Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Milljónabætur vegna frelsissviptingar í alþjóðlegu fjársvikamáli Íslenska ríkið þarf að greiða erlendum karlmanni fjórar og hálfa milljón krónur í miskabætur vegna frelsissviptingar í tengslum við alþjóðlegt fjársvikamál samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á miðvikudag. Manninum var haldið í gæsluvarðhaldi meira en tvöfalt lengur en fangelsisdómur yfir honum hljóðaði upp á. 19.3.2021 11:08
Fyrsti fundur Biden-liða og Kínverja fór ekki vel af stað Fyrsti fundur háttsettra embættismanna Bandaríkjanna og Kína fór harkalega af stað í Alaska í gærkvöldi. Báðar hliðar fóru hörðum orðum um hina fyrir framan myndavélar á viðburði sem við hefðbundnar aðstæður tekur einungis nokkrar mínútur en tók nú tæpa klukkustund. 19.3.2021 10:47
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Fimm greindust á landamærum, allir í seinni landamæraskimun. 19.3.2021 10:40
Lögregla hefur rannsókn á sóttvarnabrotum Solbergs Lögregla í Noregi hefur hafið rannsókn á sóttvarnabrotum norska forsætisráðherrans Ernu Solberg. Greint var frá því í gær að Solberg hafi gerst brotleg við reglur þar sem hún settist til borðs með þrettán öðrum þegar hún hélt upp á sextugsafmæli sitt í lok febrúar. 19.3.2021 09:48
Ráðherra tók þátt í alþjóðlegum fundi um heimsmarkmið sex Guðlaugur Þór Þórðarson sagði endurheimt lands og baráttuna gegn landeyðingu lykilatriði til að tryggja aðgengi allra að hreinu vatni fyrir 2030. 19.3.2021 09:06
Danir gera eins og Svíar og hætta að tala um „Hvíta-Rússland“ Utanríkisráðuneyti Danmerkur hefur greint frá því að hætt verði að notast við nafnið Hvíta-Rússland, það er Hviderusland, og að framvegis verði notast við nafnið Belarus um landið. Er það gert eftir óskir frá stjórnarandstöðunni í landinu. 19.3.2021 08:44
„Mamma“ Samia fyrsta konan á forsetastóli í Tansaníu Samia Suluhu Hassan varð í dag fyrsta konan til þess að gegna embætti forseta Tansaníu þegar hún sór embættiseið. Hassan var varaforseti Johns Magufuli sem er sagður hafa látist úr hjartaáfalli í vikunni. Hún nýtur virðingar á meðal landsmanna sem kalla hana „Mömmu“ Samiu. 19.3.2021 08:40
Jón Karl endurkjörinn og ný stjórn tekin við Jón Karl Ólafsson var endurkjörinn formaður Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á aðalfundi ráðsins í gærkvöldi. Hann tók fyrst við formennsku í Verði árið 2018, en hann var einn í framboði nú og því sjálfkjörinn. 19.3.2021 08:20
Ísland enn eina „græna“ land álfunnar Aftur er Ísland eina land Evrópu sem skilgreint er sem „grænt“ á nýuppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Auk Íslands eru tvö fylki í Noregi skilgreind sem „græn“. 19.3.2021 07:59
Banaslys á Reykjanesbraut rakið til ölvunaraksturs Ökumaður sem lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut 12. janúar 2020 var undir áhrifum áfengis við aksturinn. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar samgönguslysa sem birti skýrslu sína um slysið í gær. 19.3.2021 07:54
Hyggst láta bólusetja sig með AstraZeneca til að fullvissa Breta um öryggi Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hyggst láta bólusetja sig með bóluefni AstraZeneca til að fullvissa Breta um að bóluefnið sé öruggt. Nokkurrar tortryggni hefur gætt í garð bóluefnisins eftir að tilkynningar bárust um alvarlegar aukaverkanir. 19.3.2021 07:43
Sóttvarnalæknir ákveði næsti skref nú þegar EMA hefur veitt AstraZeneca blessun sína Forstjóri Lyfjastofnunar segir að niðurstaða Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) á hugsanlegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við kórónuveirunni sýni að ávinningur af notkun þess sé meiri en hugsanleg áhætta sem fylgir því að fá Covid-19. 18.3.2021 23:59
Tveir fluttir á slysadeild eftir umferðarslys Rétt fyrir klukkan sex í kvöld barst lögreglu tilkynning um umferðarslys. Báðar bifreiðar voru óökufærar eftir slysið og ökumenn þeirra fluttir á slysadeild, en áverkar virtust minniháttar við fyrstu skoðun að því er fram kemur í dagbók lögreglu í kvöld. 18.3.2021 23:38
Erna Solberg braut sóttvarnareglur í ferð með fjölskyldunni Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, braut sóttvarnareglur í febrúar þegar hún borðaði kvöldverð með þrettán öðrum. Þetta kemur fram í frétt norska ríkisútvarpsins NRK en brotið átti sér stað á meðan Solberg var í fríi í skíðabænum Geilo þar sem hún hélt upp á sextugsafmæli sitt. Þar var hún stödd ásamt fjölskyldu, tveimur systrum sínum og fjölskyldum þeirra. 18.3.2021 23:08
Stígur fram og sakar Armie Hammer um nauðgun 24 ára gömul kona, sem gengur undir nafninu Effie, hefur stigið fram og sakað leikarann Armie Hammer um andlegt og kynferðislegt ofbeldi í fjögurra ára sambandi þeirra. Samband þeirra stóð yfir með hléum á sama tíma og hann var giftur fyrrverandi eiginkonu sinni Elizabeth Chambers. 18.3.2021 22:31
„Ég held að það hafi ekki kviknað í af sjálfu sér“ Betur fór en á horfðist í fyrstu þegar eldur kviknaði á iðnaðarsvæðinu við höfnina á Eskifirði. Tilkynnt var um eldinn skömmu eftir klukkan átta í kvöld sem reyndist loga í laxapoka á athafnasvæði Egersund Island. 18.3.2021 22:06
Óttast þriðju bylgjuna og skella í lás Útgöngubann verður sett á í frönsku höfuðborginni París í ljósi þess að kórónuveirusmitum fer fjölgandi. Síðasta sólarhringinn greindust 35 þúsund í Frakklandi og verður gripið til sambærilegra aðgerða á fimmtán svæðum til viðbótar. 18.3.2021 21:14
The Sun réði einkaspæjara til að fá upplýsingar um Meghan Breska götublaðið The Sun borgaði bandaríska einkaspæjaranum Daniel Hanks fyrir að sækja upplýsingar um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, á fyrstu stigum sambands hennar við Harry Bretaprins. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið í kvöld. 18.3.2021 19:58
Fossvogsskóli líklega sameinaður öðrum skóla Fossvogsskóli verður að líkindum sameinaður öðrum grunnskóla á meðan fundin verður lausn á mygluvanda í húsnæðinu. Ekki kemur til greina að rífa skólann. 18.3.2021 19:01
Gömul byssa kom upp með síðustu skóflunni Húseigandi á Seltjarnarnesi sem vinnur að endurbótum á húsinu sínu gróf niður á forvitnilegan hlut þegar forláta byssa kom upp með skóflunni. Ljóst er að byssan hefur legið lengi í jörðu en finnandinn hefur á huga á að fá hana til varðveislu. 18.3.2021 19:01
