leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn. 23.3.2021 10:26
Einn greindist innanlands í gær Einn einstaklingur greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Hann var í sóttkví. 23.3.2021 09:44
Milljarður á ári aukalega til að ná hertum loftslagsmarkmiðum Ríkisstjórnin segist ætla að verja einum milljarði króna aukalega ári í framlög til loftslagsmála næstu tíu árin til þess að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Til stendur að herða aðgerðirnar í landnotkun, landbúnaði og samgöngum. 23.3.2021 09:22
Ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri part dags Eins og veðurspáin er núna þá ætti að vera í lagi að fara að gosstöðvunum fyrri partinn í dag en ekki er mælt með því að fólk sé mikið á ferðinni seinni partinn í dag, það er eftir klukkan fjögur, eða þá að leggja af stað seinni partinn að svæðinu vegna hættu á gasmengun. 23.3.2021 09:02
Ætla að skylda fólk frá áhættusvæðum í farsóttarhús Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlar á fundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í dag að kynna drög að nýjum reglum varðandi fólk sem kemur hingað til lands. 23.3.2021 08:54
Telja AstraZeneca hafa notað úrelt gögn við rannsókn vestanhafs Bandarísk yfirvöld telja að niðurstöður úr umfangsmikilli rannsókn á kórónuveirubóluefni AstraZeneca í Bandaríkjunum hafi stuðst við „úrelt gögn“. Því hafi fyrirtækið mögulega gefið ófullkomna mynd af virkni bóluefnisins. 23.3.2021 08:41
Birta hitamynd af sólarhringsgömlu gosi Veðurstofa Íslands birtir á Facebook-síðu sinni í morgun hitamynd af eldgosinu í Geldingadal sem tekin var rúmum sólarhring eftir að það hófst, það er á laugardagskvöldið 20. mars klukkan 22:38. 23.3.2021 08:14
Rescue Team Finished New Route To The Eruption Site The rescue team Þorbjörn has completed a new hiking route to the eruption site at Geldingadalur. 23.3.2021 08:00
Fjórðu kosningarnar á tveimur árum Þingkosningar fara fram í Ísrael í dag – þær fjórðu á tveimur árum. Almennt er litið á kosningar sem þjóðaratkvæðagreiðslu um forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú. 23.3.2021 07:56
Erfðafræðin mun gjörbreyta læknisfræðinni: Ritrýndi „sakamála“-rannsókn á meintum raðmorðingja Það má spyrja sig að því hvort það sé ekki næg refsing að missa fjögur börn, segir hjartalæknirinn Davíð O. Arnar um mál Kathleen Folbigg, sem var dæmd í 30 ára fangelsi fyrir að myrða börnin sín. Vísindamenn telja hana mögulega saklausa. 23.3.2021 07:42
Kynnti langtímaáætlun um tilslakanir næstu tvo mánuði Dönsk stjórnvöld komust í kvöld að samkomulagi um að danskt samfélag skuli verða opið að mestu þegar allir 50 ára og eldri hafa verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Þá var kynnt ítarleg langtímaáætlun um tilslakanir á sóttvarnareglum næstu tvo mánuði. 22.3.2021 23:59
Dæmdir í fangelsi vegna bílstuldar og líkamsárásar í Sælingsdal Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi á föstudag tvo menn í fangelsi fyrir að hafa stolið bifreið í Reykhólasveit á síðasta ári. Annar mannanna, sem hafði verið sviptur ökuréttindum, ók bifreiðinni undir áhrifum áfengis og amfetamíns og valt hún þegar förinni var heitið suður Vestfjarðarveg við Klofningsveg. 22.3.2021 23:31
Ættu að geta farið nýstikuðu leiðina á einum og hálfum tíma Björgunarsveitin Þorbjörn hefur lokið við að stika gönguleið að gosstöðvunum í Geldingadal. Gönguleiðin hefst við Suðurstrandarveg og sveitin segir að vel búið göngufólk geti farið hana á einum og hálfum klukkutíma. 22.3.2021 22:57
Breska afbrigðið auki líkur á innlögn Ný norsk rannsókn sýnir að fólk er 2,6 sinnum líklegra til þess að þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda ef það smitast af breska afbrigðinu samanborið við upprunalega afbrigðið. Breska afbrigðið hefur verið í mikilli útbreiðslu í Noregi. 22.3.2021 22:38
Nemandi í Laugarnesskóla smitaður af Covid Nemandi í Laugarnesskóla greindist í dag smitaður af kórónuveirunni. Kennari við skólann greindist með veiruna í gær. 22.3.2021 21:37
Hefur drukkið kaffi með öllum forsetum lýðveldisins Hin níutíu og tveggja ára prestsfrú Vigdís Jack hefur nú farið í kaffi til allra forseta lýðveldisins, eftir að Guðni Th. Jóhannesson bauð henni og fjölskyldu hennar heim í dag. Bæði sögðu þau það mikinn heiður að fá að hitta hvort annað. 22.3.2021 21:21
Vel varinn í kringum fárveikan skipstjórann en nú kominn í sóttkví Yfirhafnsögumaður á Reyðarfirði, sem fara þurfti um borð í súrálsskip með veika skipverja innanborðs á laugardag, segir að honum hafi verið illa við að fara um borð. Þá segir hann að ekki hafi fengist upplýsingar um veikindi skipverjanna nema með krókaleiðum. 22.3.2021 21:01
