Heimsmarkmiðin

Vatnsskortur hrjáir eitt af hverjum fimm börnum í heiminum

Heimsljós
Unicef

Rúmlega 1.4 milljarður manna býr á svæðum þar sem mikill eða mjög mikill vatnsskortur er. 

Ný gögn frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, varpa ljósi á að vatnsskortur í heiminum er kominn á hættustig. Rúmlega 1,4 milljarðar manna, þar af yfir 450 milljónir barna í yfir 80 löndum, búa í dag á svæðum þar sem er mikill eða mjög mikill vatnsskortur. Þetta þýðir að eitt af hverjum fimm börnum í heiminum hefur ekki nóg vatn til að uppfylla daglegar þarfir sínar. Alþjóðadagur vatnsins var í gær, 22. mars.

„Öruggt drykkjarvatn er nauðsynlegt fyrir líf og heilsu barna og óhreint vatn getur valdið veikindum eða jafnvel dauða. Vatnsbornir sjúkdómar á borð við kóleru og niðurgangspestir draga árlega hundruð þúsunda barna til dauða á meðan önnur missa af skólagöngu þar sem þau þurfa að ganga langar vegalengdir á hverjum degi til að sækja vatn fyrir sig og fjölskyldur sínar. Þegar vatnsauðlindir minnka geta börn að sama skapi ekki þvegið hendur sínar til að verjast sjúkdómum,“ segir í frétt frá UNICEF.

Til að bregðast við vatnskrísu heimsins hefur UNICEF hleypt að stað nýju átaksverkefni, Water Security for All, til að virkja alþjóðasamfélagið og nýsköpunarfyrirtæki í að bregðast við ástandinu. Hægt er að kynna sér niðurstöður skýrslunnar hér.

Vatnshreinsitöflur á sannargjafir.is

Innan við þrjú prósent af vatnsauðlindum heimsins eru ferskvatn sem verða sífellt af skornari skammti. Áratugir af ofnotkun vatns og mengun ferskvatnsbirgða hefur aukið álagið á vatnsból heimsins. Breytt úrkomumynstur og öfgar í veðurfari vegna hamfarahlýnunar hafa aukið vatnsskortinn enn frekar. Á sama tíma hefur þörfin fyrir vatn aukist vegna fólksfjölgunar, þéttbýlismyndunar og aukinnar eftirspurnar frá meðal annars landbúnaði, iðnaði og orkuframleiðslu. Engin merki eru um að slík eftirspurn minnki á næstu árum.

Skýrsla UNICEF beinir sjónum sínum sérstaklega að 37 „heitum reitum“ þar sem aðstæðurnar eru einna verstar fyrir börn og þar sem grípa þarf til aðgerða tafarlaust. Á þessum lista eru meðal annars Afganistan, Búrkína Fasó, Eþíópía, Haítí, Jemen, Kenía, Nígería, Níger og Pakistan.

UNICEF útvegar hreint vatn á hverjum degi, á hamfarasvæðum, átakasvæðum og sem hluta af vatns- og hreinlætisverkefnum í yfir 90 löndum um allan heim. Áhersla er meðal annars lögð á að tryggja samfélögum og skólum hreinlætisaðstöðu og vatnsdælur, veita fræðslu um hreinlætisvenjur og útdeila vatnshreinsitöflum sem breyta óhreinu vatni í drykkjarhæft á örskotsstundu.

Á hverju ári hefur fólk á Íslandi brugðist við vatnsskorti barna um allan heim með því að gefa vatnshreinsitöflur í gegnum Sannar gjafir UNICEF. Í fyrra voru keyptar 958 þúsund vatnshreinsitöflur á Íslandi sem duga til að hreinsa tæplega 4,8 milljónir lítra af vatni!

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×