Bein útsending: Síðasta prófið fyrir fyrsta skotið til tunglsins Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og Boeing munu í kvöld kveikja á fjórum hreyflum fyrstu eldflaugarinnar sem skjóta á á braut um tunglið seinna á árinu. 18.3.2021 19:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá nýjustu vendingum í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn en í dag tóku nýjar sóttvarnareglur gildi. 18.3.2021 18:00
Yfir hundrað í sóttkví vegna smitsins sem greindist í gær Rúmlega hundrað einstaklingar hafa verið sendir í sóttkví í tengslum við kórónuveirusmitið sem greindist utan sóttkvíar í gær. Enn liggur ekki fyrir hvort um sé að ræða hið svokallaða breska afbrigði veirunnar en búist er við að raðgreiningu ljúki í kvöld. 18.3.2021 17:27
Þingmenn Samfylkingar vilja aukið framboð grænkerafæðis Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis. Aðrir þingmenn flokksins styðja tillöguna. 18.3.2021 16:25
Loka fyrir umferð á Suðurstrandarvegi í kvöld og í nótt Suðurstrandarvegi verður lokað klukkan 18 á eftir og fram á morgun hið minnsta. Er það gert vegna ástands vegarins í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga. 18.3.2021 16:21
Lyfjastofnun Evrópu gefur AstraZeneca grænt ljós Lyfjastofnun Evrópu (EMA) segir að bóluefni AstraZenica sé öruggt og skilvirkt. Að kostir þess skyggi á áhættu og að notkun þess feli ekki í sér aukna áhættu á blóðtöppum. Frekari rannsókna væri þó þörf. 18.3.2021 16:13
Yfir 50 starfsmenn Landspítala í sóttkví vegna smitsins sem greindist í gær Fleiri en 50 starfsmenn sem tilheyra 28 starfseiningum Landspítala verða sendir í sóttkví og skimun vegna Covid-19 smitsins sem greindist utan sóttkvíar í gær. Þetta kemur fram á Facebook-síðu spítalans. 18.3.2021 16:13
Covid-kreppa Trump Á meðan margir milljarðamæringar hafa hagnast gríðarlega síðustu misseri hefur öðrum ekki farnast jafn vel í heimsfaraldrinum sem nú gengur yfir. 18.3.2021 16:01
Mál ferðafélagans fer aftur fyrir Landsrétt Hæstiréttur hefur ómerkt fimm ára dóm yfir Jerzy Wlodzimierz Lubaszka sem féll í Landsrétti í desember 2019. 18.3.2021 15:57
Heiðskírt með 400 metrum á sekúndu Veðurofsinn í heiðhvolfi Júpíters, stærstu reikistjörnu sólkerfisins, hefur nú verið mældur beint í fyrsta skipti. Vindhraðinn mældist ríflega 400 metrar á sekúndu við heimskaut gasrisans og telja stjörnufræðingar veðurfyrirbrigðið einstakt í sólkerfinu. 18.3.2021 15:56
Inga Sæland fékk að vita hverjir eru í sviðsljósinu hjá RÚV Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er sú sem kemur langoftast fyrir í fréttum og í þáttagerð starfsmanna Ríkisútvarpsins. Sigurður Páll Jónsson þingmaður Miðflokksins kemst varla á blað. 18.3.2021 15:50
Átján í sóttkví hjá Mími vegna smitsins í gær Sautján nemendur og einn kennari hjá Mími eru nú í sóttkví eftir að nemandi greindist með Covid í gærkvöldi. Fram kemur í tilkynningu frá Mími að gripið hafi verið til allra nauðsynlegra ráðstafana til að hindra útbreiðslu smitsins. 18.3.2021 15:26
Botnvörpuveiðar taldar losa jafnmikið og flugsamgöngur Allt að milljarður tonna af koltvísýringi losnar út í höf jarðar vegna botnvörpuveiða á ári, meira en losnar frá samgöngum út í loftið. Þetta er á meðal bráðabirgðaniðurstaðna nýrrar rannsóknar á hvernig þjóðir geta barist gegn loftslagsbreytingum og hruni vistkerfa hafsins. 18.3.2021 15:09
Kröfu lögreglu um gæsluvarðhald hafnað Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri. Krafan var lögð fram í þágu rannsóknar lögreglu er varðar meðal annars meint brot mannsins gegn nálgunarbanni. 18.3.2021 15:03
Hefur ekki hugmynd um hvernig hann smitaðist Á fjórða tug hið minnsta eru í sóttkví eftir að starfsmaður ION hótela á Nesjavöllum greindist með kórónuveiruna í gær. Starfsmaðurinn hefur ekki verið við vinnu síðan í byrjun mars en sótti þó starfsmannagleði á sunnudag. Eigandi hótelsins segir starfsmanninn ekki hafa hugmynd um hvernig hann smitaðist. 18.3.2021 14:36
Spánn fjórða Evrópuríkið til að lögleiða dánaraðstoð Spænska þingið samþykkti í dag að heimila dánaraðstoð og líknardráp hjá sjúklingum sem glímt hafa við ólæknandi sjúkdóma til að gefa þeim möguleika á að binda enda á þjáningar sínar. Spánn verður þar með sjöunda ríki heims til að lögleiða dánaraðstoð og það fjórða í Evrópu. 18.3.2021 14:04
Ekki lengur þörf á að tilkynna fæðubótarefni né íblöndun koffíns í litlu magni Matvælaframleiðendur og dreifingaraðilar þurfa ekki lengur að tilkynna markaðssetningu orkudrykkja sem innihalda minna en 320 mg/l af koffíni. 18.3.2021 14:02
Óþolandi staða Efla þarf Verðlagsstofu skiptaverðs sem þarf að hafa burði til þess að bera saman afurðaverð á erlendum mörkuðum og afurðaverð hér á landi. Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 18.3.2021 13:50
Ætla ekki að tala við Bandaríkin án ívilnana Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast ekki ætla að ræða við Bandaríkjamenn um mögulega afvopnun, fyrr en Bandaríkin hafa látið af „fjandsamlegri“ stefnu sinni gagnvart einræðisríkinu. Meðlimir ríkisstjórnar Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hafa reynt að ná sambandi við kollega sína í Norður-Kóreu frá því í febrúar en án árangurs. 18.3.2021 13:40
Fjórar handtökur og húsleit á sex stöðum í tengslum við morðið í Rauðagerði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra í morgun í tengslum við rannsókn Rauðagerðis-málsins svokallaða og framkvæmdi húsleit á sex stöðum í umdæminu og utan þess. 18.3.2021 13:07
„Ég tel mig sem sóttvarnalækni ekki bundinn af þessu litakóðunarkerfi“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur ákveðnar áhyggjur af því fyrirkomulagi sem stjórnvöld hafa boðað á landamærunum þann 1. maí næstkomandi. 18.3.2021 13:04
Krefjast þess að fá sæti við borðið þar sem loftslagsmálin eru rædd Verkalýðshreyfingin þarf að eiga sæti við borðið til að hægt sé að tryggja réttlát umskipti yfir í kolefnislaust samfélag. 18.3.2021 12:41
Telja blóðtappa heiftarleg ónæmisviðbrögð við bóluefninu Rannsakendur við Háskólasjúkrahúsið í Osló telja að bóluefni AstraZeneca hafi valdið blóðtappa í þremur heilbrigðisstarfsmönnum þar. Efnið hafi valdið sterku ónæmissvari í fólkinu sem hafi orskaða blóðtappa. 18.3.2021 12:30
Pashinyan boðar til kosninga Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, boðaði í morgun til þingkosninga í landinu sem eiga að fara fram 20. júní. Mikil spenna og óvissa hefur verið í armenskum stjórnmálum síðustu mánuði eftir hin vopnuðu átök Armena og Asera um Nagorno-Karabakh. 18.3.2021 12:16
Von á niðurstöðu um eittleytið Lyfjastofnun Evrópu fundar nú um bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni og mögulegt orsakasamhengi við blóðtappa. Niðurstöðu er að vænta um klukkan eitt. 18.3.2021 12:01