Telur íslenskt lambakjöt henta vel í lamba-salamí Aflagt sauðfjársláturhús í Þykkvabæ hefur öðlast nýtt hlutverk; sem salamí-gerð að ítölskum hætti. Þar er Ítali meðal annars að þróa salamí úr íslensku lambakjöti. 22.3.2021 20:54
Aðstoðuðu á annað hundrað manns í gærkvöldi og í nótt Þrátt fyrir lokanir björgunarsveita og lögreglu að eldgosinu reyndi fólk að komast að svæðinu í dag. Björgunarsveitir og lögregla aðstoðuðu vel á hundrað manns sem reyndu að berja eldgosið augum í gærkvöldi og í nótt. Fjörutíu leituðu á fjöldahjálparstöð í Grindavík. 22.3.2021 20:24
„Víða herjað á störf blaðamanna“: Heimir Már býður sig fram til formanns Blaðamannafélags Íslands Heimir Már Pétursson, fréttamaður á ritstjórn Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Blaðamannafélags Íslands. Hann segir almenna stöðu fjölmiðlunnar og nauðsyn þess að verja kjör blaðamanna ástæðu framboðsins. 22.3.2021 19:18
Ný afbrigði áhyggjuefni fyrir samfélagið Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalann, segir álagið á spítalann hafa aukist upp á síðkastið. Til skoðunar er hvort hækka eigi viðbúnaðarstig spítalans úr óvissustigi yfir á hættustig en ný afbrigði veirunnar munu ekki hafa áhrif á verklag á spítalanum. 22.3.2021 19:02
Opna Suðurstrandarveg með takmörkunum í kvöld Suðurstrandarvegur verður opnaður með takmörkunum í kvöld mánudaginn 22. mars en vegurinn hefur staðið lokaður síðan á fimmtudag, degi áður en eldgos hófst í Geldingadal. 22.3.2021 18:41
Gasgrímur munu ekki hjálpa í súrefnislausum dældum Á morgun spáir hægari vindi við gossvæðið í Geldingadal, sem boðar ekki gott fyrir þá sem höfðu hugsað sér að berja hamfarirnar augum. 22.3.2021 18:41
Helsta áskorunin að bregðast við atvinnuleysi Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir horfurnar hafa batnað og ástæða sé til aukinnar bjartsýni til framtíðar. Allir helstu vísar séu að þróast í rétta átt þessa stundina. 22.3.2021 18:26
Sóttkvíarbrjótar áttu bókað flug heim degi eftir seinni skimun Lögregla á Norðurlandi vestra sektaði tvo ferðamenn um helgina fyrir brot á sóttkví. Eftir komuna til landsins fóru ferðamennirnir í ferðir á bíl og á skíði. Þá áttu þeir bókað flug heim einum degi síðar en niðurstaða seinni skimunar átti að liggja fyrir. 22.3.2021 18:15
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Samfélagssmit er komið upp á landinu og hyggst sóttvarnalæknir leggja til harðari sóttvarnaaðgerðir innanlands og á landamærum. Fjallað verður um smit helgarinnar og mikinn fjölda sem er kominn í sóttkví vegna þeirra í kvöldfréttum Stöðvar 2. 22.3.2021 18:00
Fá falska öryggistilfinningu eftir fyrri skimun og gæta ekki að sér í sóttkví Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir aðstæður á landamærum hafa breyst upp á síðkastið; fleiri greinist nú í seinni landamæraskimun en áður og ljóst að sumir gæti ekki að sér í sóttkví. 22.3.2021 17:56
Tveir smitaðir farþegar um borð í Norrænu Tveir farþegar í Norrænu greindust með kórónuveiruna er þeir komu um borð í ferjuna í Hirtshals í Danmörku. Farþegarnir höfðu báðir framvísað neikvæðu PCR-prófi í samræmi við reglur. Kannað verður við komuna til landsins hvort smitin eru gömul. 22.3.2021 17:15
Telja að tekist hafi að milda efnahagskreppuna Í nýrri fjármálaáætlun fyrir 2022-2026 segir að aðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru hafi skilað miklum árangri og útlitið fram undan sé bjartara en gert var ráð fyrir í fyrra. Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust árið 2020 og reyndist samdráttur umtalsvert minni en áætlað var. 22.3.2021 16:49
Staðfestir höfnun á innflutningi fugla sem voru aflífaðir fyrir þremur árum Tæpur þremur árum eftir að á þriðja hundrað skrautfuglar voru aflífaðir að kröfu Matvælastofnunar hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið staðfest ákvörðun stofnunarinnar um að hafna innflutningi á fuglunum. 22.3.2021 16:41
Stika langstystu leiðina inn á gossvæðið Björgunarsveitarmenn eru þessa stundina að hefjast handa við að stika gönguleið frá Suðurstrandarvegi upp að Nátthagakrika sem er talin vera besta leiðin inn á gossvæðið í Geldingadal. 22.3.2021 16:38
Telja skólann myglulausan og enginn hefur kvartað Aldrei hefur greinst mygla í byggingu Korpuskóla og engar kvartanir eða ábendingar borist vegna rakaskemmda eða loftgæða í Korpuskóla frá árinu 2018 þegar leki kom upp í húsinu. 22.3.2021 16:20
ESB beitir refsiaðgerðum vegna Úígúra og valdaránsins í Búrma Evrópusambandið ákvað í dag að beita fjóra kínverska embættismenn og ellefu yfirmenn í her Búrma refsiaðgerðum vegna mannréttindabrota gegn Úígúrum í Kína annars vegar og valdaránsins í Búrma hins vegar. 22.3.2021 16:10