Fleiri fréttir

Geta ekki beðið eftir að fá Geir heim

"Það er ótrulegt hvernig svona góður maður getur þrifist á svona hræðilegum stað." Þetta segja íslenskar mægður sem heimsóttu fangann Geir Þórisson í Greensville-fangelsið í Virginíu í vikunni.

Vísa í 120 ára dæmi um gjald við Geysi

Heimild til að innheimta gjald fyrir aðgang að Geysissvæðinu finnst í skjölum frá 1894 að sögn landeigenda. Þeir hafna lögbannskröfu ríkisins á gjaldheimtu af ferðamönnum. Ríkið bauðst til að fjármagna tugmilljóna uppbyggingu á svæðinu.

Standa fyrir vísindadegi

Föstudaginn 14. mars gangast Orkuveita Reykjavíkur og Orka náttúrunnar fyrir vísindadegi, þar sem kynntar verða niðurstöður 18 rannsókna sem færir vísindamenn hafa unnið í samstarfi við fyrirtækin.

Evrópustefna ríkisstjórnarinnar er yfirklór

Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra segir ekkert nýtt í evrópustefnu ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gær. Hún sé yfirklór eftir að ríkisstjórninn hafi farið um eins og flóðhestur í postulínsbúð.

Gríðarlega mikil uppbygging framundan

Uppbygging í Reykjavík stefnir í að verða meiri en nokkru sinni áður, eftir því sem fram kom í erindum á opnum fundi um stöðu atvinnulífs í borginni, sem haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun.

Auglýstu vændi og réðust á kaupanda

Vændiskaupandinn var skorinn á háls, annars vegar frá vinstra kjálkabarði og skáhalt niður á við í átt að hálsæðum, og hins vegar þvert á hálsinn í átt að barkanum.

Ekki óskað eftir upplýsingum um mál Más

Fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabankans segir að bankaráð hafi ekki óskað efir upplýsingum frá henni um mál Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Þingmaður telur að Már eigi að endurgreiða málskostnaðinn

Þykir málatilbúnaður ótrúlega umfangsmikill

"Mér finnst skjalaframlagning og málatilbúnaður ákæruvaldsins í þessu litla máli alveg ótrúlega umfangsmikil,“ segir Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Sigurjóns Árnasonar.

Íslenskur hestur í kviksyndi

Íslenski hesturinn Logi lenti í kviksyndi á Rømø í Danmörku ásamt knapa sínum Therese Thøgerse um helgina.

14 slökkvilið aldrei skilað inn brunavarnaáætlun

Á annan tug slökkviliða á landinu hefur aldrei skilað inn brunavarnaáætlun, eins og lög frá árinu 2000 gera ráð fyrir. Grafalvarlegt að sveitarfélögin hundsi svo mikilvægt atriði, segir forstjóri Mannvirkjastofnunar.

Goðafoss kominn til hafnar

Flutningaskipið Goðafoss kom til Reykjavíkur í gærkvöldi, en sex gámar losnuðu af því og hurfu í hafið þegar skipið fékk á sig brotsjó suðaustur af landinu í fyrrinótt.

Sprenging í ruslagámi í Grindavík

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar hvað olli sprengingu í stórum ruslagámi fyrir utan skólann og Fjölsmiðjuna í Grindavík um ellefu leytið í gærkvöldi.

Sjá næstu 50 fréttir