Fleiri fréttir

Færri aka á nagladekkjum en áður

Færri bifreiðar fara um götur borgarinnar á nagladekkjum en áður. Þrátt fyrir ófærð og hálku í desember 2014 fjölgaði ekki nagladekkjum.

Lifir af himinhátt fall

Lætur sig falla ofan af hárri vegabrú, lendir á bakinu og stendur stráheill upp.

Braust inn í sundlaug og fór í gufubað

Lögreglan handtók karlmann á þrítugsaldri á innbrotsstað í sundlaug í Hafnarfirði um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Hann var þar í mestu makindum í gufubaði þegar laganna verðir komu að honum. Ekki kemur fram hvort hann var undir áhrifum áfengis eða fíkniefna, eða hvort hann hafi ætlað að stela einhverju í leiðinni.

Hefja leit neðansjávar í dag

Leit neðansjávar að flaki farþegaþotu AirAsia sem fórst í Jövuhafi á sunnudag hefst í dag. Sérhæfður leitarflokkur frá Frakklandi er kominn á staðinn með tæki og tól sem notuð eru til þess að finna svörtu kassa flugvélarinnar sem gefa upplýsingar um hvað varð þess valdandi að vélin fórst.

Biðja fólk um að leggja sér lið við flugeldaruslið

„Við höfum óskað eftir því að fólk hirði upp eftir sig sjálft flugeldaleifar af því sem það er að skjóta,“ segir Eygerður Margrétardóttir, deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá umhverfis og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Læknirinn sækir á borgarstjórann

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er, að mati dómnefndar umræðuþáttarins Sprengisandur á Bylgjunni, stjórnmálamaður ársins 2014.

Tryggingagjöld sjaldan verið hærri

Fyrirtækin í landinu borga hátt í 74 milljarða í tryggingagjöld árlega – 30 milljörðum meira en 2008. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir tvær síðustu ríkisstjórnir hafa rofið samkomulag við atvinnulífið.

Írar skoða vinnslu þörunga í Stykkishólmi

Viðræður eru nú milli írskra eigenda Kalkþörungafélagsins í Bíldudal og bæjaryfirvalda í Stykkishólmi um aðstöðu í bænum fyrir þörungavinnslu. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri segir verkefnið litið jákvæðum augum en að það sé á frumstigi.

Kynferðisbrotum fækkar mest

Hegningarlagabrotum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um fjögur prósent á árinu 2014 samanborið við 2013. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um fjölda helstu brota árið 2014.

Biskup segir allt dregið í efa

"Það er sama hvað sagt er og gert er. Það er allt dregið í efa og stutt er í hugsanir um annarlegan tilgang eða hagsmunapot,“ sagði Agnes M. Sigurðardóttir biskup um þjóðfélagsumræðuna á Íslandi í nýársávarpi.

Votlendi endurheimt innan borgarmarka

Gangi hugmyndir eftir mun Reykjavíkurborg moka ofan í framræsluskurði í Úlfarsárdal til þess að endurheimta votlendi. Gera á úttekt á möguleikum í þessa veru á þessu ári. Fellur vel að stefnumörkun borgarinnar í umhverfismálum.

Hótelskipi stefnt frá Hafnarfirði til Dalvíkur

Aðstandendur hótel- og veitingaskips sem sótt var um að fengi aðstöðu í Hafnarfirði horfa nú til Dalvíkur. Þar vilja menn sjá áætlanir um hvernig eigi að borga framkvæmdir við höfnina og reka skipið til lengri framtíðar.

Einar Kárason til liðs við DV

Rithöfundurinn Einar Kárason hefur verið ráðinn til liðs við DV en þetta kemur fram í frétt á vefsíðu DV.

Eggert Þór Bernharðsson látinn

Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur og rithöfundur, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Reykjavík á gamlársdag.

Gleði og samstaða í boðhætti

Katrín Jakobsdóttir formaður VG segir að það sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra talaði ekki um í áramótaávarpi sínu hafi vakið mesta athygli sína.

Örugglega síðasta kjörtímabil Ólafs Ragnars

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson gaf engin fyrirheit í nýársávarpi sínu í dag um hvort hann hyggðist sitja áfram í embætti eða stíga til hliðar þegar kjörtímabilinu lýkur árið 2016.

„Hún er fullkomin“

Þetta segja Gróa Jóelsdóttir og Sigurmon Hartmann Sigurðsson, nýbakaðir foreldrar barnsins sem fæddist fyrst á nýju ári og ræddu við Stöð 2.

Ellefu fengu fálkaorðuna

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag sæmdi forseti Íslands ellefu Íslendinga heiðursmerki hinar íslensku fálkaorðu.

Sjá næstu 50 fréttir