Vill kynna stefnuna núna vegna umræðu um Evrópumál Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 12. mars 2014 07:00 Utanríkisráðherra segir að ákveðið hafi verið að móta stefnu í Evrópumálum síðastliðið haust. vísir/stefán
Ríkisstjórn Íslands kynnti í gær nýja Evrópustefnu með áherslu á skilvirka framkvæmd EES-samningsins. Einnig er lögð áhersla á áframhaldandi sjálfstæð, virk og náin samskipti og samstarf við Evrópusambandið og aðildarríki. Í stefnunni áréttar ríkisstjórnin einnig mikilvægi þess að Ísland komi fyrr að mótun löggjafar á vettvangi ESB. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir tilvalið að kynna stefnuna núna vegna þeirrar miklu umræðu sem ríkir í samfélaginu um samskipti Íslands við Evrópu. „Síðasta sumar þegar við tilkynntum að við ætluðum að setja viðræður við ESB í hlé þá tókum við fram að við vildum samt eiga gott samstarf við Evrópusambandið og Evrópuríki, og í haust var ákveðið að setja stefnumörkun í þeim málum.“ Í stefnunni er lögð rík áhersla á tvíhliða samstarf við önnur Evrópuríki, samráð við Noreg og Liechtenstein auk norræns og vestnorræns samstarfs. Gunnar Bragi tekur þó fyrir að tilgangur stefnunnar sé að styrkja stöðu Íslands sem lands utan Evrópusambandsins eða til að styðja við þingsályktunartillögu um að hætta aðildarviðræðum. „Nei, alls ekki. Það er sérstök áhersla lögð á EES-samninginn og það kemur skýrt fram að við teljum Evrópusambandsríkin meðal okkar helstu samstarfsaðila. Þetta er mjög spennandi og öll ríkisstjórnin er einhuga að fara þessa leið.“
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira