Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gleðileg jól, kæru lesendur Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sendir lesendum Vísis nær og fjær sínar bestu óskir um gleðileg jól. Kveðjunni fylgja nokkrar jólamyndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, tók í desember. 24.12.2020 16:00
Sögulegur tölvupóstur lögreglu kom upp um ráðherra Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra sætir töluverðri gagnrýni fyrir veru sína í opnu húsi í Ásmundarsal við Freyjugötu í miðborg Reykjavíkur. Bjarni hefur beðist afsökunar á að hafa ekki yfirgefið listasafnið þegar hann áttaði sig á því að fjöldinn væri umfram takmarkanir. Hann hefur ekki svarað símtölum fjölmiðla það sem af er degi. 24.12.2020 15:17
Brexit-samningur í höfn Samkomulag um útgöngusamning Breta úr Evrópusambandinu er í höfn eftir að samninganefndir Evrópusambandsins og Breta náðu samkomulagi í dag. 24.12.2020 15:07
„Það hefur engu verið stolið frá okkar góða sóttvarnarlækni“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að hann hafi hafið samskipti sín við bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer án þess að ræða við sóttvarnalækni „og svo sannarlega án þess að sækja til hans hugmyndir eða tillögur.“ 24.12.2020 14:11
Fjöldi fólks reynir að komast í forgangshóp vegna bóluefnis Töluverður fjöldi Íslendinga hefur óskað eftir því að komast í forgangsröð hvað varðar bólusetningu með bóluefni Pfizer. Þetta segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnaráðherra, í samtali við fréttastofu. 24.12.2020 14:00
Svandís segir sóttvarnaráðstafanir til þess að fara eftir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra vildi ekki tjá sig sérstaklega um mál Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þegar fréttastofa leitaði eftir því í dag. Bjarni var í gærkvöldi viðstaddur samkomu í Ásmundarsal sem lögregla leysti upp vegna brota á samkomutakmörkunum. 24.12.2020 14:00
„Bjarni hlýtur að vera að íhuga stöðu sína og jafnvel afsögn“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir það mjög vond skilaboð að fulltrúar stjórnvalda sem setji sóttvarnareglur fari ekki sjálfir eftir þeim. Það sé grafalvarlegt og ráðherra þurfi að íhuga það alvarlega hvort þjóðin beri enn traust til hans. 24.12.2020 12:35
Eigendur Ásmundarsalar segjast hafa misst yfirsýn Aðstandendur Ásmundarsalar, þar sem samkvæmi sem lögregla leysti upp í gærkvöldi og Bjarni Benediktsson var á meðal gesta, biðjast afsökunar á að hafa misst yfirsýn yfir fjölda gesta viðburðarins. 24.12.2020 12:24
Segir samkvæmið geta hleypt af stað ofurdreifaraviðburði Jón Magnús Jóhannesson, deildarlæknir á Landspítalanum, kallar eftir því að Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra segi af sér eftir að hafa verið viðstaddur 40 til 50 manna samkomu í gærkvöldi. 24.12.2020 12:09
Fréttatími Stöðvar 2 Fréttatími Stöðvar 2 í dag er klukkan tólf á hádegi. Fréttirnar verða sagðar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar, og að sjálfsögðu á Vísi. 24.12.2020 11:44
Segir Kára ekki hafa átt frumkvæði að viðræðum við Pfizer Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að hann hafi sjálfur viðrað þá hugmynd við bóluefnaframleiðandann Pfizer að Ísland verði rannsóknarsetur fyrir fjórða fasa rannsókn á bóluefninu. Það hafi ekki verið Kári Stefánsson sem hafi fyrstur haft samband við Pfizer hvað þetta varðar. 24.12.2020 11:37
Sýnist að sóttvarnareglur hafi verið brotnar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að þær upplýsingar sem fram hafa komið um samkvæmi sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra var viðstaddur í gærkvöldi bendi til þess að sóttvarnareglur hafi verið brotnar. 24.12.2020 11:18
Gular viðvaranir í kvöld og éljagangur á morgun Gular viðvaranir eru í gildi á landinu í kvöld og nótt vegna úrkomu og vinds. Suðvestan 15-25 m/s og mikil úrkoma á vestanverðu landinu í dag. Talsverð hlýindi en hægari vindur á Austurlandi fram á kvöld. 24.12.2020 11:05
Bjarni biðst afsökunar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu á Facebook, eftir að greint var frá því að lögregla hefði leyst upp fjölmennt samkvæmi sem hann og eiginkona hans voru viðstödd. 24.12.2020 10:49
Netverjar bregðast við: „Hvaða ráðherra var í partíi í gær er besti jólaleikur ever“ Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var viðstaddur 40-50 manna gleðskap í Ásmundarsal í gærkvöldi, að því sem heimildir fréttastofu herma. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af veislunni og leysti hana upp á ellefta tímanum í gærkvöldi. 24.12.2020 10:27
Sjö greindust með veiruna í gær Sjö manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Af þeim voru fimm í sóttkví. Alls voru tekin 1.202 sýni innanlands. 24.12.2020 10:16
Bjarni Ben í Ásmundarsal þar sem lögregla leysti upp samkvæmi Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra, var staddur í gleðskap í Ásmundarsal sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leysti upp á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þetta herma heimildir fréttastofu. 24.12.2020 09:50
Ummæli ársins 2020: Þetta Covid sem enginn þekkti, hlýðnir Akureyringar og sauðfjárbúskapur sem lífsstíll Líkt og undanfarin ár rifjar Vísir upp eftirminnileg ummæli sem fallið hafa á árinu sem er að líða. Í flestum þeirra endurspeglast nokkur af stærri fréttamálum ársins. 24.12.2020 09:01
Kári í óformlegum viðræðum um bóluefni fyrir Ísland Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, hefur átt í óformlegum viðræðum við lyfjaframleiðendur á borð við Pfizer og Moderna með það fyrir augum að reyna að tryggja Íslendingum aðgang að bóluefni við kórónuveirunni. Hann hefur efasemdir um að samvinna við Evrópusambandið í þeim efnum sé vænlegasta leiðin til árangurs. 24.12.2020 08:44
Ráðherra í fjölmennu samkvæmi sem lögregla stöðvaði Ráðherra í ríkisstjórn Íslands var á meðal 40-50 gesta í samkvæmi í sal í miðbæ Reykjavíkur sem lögregla hafði afskipti af í gær vegna brota á samkomutakmörkunum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki kemur fram um hvaða ráðherra er að ræða. 24.12.2020 08:22
Milljónir skammta af bóluefni sitja ónotaðir í Bandaríkjunum Afar ólíklegt er að það takist að bólusetja þær tuttugu milljónir manna sem stefnt var að í Bandaríkjunum á fyrsta mánuði bólusetningar. Búið er að dreifa um tíu milljónum skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech annars vegar og Moderna hins vegar til sjúkrahúsa og ríkja í Bandaríkjunum. 24.12.2020 08:01
Danska þjóðkirkjan leggur til að jólamessu verði aflýst Danska þjóðkirkjan hvatti til þess fyrr í kvöld, kvöldið fyrir aðfangadag, að öllum jólaguðsþjónustum fram til 3. janúar verði aflýst. Þetta þýðir að þjóðkirkjan mælist til þess að engar jólamessur fari fram á aðfangadag. Joy Mogensen, menningarmálaráðherra Danmerkur, styður þau tilmæli biskupsumdæma landsins, sem þjóðkirkjan tekur undir, um að rétt sé að aflýsa jólamessum. 23.12.2020 23:55
Trukkastjóri vill að borað verði í fjöllin milli Bíldudals og Patreksfjarðar Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna alvarlegs ástands þjóðvega á sunnanverðum Vestfjörðum. Eigandi flutningafyrirtækis, sem misst hefur þrjá trukka á vestfirskum vegum, segir að bora verði í gegnum fjöllin milli Bíldudals og Patreksfjarðar. 23.12.2020 23:37
Enn stritað við samningaborðið vegna Brexit-samnings sem er „innan seilingar“ Samninganefndir Breta og Evrópusambandsins sitja enn við samningaborðið um Brexit-samning sem sagður er vera „innan seilingar.“ 23.12.2020 22:56
Aftur leggur Trump stein í götu þingsins Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, beitti neitunarvaldi sínu í dag þegar hann neitaði að skrifa undir lög um útgjöld vegna varnarmála. Lögin voru samþykkt í báðum deildum Bandaríkjaþings með yfirgnæfandi meirihluta. 23.12.2020 22:14
Héraðsbúar gerðu heimagerðan jólaís handa Seyðfirðingum Íbúar Múlaþings hafa margir hverjir tekið sig til að búið til heimagerðan jólaís og gefið Seyðfirðingum. Heldur óvenjuleg jól blasa við fjölmörgum Seyðfirðingum í ár í kjölfar náttúruhamfarananna sem þar hafa riðið yfir. 23.12.2020 21:53
„Jólaóskin í ár“ að Ísland undirriti samning um bann við kjarnorkuvopnum Friðargangan féll niður í ár sökum kórónuveirufaraldursins og voru kyndilberar og kórsöngvarar því fjarri góðu gamni í miðbæ Reykjavíkur þessa Þorláksmessu. Þrátt fyrir þetta var nokkuð margt um manninn í miðborginni í kvöld. 23.12.2020 21:17
Jólasveinninn í bullandi vandræðum yfir Bandaríkjunum Óhætt er að segja að jólasveinninn hafi lent í vandræðum yfir Sacramento-borg í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna á dögunum. Slökkviliðsmenn þurftu að koma honnum til bjargar eftir að hann flaug á rafmagnslínur. 23.12.2020 20:59
Telur kórónuveiruna ekki eiga roð í skötulyktina Eigandi Múlakaffis hefur vart haft undan við að afgreiða skötu ofan í borgarbúa í aðdraganda jólanna. Gestir létu vel að skötunni í ár og nokkrir sögðust sannfærðir um að kórónuveiran ætti ekki roð í lyktina. 23.12.2020 20:35
100 ára og finnur engin eftirköst kórónuveirunnar Guðrún Valdimarsdóttir, sem er að vera hundrað og eins árs og býr á Sólvöllum á Eyrarbakka segist ekki finna nein eftirköst af Kórónuveirunni, sem hún fékk í vetur. Hún styttir sér stundir með að fara með ljóð eftir sjálfan sig en Guðrún er mjög hagmælt og hefur gefið út ljóðabók. 23.12.2020 20:07
Hlé gert á hreinsunarstörfum vegna jóla og veðurspár Hlé hefur verið gert á hreinsunarstörfum og viðgerðum á Seyðisfirði, eftir skriðuföll síðustu daga, vegna óhagstæðrar veðurspár og jólahátíðar. 23.12.2020 19:39
Norðmaður vann 4,5 milljarða Það er óhætt að segja að jólin verði sérstaklega ánægjuleg í ár hjá stálheppnum Norðmanni sem vann 4,5 milljarða í Víkingalottóinu í kvöld. 23.12.2020 19:34
„Myślę, że ludzie najwyraźniej mnie nie słuchają” Epidemiolog wielokrotnie prosił obywateli, aby poważnie potraktowali jego ostrzeżenia i ograniczali spotkania z innymi oraz dbali o kontrolę zakażeń osobistych. 23.12.2020 19:19
Błotna lawina zniszczyła czternaście domów w Seyðisfjörður W wyniku błotnych lawin, które zeszły w ubiegłym tygodniu we wschodniej Islandii, czternaście budynków zawaliło się lub zostało całkowicie zniszczonych. 23.12.2020 18:45
Gular viðvaranir í gildi á aðfangadag Gular viðvaranir vegna veðurs taka gildi víða um land á morgun, aðfangadag. Búist er við talsverðri rigningu við Faxaflóa, Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Samhliða má búast við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem hefur í för með sér aukna hættu á á flóðum og skriðuföllum. 23.12.2020 18:41
Fyrir/eftir myndband sýnir gapandi sárið í fjallinu Þrívíddarmyndband sem starfsfólk verkfræðistofunnar Eflu sýnir glögglega hversu stór hluti fjallsins féll niður er stóra skriðan féll á þéttbýlið í Seyðisfirði síðastliðinn föstudag. 23.12.2020 18:40
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar ákærður Skipstjórinn á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið ákærður fyrir brot á sjómannalögum eftir að grunur kom upp um kórónuveirusmit um borð. Tuttugu og tveir skipverjar sýktust af veirunni. 23.12.2020 18:26
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar tökum við stöðuna á Seyðisfirði þar sem um hundrað íbúar neyðast til að vera annars staðar en heima hjá sér um jólin vegna þess að horfur eru á hlýnandi veðri eystra. Hreinsunarstarf hófst í bænum í dag. 23.12.2020 18:01
„Ég held að fólk sé greinilega ekki að hlusta á mig“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það sé greinilegt að fólk sé ekki að taka mark á varnaðarorðum hans þegar litið er til þeirrar mannmergðar sem blasir við víða nú í aðdraganda jólahátíðarinnar. Mikil bílaumferð sýni glögglega að fólk sé á ferð og flugi á Þorláksmessu. Þórólfur hefur biðlað til fólks að takmarka mjög hittinga, sinna persónulegum smitvörnum og almennt að draga úr hraðanum í lífinu. 23.12.2020 17:57
„Ég var skítlogandi hræddur eins og allir“ Bjarki Borgþórsson lögreglumaður og snjóeftirlitsmaður á Seyðisfirði lenti í skriðunni miðri og hélt að hann væri að upplifa sitt síðasta. Hann segir þetta afar áhugaverða lífsreynslu. 23.12.2020 17:15
Allt að fimm ára fangelsi fyrir að saka einhvern um nauðgun á netinu Neðri deild Dúmunnar, rússneska þingsins, hefur samþykkt frumvarp sem snýr að því að hægt verði að dæma fólk í fangelsi fyrir að ófrægja aðra á netinu eða í fjölmiðlum. Enn á efri deild þingsins að samþykkja frumvarpið og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, að skrifa undir það, svo það verði að lögum. 23.12.2020 16:49
Fá raunveruleg tilvik kosningasvindls hafa fundist Þrátt fyrir umfangsmikla leit Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, og bandamanna hans að kosningasvindli í lykilríkjum í Bandaríkjunum, og ásakanir um að slíkt svindl hafi kostað Trump sigur í forsetakosningunum í byrjun nóvember, hafa tiltölulega fá og umfangslítil tilvik fundist. Örfá hafa leitt til ákæra. 23.12.2020 16:04
Enn eitt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum: Hefur stökkbreyst meira Tvö tilfelli nýs afbrigðis SARS-CoV-2 frá Suður-Afríku hafa greinst í Bretlandi. Heilbrigðisráðherra landsins hefur biðlað til þeirra sem hafa ferðast frá Suður-Afríku til Bretlands á síðustu tveimur vikum um að einangra sig. 23.12.2020 15:41
Reuters hefur eftir heimildarmanni að Brexit-samningur sé svo gott sem í höfn Samningar milli Evrópusambandsins og Bretlands nást mögulega á næstu klukkustundum, hefur Reuters eftir heimildarmanni hjá ESB. Ef rétt reynist hefur því þá verið forðað að svokallað aðlögunartímabil taki enda um áramót með ófyrirsjáanlegum efnahagslegum afleiðingum. 23.12.2020 15:24
Asahláka morgundagsins gæti ógnað stöðugleika í hlíðunum Þrátt fyrir að veðurútlitið fyrir daginn í dag sé með besta móti og að stöðugleiki í hlíðum Seyðisfjarðar hafi aukist til muna er veðurspáin fyrir morgundag, aðfangadag, alls ekki hagstæð. Blessunarlega er þó ekki útlit fyrir verulega úrkomu á Seyðisfirði samfara hlýindum sunnanáttarinnar. 23.12.2020 14:16